Fleiri fréttir

Tæknimenning í Gerðarsafni

Sýningin Sæborgin: Kynjaverur og ókindur verður opnuð í Gerðarsafni laugardaginn næsta, 21. janúar, klukkan 15. Sýningin byggir á nýútkominni bók Úlfhildar Dagsdóttur bókmenntafræðings, Sæborgin: Stefnumót líkama og tækni í ævintýri og veruleika, sem fjallar um þá ímynd er tæknimenning og líftækni taka á sig í vitund almennings.

Ryðguð járnfrú

Ágæt hugmynd en útfærslunni er ábótavant. Streep gerir áhorfið þó vel þess virði.

007 og Sinfó í Hörpu

Sigríður Thorlacius er ein úr hópi valinkunnra söngvara sem taka þátt í James Bond-veislu Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu. Hún syngur lag úr myndinni Diamonds Are Forever sem upphaflega var flutt af Carly Simon.

Litrík tíska á People's Choice

Árstíð verðlaunaafhendinga er hafin í Hollywood og er það alla jafna mikið fjör fyrir tískupekúlanta enda reyna stjörnurnar að skarta sínu fegursta á rauða dreglinum. People"s Choice Awards fóru fram í Los Angeles á dögunum og völdu flestar stjörnur að klæðast litum í tilefni dagsins. Dagana eftir hafa fjölmiðlar skipst á að hrósa ungstirnunum Demi Lovato og Lea Michele fyrir kjólaval sitt á verðlaunahátíðinni.

Margmenni á sýningu Libiu og Ólafs

Spænsk-íslenski myndlistardúettinn Libia Castro og Ólafur Ólafsson opnaði sýninguna Í afbyggingu í Listasafni Íslands á föstudaginn. Myndlistarmennirnir voru fulltrúar Íslands á Feneyjatvíæringnum í fyrra en á sýningunni kanna þau tilvistarlegar, ríkjandi efnahagslegar og pólitískar áherslur á Íslandi og víðar, með aðstoð myndbanda, gjörninga, skúlptúra, hljóðs og tónlistar. Margt var um manninn á opnuninni og lagðist sýningin vel í gesti, en hún stendur til 19. febrúar.

Gekk nærri sér en komst í gott form

Leikkonan Jessica Alba er í hörkuformi þrátt fyrir að aðeins séu liðnir fimm mánuðir frá því að hún og eiginmaður hennar, Cash Warren, eignuðust sína aðra dóttur, Haven Garner.

Angelina ólétt

Hún er gengin tæpa þrjá mánuði, er haft eftir heimildarmanni í tímaritinu OK! sem flytur fréttir af óléttu leikkonunnar Angelinu Jolie, 36 ára, sem fékk sér sveittan hamborgara í gær (nú vitum við áf hverju)....

Landið, fólkið, tungan og tæknin

Blanda af þjóðlegum fróðleik og minningabrotum úr heimi barns á öndverðri síðustu öld. Gullaldartexti sem ætti að vera skyldulesning.

Stelpan er greinilega ástfangin

Ekki nóg með að breska leikkonan Kate Winslet, 36 ára, hafi fengið Golden Globe styttu fyrir leik sinn í sjónvarpsseríunni Mildred Pierce um helgina heldur er ástfangin upp fyrir haus. Meðfylgjandi má sjá skælbrosandi Kate og unnusta hennar, Ned Rocknroll, leiðast á LAX flugvellinum.

Hollywoodslagur framundan

Leikkonan Megan Fox, 25 ára, reyndi að fela andlit sitt á LAX flugvellinum í Los Angeles eins og sjá má á myndunum en hún og leikkonan Lindsay Lohan, 25 ára, berjast nú um að fá að túlka Elísabetu Taylor í mynd um lífsferil hennar...

Hver sagði að hæðin skipti einhverju máli?

Í meðfylgjandi myndasafni má sjá heimsfræga karlmenn sem líta upp til ástkvenna sinna eins og Tom Cruise, Michael J. Fox, Mick Jagger, Roman Polanski, Micolas Sarkozy, Martin Scorsese og fleiri...

Þessar létu drauminn rætast

Tvítugu dansararnir Linda Ósk Valdimarsdóttir og Helga Ásta Ólafsdóttir í dansflokknum Rebel, sem vakti verðskuldaða athygli í sjónvarpsþáttunum Dans, dans, dans, létu drauminn rætast þegar þær opnuðu dansskóla...

Jolie fékk sér sveittan hamborgara

Leikkonan Angelina Jolie, 36 ára, var nánast eins og vaxstytta á Golden Globe verðlaunahátíðinni klædd í Atelier Versace kjól sem fór henni vel en burtséð frá glamúrnum kom leikkonan við á skyndibitastaðnum In-N-Out burger í Hollywood...

Snyrti skeggið í fyrsta sinn í átta mánuði fyrir Eurovision

"Þetta er eins og að vera með tvö höfuð," segir tónlistarmaðurinn Pétur Örn Guðmundsson, sem skartar síðu og miklu skeggi um þessar mundir. Þeir sem sáu flutninginn á Eurovision-laginu Mundu eftir mér í Sjónvarpinu áttu vafalítið erfitt með að leiða skegg bakraddasöngvarans Péturs Arnar hjá sér. Mikill skeggvöxtur hefur verið í tísku að undanförnu og tónlistarmenn á borð við Mugison, Snorra Helgason og Högna Egilsson hafa látið skegg sitt vaxa duglega.

Gogoyoko flytur tónleikaröðina yfir á Kexið

Tónlistarveitan gogoyoko hefur frá því í júní í fyrra haldið utan um hina vel heppnuðu tónleikaröð "gogoyoko wireless". Viðtökurnar hafa verið framar vonum og hafa tónlistarunnendur tekið röðinni fagnandi og lofað náið andrúmsloftið sem skapast hefur með tónlistarmönnum og áhorfendum á tónleikunum.

Rihanna ögrar

Söngkonan Rihanna, 23 ára, pósar léttklædd í ögrandi stellingum í nýrri undirfataherferð Emporio Armani eins og sjá má í myndasafni. Þá má sjá söngkonuna á Hawaii reykjandi á sama tíma og hún gerði nokkrar jógaæfingar. Það er miklu erfiðara að vera viðkvæm heldur en hörð þegar tilfinningar eru annars vegar, lét Rihanna hafa eftir sér.

Landsliðið heiðrar Paul Motian í Norræna húsinu

Landslið íslenskra jazzleikara leikur í minningu trommarans Paul Motian, sem féll frá 22. nóvember, í Norræna húsinu á fimmtudag. Bandaríski trommarinn Scott McLemore, sem er búsettur á Íslandi, hefur skipulagt tónleika þar sem tónsmíðum Motian's verður gert skil.

Hin flöktandi stjarna

Myndin er afar vel heppnuð og sýnir goðsögnina Marilyn í fallegu en flöktandi ljósi. Kaflaskipt en þrælgóð mynd um eina þekktustu konu síðustu aldar.

Bíddu er þetta þinn rétti húðlitur Beyoncé?

Nýbökuð mamma, söngkonan Beyoncé, 30 ára, er áberandi hvít á hörund með ljósa hárkollu liggjandi á hlébarðateppi, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Um er að ræða auglýsingu fyrir fjórðu skífu Beyoncé en myndin var tekin áður en hún varð barnshafandi. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem myndir af söngkonunni sýna húð hennar ljósari en hún er í raunveruleikanum. Fullyrt hefur verið að faðir Beyoncé ráðlagði henni að bera á sig krem sem lýsa húðina þegar hún var yngri.

Bieber verslar í matinn

Söngvarinn Justin Bieber, 17 ára, og unnusta hans, söng- og leikkonan Selena Gomez, 19 ára, versluðu saman í matvöruverslun í Kaliforníu á milli þess sem þau töluðu í símann eða sendu sms...

GP! Band á Bakkus

Guðmundur Pétursson gítarleikari heldur tónleika á Bakkus Bar í Tryggvagötu á morgun, miðvikudag. Með honum leika Pétur Ben á gítar og selló, Styrmir Haukson á hljóðgerfla og slagverk, Valdi Kolli á bassa og Kristinn Agnarsson á trommur.

Rektu lýtalækninn núna

Leikkonan Lindsay Lohan, 25 ára, stillti sér upp á rauða dreglinum eftir Golden Globe verðlaunaafhendinguna sem fram fór á sunnudagskvöld klædd í Prada síðkjól...

Lagfærir orðaforðann

Rapparinn Jay-Z er hættur að nota orðið "tík“ í textunum sínum. Ástæðan er fæðing dóttur hans Blue Ivy Carter sem hann eignaðist með söngkonunni Beyoncé fyrr í mánuðinum. Í ljóði sem hann samdi í tilefni fæðingarinnar heitir hann því að nota orðið aldrei framar. Hann segist vera breyttur maður og hefur lítið álit á þeim sem ætla að taka sér orðið í munn í framtíðinni.

Glæsileg umgjörð

Fanný og Alexander er glæsileg þriggja tíma afþreying sem óhætt er að mæla með.

Nýtt eldhús á fimm dögum

"Þetta var ágætis spark í rassinn, enda ætluðum við alltaf að breyta eldhúsinu,“ segir Hrefna Rósa Sætran kokkur, en hún fékk aðeins fimm daga til að ráðast í heljarinnar breytingar á eldhúsi sínu fyrir tökur á nýrri þáttaröð á matreiðsluþætti sínum.

Kúl hárgreiðsla Cameron

Leikkonan Cameron Diaz, 39 ára, var glæsileg með glænýja hárgreiðslu klædd í bláan Monique Lhuillier kjól á Golden Globe verðlaunahátíðinni um helgina...

Ánægður með Gervais

Paul Telegdy, forstjóri sjónvarpsstöðvarinnar NBC, er mjög ánægður með frammistöðu grínistans Rickys Gervais sem kynnis á Golden Globe-verðlaununum.

Á annan veg til Gautaborgar

„Þetta er mjög gaman og flott að vera valinn inn á þessa hátíð,“ segir Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, leikstjóri myndarinnar Á annan veg sem var valin inn á hina eftirsóttu kvikmyndahátíð í Gautaborg fyrir helgi.

Glæsileiki á Golden Globe

Golden Globe verðlaunahátíðin fór fram með pompi og pragt á sunnudaginn í Los Angeles. Fræga fólkið gekk varlega niður rauða dregilinn enda í sviðsljósinu og ekki gott að stíga feilspor, sérstaklega ekki í fatavali. Kjólarnir sem sáust á hátíðinni voru flestir fallegir og var hið svokallaða „hafmeyjusnið“ áberandi.

Fór í mótorhjólaferð um Evrópu

Írski leikarinn Michael Fassbender ákvað að skella sér í mótorhjólaferð um alla Evrópu eftir mikla törn á árinu 2011. Fassbender lék í sex kvikmyndum á aðeins tuttugu mánuðum og hafði verið að störfum í næstum tvö ár samfleytt. Þetta tók sinn toll og því ákvað leikarinn að bjóða föður sínum og besta vini á flakk um heimsálfuna.

Craig og Weisz kaupa sér lúxusíbúð

James Bond-leikarinn Daniel Craig og eiginkona hans, Rachel Weisz, hafa fjárfest í sex herbergja íbúð í SoHo-hverfinu í New York. Íbúðin skartar meðal annars þremur baðherbergjum, sjónvarpsherbergi með arni og sér þakgarði. Skötuhjúin þurftu að borga 11,5 milljónir dollara samkvæmt New York Post.

Ósáttur við kærasta J-Lo

Marc Anthony er sagður mjög ósáttur við framferði fyrrverandi eiginkonu sinnar, söngkonunnar Jennifer Lopez, og ungs kærasta hennar. Lopez tók saman við dansarann Casper Smart stuttu eftir skilnaðinn við Anthony og hefur þegar kynnt hann fyrir börnum sínum tveimur.

Madonna leyfir söngleik

Bandaríska söngkonan Madonna hefur opnað á þann möguleika að lög hennar verði notuð í söngleik. Þetta kemur fram í viðtali við hana í breska blaðinu Daily Star.

Help Them komist að erlendis

Verið er að kanna möguleikann á að gefa út erlendis ensku útgáfuna af laginu Hjálpum þeim, eða Help Them. „Þetta var gefið út í samvinnu við Hjálparstofnun kirkjunnar. Ætlunin er að koma þessu á framfæri í gegnum samtök sem þau eru tengd sem heita Act Alliance," segir Jóhann G. Jóhannssonar, annar af höfundum lagsins.

Lág stefgjöldin fyrir Thank You

Stefgjöldin sem hljómsveitin Dikta fékk fyrir lagið Thank You í desember voru mun lægri en hún átti von á. Lagið var eitt það vinsælasta árið 2010 og mikið spilað í útvarpinu en það virðist ekki hafa dugað til.

Sex pör úr ungu Hollywood

Ný kynslóð leikara og söngvara hefur verið að ryðja sér til rúms í Hollywood síðustu ár og líkt og gengur og gerist hefur þetta unga, myndarlega fólk verið að draga sig saman.

Jón Gnarr óttast ekki norska meðhöndlun

„Mig myndi langa mjög mikið til að heimsækja þá. Og sem borgarstjóri getur maður náttúrlega komið í kring ýmsum hlutum," segir Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkurborgar.

Hannes hrifinn af Meryl

"Meryl Streep vinnur mikinn leiksigur í myndinni. Hún er mjög sannfærandi sem Margaret Thatcher og nær henni mjög vel," segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.

Stefnir á Ólympíuleikana 2016

Jón Þór Sigurðsson, eða Nonni kjuði, trommari hljómsveitarinnar Diktu, stefnir á þátttöku í Ólympíuleikunum í Brasilíu 2016 í skotfimi. „Núna er stefnan tekin á að standa sig vel hérna heima. Svo er aldrei að vita nema maður taki stefnuna á Ólympíuleikana 2016,“ segir Nonni.

Vá hvað þessi kjóll er svakalega fleginn

Fyrirsætan Erin Wasson stal senunni á Golden Globe verðlaunahátíðinni vægast sagt eins og sjá má á meðfylgjandi myndum þar sem örþunnur fleginn kjóllinn hennar huldi ekki stóran hluta líkama hennar...

Bubbi færir sig yfir á Bylgjuna

"Mig langaði til að halda áfram að þróa þetta form, mér finnst þetta æðislega skemmtilegt. Og svo er líka heilt haf af ungum tónlistarmönnum sem enn á eftir að kanna,“ segir Bubbi Morthens. Bubbi er hættur með þátt sinn Færibandið á Rás 2 og hefur fært sig yfir á Bylgjuna þar sem hann byrjar með nýjan þátt, Stál og hnífur, eftir rúma viku á mánudagskvöldum.

Hvor var Axlar-Björn?

Frumsýning á miðvikudegi, öll sæti skipuð og eftirvænting í salnum. Eitthvað íslenskt, eitthvað nýtt og svo auðvitað Helgi Björns.

Edrú John Grant

Bandaríski tónlistarmaðurinn John Grant sneri aftur hingað til lands 9. janúar eftir að hafa spilað á Airwaves-hátíðinni síðasta haust við góðar undirtektir. Hann ætlar að dvelja á landinu til næstu mánaðamóta, eða í um þrjár vikur.

Engum leiddist þarna

Meðfylgjandi myndir voru teknar um helgina á Kjarvalsstöðum á opnun málverkasýningu Karenar Agnete Þórarinsson og arkitektasýningu frá norska arkitektastórveldinu Snøhetta...

Sjá næstu 50 fréttir