Lífið

Angelina Jolie og Brad Pitt framleiða eigið vín

Ofurparið Angelina Jolie og Brad Pitt ræst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Ekki nóg með að vera bæði heimsfrægir leikarar og ala upp sex börn, heldur hafa þau ákveðið að hefja framleiðslu á eigin víni. Brad og Angelina hafa verið búsett með annan fótinn í Frakklandi síðan árið 2008, en vínekran sem um ræðir er hluti af landi þeirra þar. Vínið ætla þau að framleiða í samstarfi við frakkann Marc Perrin, sem hefur áralanga reynslu í vínbransanum.

Vínið fer í sölu í mars og mun bera nafnið Jolie-Pitt and Perrin.

Ofurpar.




Skötuhjúin með barnaskarann.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×