Fleiri fréttir

Engin skækja!

Leikkonan Scarlett Johansson segist ekki vera nein skækja eins og margir halda. Þvert á móti klæði hún sig upp á opnunum kvikmynda til þess að líta vel út. Hún fer ekki út með hverjum sem er og nælir sér ekki í lifrabólgu.

Paparassi kærir Paris og Benji

Ljósmyndari í Los Angeles er æfur út í Paris Hilton og kærastann hennar, Benji Madden. Hann segir að þau hafi keyrt ítrekað yfir fót hans og stungið svo af.

50 Cent í eróbikk

Rapparinn 50 Cent þarf að hætta að lyfta lóðum og mæta í fleiri eróbikktíma. Þetta eru fyrirmæli frá framleiðendum myndarinnar Microwave Park. Rapparinn leikur lögreglumann í myndinni, og á að vera grannur og spengilegur í hlutverkinu. Hann hefur hinsvegar lyft lóðum af miklum móð undanfarin ár, og þarf því að reyna að losa sig við eitthvað af vöðvunum.

Pabbi Amy vill láta loka hana inni

Hinn áhyggjufulli faðir söngkonunnar Amy Winehouse hefur lýst því yfir að hann vilji láta loka hana inni á meðferðarstofnun. Söngkonan djammglaða hefur átt erfitt með fíkniefni og áfengi síðustu árin.

Fangamyndir fræga fólksins eru list

Listamaðurinn Rachel Schmeidler hefur fundið sér óvenjulegan og allt að því óþrjótandi efnivið. Fangamyndir fræga fólksins.

Skrifar bók um Lindu

Sir Paul McCartney er að skrifa bók um fyrrum eiginkonu sína Lindu. Hinn 65 ára gamli bítill mun þar deila mörgum þeirra frábæru stunda sem þau áttu saman. Hann mun hitta útgefanda í vikunni til þess að fara yfir málin.

Leikur aðalhlutverkið í Englum og djöflum

Leikarinn Ewan McGregor hefur landað aðalhlutverkinu í framhaldsmyndinni af Da Vinci lyklinum. Myndin heitir Englar og djöflar en bókin hefur vakið mikla athygli.

Cleese boðið að dæma bjánagöngu

Yfirvöld í bænum Pcim í Póllandi hafa boðið John Cleese að dæma í keppni í bjánalegu göngulagi sem verður haldin honum til heiðurs.

Rændu glás af Playboy púðum

Flutningalest í Suður-Frakklandi varð á dögunum fyrir barðinu á harðsvíruðum ræningjum. Lestin nauðhemlaði þegar hún kom að hindrunum sem glæponarnir höfðu komið fyrir á teinunum í úthverfi Marseille. Þeir brutu sér leið inn í vagnana og höfðu á brott stóra sendingu af púðum með Playboy merkinu. Að því búnu flúðu þeir, og fannst brunninn bíll þeirra skömmu síðar

Ekkert undir James Brown

Dómari í Suður-Karólínu hefur skipað meintri ekkju James Brown að senda sex ára son sinn, sem hún segir undan sálarkónginum, í DNA próf.

Phil Collins þagnar

Tónlistamaðurinn Phil Collins er hættur. Collins sagði í samtali við Times að hann gæti líklega ekki hætt að semja tónlist, en ekki væri ætlunin að syngja inn á plötur eða koma fram á tónleikum framar.

Eiginkonan vill tíu milljónir á mánuði

Skilnaður Johns Cleese við eiginkonuna virðist ekki jafn vinalegur og hann hélt fram í fyrstu. Parið tilkynnti um skilnaðinn í janúar, og nú er komið að því að ákveða hvernig fjármálunum verður háttað. Og það stefnir í blóðuga baráttu.

Bráðavaktarstjarna vill fá að deyja

Maura Tierney vill láta drepa sig. Hún hefur því stungið upp á því við framleiðendur Bráðavaktarinnar að þeir slátri persónu hennar, Dr. Abby Lockart.

Amy ávítt fyrir að skalla mann

Breska söngkona Amy Winehouse var í morgun ávítt af lögreglu fyrir að hafa skallað mann fyrir utan skemmtistað í Lundúnum aðfararnótt miðvikudags. Winehouse kom sjálfviljug til yfirheyrslu hjá lögreglu í gær vegna málsins.

Uma hittir kúgarann

Maður sem er sakaður um að ofsækja Umu Thurman fær loksins ósk sína uppfyllta þegar hann hittir hana fyrir rétti í New York á mánudaginn.

Pete Doherty les kóraninn

Vandræðabarnið Pete Doherty hefur fundið nýja leið til að róa taugarnar í fangelsinu. Eftir að hann var settur í einangrun í síðustu viku hefur hann lesið Kóraninn af miklum móð, og hugleiðir nú að taka upp múhameðstrú.

Verður barist um síðustu beddana?

„Fólk þarf að fara að hafa hraðar hendur," segir Geir Gestsson, einn aðstandenda heimildamyndahátíðarinnar Skjaldborgar á Patreksfirði. Hann segir stefna hraðbyri í það að gistirými í bænum verði uppbókuð á meðan á hátíðinni stendur. „Það er alveg ótrúlega mikill áhugi á þessu,“ segir Geir.

Amy á leið til yfirheyrslu

Amy Winehouse mætir til yfirheyrslu hjá lögreglu í dag til að skýra sína hlið mála eftir að maður sakaði hana um að hafa skallað sig fyrir utan bar í vikunni.

Dylan fluttur í Laugardalinn

Concert, sem hefur veg og vanda af tónleikum Bob Dylan hér á landi hefur tekið ákvörðun um að færa stórtónleikana þann 26. maí úr Egilshöll í Nýju Laugardalshöllina. Þetta er gert í hagræðingarskyni en að öðru leyti verður fyrirkomulagið óbreytt; áfram er heildarmagn miða í boði 8.000, svæði A tekur 4.000 og svæði B einnig 4.000. Samkomulag hefur náðst við rekstraraðila Egilshallarinnar um þennan ráðhag að því er fram kemur í tilkynningu frá Concert.

Jay-Z slaufar brúðkaupsferðinni

Það er ekki víst að Beyonce sé hrifin af forgangsröðinni hjá nýbökuðum eiginmanni sínum. Jay-Z ákvað að sleppa því að fara með henni í brúðkaupsferð til að missa ekki úr vinnu.

David reynir að barna Victoriu

Beckham hjónin eru að reyna að eignast fjórða barnið. Pabbi Davids lét hafa það eftir sér á dögunum að parið langaði í stelpu, og það staðfesti David svo í viðtali hjá Ellen Degeneres á dögunum þar sem hann sagði að þau væru að „vinna í því" að búa til nýtt barn. Þau væru mikið fjölskyldufólk og hafi alltaf langað í mörg börn. Þau David og Victoria hafa verið gift í næstum níu ár, og eiga fyrir þrjá drengi á aldrinum þriggja til níu ára.

Amy forrík þrátt fyrir sukkið

Endalaust sukk, líkamsárásir og meðferðir virðast ekki hafa haft tilfinnnanleg áhrif á fjármál vandræðabarnsins Amy Winehouse. Söngkonan er metin á tíu milljónir punda, eða tæpan einn og hálfan milljarð króna, og situr nú í fyrsta sinn á lista Sunday Times yfir ríkustu ungu tónlistarmennina. Hann mælir auðæfi breskra tónlistamanna undir þrítugu.

Bjór á bensínverði: 750 lítrar á tveimur tímum

Enski barinn við Austurvöll seldi bjórinn á bensínverði í dag eða á um 160 krónur lítrinn. Arnar Þór Gíslasin eigandi pöbbsins segir tiltækið hafa gengið framar vonum en með þessu vidli hann sýna vörubílstjórum stuðning í verki. 25 bjórkútar, eða 750 lítrar, seldust á tveimur tímum.

Annað slys við tökur á nýju Bond myndinni

Það á ekki af áhættuleikurunum í nýjustu James Bond myndinni að ganga. Í síðustu viku missti einn þeirra stjórn á Bond bílnum með þeim afleiðingum að hann hafnaði úti í Garda vatninu á Ítalíu. Kollegi hans slasaðist síðan alvarlega í dag þegar hann lenti í bílslysi í nágrenninu.

Glímukvendi lamdi eiginmanninn í brúðkaupsferðinni

Það getur verið slæmt að taka vinnuna með sér heim. Þetta ætti American Gladiator stjarnan Erin Toughill að kannast við. Fyrrverandi eiginmaður hennar sótti um nálgunarbann gegn henni í síðustu viku, og segir hana hafa lamið sig í klessu í brúðkaupsferðinni.

Kynþokkafyllsta kona heims

Megan Fox er kynþokkafyllsta kona í heimi, ef marka má lesendur FHM tímaritsins. Fox, sem er þekktust fyrir leik sinn í Transformers, skaust upp fyrir bombur á borð við Angelinu Jolie, Kim Kardashian og vinningshafa síðasta árs, Jessicu Alba.

Alvarlegt slys við tökur á Bond

Áhættuleikari slasaðist alvarlega í gær við tökur á nýju Bond myndinni, Quantum of Solace. Hann lenti í árekstri við annað áhættuleikara, þegar mennirnir voru að taka upp bíleltingarleik á hlykkjóttum vegi við Garda vatn á Ítalíu.

Amy kýlir mann og skallar annan

Meðferðin sem Amy Winehouse fór í á dögunum virðist ekki hafa haft tilætluð áhrif. Lögregla hyggst nú yfirheyra hana eftir að hún réðst á tvo menn á nýlegu skralli.

Vinir Wesley biðjast vægðar

Wesley Snipes, sem er ákærður fyrir stórfelld skattsvik, reynir nú hvað hann getur að sleppa við fangelsisdóm. Hann brá því á það ráð að fá nokkra fræga vini sína til að skrifa dómara í málinu bréf, og biðja um miskunn.

Naomi að verða sköllótt

Svo virðist sem ofurfyrirsætan og skapofsakvendið Naomi Campbell sé að verða sköllótt. Naomi hefur lengi verið með þykkan ennistopp, en við opnun Metropolitan óperunnar í New York í gær skartaði hún nýrri greiðslu. Fyrirsætan var með hárið skipt í miðju, og var engu líkara en stóran lokk vantaði á mitt höfuðið. Sérfræðingar segja að skallablettinn megi mögulega rekja til endalausra hárlenginga, fastra flétta og annarra misþyrminga í þágu tískunnar.

Harðsvíraður Helgi Björns í fylgd nektardansmeyja

„Já, það verður gaman að rifja upp gamla takta frá Sódómu Reykjavík. Þar var ég náttúrlega með mína undirheimastarfsemi í Hafnarfirði en hef nú fært út kvíarnar í höfuðborgina," segir Helgi Björnsson sem leikur undirheimakónginn Lárus eða Lalla í sjónvarpsþáttaröðinni Svartir englar

Semi Pro björninn banaði þjálfara sínum

Skógarbjörn, sem nýlega kom fyrir í Will Ferell kvikmyndinni Semi-Pro, varð þjálfara sínum að bana í gær. Björninn var mikið notaður í kvikmyndum og er talinn sá best þjálfaði í Hollywood.

Boðar breytingar á Morgunblaðinu

"Ég þurfti að hugsa mig aðeins um áður en ég þáði starfið enda búið að vera afskaplega gaman hjá mér í vinnunni síðasta eina og hálfa árið," segir Ólafur Stephensen. Í dag var tilkynnt að hann muni taka við ritstjórn Morgunblaðsins þegar Styrmir Gunnarsson, sem þar hefur ráðið ríkjum síðan 1972, lætur af störfum í júní.

Íslensk stuttmynd á Cannes

Smáfuglar, mynd Rúnars Rúnarssonar, keppir um Gullpálmann fyrir stuttmyndir á Cannes kvikmyndahátíðinni í maí. Á heimasíðu framleiðslufyrirtækisins Zik Zak segir að einungis níu af þeim fimm þúsund myndum sem skoðaðar voru hafi komist í keppnina.

Fedde Le Grand á Broadway í kvöld

Technounnendur þurfa greinilega að þræða partýin í kvöld. Hollenski plötusnúðurinn Fedde Le Grand er á leið til landsins, og spilar á Broadway í kvöld. Fedde er íslendingum að góðu kunnur, en hann heimsótti klakann snemma árs í fyrra. Þá á hann á eitt vinsælasta danslagið í íslensku útvarpi undanfarna mánuði, „Let me think about it. Húsið opnar klukkan 23:00 í kvöld og sjá Techno.is plötusnúðarnir Exos, Sindri BM og Plugg'd um upphitun. Miða er hægt að nálgast í Jack & Jone í Kringlunni og kosta 2500 í forsölu.

Hundrað þúsund hafa horft á This is My Life

Rúmlega hundrað þúsund manns hafa horft á myndband við Evróvisjónframlag Íslands, This is My Life, á síðu slúðurkóngsins Perez Hilton. „Ég hoppaði hæð mína í loft upp þegar ég sá að þetta var komið inn,“ segir Friðrik Ómar. Hann segir það hafa verið draumurinn að koma myndbandinu að á síðum á borð við þessa, en býst þó ekki við frægð og frama Eurobandsins vestanhafs í kjölfarið.

Selja bjór á bensínverði

Mótmæli vörubílstjóra hafa líklega ekki farið framhjá mannsbarni í dag. Öllu friðsamlegri mótmæli fara fram á Enska barnum við Austurvöll milli fimm og sjö á morgun. Þar verður bjórinn seldur á sama verði og bensín - á um 160 krónur lítrinn. Arnar Þór Jónsson eigandi barsins segir jafnvel hugsanlegt fólk sem mætir með dælulykil fái tveggja króna afslátt.

Sjá næstu 50 fréttir