Fleiri fréttir

Braut tá á tökustað

Hin yndislega, fyndna og skemmtilega leikkona hún Leslie Mann var í myndatöku á dögunum ásamt eiginmanni sínum og leikstjóranum Judd Apatow fyrir tískutímaritið Marie Claire. Tókst leikkonunni að brjóta tá meðan á myndatökunni stóð en hún ákvað að harka sársaukann af sér og lét því engan vita fyrr en eftir tökuna. "Ég er var berfætt og ég er með risa stórar fætur, sem er alls ekki aðlaðandi," sagði leikkonan gamansömum tón í viðtali. "Mér leið eins og algjörum aula."

Er þetta ekki aðeins of mikið drama?

Miley Cyrus, 19 ára, er iðulega umkringd æstum aðdáendum. Eins og sjá má á myndunum brotnaði ung stúlka gjörsamlega niður í sjokki eftir að hún sá goðið sitt. En myndirnar voru teknar af Miley fyrir utan hótelið sem hún gisti á í New York nýliðna helgi. Þá má einnig sjá myndir af henni með móður sinni. Hárið á Miley styttist með hverjum deginum en þessi klipping fer henni áberandi vel.

Krúnurökuð Hollywoodstjarna

Leikkonan Charlize Theron, 37 ára, var mynduð á kaffihúsi með sólgleraugu á nefinu og krúnurakað hárið sem fer henni þetta líka svona vel. Leikkonan er upptekin við tökur á kvikmyndinni Mad Max: Fury Road - sem er ástæðan fyrir hárgreiðslunni.

Fáránlega flott á frumsýningu

Leikkonan Naomi Watts stal senunni svo um munaði á frumsýningu kvikmyndarinnar, The Impossible, í Londin í gærkveldi. Watts var gullfalleg, í flottum síðkjól með síðum ermum en opnu baki svo um munaði. Lék leikkonan sér að því að pósa fyrir ljósmyndara og sýndi bert bakið. Í meðfylgjandi myndasafni má sjá fleiri stjörnur sem röltu inn dregilinn. Smelltu á myndina til að skoða.

Gaman að vinna með mömmu

„Ég tók þátt í sýningunni með Felix Bergssyni nokkrum sinnum og þegar ég spurði hann út í sýninguna í ár voru blikur á lofti. Ég sagði við Felix að hann yrði að setja upp verkið, annars mundi ég gera það. Og úr því varð,“ útskýrir Orri Huginn Ágústsson sem fer með öll helstu hlutverk í leiksýningunni Ævintýrið um Augastein.

Mesta áskorunin var kynlífslýsingar og koddahjal

„Í ferlinu komumst við að því að það er lítil hefð fyrir koddahjali á íslensku og var það mesta áskorunin fyrir okkur,“ segir Þórdís Elva Þorvaldsdóttir sem ásamt Þóru Karitas Árnadóttur hefur þýtt metsölubókina Þú afhjúpar mig eftir Sylviu Day.

Stóll frá afa og ömmu í öndvegi á heimilinu

„Mig langar að varpa ljósi á ýmsa þætti í hversdagslífi fólks á síðustu öld, til dæmis hvaða munir voru fólki kærir og eftirminnilegir á uppvaxtarheimilinu. Líka hvort eitthvað af þeim hlutum hafi fylgt fólki inn í samtímann,“ segir dr. Sigurður Gylfi um rannsókn sína á samspili efnis og tilfinningalífs fólks. Spurningalistar sem Þjóðminjasafnið hefur sent út nýlega undir yfirskriftinni Híbýli, húsbúnaður og hversdagslíf eru eitt af því sem hann notar við þá rannsókn.

Svín fór yfir Rín ...

Landvættir er hressileg og afburða vel stíluð skáldsaga en hefði að ósekju mátt vera mun styttri og hnitmiðaðri.

Einhleyp ofurfyrirsæta

Ofurfyrirsætan Elle Macpherson er einhleyp enn á ný. Hún og kærasti hennar Roger Jenkins eru hætt saman eftir sjö mánaða samband.

Styttri gerast þær varla

Brasilíska ofurfyrirsætan Alessandra Ambrosio er nú í heimalandi sínu til að kynna fatalínuna Colcci.

Fatadrama í höllinni

Hertogynjan Kate Middleton er þekkt fyrir fágaðan fatasmekk og því keppast hönnuðir um að fá að klæða hana. Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian sá sér leik á borði þegar hún var í London nýverið og sendi Kate haug af fötum úr nýjustu línu sinni.

Þessar kökur eru náttúrulega bara snilld

Kökukeppni var haldin í Smáralind dagana 17. og 18. nóvember á vegum Eddu útgáfu og Hagkaups. Alls voru 36 Disney-kökur sendar inn í keppnina sem allar eru stórglæsilegar eins og sjá má á myndunum. Vinningshafinn verður kynntur á morgun þriðjudag en keppnin er hörð og eflaust erfitt fyrir dómnefnd að gera upp á milli.

Skírðu soninn Rocky

Stjörnuparið Sarah Michelle Gellar og Freddie Prinze Jr. eignuðust annað barn sitt saman nú í september. Þau eignuðust lítinn snáða og eru búin að gefa honum nafn – Rocky James.

Jólalögin byrjuð að hljóma

Létt Bylgjan komst í jólaskap um nýliðna helgi og nú hljóma ljúf og þægileg jólalög allan sólahringinn á Létt Bylgjunni. Hægt er að hlusta í gegn um útvarpið á FM 96,7 á höfuðborgarsvæðinu en með nettenginu eða síma er hægt að hlusta alls staðar í vefspilaranum: http://vefutvarp.visir.is/lett_bylgjan

Einhleypar á djamminu

Bestu vinkonurnar Selena Gomez og Taylor Swift skelltu sér út á djammið saman um helgina. Taylor hefur stutt Selenu mjög mikið eftir að hún hætti með ungstirninu Justin Bieber.

Persónuleg á netinu

Söngkonan Rihanna tók sig til og deildi átta hundruð myndum með aðdáendum sínum á netinu úr heimstúrnum sem hún er búin að vera í undanfarið sem og myndum bak við tjöldin við gerð nýjasta tónlistarmyndbansin Diamonds. Smellið á mynina til að sjá brot úr þessu einlæga og skemmtilega myndasafni en Rihann verður seint sögð feimin.

Brjálæðið heldur áfram

Twilight Saga æðið heldur áram en Kristen Stewart, Robert Pattinson og Taylor Lautner komust varla úr sporunum á frumsýningu myndarinnar í Berlín um helgina fyrir æstum aðdáendum sínum.

Best klæddu konur vikunnar

Keira Knightley, Kristen Stewart, Miranda Kerr, Emma Stone og Penelope Cruz voru valdar best klæddu stjörnur vikunnar að mati pressunnar vestan hafs.

Lét hún hárið fjúka?

Getur það vera að söngkonan, dómarinn og dívan Christina Aguilera hafi látið síðu lokkana sína fjúka fyrir helgina.

Já heimsfrægðin getur verið erfið

Leikkonan Mila Kunis, 29 ára, hefur skotist hratt upp á stjörnuhiminn. Mila er elt af ljósmyndurum alla daga og nætur ef því er að skipta en meðfylgjandi má sjá myndir af henni á förunum vegi og með unnusta sínum, leikaranum Ashton Kutcher, 34 ára.

Elma Lísa barnshafandi

Leikkonan Elma Lísa Gunnarsdóttir og leikstjórinn Reynir Lyngdal eiga von á sínu fyrsta barni saman. Gleðigjafinn mun koma í heiminn næsta vor en fyrir á Reynir eina dóttir. Lífið óskar hjónunum innilega til hamingju.

Mömmustrákur Bieber

Poppstjarnan Justin Bieber söng lagið As Long As You Love Me á tónlistarhátíðinni "American Music Awards" í gær sunnudag. Lagið tileinkaði hann Selenu Gomes en undanfarið hafa þau átt erfitt þegar kemur að ástinni. Þá mætti Nicki Minaj með Justin á sviðið en það sem vakti athygli var þegar hann knúsaði mömmu sína á rauða dreglinum eins og sjá má á myndunum.

Mitt svar við erfiðleikum raunveruleikans

"Bókin heitir Blendingurinn og nafnið vísar til þess að aðalsöguhetjan, Röskva, er ekki hreinræktuð manneskja, það er blandað blóð í henni," segir Hildur Margrétardóttir myndlistarmaður sem sent hefur frá sér sína fyrstu barnabók.

Fjör á Fjáröflun

Fjör á Fjáröflun Fjáröflunarkvöld UN Women fór fram í Þjóðleikhúskjallaranum á laugardag.

Saman á svið

Hljómsveitin Steed Lord heldur sína fyrstu tónleika á Íslandi í þrjú ár, eða allt frá því að meðlimir sveitarinnar fluttust til Los Angeles.

Útgáfa sem er fyrirhafnarinnar virði

Rímnahefðin er aldagömul. Rímnakveðskapurinn er áhugaverður angi af íslenskri bókmenntasögu og rímnasöngurinn mikilvægur hluti íslenskrar alþýðutónlistar fyrri alda.

Undirbúa stóra kvikmynd um Afann

"Ég mun fá að leika afann minn áfram í þessari mynd. Ég kann bæði rulluna og svo er ég reyndar alla daga þess á milli að æfa mig heima fyrir. Ég er sjálfur afi, á þrjú barnabörn, þannig að ég er í stöðugum æfingabúðum," segir Sigurður Sigurjónsson. Hann leikur í nýrri kvikmynd um Afann sem er í bígerð.

Sigraði í tveimur dansflokkum

Leifur Eiríksson sigraði í tveimur dansflokkum í fyrsta „street“ danseinvíginu sem haldið hefur verið á Íslandi. Danskeppnin fór fram á laugardaginn fyrir viku og sigraði Leifur bæði í toprock og break-dansi.

Fjöldi fagnaði Megasi

Útgáfu bókarinnar Megas – textar 1966-2011 var fagnað í Bókabúð Máls og menningar á föstudag.

Vægast sagt sjokkerandi í útliti

Það er ekki sjón að sjá leikarann Matthew McConaughey, 43 ára, því hann hefur horast allsvakalega á skömmum tíma. Eins og sjá má á myndunum sem teknar voru af honum á föstudaginn var við tökur á væntanlegri kvikmynd er hann vannærður á að líta.

Rennblautur fótboltafoli

Gossip Girl-hönkið Ed Westwick lét ekki rigninguna stöðva sig þegar hann spilaði fótbolta með nokkrum vinum sínum í Santa Monica í Kaliforníu.

Ómáluð með górilluhúfu

Poppdrottningin Madonna er þekkt fyrir líflega sviðsframkomu og ögrandi dress en hún var mjög afslöppuð á föstudaginn þegar hún heimsótti svæði í New York sem fór hvað verst út úr fellibylnum Sandy.

Útötuð í leðju

Hin sykursæta Stacy Keibler hefur loksins ljóstrað upp leyndardómnum á bak við nánast gallalausa húð sína. Hún setti mynd af sér á Twitter þar sem hún var þakin leðju sem finnst í nágrenni Dauðahafsins.

Kominn á nýjan Range Rover

Knattspyrnukappinn Wayne Rooney spókaði sig um með þriggja ára syni sínum Kai fyrir helgi og frumsýndi nýja bílinn sinn í leiðinni.

Sjá næstu 50 fréttir