Fleiri fréttir

Litadýrð og loðkragar fyrir herrana

Herratískan í Mílanó var sýnd í síðustu viku en þar kenndi ýmissa grasa í herratískunni fyrir komandi haust og vetur. Loðfóðraðir gallajakkar og úlpur voru áberandi, síðir ullarfrakkar með loðkraga og munstraðar prjónapeysur voru áberandi.

Sjötíu laga ofurpakki Valgeirs

Öll þekktustu lög Valgeirs Guðjónssonar í þreföldum afmælispakka. Næsta pottþéttur sjötíu laga popppakki.

Fékk sér tattú þvert yfir ristina

Söngkonan LeAnn Rimes fékk sér nýtt húðflúr þvert yfir ristina tileinkað eiginmanni sínum Eddie Cibrian sem hún giftist í apríl í fyrra. Eins og sjá má í myndasafni lét hún húðflúra á fótlegginn setninguna the only one that matters (sá eini sem skiptir máli). Í myndasafni má sjá annað húðflúr á söngkonunni staðsett rétt fyrir ofan bikinílínuna þar sem stendur: Still I Rise - sem er heiti á ljóði eftir Mayu Angelou. LeAnn og Eddie kynntust þegar þau léku saman í sjónvarpsmynd sem bar heitið Northern Lights. Þá voru þau bæði gift.

Sjóðheitt hárskraut Kardashian

Sjónvarpsstjarnan Kim Kardashian, 31 árs gerði sér ferð í CHANEL verslun í Los Angeles í Kaliforníu í gær...

Risaforlagið Random House gefur út Pabbabók Bjarna

"Tilboðið frá Random House var eiginlega þannig að það var ekki hægt að segja nei við því. Þetta er mjög góður samningur,“ segir leikarinn og leikstjórinn Bjarni Haukur Þórsson.

Ástarjátning Lopez á Twitter

Casper Smart, kærasti Jennifer Lopez er orðinn þreyttur á þeirri gagnrýni sem samband hans við stórstjörnuna hefur þurft að þola sökum mikils aldursmunar...

Undirbýr útrás næringardisksins

"Þetta er mjög spennandi og við heppin að fá að vera með,“ segir vöruhönnuðurinn Hafsteinn Júlíusson sem þessa daga undirbýr sína fyrstu för á vörusýningu erlendis.

Nafn komið á nýja plötu

Næsta plata Bruce Springsteen nefnist Wrecking Ball og kemur hún út í byrjun mars. Fyrsta smáskífulagið er komið út og heitir það We Take Care of Our Own. Tvö ár eru liðin síðan síðasta plata Springsteens, The Promise, leit dagsins ljós.

Bætir rósum í hnappagatið

Ryan Seacrest sló fyrst í gegn sem kynnir í hinum ótrúlega langlífu þáttum American Idol. Í dag er hann orðinn einn vinsælasti fjölmiðlamaður heims. Hann virðist ekkert hafa í hyggju að glata þeirri stöðu á næstunni, því hinn 37 ára gamli fjölmiðlakóngur er nú kominn með sína eigin sjónvarpsstöð. Seacrest hefur í samstarfi við AEG og hæfileikaskrifstofuna CAA náð samningum við frumkvöðulinn Mark Cuban um breytingar á sjónvarpsstöð hans, Hdnet, sem er bandarísk gervihnattastöð. Breytt stöð mun fá nýtt nafn og heita AXS TV og mun Seacrest þar beina sjónum sínum að lífsstíl og skemmtun. - trs

Allt öðruvísi en í Potter

Daniel Radcliffe sem er þekktur fyrir hlutverk Harry Potter í samnefndum myndum leikur ekkjumann og föður í nýrri draugamynd. Hún nefnist The Woman in Black og er byggð á samnefndri draugasögu Susan Hill.

Strípuð Stone

Ástin og lífið eru eins og sjórinn. Það er annað hvort flóð eða fjara, sagði leikkonan Sharon Stone...

Setur myndir af sér léttklæddri á netið

Söngkonan Rihanna, 23 ára, setti myndir af sér á Twitter síðuna sína í gær þar sem hún bregður á leik á Hawaii með vinkonum. Það sem vekur athygli er að Rihanna er aðeins klædd í bikiní...

Bubbi gekk of langt með hasskökurnar

Það er frábær þáttur í vændum hjá Týndu kynslóðinni í kvöld en þátturinn verður tileinkaður íslensku Idol stjörnuleitinni. Það er frábær þáttur í vændum hjá Týndu kynslóðinni í kvöld en þátturinn verður tileinkaður íslensku Idol stjörnuleitinni. Íslenska Idolið er einn vinsælasti sjónvarpsviðburður Íslands fyrr og síðar og mun Týnda kynslóðin rifja hann upp með kynnunum Simma og Jóa og dómurunum Bubba Morthens og Siggu Beinteins.

Nýtt lag frá Prinspóló

Prinspóló hefur gefið út á netinu lagið Föstudagsmessa. Það er fyrsta lagið sem hann sendir frá sér síðan breiðskífan Jukk kom út haustið 2010. Árni Rúnar Hlöðversson úr FM Belfast var Prinsinum til halds og trausts við framleiðslu lagsins. Jafnframt er komið út myndband við lagið sem Berglind Häsler gerði ásamt Prinsinum.

Þvílíkur munur

Leikkonan Sarah Jessica Parker, 46 ára, yfirgaf íbúð sína í New York í gær með húfu á höfði og sólgleraugu á nefinu eins og sjá má á myndunum...

Retro Stefson til Ameríku

"Þetta er mjög spennandi og verður eflaust gaman,“ segir Unnsteinn Manuel Stefánsson, meðlimur hljómsveitarinnar Retro Stefson sem kemur í fyrsta sinn fram í Bandaríkjunum á South by Southwest-tónlistarhátíðinni í mars.

Kát svona kasólétt

Söngkonan Jessica Simpson, 31 árs, og unnusti hennar, Eric Johnson, yfirgáfu steikhús í gærkvöldi í Beverly Hills eins og sjá má á myndunum...

Þórir gefur út Janúar

Tónlistarmaðurinn Þórir Georg hefur gefið út nýja plötu sem nefnist Janúar. Hún kom út á netinu á nýársdag og er væntanleg í verslanir á geisladisk og kassettu.

Adele jafnar metið

Plata bresku söngkunnar Adele, 21, hefur verið í sextán vikur á toppi bandaríska Billboard-listans. Þar með hefur hún jafnað met sem aðeins fjórar aðrar plötur áttu fyrir. Tvær þeirra eru með tónlist úr kvikmyndunum Bodyguard og Titanic en hinar eru með sveitasöngvurunum Garth Brooks og Billy Ray Cyrus.

Khloe sögð rangfeðruð

Mikið hefur verið spáð í faðerni raunveruleikastjörnunnar Khloe Kardashian undanfarið en sumir virðast halda að hún sé í raun ekki dóttir Roberts Kardashian heitins.

McCarthy í handritaskrifum

Rithöfundurinn Cormac McCarthy ætti að vera flestum kunnur, en hann skrifaði skáldsögurnar á bak við myndirnar No Country for Old Men og The Road. Hingað til hefur hann látið sérhæfða menn um kvikmyndaaðlögunina að bókum sínum en ákvað nú að láta reyna á eigin getu, McCarthy kom ritstjórum sínum á óvart með kvikmyndahandritinu þegar þeir voru að bíða eftir að fá nýju bókina hans, The Counsellor, í hendurnar. Handritið hefur þegar verið selt, en framleiðendurnir Nick Wechsler, Steve Schwartz og Paula Mae Schwartz náðu að festa kaup á því áður en byrjað var að keppast um það. Sagan fjallar um virðulegan lögfræðing sem telur sig geta grætt á heimi fíkniefna án þess þó að dragast inn í hann. Sagan er sögð vera sú besta og truflaðasta sem rithöfundurinn hefur sent frá sér hingað til, og á sama tíma uppfull af húmor. - trs

Fagnar 20 ára starfsafmæli

Bandaríska hljómsveitin Nada Surf er mætt til leiks með sína sjöundu hljóðversplötu. Höfundar hins vinsæla Popular hafa starfað saman í tuttugu ár.

Enginn hringur

Kjóllinn sem Jessica Biel klæddist á Golden Globe-verðlaunahátíðinni síðastliðið sunnudagskvöld vakti mikla athygli vestanhafs.

Bakkus flytur á Laugaveg 22

"Við erum að færa okkur í hentugra húsnæði,“ segir Jón Pálmar Sigurðsson, sem hefur rekið einn vinsælasta skemmtistað borgarinnar, Bakkus við Tryggvagötu, í um tvö og hálft ár.

Hannar fyrir H&M

Fatahönnuðurinn Gígja Ísis Guðjónsdóttir vakti athygli fyrir lokaverkefni sitt frá fatahönnunardeild Listaháskóla Íslands síðastliðið vor en þar sýndi hún framúrstefnulega undirfatalínu.

Bara beib með bleikt hár

Leikkonan Dakota Fanning, 17 ára, er búin að láta lita hluta af hárinu bleikt eins og sjá má á myndunum sem teknar voru af henni...

Bjóða rakstur og bjór á bóndadaginn

Aðstandendur Kexins við Skúlagötu eru byrjaðir að undirbúa bóndadaginn á morgun og stilla upp í dagskrá sem þeir fullyrða að fái bóndann til að "elska konuna ... enn meira."

Uppstríluð í gær - ómáluð í dag

Fyrrum Kryddpían Geri Halliwell, 38 ára, sótti dóttur sína, Bluebell Madonna, 5 ára, í skólann ómáluð með sólgleraugu á nefinu eins og sjá má á myndunum sem teknar voru af þeim í London í gær...

Mælir með Prometheus

Leikarinn Michael Fassbender telur að myndin Prometheus verði mynd ársins 2012 en eins og flestir vita var myndin að hluta til tekin upp á Íslandi. Fassbender, sem leikur í mynd Ridley Scott ásamt leikkonunum Noomi Rapace og Charlize Theron, hrósar handritinu sérstaklega. „Handritið er svakalega vel unnið og áhugavert. Þetta er alvöru thriller sem allir verða að sjá,“ segir Fassbender í viðtali við breska InStyle en hann hafði mikla ánægju af því að vinna undir leikstjórn Scotts en Prometheus á að vera undanfari Alien-myndanna.

Innilegur verðandi pabbi

Sherlock Holmes stjarnan Robert Downey Jr., 46 ára, átti innilega stund með Susan eiginkonu sinni þegar hann kyssti hana á ennið á verslunargötu í Beverly Hills síðasta sunnudag..

Gult og svart á rauða dreglinum

Gagnrýnendur vestanhafs verðlaunuðu þær kvikmyndir sem þeir telja að hafa staðið upp úr á árinu og var mikið um dýrðir í Hollywood. Kvikmyndin The Artist fór heim með fern verðlaun og The Help fylgdi fast á hæla hennar með þrenn. Viola Davis úr The Help var leikkona ársins og George Clooney leikari ársins fyrir leik sinn í myndinni The Descendants en verðlaunaafhendingin þykir gefa ágætis mynd af því hvernig sjálf Óskarsverðlaunin fara eftir nokkrar vikur. Bridesmaids var valin gamanmynd ársins og Drive hasarmynd ársins.

Rihanna afbrýðissöm

Tónlistarkonan Rihanna er ekki ánægð með að fyrrverandi kærasti hennar, Chris Brown, hafi fundið ástina á ný.

The Cure á Hróarskeldu

Hljómsveitin The Cure ætlar að spila á Hróarskelduhátíðinni í sumar. Þetta verður í fyrsta sinn í ellefu ár, eða síðan 2001, sem Robert Smith og félagar heiðra hátíðargesti með nærveru sinni. Fjögur ár eru liðin síðan síðasta plata The Cure, 4:13 Dream, leit dagsins ljós. Meðal annarra flytjenda á Hróarskeldu verða Björk, Bruce Springsteen og Bon Iver.

Síðasta stórmynd George Lucas

Nú á morgun, föstudag, er nýjasta mynd meistara George Lucas væntanleg í kvikmyndahús vestanhafs. Mynd þessi, Red Tails, er fjármögnuð og framleidd af Lucas sjálfum, eftir að henni var hafnað af öllum framleiðslufyrirtækjum sem hann heimsótti. Myndin fjallar um The Tuskagee Airmen, sem var amerísk flugsveit sem barðist í seinni heimsstyrjöldinni. Það merkilega við sveitina var að hún var eingöngu skipuð blökkumönnum.

Pósar eins og mamma Crawford

Kaia, 10 ára dóttir fyrirsætunnar Cindy Crawford og Rande Gerber, situr fyrir eins og móðir sín forðum daga eins og sjá má í myndasafni...

Ástir og örlög í amerískum stíl

Ófrumleg unglingabók, einkum byggð á klisjum úr amerískum kvikmyndum. Engu líkara en að höfundunum liggi gríðarmikið á að klára söguna og hlaupi því yfir flesta atburði á hundavaði.

Vildi tryggja öryggi Ivy

Beyoncé hefur varið þá ákvörðun að ráðinn var fjöldi öryggisvarða á sjúkrahúsið þar sem hún eignaðist sitt fyrsta barn, Blue Ivy. Margir foreldrar á fæðingardeildinni kvörtuðu yfir því að öryggisverðirnir hafi meinað þeim aðgang að öðrum sjúklingum og ættingjum sínum. „Allir sem vildu koma að sjá hana fengu að sjá hana. Öryggisvarslan var ströng, ekki að óþörfu heldur vegna öryggis dóttur okkar,“ sagði söngkonan í viðtali við tímaritið Star.

Dreymir um Ledger

Leikkonan Michelle Williams sagði í viðtali við tímaritið GQ að of erfitt væri að svara spurningu blaðamanns um hvort hún ímyndaði sér einhvern tímann ef hún gæti byrjað aftur með hinum sáluga Heath Ledger. Þau eiga saman dótturina Matilda en hættu saman eftir að hún fæddist.

Tréfígúrur byggðar á Hjálmum

„Hljómsveitin Hjálmar er einstaklega skemmtileg útlits og þeir hafa afgerandi karaktera hver og einn. Það hefur verið mjög gaman að fást við þetta,“ segir listakonan Aðalheiður Sigríður Eysteinsdóttir.

Aðstoðar Grant við íslenskunámið

„Hann hefur tekið framförum,“ segir leikarinn Guðjón Þorsteinn Pálmarsson, eða Denni, um síbatnandi íslenskukunnáttu Johns Grant.

Sjá næstu 50 fréttir