Fleiri fréttir

Mamma komin aftur á stjá

Söngkonan Shakira ljómaði er hún sást yfirgefa heimili sitt í Barcelona í vikunni til að fara á fund. Aðeins þrjár vikur eru síðan hún eignaðist soninn Milan með sínum heittelskaða, fótboltamanninum Gerard Piqué.

Tveggja vikna gullmoli

Kara DioGuardi, fyrrverandi dómari í raunveruleikaþættinum American Idol, eignaðist soninn Greyson James Carroll með eiginmanni sínum Mike McCuddy með hjálp staðgöngumóður á síðasta degi janúarmánaðar.

Hvað gerði hann nú af sér?

Stjörnuparið Chris Brown og Rihanna voru aldeilis ekki í ástarskapi á Valentínusardaginn eftir að hafa látið afar vel af hvort öðru á Grammy-verðlaunahátíðinni síðustu helgi.

11 milljarða hús fær upplyftingu

Spjallþáttadrottningin Oprah Winfrey er búin að ráða hönnuðinn Rose Tarlow til að taka ellefu milljarða króna heimili sitt í Montecito í Kaliforníu í yfirhalningu.

Án hans væri ég ekki konan sem ég er í dag

Söngkonan Beyonce er afar opinská í viðtali við sjónvarpskonuna Opruh í nýju viðtali. Hún er sérstaklega meyr er hún talar um eiginmann sinn, tónlistarmanninn Jay-Z.

Samfestingar koma sterkir inn

Samfestingar eiga sinn stað í hringrás tískunnar og koma alltaf sterkir inn öðru hvoru. Þeirra tími virðist vera að renna aftur upp ...

London iðar af lífi á tískuvikunni

Lilja Hrönn Helgadóttir lifir og hrærist í tísku í London. Lífið fékk hana til að deila með okkur sinni upplifun af borginni þegar allt fyllist af fatahönnuðum, fyrirsætum og tískudrósum.

Brakið á metsölulista í Noregi

Dagsavisen segir Yrsu takast að halda spennunni allt til síðustu blaðsíðu og því bætt við að hún muni örugglega slá í gegn.

Flott fólk kom saman

Ari Eldjárn og landslið tónlistarmanna stigu á stokk hjá Nýherja þegar nýtt hljóðkerfi frá L-Acoustics var kynnt í Háskólabíói í gærkvöldi. Ari Eldjárn fór á kostum sem fyrr og kitlaði hláturtaugarnar. Hljómsveit hússins með Vigni Snæ og rokkgoðið Magna Ásgeirsson í fararbroddi framkallaði dásamlega hljóma. Þá blúsaði Kristjana Stefánsdóttir við frábærar undirtektir gesta. Meðal þeirra sem litu við voru Regína Ósk, Atli tískulögga, Peter Owen, sölustjóri L-Acoustics í Evrópu, Sandra og Sella frá Practical og Haffi Tempo.

Gúffar í sig á McDonald's

Fyrirsætan Cara Delevingne vakti verðskuldaða athygli er hún gekk inn á McDonald's-stað í New York í gærmorgun og pantaði sér morgunmat.

Hjálpa fólki í makaleit

"Núna eins og er dettur mér strax eitt par í hug og það er alveg tíu ára aldursmunur á milli þeirra og þau segja bæði tvö að þau hefðu aldrei kynnst nema í gegnum Sambandsmiðlun. Þau eru á sitthvorum staðnum og gera sitthvora hlutina í lífinu. Hann til dæmis býr úti á landi og hún býr í Reykjavík. Þau leituðu bæði til okkar og við pöruðum þau saman. Það var ást við fyrstu sýn."

Af hverju er hún ekki í bol?

Ofurfyrirsætan Rosie Huntington-Whiteley stóðst ekki mátið í gær og sýndi aðdáendum sínum á Twitter nýjustu gallabuxurnar í einkasafni sínu.

Dansað af þvílíkum krafti gegn kynbundnu ofbeldi

Meðfylgjandi myndir tóku ljósmyndararnir Kári Björn Þorleifsson og Kolbrún Ýrr Rolandsdóttir í Hörpu í hádeginu í gær þar sem fjöldi kvenna og karla kom saman og dansaði af krafti gegn kyndbundnu ofbeldi. Viðburðurinn er hluti af alþjóðlegu átaki, Milljaður rís upp, þar sem einn milljarður jarðarbúa um heim allan dansar saman til að sýna konum og stúlkum samhug vegna kynbundins ofbeldis.

Flassar nærbuxunum

Leikkonan Michelle Williams er yfirleitt afskaplega smart á rauða dreglinum og það varð engin breyting á því þegar nýjasta mynd hennar Oz the Great and Powerful var frumsýnd á miðvikudagskvöldið.

Klæddust sama kjólnum

Við sáum Emily Blunt klæðast dásamlegum appelsínugulum kjól frá Alexander McQueen rauða dreglinum fyrir verðlaunaafhendingu í október í fyrra. Í síðustu viku klæddist Kathy Perry sama kjól.

Allir vilja hanna brúðarkjólinn

Ungstirnið Miley Cyrus hefur lítið rætt um brúðkaup sitt og leikarans Liam Hemsworth en turtildúfurnar eru byrjaðar að plana herlegheitin.

Hver annarri glæsilegri

Kvikmyndin Oz The Great And Powerful var frumsýnd með pompi og pragt í Los Angeles á miðvikudagskvöldið.

Breytt blað í tilefni tímamóta

Lífið, aukablað Fréttablaðsins er nú orðið 1 árs og fagnar þeim tímamótum með nýju útliti eins og sjá má í dag.

Rikka gerir ekki upp á milli keppenda

Úrslitaþáttur MasterChef Ísland er á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld og þá kemur í ljós hver verður fyrsti meistarakokkur Íslands. Þau Gunnar Helgi Guðjónsson, myndlistarmaður og kaffibarþjónn, og Jenný Rúnarsdóttir, starfsmaður hjá Te & Kaffi, keppa um þennan eftirsótta titil. Spennan verður rafmögnuð í kvöld að sögn Friðriku Hjördísar Geirsdóttur, dómara í MasterChef.

Franski sjónvarpsþátturinn Bachelor á Íslandi

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá franska útgáfu af Bachelor raunveruleikasjónvarpsþættinum sem var meðal annars tekinn upp á Íslandi eins og þegar piparsveinninn fer meðal annars í Bláa Lónið, á vélsleða og á Slippbarinn með konunum sem hann leitast við að kynnast og væntanlega verða ástfanginn af.

Á styrktarsamningi hjá Alien Workshop

Hjólabrettamaðurinn Sigurður Páll Pálsson er í aðalhlutverki myndbands sem bandaríski hjólabrettaframleiðandinn Alien Workshop sendi frá sér í dag.

Ford aftur í Stjörnustríð

Harrison Ford mun endurtaka hlutverk sitt sem Han Solo úr Stjörnustríðsmyndunum í nýjustu kvikmynd seríunnar. Vefsíðan Latino Review greinir frá.

Hressilegt heimabrugg

Eva er þekkt og umdeild en hér sýnir hún á sér aðra hlið. Ljóðin hennar, sem eru hugleiðingar um lífið, eru fyrst og fremst snotur.

Trentemöller og félagar slettu vel úr klaufunum á Kaffibarnum

Danski raftónlistarmaðurinn og plötusnúðurinn Trentemöller spilar á Sónar-hátíðinni annað kvöld, en hátíðin hefst í dag. Hann sletti vel úr klaufunum síðast þegar hann kom til Íslands og segist alltaf hlakka til að sækja landið heim.

Skráning hefst senn

Skráning í Músíktilraunir 2013 hefst á mánudag og lýkur 3. mars.

Slúðursögur pirra konuna

Leikarinn Hugh Jackman viðurkennir að sögusagnir um kynhneigð hans fari í taugarnar á eiginkonu hans, Deborru-Lee Furness. Þetta kemur fram í viðtali við The Hollywood Reporter.

Ósátt við RIhönnu

Slest hefur upp á vinskap söngkvennanna Rihönnu og Katy Perry vegna sambands þeirrar fyrrnefndu og Chris Brown. Samkvæmt heimildum er Perry ósátt við samband Rihönnu og Brown og hefur hún ærna ástæðu til.

Skapandi ský á Adobe-ráðstefnu

Alþjóðlega hugbúnaðarfyrirtækið Adobe hefur endurnýjað samstarf sitt við Advania sem umboðsaðila fyrirtækisins á Íslandi. Af því tilefni bauð Adobe bauð grafískum hönnuðum og fagfólki í vídeóvinnslu til ráðstefnu hjá Advania í dag undir yfirskriftinni "Skapandi ský“. Að ráðstefnu lokinni var tæplega 400 ráðstefnugestum og öðrum viðskiptavinum Advania boðið til tónleika Jónasar Sigurðssonar og hljómsveitar í nýrri verslun fyrirtækisins við Guðrúnartún.

Spennan stigmagnast fyrir Sónar hátíð helgarinnar

Stephan Stephensen og Dj Margeir skipa dúettinn Gluteus Maximus sem kemur fram ásamt fjölda söngvara á Sónar tónlistarhátíðinni í Hörpu um helgina. Stephan er góðkunningi Sónar hátíðarinnar og hefur fylgst með henni árum saman eins og fram kemur í meðfylgjandi myndbandi þar sem útvarpsmaðurinn Frosti Logason tekur viðtal við Stephan. Samaris, Ólafur Arnalds og Gluteus Maximus eru íslensk bönd sem hafa verið tilkynnt á dagskrá Sónar í Barcelona á Spáni en þar verður hátíðinr haldin í tuttugasta sinn aðra helgina í júní og verður það að teljast mikill heiður að koma þar fram þar sem þetta er talin ein allra virtasta tónlistarhátíð heims. Spennan stigmagnast og enn eru örfáir miðar til sölu á midi.is og harpa.is á þessa risastóru tónlistar veislu.

"Þetta er stórfrétt í fitnessheiminum á Íslandi"

"Já þetta er stórfrétt í fitnessheiminum á Íslandi þar sem þetta hefur ekki gerst í tæp 30 ár að bandarískt bætiefnafyrirtæki semji við íslenskan vaxtarræktarmann. Síðast þegar það gerðist þá var það árið 1984 að Weider fyrirtækið samdi við Jón Pál Sigmarsson heitinn," segir Svavar Jóhannson eigandi Fitness Sport sem er umboðsaðili Muscletech á íslandi.

Djörf og kynþokkafull

Söngkonan Beyonce geislaði í orðsins fyllstu merkingu á frumsýningu myndar sinnar Life Is But A Dream í Ziegfeld Theater í New York á þriðjudagskvöldið.

Sigga Lund spæld á Valentínusardaginn

Það voru heldur betur vonbrigði hjá Siggu Lund í dag þegar henni barst risastór blómvöndur. Eins og hún skrifar á Facebooksíðuna sína þá fór sendillinn...

Sjá næstu 50 fréttir