Fleiri
Rokkprófið - Aðalbjörn í Sólstöfum vs. Regína Ósk 24.11.2011 11:00 Páll Óskar: Fimm bestu HAM-lögin Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður velur fimm bestu HAM-lögin. Hann segir HAM bestu rokkhljómsveit Íslandssögunnar. 24.11.2011 11:00 Íslenskar listakonur heiðraðar Annað árið í röð verða þrjár íslenskar listakonur, Rakel McMahon myndlistarkona, Hildur Yeoman fatahönnuður og Saga Sig tískuljósmyndari heiðraðar á listakvöldi Baileys... 24.11.2011 10:54 Upptökur í búgarði gítarleikara Strokes The Vaccines er ein af heitustu hljómsveitum Bretlands um þessar mundir. Hljómsveitin sendir frá sér lagið Tiger Blood á næstunni en gítarleikari The Strokes stýrði upptökum á laginu. Árni Hjörvar, bassaleikari hljómsveitarinnar, er ánægður með samstarfið. 24.11.2011 10:30 Vill tromma þrátt fyrir axlarbrot „Þetta er tvísýnt. Ég ætla að hitta lækni og gera þetta í samráði við hann,“ segir trommuleikarinn Egill Rafnsson. 24.11.2011 10:30 Scorsese frumýnir Hugo Þakkargjörðarhátíðin var um liðna helgi í Bandaríkjunum en þá notaði leikstjórinn Martin Scorsese tækifærið og frumsýndi fyrstu bíómynd sína í þrívídd, Hugo. Myndin fjallar um munaðarleysingja sem býr inni í veggjum lestarstöðvar í París og hefur hún fengið góðar viðtökur gagnrýnenda vestanhafs. Ungstirnin Asa Butterfield og Chloë Grace Moretz leika aðalhlutverkin og voru að sjálfsögðu mætt til að fagna frumsýningunni klædd í sitt fínasta púss. Aðrir leikarar í myndinni eru Sacha Baron Cohen, Jude Law og Emily Mortimer. 24.11.2011 09:45 Sjá næstu 50 fréttir
Ánægðir gestir á Freddie Mercury-tónleikum Tvennir tónleikar til heiðurs Freddie Mercury, hinum sáluga söngvara Queen, voru haldnir í Hörpu á miðvikudagskvöld. Stemningin í salnum var góð enda sá hópur góðra söngvara og tónlistarmanna um að lög Mercury kæmust vel til skila. 25.11.2011 21:00
Prófaði öll eiturlyfin Leikkonan Angelina Jolie segist vera heppin að vera á lífi miðað við óheilbrigt lífernið á sínum yngri árum. "Ég tók öll eiturlyf sem til voru; kókaín, e-pillu, heróín og hreinlega allt," sagði hin 36 ára Jolie í viðtali við 60 Minutes. "Ég fór í gegnum mikið myrkur og ég komst í gegnum það. Ég dó ekki ung, þannig að ég er mjög heppin. Margir aðrir listamenn og manneskjur hafa ekki lifað slíkt af." Hún viðurkennir að vera ekki laus við allt myrkrið en aðeins kærastinn Brad Pitt fær að kynnast því. "Þessi hluti af mér er enn til staðar. Hann er bara á sínum stað og er bara fyrir Brad og okkar ævintýri." 25.11.2011 20:30
Biel stjórnar sambandinu Þegar Justin Timberlake og Jessica Biel tóku aftur saman eftir fimm mánaða hlé á sambandinu töldu flestir vina þeirra að loksins væri komið að því að þau myndu ganga í það heilaga. Timberlake er hins vegar tregur til, því hann heldur að hjónaband myndi hafa skaðleg áhrif á feril hans, sem byggist mikið á vinsældum hans hjá kvenþjóðinni. 25.11.2011 20:00
Óánægð með kærastann Jennifer Lopez hefur ekki verið heppin í ástarmálunum undanfarið. Eftir að hafa skilið við eiginmann sinn til sjö ára, Marc Anthony, í sumar hóf hún ástarsamband með 24 ára dansaranum Casper Smart. Nú hefur komið í ljós að sá á mögulega fangelsisvist yfir höfði sér fyrir ýmis umferðarbrot. Lopez er að sögn heimildamanna ekki ánægð með kærastann og hefur ekki gert upp við sig hvort hún muni mæta í dómssal til að styðja hann þegar málið verður tekið fyrir. 25.11.2011 19:30
Auglýsingar tískurisa þykja ekki börnum sæmandi Bresku samtökin Advertising Standards Authority hafa bannað auglýsingar frá tískumerkjunum Marc Jacobs og Miu Miu. Ástæðan er að þær þykja ekki börnum sæmandi, en leikkonurnar Dakota Fanning og Hailee Steinfeld eru í aðalhlutverkum á myndunum. 25.11.2011 16:15
Gylfi Ægis með aukatónleika í kvöld Nú eru hátt í 200 miðar seldir en salurinn tekur 300 manns. Þannig að það eru nokkrir miðar eftir, segir Gylfi Ægisson söngvari og lagasmiður. 25.11.2011 15:00
Frumsýna glænýtt myndband við lagið Ást og áfengi Hljómsveitin Klaufar frumsýnir hér nýtt glænýtt myndband við smellinn Ást og áfengi og fer ekki milli mála að hér er alvöru kántrísveit á ferðinni. Klaufarnir hafa starfað í fimm ár og leikið kántrí vítt og breytt um landið fyrir landann. Sveitin samanstendur af þeim Guðmundi Annas Árnasyni söngvara, Sigurgeir Sigmundssyni fetilgítarleikara, Birgi Nielsen trommara, Friðriki Sturlusyni bassaleikara og Kristjáni Grétarssyni gítarleikara. 25.11.2011 15:00
Sonic Youth að hætta? Mikil óvissa ríkir nú um framtíð rokksveitarinnar Sonic Youth eftir að eitt langlífasta par rokksins, Thurston Moore söngvari og Kim Gordon bassaleikari, tilkynntu um skilnað sinn eftir nærri 30 ára hjónaband. Tilkynningin kom í október þegar hljómsveitin var á tónleikaferðalagi í Suður-Ameríku. Moore og Gordon giftu sig árið 1984 þegar hljómsveitin hafði starfað í þrjú ár. Aðdáendur sveitarinnar voru því flestir jafnframt aðdáendur hjónabandsins, og haft var eftir eyðilögðum ungum manni að skilnaðurinn hefði orðið til þess að hann tryði ekki lengur á sanna ást. 25.11.2011 15:00
Skúrkur afhjúpaður í Týndu kynslóðinni Í Týndu kynslóðinni í kvöld verður frumsýndur nýr dagskrárliður sem kallast Sönn íslensk swagamál. Þar verður hulunni svipt af skúrkinum Steinari Bárðarsyni sem Týnda kynslóðin vill meina að hafi farið illa með marga íslenska tónlistarmenn og sé núverandi umboðsmaður stúlknasveitarinnar Charlies. 25.11.2011 14:30
Stjörnurnar horfa til Íslands Bandarískar kvikmyndastjörnur og leikstjórar hafa verið tíðir gestir á Íslandi á þessu ári. Fréttablaðið tók saman lista yfir fræga fólkið sem hefur heiðrað Íslendinga með nærveru sinni árið 2011. 25.11.2011 14:00
Gibb á batavegi Söngvarinn Robin Gibb hefur fullvissað aðdáendur sína um að hann sé ekki á grafarbakkanum eins og breskir fjölmiðlar hafa gefið í skyn. Hann sé þvert á móti á góðum batavegi þrátt fyrir að hafa verið lagður inn á sjúkrahús í annað sinn á skömmum tíma í síðustu viku. Gibb ætlaði að koma fram á jólatónleikum Björgvins Halldórssonar en varð að aflýsa komu sinni sökum veikinda. 25.11.2011 14:00
Star Trek 3D kemur 2013 Framhaldsmyndin Star Trek 3D er væntanleg í kvikmyndahús 17. maí 2013. Hinir fjölmörgu Trekkarar, dyggir aðdáendur Star Trek, geta því byrjað að telja niður dagana í rólegheitum. Tökur hefjast í janúar á næsta ári og sem aftur eru þau Zoe Saldana, Chris Pine og Zachary Quinto í aðalhlutverkum. Orðrómur er einnig uppi um að Benecio Del Toro leiki illmennið í myndinni. Star Trek 3D átti upphaflega að koma út næsta sumar en var frestað af kvikmyndaverinu Paramount. Í staðinn var farið í framleiðslu á G.I. Joe 2. Retaliation. 25.11.2011 13:00
Ný barnabók Hendrikku Waage Meðfylgjandi myndir voru teknar í gær þegar Hendrikka Waage skartgripahönnuður fagnaði útkomu barnabókar, Rikka og töfrahringurinn í Japan, hjá bókaútgáfunni Sölku með vinum og fjölskyldu.... 25.11.2011 12:45
Í makaleit á netinu Leikkonan, Playboy-fyrirsætan og dagskrágerðarkonan Jenny McCarthy hefur gefist upp á að finna maka i Los Angeles og leitað á náðir internetsins. McCarthy hætti með leikaranum Jim Carrey fyrir nokkru og hefur nú sett auglýsingu á einkamálasíðuna Match.com undir dulnefni. McCarthy skrifaði í auglýsingunni að hún væri komin með leið á karlmönnunum í Los Angeles. „Mennirnir hérna líta allir út eins og konur. Ég er að leita að einhverjum sem er ekki héðan.“ Það er vefsíðan Perezhilton.com sem uppljóstrar um makaleit leikkonunnar. 25.11.2011 12:00
Eldar og bakar á hverjum degi "Ég veit fátt betra en að borða, það er mikið áhugamál hjá mér,“ segir Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir, 22 ára gömul Akranesmær, sem vakið hefur mikla athygli fyrir matreiðslublogg sem hún heldur úti. 25.11.2011 11:15
Draumur að rætast að fá að hitta poppkónginn „Ég held alveg sérstaklega upp á Pál Óskar. Ég hef haft áhuga á tónlistinni hans síðan 1987 og Eurovision síðan hann flutti Minn hinsti dans. Í raun og veru er það hann sem vakti hjá mér áhuga á íslenskri tónlist og þá sérstaklega Eurovision.“ Þetta segir Craig Murray, einlægur ástralskur Íslandsvinur og tónleikagestur Frostrósa, sem langar alveg sérstaklega til að hitta Pál Óskar Hjálmtýsson þegar hann og sambýlingur hans, Daryl Brown, koma hingað til Íslands skömmu fyrir jól. 25.11.2011 10:30
Klára prófin og kynna svo Nology, fyrsta breiðskífa dúósins Nolo, er komin út. Gripnum verður fylgt eftir um leið og þeir hafa lokið jólaprófunum. Fyrsta plata dúósins Nolo í fullri lengd nefnist Nology og kom nýverið út á vegum Kimi Records. Platan hefur verið fáanleg á tónlistarveitunni Gogoyoko síðustu viku og hefur fengið mjög góðar viðtökur hjá tónlistarunnendum. 25.11.2011 10:00
Það er ekkert að þessum kjól Breska leikkonan Sienna Miller stillti sér upp á rauða dreglinum í svörtum Emilio Pucci kjól sem fór henni þetta líka svona vel... 25.11.2011 08:52
Bít-skáld liðkaði fyrir Ameríkuútgáfu „Hún verður gefin út hjá forlagi sem nefnist New American Press og er ekki langt frá Chicago. Þetta er tíu til fimmtán ára gamalt forlag sem gefur út bókmenntir og tímarit. Þeir ætla að gera vel úr þessu og það kemur jafnvel til greina að ég fari út, lesi upp og áriti,“ segir rithöfundurinn Ólafur Gunnarsson. Smásagnasafn hans, Meistaraverkið, verður gefið út í Bandaríkjunum á næsta ári. 25.11.2011 08:00
Áhrifin beint frá Nietzsche Rapparinn Kanye West segist ekki hafa stolið texta lagsins Stronger frá lagahöfundinum Vincent Rogers. Sá síðarnefndi hefur kært West og heldur því fram að rapparinn hafi hermt eftir lagi sem hann samdi árið 2006 og heitir sama nafni. Í báðum lögunum eru tilvísanir í þýska heimspekinginn Friedrich Nietzsche og fyrirsætuna Kate Moss. Lögfræðingar West segja að textinn við lag hans sé undir beinum áhrifum frá Nietzsche og orðum hans: „Það sem drepur þig ekki gerir þig sterkari.“ Vísa þeir því ásökunum Rogers algjörlega á bug. 25.11.2011 06:00
Frægar fæða fátæka Sjónvarpsstjarnan Kim Kardashian og leikkonurnar Zoe Saldana og Jennifer Love Hewitt, stilltu sér upp á milli þess sem þær gerðu góðverk í gær... 24.11.2011 19:19
Brjálaðar í Bieber Í meðfylgjandi myndskeiði og myndum má sjá Justin Bieber, 17 ára, og óteljandi aðdáendur sem biðu hvorki meira né minna en í heilan sólahring til að fylgjast með honum syngja í sjónvarpsþættinum The Today Show í New York... 24.11.2011 16:11
Gaga jól Söngkonan Lady Gaga, 25 ára, er greinilega komin í jólaskap eins og heyra má í meðfylgjandi myndskeiði... 24.11.2011 15:39
Hendrix þótti bestur Jimi Hendrix hefur verið kjörinn besti gítarleikari sögunnar af tímaritinu Rolling Stone. Þessi niðurstaða kemur líklega fáum á óvart enda hefur Hendrix lengi verið talinn einn sá allra fremsti. Í öðru sæti lenti Eric Clapton og þar á eftir kom Jimmy Page úr Led Zeppelin. 24.11.2011 22:00
Engin pressa Hljómsveitin Dikta hefur verið til í meira en áratug, en varð gríðarlega vinsæl fyrir tveimur árum. Þá sendi hún frá sér plötuna Get It Together og í kjölfarið byrjuðu lög á borð við Thank You og Just Getting Started að óma á flestum útvarpsstöðvum, pöbbum, félagsheimilum, leikskólum og elliheimilum landsins. Nú hefur hljómsveitin snúið aftur með nýja plötu í farteskinu. 24.11.2011 09:30
Viltu vinna nýju plötuna með Diktu? Viltu freista þess að fá nýju plötuna með Diktu án þess að greiða fyrir hana krónu? Jú, öllum finnst gaman að fá gjafir og ef þú ferð inn á Facebook-síðu Popps, facebook.com/popptimarit, og smellir á "like“ er möguleiki á því að draumur þinn rætist. 24.11.2011 09:15
Lollapalooza í Brasilíu Bandarísku rokkararnir í Foo Fighters ætla að spila á fyrstu brasilísku útgáfunni af tónlistarhátíðinni Lollapalooza. Hátíðin var haldin í Síle í fyrra og verður haldin aftur þar í ár. Brasilíska hátíðin verður haldin í Sao Paulo 7. og 8. apríl á næsta ári, skömmu eftir að stuðinu í Síle lýkur. Á meðal annarra sem stíga á svið í Sao Paulo verða Jane"s Addiction, MGMT og TV on the Radio. 24.11.2011 22:00
Grípandi danspopp Rihönnu Söngkonan hæfileikaríka Rihanna er mætt með sína sjöttu hljóðversplötu. R&B og danspoppið er sem fyrr afar fyrirferðarmikið. 24.11.2011 21:00
Synirnir aðstoða við hönnunina Söngkona Gwen Stefani úr hljómsveitinni No Doubt viðurkennir að hún lætur syni sína hjálpa sér við hönnun barnafatalínu sinnar. Þeir Kingston, sem er fimm ára, og Zuma, tveggja ára, aðstoðuðu móður sína við að hanna fatalínuna Harajuku Mini fyrir Target-búðina í Bandaríkjunum. 24.11.2011 18:00
Skelltu sér á tónleika Leikararnir Kristen Stewart og Robert Pattinson sáust saman á tónleikum með Lauru Marling í London um helgina. Þau höfðu hægt um sig og stóðu aftast með hettu á höfði. Eftir tónleikana voru þau ekki lengi að láta sig hverfa en starfsfólk staðarins þekktu þau. Stewart og Pattinson hafa ávallt farið leynt með samband sitt en þau leika par í Twilight myndunum og eiga nú stund milli stríða á meðan næst síðasta vampírumyndin, The Twilight Saga Breaking Dawn part 1, er sýnd á hvíta tjaldinu. 24.11.2011 17:00
Kelly Osbourne grét Kelly Osbourne uppljóstraði á samskiptavefnum Twitter að hún hefði tárast við að sjá sónarmynd af ófæddu barni bróður síns, Jacks Osbourne. „Ég var að sjá sónarmynd af barni bróður míns og ég get ekki hætt að þurrka tárin. Barnið er fullkomið.“ 24.11.2011 15:00
Erfitt að vakna og fara í ræktina Britney Spears á ekki sjö dagana sæla þessa dagana, en hún hefur verið á erfiðu tónleikaferðalagi frá því í júní. Hún er að kynna sjöundu plötuna sína, Femme Fatale, og segist vera orðin gríðarlega þreytt á flandrinu. 24.11.2011 14:00
Komin með upp í kok af Kardashian klani Hávær hópur sem kominn er með upp í kok af Kardashian fjölskyldunni byrjaði eftir tveggja mánaða langt brúðkaup Kim að safna undirskriftum gegn... 24.11.2011 13:50
George Michael með lungnabólgu George Michael hefur neyðst til að aflýsa fleiri tónleikum vegna veikinda. Michael er á tónleikaferðalagi sem nefnist Symphonica en hann er að berjast við lungnabólgu. Tónleikaferðalag Michaels hófst í ágúst á þessu ári og síðustu tónleikar hans voru í október í Royal Albert Hall þann 11. október. Hann neyddist hins vegar til að hætta við tónleika sem hann ætlaði að halda þann 26. október og varð loks að aflýsa öllu tónleikahaldi í Vín, Strassburg og Cardiff. 24.11.2011 13:00
Prinspóló til Danmerkur Prinspóló leikur á tvennum tónleikum í Danmörku í næstu viku. Fimmtudaginn 24. nóvember verður hljómsveitin á Loppen í Kaupmannahöfn og daginn eftir spilar hún á Musiccafeen í Árósum. Á þessu stutta ferðalagi um Danmörku hitar Prinspóló upp fyrir dönsku hljómsveitina Let Me Play Your Guitar. Prinspóló gaf síðastliðið haust út plötuna Jukk og hafa lög eins og Niðrá strönd, Hakk & spaghettí og Skærlitað gúmmulaði fengið góðar viðtökur. Hljómsveitin hefur spilað á Íslandi, Póllandi, Lettlandi og í Þýskalandi. 24.11.2011 12:30
Öskubuskuævintýri í bandarísku sjónvarpi Bandaríska þjóðin átti ekki í miklum erfiðleikum með að velja sigurvegarann í bandaríska raunveruleikaþættinum Dancing with the Stars á þriðjudagskvöld. Nafn J.R. Martinez var skrifað á bikarinn um leið og stríðshetjan fyrrverandi steig sinn fyrsta dans. 24.11.2011 12:30
Stríðið um Mjallhvíti Sagan um Mjallhvíti, prinsessuna fögru sem hrakin var á brott af vondu stjúpunni og fann skjól hjá dvergunum sjö, er flestum kunn. Á næsta ári verða tvær fokdýrar kvikmyndir frumsýndar þar sem snúið er út úr ævintýri Grimm-bræðra að hætti Hollywood. 24.11.2011 12:00
Heyrðu, Pippa kann að skauta Yngri systir hertogaynjunnar af Cambridge, Pippa Middleton, var pollróleg eins og sjá má á meðfylgjandi myndum þegar... 24.11.2011 11:36
Hugljúf og grípandi Fyrsta plata Togga kom út fyrir fimm árum og þar var hann í trúbadoragírnum. Hún fékk ágætar viðtökur en Toggi varð þekktara nafn eftir að bæði Páll Óskar og síðar meir Hjaltalín fluttu lag hans við texta Páls Óskars, Þú komst við hjartað í mér. Vinsældir lagsins voru gríðarlegar og á endanum var það kjörið lag ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. 24.11.2011 11:30
Páll Óskar: Fimm bestu HAM-lögin Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður velur fimm bestu HAM-lögin. Hann segir HAM bestu rokkhljómsveit Íslandssögunnar. 24.11.2011 11:00
Íslenskar listakonur heiðraðar Annað árið í röð verða þrjár íslenskar listakonur, Rakel McMahon myndlistarkona, Hildur Yeoman fatahönnuður og Saga Sig tískuljósmyndari heiðraðar á listakvöldi Baileys... 24.11.2011 10:54
Upptökur í búgarði gítarleikara Strokes The Vaccines er ein af heitustu hljómsveitum Bretlands um þessar mundir. Hljómsveitin sendir frá sér lagið Tiger Blood á næstunni en gítarleikari The Strokes stýrði upptökum á laginu. Árni Hjörvar, bassaleikari hljómsveitarinnar, er ánægður með samstarfið. 24.11.2011 10:30
Vill tromma þrátt fyrir axlarbrot „Þetta er tvísýnt. Ég ætla að hitta lækni og gera þetta í samráði við hann,“ segir trommuleikarinn Egill Rafnsson. 24.11.2011 10:30
Scorsese frumýnir Hugo Þakkargjörðarhátíðin var um liðna helgi í Bandaríkjunum en þá notaði leikstjórinn Martin Scorsese tækifærið og frumsýndi fyrstu bíómynd sína í þrívídd, Hugo. Myndin fjallar um munaðarleysingja sem býr inni í veggjum lestarstöðvar í París og hefur hún fengið góðar viðtökur gagnrýnenda vestanhafs. Ungstirnin Asa Butterfield og Chloë Grace Moretz leika aðalhlutverkin og voru að sjálfsögðu mætt til að fagna frumsýningunni klædd í sitt fínasta púss. Aðrir leikarar í myndinni eru Sacha Baron Cohen, Jude Law og Emily Mortimer. 24.11.2011 09:45