Fleiri
Haustlína Prada 2011 Meðfylgjandi má skoða haustlínu Prada 2011. 3.5.2011 08:08 Besti taktkjaftur Breta á Nasa Taktkjafturinn Beardyman kemur fram á tónleikum á Nasa næsta laugardag 7. maí. Beardyman vakti fyrst athygli þegar hann vann keppnina UK Beatbox Champion árin 2006 og 2007. Árið 2008 sat hann í dómnefnd. Hann hefur verið í fararbroddi taktkjafta og blandar saman nýjustu tækni og hæfileikum sínum til að skapa heilu tónverkin á sviði. 3.5.2011 08:00 Hann á eftir að upplifa það Ágúst Borgþór hefur löngu sannað það að hann er fínn stílisti og hér fágar hann stíl sinn enn frekar. Ekki orði er ofaukið og fágað yfirborð textans undirstrikar þá örvæntingu sem undir býr – þrátt fyrir allt. 3.5.2011 06:00 Bannar meiri megrun Unnusti söng-og leikkonunnar Jennifer Hudson, David Otunga, hefur bannað henni að grennast meira en fjölmiðlar vestanhafs hafa einnig deilt áhyggjum hans af ört minnkandi líkama Óskarverðlaunahafans. 3.5.2011 06:00 Lambatartar að hætti VOX Á hinum hefðbundna matseðli VOX á Hilton Hóteli við Suðurlandsbraut er þessi ferski réttur. Uppskriftin er ætluð fjórum. 3.5.2011 00:01 Tímalausar teiknimyndasögur Siglufjarðarprentsmiðja gaf út þýddar myndasögur í meira en tíu ár. Þorgils Jónsson kynnti sér söguna á bak við útgáfuna á þessum merkilegu blöðum sem glöddu börn og ungmenni um allt land og lifa enn með þjóðinni, tuttugu árum síðar. 2.5.2011 23:00 Gefur ekki upp faðerni barnsins Leikkonan January Jones, sem sló í gegn í sjónvarpsþáttunum Mad Men, á von á sínu fyrsta barni. Leikkonan vill þó ekki gefa upp faðerni barnsins. „January á von á sínu fyrsta barni nú í haust. Hún hlakkar mikið til þessa nýja kafla í lífi sínu og að takast á við móðurhlutverkið,“ stóð í tilkynningu frá talsmanni hennar. 2.5.2011 21:00 Reið út í Andre Glamúrfyrirsætan Katie Price er stödd í Argentínu þar sem hún nýtur lífsins með nýjum kærasta. Price er þó dugleg að fylgjast með gangi mála heima á Englandi og gagnrýndi fyrrverandi eiginmann sinn, Peter Andre, fyrir að leyfa börnum þeirra að koma fram í sjónvarpsþætti hans.Price tjáði óánægju sína á Twitter-síðu sinni. 2.5.2011 19:30 Logi Geirsson: Allt hrundi á einni nóttu Afreksmaðurinn Logi Geirsson sem er byrjaður í nýju starfi ásamt því að vera nýfluttur til Njarðvíkur með fjölskylduna sína, unnustu og 10 mánaða drenginn þeirra, var aðalgestur Siggu Lund og Ellýar Ármanns í þættinum þeirra á sunnudagskvöldið 1. maí á Bylgjunni. Það var rosalega mikil gleði. Við vorum búin að plana allt og allt klárt. Ég var búinn að fjárfesta mikið úti í Þýskalandi og átti mikið af eignum og mikið af pening og það bara hrundi á einni nóttu..." sagði Logi spurður hvernig honum leið þegar hann varð pabbi. 2.5.2011 19:14 Alltaf gaman að mæta í vinnuna Eldhuginn Jón Stefánsson hefur verið lífið og sálin í öflugu tónlistarstarfi Langholtskirkju frá unga aldri. Sigríður Björg Tómasdóttir hitti Jón á heimavelli í Langholtskirkju og ræddi um tónlist og ástríðuna fyrir að miðla henni. 2.5.2011 19:00 Listin og heita vatnið Koddu er fjölbreytileg og inni á milli ögrandi sýning sem birtir frjóar hugmyndir listamanna um viðhorf til íslenskrar menningar fyrir hrun. Einstaka verk stendur upp úr og nær að hreyfa við áhorfandanum í víðu samhengi. Umræðan um Fallegustu bók í heimi beinir sjónum frá viðfangsefni sýningar en er þörf sem slík. 2.5.2011 19:00 Þessar erótísku myndir bæta ekki ímyndina Lindsay Lohan er byrjuð að búa sig undir samfélagsþjónustu sem hún telur vera gott tækifæri til að bæta ímynd sína og á sama tíma situr hún fyrir í erótískum stellingum í tímariti sem ber heitið Blank. Dómari í Los Angeles skikkaði leikkonuna nýverið til að sinna samfélagsþjónustu en meðfylgjandi myndir voru einnig teknar sama dag og hún mætti í dómsalinn. Þá var hún einnig dæmd í 120 daga fangelsisvist og 480 klukkustunda vinnu í þágu samfélagsins og hyggst eyða þeim í að kenna heimilislausum konum að leika. Lohan var dæmd fyrir að rjúfa skilorð þegar skartgripasali sakaði hana um að stela hálsmeni frá sér. 2.5.2011 18:40 Greinilega ástfangin Bandaríska leikkonan Scarlett Johansson og unnusti hennar leikarinn Sean Penn leiddust hönd í hönd um helgina eins og sjá má á myndunum. 2.5.2011 17:53 Keypti hústökuhúsið - sjáðu hryllinginn Sandra Hlíf Ocares keypti nýverið 100 fermetra hús í Vesturbænum, nánar tiltekið húsið á horni Bræðraborgarstígs og Hávallagötu þar sem hústökufólk hefur hafst við nokkuð lengi. 2.5.2011 15:32 Lífið gefur miða í bíó Á mæðradaginn, næsta sunnudag, gefum við 10 heppnum lesendum Vísis sem kvitta á vegginn á Facebooksíðu Lífsins og pósta leiknum á eigin Facebooksíðu tvo miða á rómantísku gamanmyndina Something Borrowed sem Sambíóin frumsýna næsta föstudag. Myndin segir frá Rachel sem reynir að gleyma tilfinningum sínum en gengur erfiðlega að finna ástina hjá öðrum, þrátt fyrir að vera eftirsóttur lögfræðingur. Á þrítugsafmælinu dettur hún ærlega í það og í stað þess að drekkja sorgum sínum segir hún kærasta bestu vinkonu sinnar hug sinn og þau enda saman uppi í rúmi. Upphefst þá mikil sálræn barátta – hvort er mikilvægara, ástin sem þú getur ekki gleymt eða vinskapurinn við bestu vinkonu þína? Taktu þátt í bíóleiknum hér. 2.5.2011 15:03 Brotist inn til Bubba - Ari Eldjárn í aðalhlutverki Steindinn okkar heldur áfram að slá í gegn á Stöð 2. Síðasta fimmtudagskvöld var fjórði þáttur sýndur og eins og áður bauð Steindi upp á fjölmörg sprenghlægileg atriði. 2.5.2011 15:00 Hollendingar taka upp þrívíddarmynd á Íslandi Tökulið frá hollenska kvikmyndafyrirtækinu Eyeworks er statt hér á landi til að taka upp fyrstu hollensku þrívíddar-kvikmyndina, Nova Zembla. Um níutíu íslenskir og hollenskir kvikmyndagerðarmenn koma að tökunum en það er framleiðslufyrirtækið Saga Film sem hefur veg og vanda af íslenska hlutanum. Verkefni af þessari stærðargráðu skila yfirleitt tugum milljóna inn til landsins og getur þar að auki haft veruleg áhrif á ferðamannastraum frá viðkomandi landi, ekki síst ef myndin slær í gegn heima fyrir. 2.5.2011 14:00 Í fötum af dóttur sinni Steven Tyler, dómari í American Idol og söngvari Aerosmith, er óhræddur við að klæðast fötum af dóttur sinni, leikkonunni Liv Tyler. "Pabbi klæðist kvenmannsfötum. Það er ótrúlega fyndið,“ sagði Liv. "Stundum sé ég hann og hugsa: "En falleg skyrta – vegna þess að hún er úr fataskápnum mínum.“ Hún er engu að síður ánægð með pabba gamla. "Mér finnst hann mjög myndarlegur og ég er stolt af honum. Ég skil hann mjög vel og veit hvernig hann hugsar.“ 2.5.2011 12:00 Sjá næstu 50 fréttir
Lofa stórtíðindum í Hamingjan sanna í kvöld Síðasti þáttur Hamingjan sanna fer í loftið á Stöð 2 í kvöld. Aðstandendur þáttanna lofa stórtíðindum af hamingjuaukningu þátttakenda. Þeir voru neðarlega á hamingjuskalanum, eða í hópi 21% óhamingjusömustu manna í heiminum, í upphafi þáttanna. Hægt er að lýsa Hamingjunni sönnu sem "jákvæðum raunveruleikaþætti" en þátturinn hefur einnig verið vísindalega rannsókn. Í hverjum þætti hefur Dr. Þorlákur Karlsson mælt hamingju þátttakenda og segir hann niðurstöðurnar merkilegar og að þær verði birtar í vísindatímaritum á næstunni. Niðurstöðurnar eru fengnar samkvæmt hamingjuprófi Dieners, sem aðstandendur þáttanna segja áreiðanlegasta hamingupróf í heimi. 4.5.2011 16:34
Larry David í The Stooges Larry David úr þáttunum Curb Your Enthusiasm mun að öllum líkindum bætast við leikaralið gamanmyndarinnar The Three Stooges. David mun þá leika nunnuna Mengele sem rekur munaðarleysingjahæli þar sem vitleysingjarnir The Stooges vaxa úr grasi. Framleiðsla á myndinni hefst síðar í þessum mánuði. 4.5.2011 16:00
Hreinsar viðbjóðinn úr hústökuhúsinu Sandra Hlíf Ocares keypti nýverið 100 fermetra hús í Vesturbænum, nánar tiltekið húsið á horni Bræðraborgarstígs og Hávallagötu þar sem hústökufólk hafðist við nokkuð lengi. Eins og meðfylgjandi myndband sýnir hefur Sandra nú þegar hafist handa við að hreinsa innan úr húsinu, brjóta niður veggi og gólf en útgangurinn var vægast sagt ævintýralegur þegar hún fékk það afhent eins og sjá má hér. Sandra er staðráðin í að gera húsið upp og flytja inn í það með stelpunum sínum tveimur eftir þrjár vikur. 4.5.2011 15:16
Patti Smith fær Polar Söngkonan Patti Smith og bandaríski strengjakvartettinn Kronos Quartet fá sænsku Polar-tónlistarverðlaunin í ár. Tónlistarfólkið tekur á móti verðlaununum, sem nema um átján milljónum króna, í Stokkhólmi síðar á þessu ári. Í yfirlýsingu dómnefndarinnar segir að Patti Smith hafi sýnt hve mikið rokk og ról er í ljóðlistinni og hversu mikil ljóðlist er í rokkinu. Þar segir einnig að Smith hafi „breytt því hvernig heil kynslóð lítur út, hugsar og dreymir“. Á síðasta ári hlutu Björk og ítalska tónskáldið Ennio Morricone Polar-verðlaunin. 4.5.2011 15:00
Hamborgarar handa tökuliðinu Eva Longoria og mótleikarar hennar í sjónvarpsþáttunum Desperate Housewives, þau Tuc Watkins, Kevin Rahm og Vanessa Williams, fengu hamborgarabíl frá fyrirtækinu Fatburgers til að mæta á tökustað þáttanna fyrir skömmu. Tilefnið var síðasti tökudagur nýju þáttaraðarinnar. 4.5.2011 14:00
Fær 56 þúsund frá Sheen Skilnaður Brooke Mueller og Charlie Sheen hefur endanlega verið lögfestur. Leikaranum er nú gert skylt að greiða Mueller 56 þúsund dollara eða sex milljónir íslenskra króna á mánuði í meðlag. Mueller og Sheen eignuðust tvíburasyni saman en samband þeirra var stormasamt í meira lagi. Dómari í málinu komst að þeirri niðurstöðu að ekki mætti mismuna börnum Sheen og Denise Richards en leikkonan fær sömu upphæð frá Sheen um hver mánaðarmót. Sheen þarf því að greiða tólf milljónir íslenskra króna í meðlög þann fyrsta í hverjum mánuði. 4.5.2011 14:00
Fengu ekki hlutverkið Leikararnir Jake Gyllenhaal og hinn sálugi Heath Ledger fóru báðir í áheyrnarprufur fyrir aðalkarlhlutverkið í söngvamyndinni Moulin Rouge! sem kom út 2001. Skotinn Ewan McGregor hreppti hlutverkið á endanum og stóð sig með mikilli prýði. Að sögn leikstjórans Baz Luhrmann tók það marga mánuði að finna rétta leikarann í hlutverkið. 4.5.2011 12:00
Fyrrum rappari fær uppreisn æru "Ég er ánægður með þetta. Lengi lifi grínið,“ segir grínistinn Steindi Jr. sem er á meðal þeirra sem tilnefndir eru til hlustendaverðlauna FM 957. 4.5.2011 12:00
Depp lofaði kvikmynd Leikarinn Johnny Depp lofaði rithöfundinum sáluga, Hunter S. Thompson, að gera kvikmynd eftir kvikmyndahandriti sem Thompson skrifaði byggt á bók hans The Rum Diary. Myndin er væntanleg á hvíta tjaldið 28. október og þar fer Depp með hlutverk rithöfundarins drykkfellda Paul Kemp. „Við lásum handritið saman klukkan þrjú um nóttina og okkur langaði að gera eitthvað með það en Hunter virti ekki beint sinn hluta samkomulagsins. Hann hafði víst eitthvað annað að gera,“ sagði Depp, sem fann handritið í geymslu heima hjá Thompson. 4.5.2011 11:15
Mikil óvissa um framtíð Slipknot Meðlimir ný-þungarokkhljómsveitarinnar Slipknot eru ekki á sömu skoðun um framtíð hljómsveitarinnar. Söngvarinn Corey Taylor er neikvæður á meðan trommarinn Joey Jordison segir hljómsveitina eilífa. 4.5.2011 11:00
Kasólétt með klikkaða útgeislun Leikkonan Kate Hudson, 32 ára, sem á von á barni með Matt Bellamy, var gullfalleg í gulum Versace síðkjól, með Ferragamo tösku í stíl, á frumsýningu kvikmyndarinnar Something Borrowed í gær. Með Kate á myndunum má sjá Hilary Swank, John Krasinski, Ginnifer Goodwin og Colin Egglesfield sem fara einnig með hlutverk í myndinni. Lífið býður tíu heppnum lesendum á fyrrnefnda mynd, Something Borrowed, á mæðradaginn. Sjá hér. 4.5.2011 09:45
Hver einasti kjaftur glápti á kjólinn (sem var gegnsær) Rihanna 23 ára, vakti gríðarlega mikla athygli á rauða deglinum í New York um helgina en hún var klædd í gegnsæjan síðkjól sem fór henni afburða vel. 4.5.2011 08:43
Haustlína Balanciaga 2011 Haustlínu Balanciaga 2011 má skoða í meðfylgjandi myndasafni. 4.5.2011 08:28
Peruhús í Perú Þetta einbýlishús í Líma í Perú er hannað með það að markmiði að fá innrarýmið til að flæða út í ytrarýmið eða í garðinn í kringum húsið. Lýsingin gegnir lykilhlutverki í því auk þess sem hár veggur á lóðarmörkum með áberandi inngangi skilgreinir lóðina strax sem ákveðið rými og þar af leiðandi hluta af byggingunni. Stofurnar flæða út í garðinn og garðurinn sömuleiðis inn í stofurnar í mjög opnu rými nánast alveg út í götu. Á efri hæðinni njóta íbúarnir meira næðis þar sem svefnherbergi og önnur prívat rými er að finna. Nútímaleg einföld hönnun. Hvítmálað, inni og úti með gráan klassískan línolíum dúk á öllum gólfum. 4.5.2011 08:09
Áttu notalegan dag á golfvellinum „Þetta var bara geggjað, algjörlega frábær völlur og aðstæðurnar allar hinar bestu,“ segir Hreimur Örn Heimisson, einn af Vinum Sjonna. Eftir annasama tvo daga gafst félögunum loks að slaka aðeins á. Hreimur, Benedikt Brynleifsson, Matthías Matthíasson og Pálmi Sigurhjartarson skelltu sér í golf á golfvellinum Gravenberg og áttu þar notalega stund. Gunnar Ólason forfallaðist hins vegar vegna kvefs sem hann krækti sér í og litlum sögum fer af golfhæfileikum Vignis Snæs. 4.5.2011 08:00
Konur með yfirhöndina á samskiptavefjum Konur eru í meirihluta í ákveðnum geira tölvuleikjaspilunar, að því er fram kemur í nýrri rannsókn sem danska viðskiptablaðið Berlingske Tidende greinir frá. 4.5.2011 07:00
Aldrei þurft að skilja Cameron Diaz segir að eini munurinn á henni og mótleikkonum hennar í Hollywood sé sá að hún hafi aldrei gifst neinum, sem hún hefur síðan þurft að skilja við. Diaz, sem er 38 ára, hefur átt í ástarsamböndum með stjörnum á borð við Justin Timberlake, Jared Leto og Matt Dillon en aldrei gengið upp að altarinu. Núna er hún að hitta hafnarboltakappann Alex Rodriguez og er ánægð með lífið og tilveruna. 4.5.2011 06:00
Sumir voru skrautlegri en aðrir Meðfylgjandi myndir tók Sveinbi ljósmyndari Superman.is síðustu helgi á veitingahúsunum Prikið, Hrressó og Hvíta Perlan. Eins og sjá má í myndasafni voru sumir skrautlegri en aðrir. 3.5.2011 19:13
Aðdáendasíður til heiðurs Pippu Breska þjóðin heldur varla vatni yfir yngri systur Katrínar hertogaynju af Cambridge, Pippu Middleton, en hún lék lykilhlutverk sem fyrsta brúðarmær í konunglega brúðkaupinu og stóð sig með prýði. Partýljónið Pippa getur orðið næsta stjarna Bretlandseyja ef hún vill. 3.5.2011 19:00
Útlitið rautt í Hollywood Rauðhærðir þurfa ekki lengur að fara í felur með hárlit sinn því rauður virðist vera liturinn í ár. Fjölmiðlar vestanhafs ráku upp stór augu þegar leikkonan úr sjónvarpsþáttunum Gossip girl, Blake Livlely mætti á rauða dregilinn með hár í stíl. Lively hefur skipt út ljósu lokkunum fyrir rauðleita en hún er ekki sú eina í Hollywood sem hefur ákveðið að breyta um háralit. Rautt hár er greinilega í tísku því fleiri leikkonur hafa fetað í hennar fótspor nýverið. 3.5.2011 16:00
Gerir heimildarmynd um of feit börn á Íslandi "Þetta er orðið að vandamáli fyrir löngu síðan,“ segir fyrrum sjónvarpskonan Inga Lind Karlsdóttir en hún er byrjuð að undirbúa heimildarmynd um of feit börn á Íslandi. Að sögn Ingu er undirbúningur myndarinnar þó skammt á veg komin. "En ef Guð lofar þá gæti þetta gengið, þetta er nokkuð sem mig langar til að gera og ég er byrjuð að vinna í þessu,“ útskýrir Inga en henni til halds og trausts verður að öllum líkindum Einar Árnarson, tökumaður. 3.5.2011 16:00
Er skilnaðarkúrinn ástæðan fyrir þessari útgeislun? Leikkonan Renee Zellweger, 42 ára, var stórglæsileg á rauða dreglinum á galakvöldi sem haldið var í New York í gærkvöldi eins og sjá má á myndunum. 3.5.2011 15:15
Konan á bak við kynningarefni Eurovisionhópsins Ólöf Erla Einarsdóttir grafískur hönnuður sá um að hanna og útfæra svokallað press kit eða kynningarpakkann sem Eurovisionhópurinn, Vinir Sjonna, dreifir til fjölmiðlafólks í Dusseldorf. Ólöf sýnir hvað um ræðir og svo má ekki gleyma þeirri staðreynd að bókarkápa sem hún hannaði er efst á lista í þessari keppni. Lesendur Visis eru hvattir til að kjósa Ólöfu Erlu en hún er komin í úrslit í alþjóðlegri bókarkápukeppni sem ber heitið Gemmell Award eins og sjá má hér. 3.5.2011 13:12
Hvítabjörninn hvetur Jón til dáða "Þetta hvetur okkur til dáða, að drífa í því að koma þessari aðstöðu upp. Við höfum verið að undirbúa alþjóðlega söfnunarsíðu sem er unnin af meðlimum Besta flokksins í sjálfboðavinnu, án nokkurra fjárframlaga og algerlega óháð borginni. Og þar hyggjumst safna fé fyrir svona aðstöðu og þekkingu til að fanga og hlúa að svona dýrum,“ segir Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík. 3.5.2011 13:00
Vinirnir negldu fyrstu æfinguna í Düsseldorf "Núna er verið að skoða tæknilegar aðfinnslur og sviðsmyndina, hvaða litir og hvaða myndir eigi að birtast á meðan við spilum en fyrsta æfingin gekk vel og við negldum hana bara,“ segir Hreimur Örn Heimisson, einn meðlima Vina Sjonna. Þeir eru búnir að taka sína fyrstu æfingu í höllinni í Dusseldorf og líst ákaflega vel á alla umgjörð. Félagarnir voru í gráum vestum og gallabuxum en hægt er að sjá myndband frá æfingunni á vefsíðu esctoday.com. 3.5.2011 11:00
Bieber er prakkari Kanadíska ofurstirnið Justin Bieber hefur augljóslega gaman af prakkarastrikum. Hann setti nýlega símanúmerið sitt, að því er virtist, inná twitter-síðu sína nýlega og hvatti aðdáendur sína til að hringja í sig og spjalla. "Leyfið mér að heyra frá ykkur,“ voru skilaboðin frá táningsstjörnunni. 3.5.2011 10:00
Amish hús í Ameríku Þetta hlýlega og fallega einbýlishús var byggt árið 2009 í Downingtown Pennsylvaniu í Bandaríkjunum. Fjölbreytt efninotkun er einkennandi bæði í ytra útliti og í herbergjum hússins. Húsið er á skógi vaxinni lóð og það sem einkennir umhverfið í næsta nágrenni eru bóndabýli Amishfólksins í Pennsylvaníu. Arkítektinn vildi gera tilraun með að reyna að endurspegla handbragðið sem einkennir að mörgum finnst fallega og staðnaða menningu Amish. Þeir hafna flestri nútímlegri tækni og hampa einfaldleikanum með því að rækta handbragðið. Þessi nútímalega bygging er handunnin að mestu með nútímalegri hugsun og hugmyndafræði. 3.5.2011 08:27
Besti taktkjaftur Breta á Nasa Taktkjafturinn Beardyman kemur fram á tónleikum á Nasa næsta laugardag 7. maí. Beardyman vakti fyrst athygli þegar hann vann keppnina UK Beatbox Champion árin 2006 og 2007. Árið 2008 sat hann í dómnefnd. Hann hefur verið í fararbroddi taktkjafta og blandar saman nýjustu tækni og hæfileikum sínum til að skapa heilu tónverkin á sviði. 3.5.2011 08:00
Hann á eftir að upplifa það Ágúst Borgþór hefur löngu sannað það að hann er fínn stílisti og hér fágar hann stíl sinn enn frekar. Ekki orði er ofaukið og fágað yfirborð textans undirstrikar þá örvæntingu sem undir býr – þrátt fyrir allt. 3.5.2011 06:00
Bannar meiri megrun Unnusti söng-og leikkonunnar Jennifer Hudson, David Otunga, hefur bannað henni að grennast meira en fjölmiðlar vestanhafs hafa einnig deilt áhyggjum hans af ört minnkandi líkama Óskarverðlaunahafans. 3.5.2011 06:00
Lambatartar að hætti VOX Á hinum hefðbundna matseðli VOX á Hilton Hóteli við Suðurlandsbraut er þessi ferski réttur. Uppskriftin er ætluð fjórum. 3.5.2011 00:01
Tímalausar teiknimyndasögur Siglufjarðarprentsmiðja gaf út þýddar myndasögur í meira en tíu ár. Þorgils Jónsson kynnti sér söguna á bak við útgáfuna á þessum merkilegu blöðum sem glöddu börn og ungmenni um allt land og lifa enn með þjóðinni, tuttugu árum síðar. 2.5.2011 23:00
Gefur ekki upp faðerni barnsins Leikkonan January Jones, sem sló í gegn í sjónvarpsþáttunum Mad Men, á von á sínu fyrsta barni. Leikkonan vill þó ekki gefa upp faðerni barnsins. „January á von á sínu fyrsta barni nú í haust. Hún hlakkar mikið til þessa nýja kafla í lífi sínu og að takast á við móðurhlutverkið,“ stóð í tilkynningu frá talsmanni hennar. 2.5.2011 21:00
Reið út í Andre Glamúrfyrirsætan Katie Price er stödd í Argentínu þar sem hún nýtur lífsins með nýjum kærasta. Price er þó dugleg að fylgjast með gangi mála heima á Englandi og gagnrýndi fyrrverandi eiginmann sinn, Peter Andre, fyrir að leyfa börnum þeirra að koma fram í sjónvarpsþætti hans.Price tjáði óánægju sína á Twitter-síðu sinni. 2.5.2011 19:30
Logi Geirsson: Allt hrundi á einni nóttu Afreksmaðurinn Logi Geirsson sem er byrjaður í nýju starfi ásamt því að vera nýfluttur til Njarðvíkur með fjölskylduna sína, unnustu og 10 mánaða drenginn þeirra, var aðalgestur Siggu Lund og Ellýar Ármanns í þættinum þeirra á sunnudagskvöldið 1. maí á Bylgjunni. Það var rosalega mikil gleði. Við vorum búin að plana allt og allt klárt. Ég var búinn að fjárfesta mikið úti í Þýskalandi og átti mikið af eignum og mikið af pening og það bara hrundi á einni nóttu..." sagði Logi spurður hvernig honum leið þegar hann varð pabbi. 2.5.2011 19:14
Alltaf gaman að mæta í vinnuna Eldhuginn Jón Stefánsson hefur verið lífið og sálin í öflugu tónlistarstarfi Langholtskirkju frá unga aldri. Sigríður Björg Tómasdóttir hitti Jón á heimavelli í Langholtskirkju og ræddi um tónlist og ástríðuna fyrir að miðla henni. 2.5.2011 19:00
Listin og heita vatnið Koddu er fjölbreytileg og inni á milli ögrandi sýning sem birtir frjóar hugmyndir listamanna um viðhorf til íslenskrar menningar fyrir hrun. Einstaka verk stendur upp úr og nær að hreyfa við áhorfandanum í víðu samhengi. Umræðan um Fallegustu bók í heimi beinir sjónum frá viðfangsefni sýningar en er þörf sem slík. 2.5.2011 19:00
Þessar erótísku myndir bæta ekki ímyndina Lindsay Lohan er byrjuð að búa sig undir samfélagsþjónustu sem hún telur vera gott tækifæri til að bæta ímynd sína og á sama tíma situr hún fyrir í erótískum stellingum í tímariti sem ber heitið Blank. Dómari í Los Angeles skikkaði leikkonuna nýverið til að sinna samfélagsþjónustu en meðfylgjandi myndir voru einnig teknar sama dag og hún mætti í dómsalinn. Þá var hún einnig dæmd í 120 daga fangelsisvist og 480 klukkustunda vinnu í þágu samfélagsins og hyggst eyða þeim í að kenna heimilislausum konum að leika. Lohan var dæmd fyrir að rjúfa skilorð þegar skartgripasali sakaði hana um að stela hálsmeni frá sér. 2.5.2011 18:40
Greinilega ástfangin Bandaríska leikkonan Scarlett Johansson og unnusti hennar leikarinn Sean Penn leiddust hönd í hönd um helgina eins og sjá má á myndunum. 2.5.2011 17:53
Keypti hústökuhúsið - sjáðu hryllinginn Sandra Hlíf Ocares keypti nýverið 100 fermetra hús í Vesturbænum, nánar tiltekið húsið á horni Bræðraborgarstígs og Hávallagötu þar sem hústökufólk hefur hafst við nokkuð lengi. 2.5.2011 15:32
Lífið gefur miða í bíó Á mæðradaginn, næsta sunnudag, gefum við 10 heppnum lesendum Vísis sem kvitta á vegginn á Facebooksíðu Lífsins og pósta leiknum á eigin Facebooksíðu tvo miða á rómantísku gamanmyndina Something Borrowed sem Sambíóin frumsýna næsta föstudag. Myndin segir frá Rachel sem reynir að gleyma tilfinningum sínum en gengur erfiðlega að finna ástina hjá öðrum, þrátt fyrir að vera eftirsóttur lögfræðingur. Á þrítugsafmælinu dettur hún ærlega í það og í stað þess að drekkja sorgum sínum segir hún kærasta bestu vinkonu sinnar hug sinn og þau enda saman uppi í rúmi. Upphefst þá mikil sálræn barátta – hvort er mikilvægara, ástin sem þú getur ekki gleymt eða vinskapurinn við bestu vinkonu þína? Taktu þátt í bíóleiknum hér. 2.5.2011 15:03
Brotist inn til Bubba - Ari Eldjárn í aðalhlutverki Steindinn okkar heldur áfram að slá í gegn á Stöð 2. Síðasta fimmtudagskvöld var fjórði þáttur sýndur og eins og áður bauð Steindi upp á fjölmörg sprenghlægileg atriði. 2.5.2011 15:00
Hollendingar taka upp þrívíddarmynd á Íslandi Tökulið frá hollenska kvikmyndafyrirtækinu Eyeworks er statt hér á landi til að taka upp fyrstu hollensku þrívíddar-kvikmyndina, Nova Zembla. Um níutíu íslenskir og hollenskir kvikmyndagerðarmenn koma að tökunum en það er framleiðslufyrirtækið Saga Film sem hefur veg og vanda af íslenska hlutanum. Verkefni af þessari stærðargráðu skila yfirleitt tugum milljóna inn til landsins og getur þar að auki haft veruleg áhrif á ferðamannastraum frá viðkomandi landi, ekki síst ef myndin slær í gegn heima fyrir. 2.5.2011 14:00
Í fötum af dóttur sinni Steven Tyler, dómari í American Idol og söngvari Aerosmith, er óhræddur við að klæðast fötum af dóttur sinni, leikkonunni Liv Tyler. "Pabbi klæðist kvenmannsfötum. Það er ótrúlega fyndið,“ sagði Liv. "Stundum sé ég hann og hugsa: "En falleg skyrta – vegna þess að hún er úr fataskápnum mínum.“ Hún er engu að síður ánægð með pabba gamla. "Mér finnst hann mjög myndarlegur og ég er stolt af honum. Ég skil hann mjög vel og veit hvernig hann hugsar.“ 2.5.2011 12:00