Fleiri fréttir

Spaugstofan var ekki að gera grín að veikindum Ólafs

„Við vorum bara að fjalla um atburði daganna á undan eins og við erum búnir að gera í 20 ár." segir Karl Ágúst Úlfsson Spaugstofumaður sem kannast ekki við það að vegið hafi verið að Ólafi F. Magnússyni borgarstjóra í þætti stofunnar á laugardag.

Davíð Oddsson er ekki nógu skrítinn

„Þetta er tvímælalaust stærsta skref mitt sem eftirherma. Svo er bara spurning hvert þetta leiðir" segir Sólmundur Hólm, en hann vann eftirhermukeppni í þættinum Logi í beinni á föstudag með miklum glæsibrag.

Borat-bikini bannað á ruðningsleikjum

Lögregla í Nýja-Sjálandi hefur bannað karlkyns Borat aðdáendum að klæðast einkennisklæðnaði hans, efnislitlum neongrænum „sundfatnaði" á rúgbý keppnum.

Litla dóttir Frikka Weiss lét bíða eftir sér

Athafnamaðurinn Friðrik Weisshappel og kærasta hans, Tina Holmboe eignaðust dóttur í gær. Stúlkan var þrettán merkur og 51 sentimetri að lengd og heilsast fjölskyldunni litlu vel.

Obama blóm í fallegum garði West Ham aðdáenda

Svo gæti farið að forseti hins frjálsa heims mætti á leiki hjá Íslendingaliðinu West Ham. Mögulegt forsetaefni Demókrata, Barack Obama, er eindreginn stuðningsmaður liðsins.

Angelina blæs lífi í tvíburaorðróm

Angelina Jolie gerði ekkert til að draga úr vangaveltum um að hún gangi með tvíbura þegar hún mætti á SAG verðlaunahátíðina um helgina. Stjarnan grannvaxna mætti í einhverju sem verður best líst sem tjaldi, og skálaði í vatni yfir kvöldmatnum. Þóttust reyndir menn jafnvel sjá kúlu undir herlegheitunum.

Michael Jackson snýr aftur

Lýtalækningaáhugamaðurinn og barnavinurinn Michael Jackson ætlar að snúa aftur í sviðsljósið á árinu, með endurgerð af plötu sinni Thriller. „Ég er að koma aftur með óvænt atriði fyrir aðdáendur mína. Ég hef endurupptekið Thriller með fjölda leynigesta“, sagði Jackson í myndbandsskilaboðum sem voru flutt á verðlaunaathöfn í Cannes um helgina.

Paparassinn ætlar að græða milljónir á Britney

Þrátt fyrir að Britney Spears virðist löngu búin að gleyma honum ætlar Adnan Ghalib, paparassinn góðkunni, ekki að hverfa svo auðveldlega. Hann segist hafa undir höndum sex heimamyndbönd af poppdívunni, og ætlar að mjólka hverja krónu úr sínum fimmtán mínútum af frægð.

Andri Snær og Einar Már á fullum launum í þrjú ár

Úthlutunarnefnd listamannalauna hefur úthlutað starfslaunum til 514 listamanna fyrir árið 2008. Þremur rithöfundum var úthlutað starfslaun í þrjú ár, þeim Andra Snæ Magnasyni, Einari Má Guðmundssyni og Kristínu Steinsdóttur.

Lewis og Christie kosin bestu leikararnir

Það voru Bretarnir Daniel Day Lewis og Julie Christie sem hlutu verðlaunin sem besti leikarinn og besta leikkonan á árlegri verðlaunahátíð Samtaka leikara í Hollywood um helgina.

Tommy Lee sletti úr klaufunum á B5

Tommy Lee, trommari Mötley Crue og fyrrverandi eiginmaður strandvarðarins Pamelu Andersson gerði sér glaðan dag í Reykjavík um helgina þrátt fyrir að erfiðlega hafi gengið að ná til höfuðborgarinnar eins og frægt er orðið.

Buff komst á blótið eftir allt saman

Vísir greindi frá því á föstudagskvöldið að hljómsveitin Buff hefði verið veðurteppt í Kaupmannahöfn og því hefði þurft að kalla inn aðra hljómsveit á þorrablót Stjörnunnar sem fram fór í Garðabænum. Þetta mun þó ekki vera allskostar rétt því drengirnir komust á svið við illan leik eftir að hafa brotist í gegnum veðrið.

Madonna byggir sér líkamsræktarstöð

Vandræði á fjármálamörkuðum víða um heim virðast ekki koma mikið við buddunar hennar Madonnu. Stjarnan var að fjárfesta í húsinu sem stendur við hliðina á heimili hennar í í miðborg Lundúna.

Hlustendaverðlaun veitt í mars

Hlustendaverðlaun FM957 verða veitt í Háskólabíói 8. mars næstkomandi. Þau eru í fyrsta skipti veitt fyrr en íslensku tónlistarverðlaunin, sem veitt verða einni viku síðar. Brynjar Már Valdimarsson á FM957 lofar "ógeðslega flottri“ hátíð.

Stallone á sterum fyrir Rambo og stoltur af því

Silvester Stallone tók inn vaxtahormón (HGH) til þess að gera sig kláran fyrir nýju Rambó myndina sem væntanleg er í kvikmyndahús. Þetta kemur fram í viðtali við kappann í Time tímaritinu. Hann ver þá ákvörðun sína að nota sér lyfið, sem er ólöglegt í flestum íþróttagreinum en mjög erfitt er að greina það í líkamanum.

Angelina ber tvíbura undir belti

Angelina Jolie á von á tvíburum eftir því sem breska blaðið the Sun greinir frá. Það fjölgar því í krakkaskaranum á heimili þeirra Jolie og Brad Pitt en fyrir eiga þau fjögur börn, þar af eru þrjú ættleidd.

Kanína fannst á Kópavogsbraut

Kanína fannst á Kópavogsbraut í Kópavogi í morgun. Stúlkan sem fann hana óskaði liðsinnis Vísis við að hafa uppi á eigandanum. Sá sem saknar kanínunnar sinnar getur haft samband í síma: 866 2403. Bréf stúlkunnar fer hér á eftir:

Oprah og Barbara berjast um viðtal við foreldra Madeleine

Spjallþáttadrottningarnar Oprah Winfrey og Barbara Walters berjast nú hatrammlega um réttinn til að tala við foreldra Madeleine McCann litlu stúlkunnar sem rænt var í Portúgal síðastliðið vor. Kate og Gerry McCann, sem sjálf eru grunuð í málinu, hafa hins vegar ekki ákveðið hvort þau fari yfirleitt í viðtal vegna málsins. Talið er að hjónin fái um milljón pund, eða um 130 milljónir íslenskra króna fyrir viðtalið.

Ellý og stelpurnar spá fyrir Ólafi F og Birni Inga

Mér finnst er þáttur sem sýndur er á ÍNN á tveggja klukkustunda fresti allan sólarhringinn. Þátturinn hefur vakið mikla athygli enda eru stjórnendurnir eldhressar stúlkur sem eru með allt á hreinu.

Ashley Cole skaut framhjá eiginkonunni

Bakvörðurinn knái Ashley Cole hjá Chelsea hélt framhjá Cheryl eiginkonu sinni eftir villt kvöld á djamminu. Bresk ljóska segist hafa eytt nótt með kappanum.

Eftirhermufans hjá Loga

Logi í beinni verður undirlagður af eftirhermum í kvöld. Logi Bergmann fær úrvalalið eftirherma í þáttinn til sín í kvöld, og munu hermikrákur á borð við Hjálmar Hjálmars, Jóhannes Kristjáns, Freyr Eyjólfsson, Jóhann Sigurðsson, Ómar Ragnarsson og fleiri apa eftir landskunnum einstaklingum.

Tölvan dó á versta degi ársins

Breski vísindamaðurinn Cliff Arnall reiknaði það út að mánudagurinn 21. janúar yrði versti dagur ársins 2008. Sjónvarpskonan og rithöfundurinn Sirrý getur skrifað undir það. „Hlutabréf féllu, borgarstjórnin féll og tölvan mín hrundi" segir Sirrý, en þar sem hún sat við skriftir á nýrri bók sinni um Örlagadaga byrjaði tölvan að gefa frá sér torkennileg hljóð, urg og surg. Hún náði að slökkva á tölvunni áður en óhljóðin ágerðust, en þegar kom að því að kveikja á henni aftur vönduðust málin.

Tommy fastur í annað sinn - á Reykjanesbraut

Það á ekki af rokkaranum Tommy Lee að ganga. Vél hans var í morgun snúið til Egilsstaða vegna aftakaveðurs í Keflavík. Rétt fyrir hádegi lagði vélin aftur af stað til Keflavíkur, og lenti í þetta skiptið. Vandræðin eru þó ekki búin, en vegna aftakaveðurs í morgun yfirgaf fjöldi fólks fasta bíla sína á Reykjanesbrautinni. Rokkarinn vansvefta hefur því nú setið fastur á Reykjanesbrautinni í hálftíma.

Fór á skíðum í vinnuna

Sírnir Einarsson, grafíker á Stöð 2, labbar vanalega í vinnuna. En í morgun ákvað hann hins vegar að fara á gönguskíðunum þar sem viðraði einkar vel til skíðaiðkunar. Gönguferðin í Skaftahlíðina tekur vanalega um 10 mínútur, en á skíðunum var hann helmingi fljótari.

Íslenskt veður og Perez Hilton á sömu síðu

Íslensk Bloggsíða, The Iceland Weather Report, eftir Öldu Sigmundardóttur, hefur verið tilnefnd til Óskarsverðlauna Boggheimsins, The Bloggies, sem besta evrópska bloggsíðan. Síðan er þar með komin á blað með mörgum af fjölsóttustu bloggsíðum heims, á borð við PerezHilton, TMZ, dooce, boingboing, GoFugYourself og Instapundit sem sumar hverjar fá mörg hundruð þúsund heimsóknir á dag.

Magnús Geir tekur við Borgarleikhúsinu

Stjórn Borgarleikhússins ákvað á fundi í morgun að ráða Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóra Leikfélags Akureyrar, í stöðu leikhússtjóra Borgarleikhússins í stað Guðjóns Pedersen sem lætur af störfum eftir átta ára valdatíð næsta haust.

LA - Egilsstaðir - Reykjavík

Ofurpartýinu með Tommy Lee og DJ Aero á Nasa í kvöld virðist borgið. Tommy þurfti að lenda á Egilsstöðum í morgun, vegna veðurs í Keflavík. Hann slapp þaðan fyrir skemmstu rétt í tæka tíð áður en útsendarar fréttastofanna náðu í skottið á honum. Rokkarinn er væntanlegur til Reykjavíkur upp úr hádegi, og ætti því að ná að leggja sig aðeins fyrir partýið í kvöld.

Prison Break fer ekki í verkfall á Íslandi

Ekki verður gert sýningarhlé á þáttaröðinni Prison Break hér á landi. Allt benti til að gera þyrfti hlé á sýningum þessa vinsælu spennuþátta sökum verkfalls handritshöfunda í Bandaríkjunum, en nú er ljóst að ekki þarf að koma til þess.

Amy farin í meðferð

Söngkonan Amy Winehouse skellti sér í meðferð í gærdag en hún hefur sem kunnugt er átt við mikið fíkniefnavandamál að stríða. Af þessum sökum hefur hún aflýst fyrirhuguðum tónleikum sínum um helgina. Hún hyggst þó vera orðin hressari fyrir Grammy verðlaunahátíðina í næsta mánuði, þar sem hún er tilnefnd til sex verðlauna.

Strax aftur ólétt!

Hver man ekki eftir Beverly Hills 90120 þar sem ljóskan Tori Spelling lék við hvern sinn fingur. Nú í mars verður Liam sonur hennar eins árs, en stúlkan er strax aftur ólétt.

Bond leitar hefnda í nýju myndinni

Nýjasta myndin um spæjarann kynþokkafulla, James Bond, mun bera nafnið Quantum of Solace. Nafnið og söguþráðurinn var kynntur við hátíðlega athöfn í Pinewood kvikmyndaverinu í dag.

Beckham á heimsmet í losun koltvísýrings

Sagt er að David Beckham hafi hættulegasta hægri fót í heimi. Það þó ekki einungis leðurtuðrur á fótboltavelli sem þurfa að óttast Beckham. Ísbirnir á norðurhveli gætu líka haft sitthvað út á hann að setja.

Björk aflýsir tónleikum

Björk aflýsti í dag fyrirhuguðum tónleikum sínum á Big Day Out tónlistarhátíðinni í Sidney á morgun. Læknir ráðlagði söngkonunni eindregið að hvíla raddböndin, en þau munu hafa verið bólgin eftir tónleika sem hún hélt í óperuhúsinu í Sidney í gær.

Mjórri en Victoria Beckham

Eva Longoria veit sem er að einfaldasta leiðin til að virðast grennri er að standa við hliðina á einhverjum sem er stærri en maður sjálfur. Að velja Victoriu Beckham til verksins er hinsvegar ekki á hvers manns færi.

Pabbi Amy fluttur inn til hennar

Mitch, pabbi Amy Winehouse, er fluttur inn til hennar til að reyna að halda henni frá eiturlyfjaneytandi vinum sínum. Eftir að myndir birtust á dögunum af söngkonunni að reykja krakk reyndi fjölskylda hennar árangurslaust að fá hana til að fara í meðferð. Pabbinn er hinsvegar sannfærður um að Amy eigi eftir að drepa sig á neyslunni, og fór því þessa leið.

Seinni hluti Íslandsþáttar Daily Show

Seinni hluti Íslandsþáttar The Daily Show er kominn á netið. Þeir sem vilja sjá hvernig ævintýri Jasons Jones fara, og hvort honum tekst að lokum að sjanghæja Herdísi Sigurgrímsdóttur til Írak geta gert það hér.

Íbúð Heath leit „eðlilega“ út

Bráðaliðar sem komu fyrstir að heimili Heath Ledger í gær sögðu við yfirheyrslur hjá lögreglu að ekkert í íbúðinni hefði bent til eiturlyfjanotkunar. Upprúllaður 20 dollara seðill fannst á heimilinu, en við prófanir á honum fundust engin ólögleg efni. Þá sögðu bráðaliðarnir að lyfjaglösin sem fundust hefðu flest verið næstum full.

„Ég hafði mikla trú á Heath Ledger“

Krufning á líki leikarans Heath Ledger leiddi orsök fráfalls hans ekki í ljós. Fleiri próf þarf að framkvæma og niðurstöðu er ekki að vænta fyrr en eftir tíu daga.

Daily Show segir Íslandi að kenna að ekkert gengur í Írak

The Daily Show er með það á hreinu hvers vegna stríðið í Írak hefur ekki verið unnið. Í þætti sem sýndur var á Comedy Central í gær fer fréttamaður þáttarins, Jason Jones út af örkinni til að kanna hversvegna stríðsreksturinn tekur jafn langan tíma og raun ber vitni. Og kemst að niðurstöðu.

Kravitz kynsveltur í þrjú ár

Söngvarinn og kyntröllið Lenny Kravitz segist ekki hafa stundað kynlíf í þrjú ár. Kravitz, sem hingað til hefur ekki verið þekktur fyrir að vera neinn kórdrengur, sagði í viðtali við Maxims tímaritið að hann væri að spara sig fyrir hjónaband.

Opna - nýtt bókaforlag hefur göngu sína

Nýtt forlag, Bókaútgáfan Opna, hefur hafið göngu sína. Stofnendur eru Guðrún Magnúsdóttir og Sigurður Svavarsson. Þau hafa í meira en 20 ár starfað við alla þætti bókaútgáfu, allt frá hugmynd til prentaðrar bókar.

Sjá næstu 50 fréttir