Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Brilljant að brenna kaloríum svona - myndband „Þetta er ganga með sérhannaða stafi og við náum umtalsverðri brennslu með stafgöngunni,“ sagði Guðný Aradóttir leiðbeinandi hjá Stafganga.is þegar við ræddum við hana í Laugardalnum í gær. „Við náum 20 % meiri brennslu heldur en í venjulegri göngu. Vegna þess að þú ert að nota efri hluta líkamann mikið meir með því að beita stöfunum." Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt ef þú vilt sjá Guðný sýna hvernig stafirnir eru notaðir. 16.6.2010 11:00
Ekki borðið þið herðatré? - myndir Á meðfylgjandi myndum má sjá Selfyssinga fagna tveggja ára afmæli 800 Bar sem staðsettur er á Selfossi. „Að sjálfsögðu voru strákarnir úr Skímó fengnir til að spila," sagði Eiður Birgisson eigandi þegar við spurðum hann út í afmælispartýið. „Þegar Skímó spila á heimavelli þá er bara eitthvað sem gerist á Selfossi. Það er erfitt að lýsa því en það mæta gjörsamlega allir á ball og allir líta út eins og þeir hafi borðað herðatré. „Það brosa allir svo mikið og eina leiðin til að fá strákana til að hætta spila er að slá út rafmagnið í húsinu," sagði Eiður. 16.6.2010 10:00
Auðvitað nældir þú í Akureyrarmey - myndband „Ég er giftur Akureyrarmær," viðurkenndi Biggi Maus þegar kostir Akureyrarbæjar bárust í tal. 16.6.2010 05:30
Catherine Zeta-Jones biðst afsökunar Catherine segir ummæli sín á Tony-verðlaununum hafa verið gróf og ekki sæmandi konu í hennar stöðu. 16.6.2010 12:30
Collin Russell spilar með Ultra Mega Technobandinu Elektró-þjóðlagapopparinn Collin Russell er mættur til landsins og ætlar að spila með Ultra Mega Technobandinu Stefáni á nokkrum tónleikum á næstunni. „Við höfum alltaf verið að bíða eftir hinu fullkomna tækifæri til að fá hann til Íslands og nú er það komið,“ segir Sigurður Ásgeir Árnason Olsen. 16.6.2010 09:00
Búa saman í 500 fm glæsibýli í Edinborg „Þetta er mjög fínt, en lítur sennilega betur út á blaði,“ segir Elsa Harðardóttir. Elsa og kærasti hennar, fótboltakappinn Eggert Gunnþór Jónsson, búa saman í Edinborg. Hann spilar þar með úrvalsdeildarliðinu Hearts og hefur verið þar síðastliðin fimm ár. Elsa flutti út til hans fyrir tveimur árum. 16.6.2010 08:30
Nýr kærasti Amy Winehouse er komin með nýjan mann, framleiðandann Reg Traviss, og er Winehouse svo ástfangin að hún ætlar að hætta að drekka. Hún drakk ótæpilega í síðustu viku og fór það illa í Traviss. 16.6.2010 08:00
Bassaleikari í gítarsmíði í LA Daníel Smári Hallgrímsson er einn af átta nemendum sem fengu inngöngu í hinn fræga Musicians Institut í Los Angeles. Daníel er nýútskrifaður frá Menntaskólanum við Hamrahlíð og mun leggja stund á eins árs nám í gítarsmíði. Han er bassaleikari í hljómsveitinni í Mikado. 16.6.2010 07:30
Stefnir til Hollywood að kynna sér þotuliðsþjálfara „Þetta er ógeðslega skemmtilegt nám og rosalega krefjandi. Það er farið rosalega djúpt í allt: næringarfræði, lífeðlisfræði og þjálfunarfræði," segir handboltakappinn Logi Geirsson. 16.6.2010 07:00
Vill hitta Muse Leikkonan Kate Hudson og Matt Bellamy, söngvari hljómsveitarinnar Muse, sáust á vappi saman í New York í síðustu viku og eiga þau að hafa verið að hitta hvort annað á laun í heilan mánuð. Samkvæmt heimildarmönnum er komin nokkur alvara í sambandið og hyggst parið sækja Glastonbury-tónlistarhátíðina saman síðar í mánuðinum. 16.6.2010 06:00
María Sigrún fréttakona: Ég var óþolandi „Ég var víst á köflum óþolandi hvað þetta varðar," sagði María Sigrún Hilmarsdóttir sjónvarpskona þegar við heyrðum í henni í dag. 15.6.2010 16:15
Klámmyndastjarna segir Tiger Woods faðir launsonar Nýr kafli byrjaði í hinni endalausu hjákonusögu Tiger Woods í dag. Þá tilkynnti klámmyndastjarnan Devon James með tilheyrandi látum að Tiger Woods væri faðir sonar hennar. 15.6.2010 16:00
Börnin kunna ekki að ljúga - myndband „Og ég bara... nei ókei það er allt í lagi og hann bara já hérna þau eru ekkert það leiðinleg," sagði Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir leik- og söngkona meðal annars þegar við ræddum um viðbrögð íslenskra barna við nýja disknum hennar Bara plata sem hún gaf nýverið út. Lífið á Facebook (sjá Ísgerði syngja). Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt ef þú vilt sjá viðtalið við Ísgerði. Bara plata á Facebook. 15.6.2010 14:15
Gary Coleman vildi lifa en fyrrum eiginkonan slökkti á öndunarvélinni Ný skjöl sýna að Gary Coleman vildi ekki láta slökkva á öndunarvélum ef hann skyldi falla í dá. Þrátt fyrir það lét fyrrum eiginkona hans slökkva á vélunum aðeins sólahring eftir að hann féll í dá. 15.6.2010 14:00
Nýtur kvenhylli eins og Tiger - myndband „Ja... ég er hrikalega duglegur að lyfta, æfa og teygja og hlaupa...“ segir Sigurþór Jónsson golfari eða Sissó eins og hann er kallaður þegar við hittum hann í morgun. „Jú ég vill meina að hann sé næsti Tiger Woods Íslands," sagði Svavar Jóhansson sem er ráðgjafi Sissó. Svavar vill meina að kylfingar hafi í gegnum árin ekki viljað snerta lóð. Sissó spilar með gofklúbbi Keili í Hafnarfirði. 15.6.2010 11:45
Aníta Briem giftir sig á grísku eyjunni úr Mamma mia! Aníta Briem flytur Pálma Matthíasson prest til Grikklands þar sem hún giftist grískum unnusta sínum síðasumars. 15.6.2010 11:00
Eiður Smári í fótboltabrúðkaupi Ólafs Inga Knattspyrnu- og landsliðsmaðurinn Ólafur Ingi Skúlason og Sigurbjörg Rós Hjörleifsdóttir viðskiptafræðingur gengu í það heilaga um helgina. 15.6.2010 10:30
Tekur myndir í miðbænum og hengir upp í verslunum Halla Einarsdóttir gengur um götur borgarinnar og fær skriflegt leyfi frá fólki um að hún megi nota myndir af því í gluggum verslana og á netinu. 15.6.2010 06:00
Heimsklassa gestakennarar í Boogie Woogie í Háskólanum Dansglaðir háskólanemar geta aldeilis lært réttu sporin í sumar þegar gestakennarar frá Noregi mæta til landsins. 15.6.2010 06:00
Herra Hinsegin með 2. stigs bruna - mynd Herra Hinsegin Vilhjálmur Þór Davíðsson skaðbrenndist í vinnunni í gær en hann er vaktstjóri á veitingastaðnum Domo. Við höfðum samband við Villa og spurðum hvað kom eiginlega fyrir? „Ég festi hendurnar í sjóðandi heitri strauvél í vinnunni. Þetta er tæki sem er notað til að strauja servíettur. Það lokaðist á hendurnar á mér," segir Villi og heldur áfram: „Ég er með annars stigs bruna á sex puttum. Ég er búinn að vera að deyja í fingrunum síðan í gær," segir hann greinilega kvalinn. 14.6.2010 16:30
Maggi Mix er hvergi nærri hættur - myndband Undanfarið hefur lítið farið fyrir Magnúsi Valdimarssyni, öðru nafni Magga Mix, sem sló í gegn á Netinu í byrjun sumars með skemmtilegum matreiðslumyndböndum. Við heimsóttum Magga á heimili hans í morgun bæði til að kanna hvernig hann hefði það og til að létta okkur lundina. Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt ef þú vilt sjá Magga taka nokkur vel valin dansspor meðal annars. 14.6.2010 15:30
Furðulegur leki hjá Pearl Jam Óútgefið Pearl Jam-lag, Better Days, lak á vefsíðu útgáfufyrirtækis hljómsveitarinnar í vikunni. Aðdáandi Pearl Jam var að skoða vefsíðu Minkeywrench Records, sem er í eigu Pearl Jam, og rakst fyrir tilviljun á lagið á vefsíðunni með skilaboðunum „Gary, Kelly vildi leyfa þér að heyra þetta. Hlustaðu endilega á lagið.“ 14.6.2010 15:00
Þessir stæltu handleggir slá allt út - myndband „Það þýðir ekkert að vera í einhverju dúlleríi," segir Anna Eiríksdóttir íþróttakennari og deildastjóri kennara og einkaþjálfara í Hreyfingu en hún stjórnar námskeiðunum Fantagott form sem allir eru að tala um. „Það geta allir verið með. Það er það góða við þetta. Það er svo gaman að fylgjast með hvað fólk er að ná frábærum árangri á skömmum tíma." 14.6.2010 14:14
Arnar leikur Lér konung Arnar Jónsson fer með aðalhlutverkið í uppfærslu Þjóðleikhússins á Shakespeare-leikritinu Lér konungur, sem er jólasýning leikhússins. 14.6.2010 14:00
Amy prófar leiklistina Söngkonan Amy Winehouse hefur áhuga á því að gerast leikkona. Hún er þegar byrjuð að sækja leiklistarnámskeið í London. 14.6.2010 13:30
Megan Fox í mínus yfir eigin ummælum Leikkonan Megan Fox heldur því nú fram að fjölmörg kjánaleg ummæli hennar hafi flest verið vel ígrunduð. 14.6.2010 13:00
Pétur Jóhann leikur Sigga Hlemm í gamanþættinum Hlemmavideó Hugleikur Dagsson, Ari Eldjárn, Sigurjón Kjartansson, María Reyndal og Pétur Jóhann Sigfússon skrifa þessa dagana nýja sjónvarpsþáttaröð. 14.6.2010 12:30
Frægir í fíling - myndir Eins og meðfylgjandi myndir sem teknar voru á glænýjum skemmtistað, Hvíta perlan, sem er á þremur hæðum við Austurvöll sem ber heitið skemmtu gestir sér konunglega. 14.6.2010 11:00
Sálin tekur upp með Stórsveit Reykjavíkur Hljómsveitin Sálin hans Jóns míns gefur út sína fyrstu hljóðversplötu í fjögur ár fyrir næstu jól. Platan verður unnin með Stórsveit Reykjavíkur og mun Samúel Jón Samúelsson, sem hefur spilað töluvert með Sálinni, annast útsetningar. Upptökur hefjast í júlí. 14.6.2010 11:00
Ísland í bandarískri unglingasápu Ísland hefur enn og aftur áhrif á bandarískt sjónvarpsefni. Að þessu sinni er það unglingasápan Pretty Little Liars sem fjölmiðlungar þar vestra spá að muni verða svipað æði og Aðþrengdar eiginkonur. 14.6.2010 10:00
Api spilar með P. Diddy Matt Helders, trommari bresku hljómsveitarinnar Arctic Monkeys, lék með hljómsveit rapparans P. Diddy í sjónvarpsþætti sem var sendur út í gær. Eins furðulega og það hljómar, þá heitir hljómsveit P. Diddy Dirty Monkey, þannig að Matt hefur spilað með tveimur apahljómsveitum á skömmum tíma. 14.6.2010 09:30
Sandra í hasar með unnusta Scarlett Það vakti mikla athygli þegar Sandra Bullock og Scarlett Johansson kysstust á MTV-hátíðinni um daginn. Nú ætlar Sandra einnig að leika í hasarmynd með unnusta hennar. 14.6.2010 07:30
Jodie Foster réðst á aðdáanda Samkvæmt vefmiðlinum RadarOnline á leikkonan Jodie Foster að hafa ráðist á ungan pilt fyrir utan kvikmyndahús í lok maí síðastliðins. Að sögn föður piltsins, sem er sautján ára gamall, hlaut hann skrámur og marbletti á handlegg við árásina. „Sonur minn var á leið í bíó ásamt kærustu sinni þegar hann sá Jodie. Hann er mikill aðdáandi hennar og gekk í áttina að henni og tók nokkrar myndir. Hún elti hann, potaði í hann og sagði: „Átt þú einu sinni móður, viðbjóðurinn þinn?“ Sonur minn svaraði ekki fyrir sig heldur bað hana afsökunar og var í raun mjög hræddur við hana,“ sagði faðirinn, sem vildi ekki greina frá nafni sínu. Fórnarlamb árásinnar fór því næst upp á lögreglustöð ásamt föður sínum og lagði fram kæru. 14.6.2010 14:30
Treystir á gott veður í ár Listahátíðin LungA hefur verið haldin árlega við góðar undirtektir á Seyðisfirði undanfarin ár. Hátíðin verður tíu ára í sumar og að sögn Öllu Borgþórsdóttur, framkvæmdastjóra LungA, verður haldið upp á afmælið með pompi og prakt. 14.6.2010 06:30
Feðgar til Flórens Raftónlistardúóið Stereo Hypnosis, sem samanstendur af feðgunum Óskari og Pan Thorarensen, spilar á þrennum tónleikum í Flórens á Ítalíu dagana 13., 15. og 19. júní. Þeir spila á menningarhátíðinni La Cité Cultural Festival, í Villa Strozzi og á útitónleikunum Parcosud. Þeir feðgar eru einnig að undirbúa stóra raftónlistarhátíð á Snæfellsnesinu helgina 6. til 8. ágúst. Meðal þeirra sem stíga þar á svið verða Reptilicus, Biogen, Yagya, Ruxpin, Futuregrapher og Xerxes frá Noregi. 14.6.2010 05:00
Vilja ættleiða barn Leikararnir Scarlett Johansson og Ryan Reynolds eru að sögn Star Magazine að íhuga að ættleiða barn annaðhvort frá Eþíópíu eða Líbíu. Hjónakornin eiga að hafa átt fund með starfsmanni ættleiðingarskrifstofu fyrir skemmstu, en móðir Johansson ættleiddi nýlega litla stúlku frá Eþíópíu. Reynolds á einnig ættleiddan bróður og er þetta því parinu hjartans mál. 14.6.2010 06:00
Nýja Karate Kid slær í gegn Nýja myndin um Karate Kid, með syni Will Smith og Jackie Chan í aðalhlutverkum, er vinsælasta myndin í Bandaríkjunum. 13.6.2010 18:00
Krúttlegur hryllingur Listakonan Patricia Waller heklar einstaka blöndu af krúttskap og hryllingi sem vekur mismunandi viðbrögð. Hún tekur þátt í prjónalistahátíð í Norræna húsinu. 13.6.2010 17:00
Friðrik Dór og Erpur keyra þetta í gang - myndband Rappararnir Henrik Biering og Erpur Eyvindarson, betur þekktur sem Blaz Roca, hafa gefið út lag saman. Lagið heitir Keyrumettígang, sem er einhvers konar stytting á Keyrum þetta í gang. Þeir hafa fengið engan annan en Friðrik Dór til liðs við sig en hann syngur viðlagið. 13.6.2010 15:33
Það var lagið Eli Roth - myndband „Ég var þar fyrst þegar ég var 19 ára,“ segir Eli Roth leikari og leikstjóri meðal annars um Ísland í myndskeiði í átaki ferðaþjónustunnar „Inspired by Iceland". Eli hefur heimsótt Ísland undanfarin 20 ár og reynir að heimsækja landið eins oft og hann getur til að hlaða batteríin eins og hann segir sjálfur. Sjá Eli Roth hér. 13.6.2010 11:45
SATC: Til í að ættleiða „Við erum komin yfir það að eignast börn saman en að ættleiða barn er hinsvegar allt annar handleggur," sagði John. 13.6.2010 08:18
Var nett stressaður - myndir „Ég veit ekki alveg hvort ég sé týpan í módelbransann en ef það er til að styrkja gott málefni þá er ég alltaf til. Ég tók reyndar þátt í tískusýningum með mömmu þegar ég var svona 8 ára. Ætli ég búi ekki af þeirri reynslu", segir Sjonni og hlær. 12.6.2010 16:00
Efast um Vinamynd Leikkonan Courteney Cox hefur litla trú á að kvikmynd byggð á sjónvarpsþáttunum Friends verði gerð. Hin 45 ára Cox, sem lék Monicu Geller í tíu þáttaröðum, er til í leika í slíkri mynd en efast um að hún verði að veruleika. „Það þarf margt að ganga upp til að hún fari af stað. En við höfum látið okkur dreyma um hana," sagði Cox. 12.6.2010 15:00
Myndir af gosinu í Ósló „Þetta er sýning um gosið í Eyjafjallajökli. Við erum að setja þetta upp með það í huga að fólk sjái að hægt er að ferðast hingað þrátt fyrir liðna atburði," segir Anna María Sigurjónsdóttir. 12.6.2010 13:00
Heigl lítur upp til Bullock Leikkonan Katherine Heigl lítur mjög upp til Söndru Bullock og telur að hún hafi breytt lífi sínu. Heigl finnst Bullock hafa staðið sig einkar vel í stykkinu eftir að framhjáhald eiginmanns hennar Jesse James komst upp, aðeins nokkrum vikum eftir að þau ættleiddu ungan dreng. 12.6.2010 11:45