Fleiri fréttir

Terminator og frú klæðast 66° Norður

Arnold Scwarzenegger ríkisstjóri Kaliforníu og kona hans Maria Shriver fá fatnað frá 66° Norður í jólagjöf. Búningahönnuður nokkur í Hollywood, kunningjakona Sigurjóns Sighvatssonar, kvikmyndaframleiðanda og eins eiganda 66° Norður leitaði til hans á dögunum af því erfiðlega gekk að finna dúnúlpu í þeirri stærð sem hana vantaði. Úlpan átti vissulega að vera í stærri kantinum, enda ætluð sem jólagjöf handa Terminatornum sjálfum.

Tíu af tíu mögulegum

Nýútkominn diskur með flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Schola Cantorum og einsöngvara á óratóríunni Eddu I eftir Jón Leifs fær fullt hús stiga í umsögn gagnrýnenda tónlistarvefsins Classics Today. Kór og söngvarar fá sérstakt hrós, enda bendir gagnrýnandinn á að sönghlutar verksins séu nánast óflytjandi. Hann telur verkið eitt það allra áheyrilegasta af verkum Jóns, fjölbreytt og litríkt og einungis tungumálið standi í vegi fyrir að það nái útbreiðslu á efnisskrám hljómsveita heimsins. Hann hrósar einnig upptöku og hljóðvinnslu tæknimanna BIS-útgáfunnar og kallar útgáfuna "stórviðburð".

Dexter í tygjum við systur sína

Michael C. Hall, sem leikur blóðsléttusérfræðinginn Dexter í samnefndum þáttum er fallinn fyrir systur sinni. Reyndar ekki líffræðilegri, en hann og Jennifer Carpenter, sem leikur systur hans í þáttunum eru að stinga saman nefjum.

Beyonce og Jay-Z pússa sig saman

Þær sögur ganga fjöllum hærra að Jay-Z og Beyonce hafi gift sig í París fyrr í mánuðinum. Parið var á ferðalagi í Frakklandi til að halda upp á afmæli Jay-Z og kom heim með samskonar húðflúr á baugfingri.

Titrandi jólapakkar

Danskir klámkaupmenn eru giska kátir þessa dagana því leikföng ástarlífsins seljast sem aldrei fyrr.

Af hverju ertu svona blár?

Paul Karason er ósköp venjulegur maður búsettur í Kalíforníu í Bandaríkjunum. Eitt er þó sem aðskilur Paul frá flestum öðrum, hann er blár á litinn. Maðurinn, sem er 57 ára gamall og gæti verið af íslenskum ættum ef litið er til eftirnafns hans, segir að hann hafi skipt um lit fyrir um fjórtán árum síðan. Áður var hann ljós á hörund og freknóttur.

Amy Winehouse og Bryan Adams í Karíbahafinu um jólin

Bryan Adams hefur boðið Amy Winehouse að vera í villunni sinni í Karíbahafi um jólin. Söngvarinn vill forða Amy frá sukkinu með því að fljúga henni til smáeyjarinnar Mustique, sem er vinsæll leikvöllur ríka og fræga fólksins.

Uri Geller kaupir 360 skeiðar fyrir bílinn sinn

Á meðan almúginn stritar sveittur við það að kaupa síðustu jólagjafirnar, hefur Uri Geller öðrum og mikilvægari hnöppum að hneppa. Hann gerðist kaupglaður mjög á uppboði í London í dögunum þar sem hann fjárfesti í 360 skeiðum.

Mills skuldar milljónir

Allt stefnir í að lögfræðingar Heather Mills muni draga hana fyrir dómstóla vegna vangreiddra reikninga. Lögfræðistofan Mishcon de Reya hefur annast mál Mills allar götur síðan tilkynnt var um skilnað hennar við bítilinn Paul McCartney fyrir um 18 mánuðum síðan án þess fá krónu í greiðslur. Nú hefur stofan fengið nóg og heimtar að fá borgað.

Jólin koma í kvöld - X-mas í níunda sinn

Rjómi íslensks rokkheims kemur fram á árlegum jólatónleikum X-ins - X-mas - sem verða haldnir á Gauki á Stöng í kvöld. Gaukurinn opnar klukkan 19. og stígur fyrsta hljómsveitin á svið klukkan 20.

Frumleg störf hjá Vinnuskóla Akureyrar

Krakkarnir í Vinnuskóla Akureyrar sluppu við arfann hluta af síðastliðnu sumri, en í staðinn var hluti af starfi þeirra að skrifa greinar, gera útvarpsþætti og myndbönd.

Gæti farið í fangelsi fyrir að barna systur Britney

Kærasti hinnar óléttu Jamie Lynn Spears, gæti átt yfir höfði sér ákæru fyrir samræði við ólögráða einstakling fyrir að barna stúlkuna. Jamie Lynn er sextán ára gömul, en kærastinn, Casey Aldridge, nítján. Refsing fyrir brotið getur numið allt að tíu ára fangelsisvist.

Nelly Furtado giftir sig í laumi

Ísland er einni tilvonandi tengdadóttur færri. Orðrómur er uppi um Nelly Furtado, hafi giftst kærasta sínum til eins árs, hljóðmanninum Demacio "Demo" Castellon.

Systir Britney í uppnámi vegna óléttunnar

Jamie Lynn Spears litla systir Britneyjar á von á barni. Hún er aðeins sextán ára gömul en barnsfaðir hennar er kærasti hennar til nokkurra ára. Hún var í viðtali við Ok! Magazine þar sem hún sagði frá því að óléttan hefði verið mikið sjokk fyrir parið unga.

Denzel Washington gefur pening til að efla ræðulið

Hollywood stórstjarnan Denzel Washington ætlar að gefa Wiley háskólanum í Texas eina milljón Bandaríkjadala, eða um 60 milljónir króna, svo ræðulið skólans geti tekið til starfa á nýjan leik

Dýru verði keypt athygli í Skaupinu

"Ef auglýsandinn þarf ekki að koma einhverjum bráðnauðsynlegum skilaboðum á framfæri við alla þjóðina, og þar að auki á örskömmum tíma, hefði ég haldið að þetta væri ekki góður bisness." sagði Gunnar Steinn Pálsson ráðgjafi í almannatengslum, þegar Vísir leitaði álits hans á einum umdeildasta auglýsingatíma síðari tíma.

Blindur keyrir risajeppa

Atvinnubílstjórinn Einar Lee var að aka bíl sínum þann 17. júní árið 2000 þegar hann hnerraði, og missti sjónina. Við hnerrann fór blóð yfir bæði augu og Einar vissi að þetta yrði síðasta ökuferðin hans. Hann var þá 29 ára gamall, og hefur verið blindur síðan.

Forstjóri Universal Pictures verslar jólagjafirnar hjá 66° Norður

Það eru ekki eingöngu íslendingar sem gera sér grein fyrir ágæti 66°Norður og hefur hróður fyrirtækisins borist víða. Nýverið bættust hjónin Ron og Kelly Meyer í hóp ánægðra viðskiptavina 66°Norður en Ron er forstjóri Universal Pictures. Hjónin keyptu jólagjafir handa fjölskyldu sinni og vinum á netverslun 66°Norður en fyrir valinu urðu Glymur þriggja laga öndunarjakkar, Esja Parka úlpa og Þórsmörk Parka dúnúlpa.

Posh fær fokdýra bók í jólagjöf

Victoria Beckham sagði árið 2005 að hún hefði aldrei á ævinni lesið bók, en nú gæti orðið breyting þar á. Eiginmaðurinn keypti bók í jólapakkann hjá Posh, og eins ólíklega og það hljómar eru það ekki heildarverk Shakespeare.

Lilly Allen ólétt?

Poppstirnið Lily Allen er ófrísk að sínu fyrsta barni, samkvæmt heimildum Sun dagblaðsins. Að sögn vina söngkonunnar eru hún í skýjunum, og getur ekki beðið eftir því að verða móðir. Allen, sem er 22ja ára, hefur aldrei farið leynt með löngun sína til að stofna fjölskyldu. Hún og fimmtán árum eldri kærasti hennar, Chemical bróðirinn Ed Simons ku nú vera yfir sig ástfangin, og ætla að nú stofna heimili saman.

Sextán ára systir Britney er ófrísk

Spears fjölskyldunni fjölgar um einn eftir hálft ár eða svo, og Britney tengist málinu ekkert. Jamie Lynn Spears, sextán ára systir Britney, er ófrísk eftir kærasta sinn til nokkurra ára, Casey Aldridge.

Álfaprinsessan segir klámsögur á jólahlaðborðum

Norska prinsessan Marta Lovísa er enn á milli tannana á fólki í heimalandi sínu. Í þetta sinn hefur hún hneykslað samlanda sína með því að koma fram á jólahlaðborðum fyrirtækja gegn greiðslu þar sem hún les erótísk ævintýri fyrir hlaðborðsgestina.

Randver og Cleese í áramótaauglýsingu Kaupþings

Breski stórleikarinn John Cleese kemur fram í áramótaauglýsingu Kaupþings annað árið í röð. Að þessu sinni verður Cleese þó ekki í aðalhlutverkinu. John Cleese verður aukaleikari við hlið Randvers Þorlákssonar.

Winehouse handtekin

Söngkonan Amy Winehouse var handtekin í London síðdegis í dag. Það var gert svo hægt væri að yfirheyra hana í tengslum við mál kærasta hennar, Blake Fielder-Civil, sem situr nú í fangelsi fyir tilraun til að hindra framgang réttvísinnar og múta lögreglumanni.

Remax auglýsir í Skaupinu

Fasteignasalan Remax býður landsmönnum um áramótin upp á auglýsingu í umtalaðasta auglýsingapláss Íslandssögunnar - í miðju Áramótaskaupinu. Þrátt fyrir bölsýnisspár um fasteignamarkaðinn virðast Remax menn eiga fyrir salti í grautinn og ríflega það, en þeir munu hafa reitt fram þrjár milljónir fyrir plássið.

Föt af Britney til sölu á eBay

Britney Spears þénar meira en 700 þúsund dollara á mánuði og ætti það að duga ágætlega fyrir salti í grautinn. Einhverra hluta vegna þarf poppprinsessan þó að selja fötin sín á eBay.

Gaman að vera ólétt, ekki feit

J-Lo er alveg ánægð með barnið/börnin sem eru á leiðinni, en henni lýst öllu verr á stóraukið ummál, skvap og bjúg sem fylgja óléttunni. ,,Hún er risavaxin og alveg að tapa sér yfir því. Andlitið á henni er mjög bólgið af bjúg." hefur slúðurblað eftir vini söngkonunnar.

Sýruneysla og dauðarokk koma í veg fyrir himnavist

Söngvari Foo Fighters, Dave Grohl, sem hefur áralanga reynslu af partýstandi og eiturlyfjaneyslu veit ýmislegt um það hvernig maður á að forðast að verða slúðurblaðafóður eins og Britney, Lindsay, Paris og vinir.

Michael Jackson heldur andlitinu - með Post It miðum

Poppstirnið Michael Jackson hefur áralanga reynslu af lýtalækningum. Eitthvað virðist þó hafa farið úrskeiðis með andlitið á honum, sé að marka þessa mynd sem náðist af söngvaranum á rölti í bókaverslun í Las Vegas á dögunum.

Miðar á styrktartónleika rjúka út

Miðasala á árlega tónleika til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna hefur farið með látum af stað og aldrei nokkurn tíma hafa miðarnir selst svona hratt. Aðeins eru örfáir miðar eftir inni á miði.is "Ég tala fyrir hönd allra sem að þessu skipulagi og að þessari framkvæmd koma. Við erðum hrærð og þakklát fyrir þessar frábæru viðtökur. Þetta er auðvitað fyrst og síðast þessum frábæru listamönnum að þakka. Örlæti þeirra og velvild við SKB er ótrúleg og við erum þeim óendanlega þakklát" sagði Einar Bárðarson skipuleggjandi tónleikanna.

REI, REI, ekki um jólin

Starfsfólk nokkurra deilda Orkuveitunnar gerði sér glaðan dag á Jólahlaðborði á föstudaginn var. Hefð hefur myndast fyrir keppni um besta skemmtiatriðið á hlaðborðinu og í ár var það sölu- og markaðsdeildin sem sló allt út.

Bylgjan borgar, ekki Rás 2

Bubbi Morthens er ósáttur við vinnubrögð á Ríkisútvarpinu. Hann segir það óhæft að listamenn þurfi að gefa vinnu sína fyrir kynningu á efni sínu á útvarpsstöðvum þess.

Pamela hætt við skilnaðinn

Kynbomban Pamela Anderson segist nú hætt við að skilja við eiginmann sinn Rick Solomon. Fréttir af skilnaðinum bárust fyrir fáeinum dögum þegar skilnaðarpappírarnir láku í fjölmiðla. Í yfirlýsingu á heimasíðu sinni í kvöld segir Pamela að hjónakornunum hafi snúist hugur.

Aðþrengd eiginkona með hund í handtöskunni

Eva Longoria skellti sér um helgina í langþráð frí með eiginmanninn sér við hlið og hundinn sinn í tösku. Parið sást á alþjóðaflugvellinum í Los Angeles á leið í rómantískt ferðalag.

Af hverju skírðuð þið Geysi eftir stefnumótasíðu fyrir samkynhneigða?

Ítarlega er fjallað um Ísland í nýjasta þætti Rikets Röst, grínþáttarins norska. ,,Stjórnmálaskýrandi" þáttarins, Pia Haraldsen, var hér á landi í byrjun desember undir því yfirskyni að hún væri að fjalla um land og þjóð vegna nýútkominnar skýrslu Sameinuðu þjóðanna sem setti Ísland í fyrsta sæti yfir þau lönd sem best væri að búa í.

Óhöppum fjölgar í Þjóðleikhúsinu

Vegna fjölda áskorana verður efnt til aukasýninga milli jóla og nýárs á leikritinu Óhapp! eftir Bjarna Jónsson. Leikritið var fyrsta verkefni leikárs Þjóðleikhússins í haust og fékk afbragðs góða dóma og góðar viðtökur hjá áhorfendum. Verkið tekur á íslenskum veruleika með nýstárlegum hætti en viðfangsefni þess er sjónvarps- og fjölskylduumhverfi nútíma Íslendinga. Margir hafa líkt verkinu við Stundarfrið, leikrit Guðmundar Steinssonar sem þótti á sínum tíma ná á einstaklega glöggan og frumlegan hátt að tjá ástand íslensku þjóðarinnar.

Amy Winehouse vill fremja sjálfsmorð með eiginmanninum

Nýjar vísbendingar í máli Blake Fielder Civil, eiginmanni söngkonunnar og vandræðabarnsins Amy Winehouse benda til þess að hún hafi verið viðriðin málið. Hún gæti átt yfir höfði sér margra ára fangelsisvist verði hún fundin sek.

Tarantino til bjargar Lindsay Lohan

Leikstjórinn Quentin Tarantino hefur bjargað mörgum leikaranum úr dái gleymskunnar. Þar er frestur meðal jafningja John Travolta, sem Tarantino dustaði rykið af og gerði heimsfrægan í annað sinn með myndinni Pulp Fiction árið 1994. Tarantino hefur nú lýst sig reiðubúinn til að bjarga ungstirninu Lindsay Lohan.

Sjá næstu 50 fréttir