Fleiri fréttir

Áheyrnarprufum fyrir Söngvaseið lokið

Áheyrnaprufum fyrir Söngvaseið lauk í dag í Borgarleikhúsinu. Alls hafa fjögur þúsund börn keppst við að krækja í þau 12 hlutverk sem eru í boði. Guðný Helga hitti hæfileikaríka æsku í Borgarleikhúsinu í dag

Sveppi gerir bíómynd

Sjónvarpsmaðurinn Sverrir Þór Sverrisson leitar nú að heppilegum tökustöðum fyrir kvikmynd sem hann hyggst gera.

Plata með Timbaland

Chris Cornell, fyrrum söngvari Soundgarden og Audioslave, hefur tekið upp nýja sólóplötu með hjálp upptökustjórans Timba­land. Platan nefnist Scream og kemur út 9. mars.

Little Boots slær í gegn á árinu

Little Boots er talin líklegust til að slá í gegn á árinu 2009 að mati 134 breskra tónlistarspekinga. Hin 24 ára elektró-poppsöngkona heitir réttu nafni Victoria Hesketh og kemur frá Blackpool í Englandi.

Zeppelin hættir við

Umboðsmaður Jimmys Page, Peter Mensch, hefur dregið til baka fyrri yfirlýsingar sínar og segir að Led Zeppelin muni ekki halda áfram störfum án söngvarans Robert Plant.

Fjórir trommarar á plötu Ske

Fjórir trommarar spila inn á nýjustu plötu hljómsveitarinnar Ske sem er væntanleg á næstu vikum. Aðaltrommari Ske og sá sem kemur mest við sögu á plötunni er Englendingurinn Paul Maguire sem hefur spilað með hljómsveitinni The La"s. Hinir þrír eru Orri Páll Dýrason úr Sigur Rós, Sigtryggur Baldursson og Kjartan Gunnarsson.

Jóhanna og Edgar áfram í Eurovision

Lögin The kiss we never kissed í flutningi Edgars Smára og Is it true með Jóhönnu Guðrúnu Jónsdóttir urðu í kvöld þau fyrstu til að komast áfram í úrslit söngvakeppni Sjónvarpsins.

Sverrir: Klúðurslegt og viðvaningslegt Júróvision

Vísir hafði samband við Júróvisionfarann Sverri Stormsker og bað hann hlusta á lögin sem keppa í undanúrslitum Eurovision í kvöld og fræða lesendur Vísis hvað honum finnst. Sverrir tók vel í það, gagnrýndi lögin og gaf þeim stjörnur. Lögin má heyra hérna: 1. The kiss we never kissed (4 stjörnur af 5 mögulegum) Lag: Heimir Sindrason. Texti: Ari Harðarson. Flytjandi: Edgar Smári. „Heimir Sindrason er góður lagasmiður. Hver kannast til dæmis ekki við Hótel Jörð sem hann samdi við ljóð Tómasar. Þetta nýja lag lans The kiss we never kissed er vel samin ballaða. Fastmótuð melódía. Engin rembingur og tilgerð. Bara einfalt og fallegt, sem er alveg meir en nóg til að halda uppi einu lagi. Útsetningin er af gamla skólanum, látlaus og laus við alla stæla og eitthvað sem á að virka gasalega nútímalegt og „töff." Gríðarlegir „töffarar" sem eru of cool fyrir „væmni" ættu ekki að hlusta á þetta lag. „Ég veit akkúrat engin deili á söngvaranum, Edgari Smára, en hann kemst verulega vel frá þessu. Þarna er greinilega á ferðinni mjög góður söngvari með orginal rödd og sérstaka raddbeitingu og karakter í röddinni sem mér finnst mjög áríðandi. Ekkert varið í að hlusta á góða söngvara ef karakterinn vantar. Edgar virkar soldið einsog 14 ára strákpatti í þessu lagi og það gefur þessu ákveðinn sjarma. Kannski á þetta lag frekar heima í teiknimyndasöngleik einsog til dæmis Lion King en í Júróinu. Veit það ekki. En við eigum ekki að hugsa um það, heldur að velja einfaldlega gott lag og það er einmitt það sem þetta lag er," segir Sverrir. 2. Dagur nýr (ein stjarna) Lag: Halldór Guðjónsson. Texti: Íris Kristinsdóttir. Flytjandi: Heiða Ólafs. „Melódían í A-kaflanum er reikul og flöktandi og það er stólað á að hinn klassíski spánski fjórhljómagangur haldi henni á flöti, en hún sekkur, því miður. Er ekki nógu afgerandi. Viðlagið er dæmigert Sálarpopp (til dæmis Eltu mig uppi) sem maður hefur heyrt all oft áður, svona einsog 100 þúsund sinnum en samt ekkert óheyrilega leiðinlegt, bara svona frekar sjálfsmorðshvetjandi. Halldór húsasmiður hefur samið mun betri lög en þetta."

Bono pistlahöfundur hjá New York Times

Popparinn og mannréttindafrömuðurinn Bono verður dálkahöfundur hjá stórblaðinu New York Times. Fram kom í blaðinu að fyrsti dálkur Bono birtist á sunnudaginn, og verður einnig hægt að nálgast hann á hlaðvarpi á heimasíðu blaðsins.

James Blunt tekinn saman við Íslandsvin

Íslandsvinurinn og hjartaknúsarinn James Blunt er sagður hafa tekið saman við annan Íslandsvin, listakonuna Natöshu Archdale. Sú er fyrrverandi sundfatafyrirsæta, en gerir nú klippimyndir af nöktum líkömum úr dagblaðasnifsum.

Íslendingar spila í Belgíu

Hjaltalín, Dísa, Kira Kira, Sam Amidon og Rökkurró eru hluti af tónleikaröðinni 101 Reykjavík sem verður haldin í menningarsetri Belgíu í bænum Maldegem 17. janúar til 29. mars.

D-A-D aðdáendur spenntir

Bergur Geirsson bassaleikari bíður spenntur eftir komu dönsku rokkaranna í D-A-D. Hann minnist þess að hafa enn verið með sítt hár þegar hann féll fyrir hljómsveitinni.

Milljarðamynd Baltasars hugsanlega tekin á Írlandi

Raunveruleg hætta er á því að víkingamynd Baltasars Kormáks verði ekki tekin upp hér á landi heldur verði veigamestu tökurnar fluttar til Írlands. Þetta segir Leifur B. Dagfinnsson, samstarfsmaður Baltasars við gerð myndarinnar og framleiðandi hjá True North.

Öll verk Kjarvals á salon

Nokkur hundruð verka Jóhannesar S. Kjarvals í eigu Listasafns Reykjavíkur verða dregin fram í dagsljósið á sýningunni Mynd af heild sem verður opnuð í austursal Kjarvalsstaða í dag. Það sem einkennir sýninguna er að hún er sett fram í anda salon-sýninga, þar sem verkin þekja alla veggi

Slumdog Millionaire verðlaunuð

Kvikmyndin Slumdog Millionaire í leikstjórn Dannys Boyle hlaut fimm viðurkenningar á gagnrýnendaverðlaununum í Los Angeles, þar á meðal fyrir bestu myndina og besta leikstjórann.

Hebbi endurgerður

Party Zone, dansþáttur þjóðarinnar á Rás 2, byrjar í kvöld að spila fyrstu remixin sem komu í hús eftir að blásið var til heljarinnar Herberts Guðmundssonar endurhljóðblöndunarveislu í desember

Kammerverk vantar í sumar

Tónlistarhátíðin Við Djúpið er orðinn árviss viðburður við Djúp. Hún verður haldin á Ísafirði í 7. sinn dagana 18. til 23. júní 2009. Viðamesta verkefnið á dagskrá hátíðarinnar í ár er stórt samstarfsverkefni með Ísafold kammersveit og Rás 1 Ríkisútvarpsins.

Ekki fara í sleik við Simma og Jóa í Idol áheyrnaprufunum

Þeir sem vita að þeir komast ekki áfram í Idol en vilja gjarnan upplifa þriggja mínútna frægð með þátttöku í keppninni geta til ýmissa ráða gripið. Þeir sem ætla að ná langt í keppninni ættu hins vegar að forðast eftirfarandi hefðun á meðan að á vali keppenda stendur.

Enginn tengir mig við íslenska útrásargengið

Söngkonan Hera Björk Þórhallsdóttir syngur lagið Someday í úrslitaþætti dönsku Evróvisiónkeppninnar sem fram fer í danska Ríkissjónvarpinu 31.janúar næstkomandi. Vísir hafði samband við Heru Björk sem er stödd í Danmörku.

Missti vinnuna, konuna, íbúðina og stoltið

Bjartmar Guðmundsson er 34 ára gamall smiður sem lætur erfiðleika ekki stöðva sig. Fyrir nokkrum mánuðum vann hann við viðbyggingu á Egilshöll á milli þess sem hann dittaði að nýrri íbúð sem hann hafði keypti með eiginkonu sinni. Þau eiga átta mánaða gamlan son. Bjartmar hefur nú missti vinnuna, íbúðina, konuna og stoltið. Hann hefur gist á sófum hjá vinum og vandamönnum og betlar peninga hjá Félagsþjónustunni.

Kannski finnum við nýjan Kalla Bjarna

Áheyrnarprufur fyrir Idol Stjörnuleit fara fram á morgun á Hótel Hilton Reykjavík Nordica. Vísir hafði samband við annan kynninn Jóhannes Ásbjörnsson, betur þekktan sem Jóa, og dómarann Jón Ólafsson. „Ég er rígspenntur alveg. Er að búa mig undir hópfaðmlög, gleði, svita og tár," svarar Jói aðspurður hvernig honum líður en rúmlega 2000 manns hafa nú þegar skráð sig í keppnina. „Ég held að morgundagurinn verði erfiðasti

Pönk á bar

Í kvöld verða haldnir hressandi tónleikar á Bar 11. Þrjár sveitir ætla að reyna á hlustir gesta. Fyrst kemur Monuments, sem spilar drungalegan málm. Þar innanborðs er Þórir, öðru nafni My summer as a salvation soldier. Næstur er Aðalsteinn Jörundsson, eða AMFJ eins og hann kallar sig. AMFJ spilar óhljóðatónlist. Síðastur er dúettinn Fist fokkers. Þar syngur Úlfur og spilar á gítar en Kári

Morrison elskar Ísland

Fjölskyldan er aðal andagiftin, segir James Morrison sem er staddur hér á landi um þessar mundir. Hann hefur bakið mikla athygli upp á síðkastið eða frá þvi að fyrsta platan hans

Sungið fyrir 2 milljónir

Aðeins 2 dagar eru í að áheyrnarprufur fyrir Idol Stjörnuleit fara fram. Þær fara fram á laugardaginn og hefjast stundvíslega kl. 08:00 á Hótel Hilton Reykjavík Nordica.

Tolli gefur málverk

Myndlistamaðurinn Tolli hefur gefið ABC barnahjálp tvö af málverkum sínum. Málverkin, sem voru til sýnis á málverkasýningu Tolla í Reykjavik Art Gallery í desember, voru seld hæstbjóðanda á uppboði og rennur andvirði þeirra til reksturs ABC skólanna á Indlandi og í Pakistan.

50 ára í fáránlega góðu formi

Takk fyrir það. Það er óumflýjanlegt. Svona er að lifa hollu og heilbrigðu lífi, svarar Þorgrímur Þráinsson þegar Vísir óskar honum til hamingju með fimmtugsafmælið í dag og líkamlegt ásigkomulag.

Spennandi plötur streyma út

Þrátt fyrir efnahagslegan samdrátt er auðvitað ekkert lát á útgáfu nýrra platna, enda engin sérstök kreppa á meðal listamanna. Tónlistaráhugafólk hefur yfir mörgu að hlakka á næstunni enda nóg af spennandi plötum að koma út.

Draugar í Hólavallakirkjugarði

"Myndin var tekin að kvöldi jóladags í kirkjugarðinum við Suðurgötu. Ég tók margar myndir en þessi er sú eina þar sem sjá má þessa þoku eða slæðu,“ segir Stuart Peacock lögfræðingur sem náði dularfullum fyrirbærum á mynd á jóladag.

Eva María Jónsdóttir í Eurovision

Eva María Jónsdóttir hefur gengið til liðs við hið árlega Eurovision-æði sem grípur þjóðina því hún mun verða kynnir Eurovision ásamt Ragnhildi Steinunni.

Zeppelin heldur áfram

Umboðsmaður Jimmy Page hefur staðfest að Led Zeppelin muni á næstunni fara á tónleikaferð og taka upp nýja plötu án söngvarans Roberts Plant. Sögusagnir hafa verið á kreiki að sú yrði raunin og eftir að Plant tilkynnti í desember að hann tæki ekki þátt í frekari endurfundum hefur allt verið sett á fullt í leit að nýjum söngvara.

André Bachmann sextugur

„André Bachmann er náttúrulega einn af helstu sjentilmönnum þessa samfélags og hefur liðsinnt ótrúlegum fjölda landsmanna, ekki síst þeim sem minna mega sín.

Kassagítarrokk frá Kuroi

Hljómsveitin Kuori heldur útgáfutónleika á Grand Rokki á laugardaginn til að kynna nýja EP-plötu sína. Sveitin leikur kassagítarrokk undir áhrifum frá sveitum á borð við Led Zeppelin, Sunny Day Real Estate og Alice in Chains.

Týnt barn og breskur krimmi

Janúar og febrúar-dúettinn er í hugum margra leiðinlegasta tvíeyki ársins. Þetta gildir þó ekki um kvikmyndaáhugafólk enda rekur á fjörurnar margar af bestu kvikmyndum hvers árs á þessu tímabili.

Hrifinn af Gomorra

Leikstjórinn Martin Scorsese ætlar að halda áfram að styðja við bakið á ítölsku mafíumyndinni Gomorra, sem er byggð á samnefndri bók Roberto Saviano. Scorsese kom ekki að gerð myndarinnar en tekur engu síður þátt í kynningarherferð hennar.

Forlagið stelur Steinari Braga

„Jahhh, svíkja Nýhil? Nei, nei, það var mjög gott samkomulag um að ég færi,“ segir Steinar Bragi rithöfundur sem nýverið söðlaði um og gekk til liðs við Mál og menningu sem er hluti Forlags-veldisins.

Tilbrigði við Rómeó og Júlíu

Bók danska rithöfundarins Anne Fortier, Julia, hefur vakið mikla athygli og bandaríski leikstjórinn James Mangold hefur þegar tryggt sér kvikmyndaréttinn. Þetta þykja kannski ekki merkileg tíðindi nema að bók Fortier kemur ekki út fyrr en árið 2010.

Dark Knight gæti brotið blað á Óskarnum

Kvikmyndin The Dark Knight gæti brotið blað í sögu Óskarsverðlaunanna því nú telja flestir að hún eigi öruggt sæti meðal þeirra kvikmynda sem tilnefndar verða til Óskarsverðlauna. Í vikunni var tilkynnt að samtök

Ágúst Borgþór kennir blogg

Hinn landskunni bloggari Ágúst Borgþór, Bloggþór, miðlar nú af reynslu sinni á námskeiði í bloggi.

Pétur Jóhann skíthræddur - myndband

„Pétur Jóhann segir að hann sé skíthræddur við að stíga á leiksvið í fyrsta skipti en hann er að hefja æfingar á einleik sem heitir Sannleikurinn, " segir Sigrún Ósk aðspurð um efnistök þáttarins Ísland í dag sem hefst strax að loknum fréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Paris Hilton gerir lítið úr kynlífsreynslu sinni

Glaðlyndi hótelerfinginn Paris Hilton reynir hvað hún getur til þess að gera lítið úr bólförum sínum í fortíðinni, ef marka má frétt breska slúðurblaðsins The Sun. Þar er haft eftir henna að hún hafi einungis sængað hjá fáeinum mönnum. Hilton er ein af nafntoguðustu djammdrottningum í Hollywood og sést sjaldnast opinberlega án þess að vera með karlmann upp á arminn.

Brynhildur fær Bjartsýnisverðlaun

Brynhildur Guðjónsdóttir leikkona og leikskáld hlaut í dag Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2008. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn í Iðnó í dag og afhenti Brynhildi áletraðan verðlaunagrip úr áli og verðlaunafé að upphæð 1 milljón króna. Dómnefnd verðlaunanna skipa frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, sem er formaður nefndarinnar

Jennifer eignast aðra stúlku

Leikkonan Jennifer Garner og Ben Affleck eignuðust heilbrigt stúlkubarn í gær samkvæmt talsmanni hjónanna.

Engar bollur í bandið

„Gítarleikarinn okkar, þrusugítarfantur, Gunnar Hilmarsson, er í djassnámi. Og nú vantar okkur í Dresscode gítarleikara,“ segir Davíð Smári Harðarson, einkaþjálfari, tónlistarmaður og fyrrum Idol-stjarna.

Gítarleikari The Stooges látinn

Í gær bárust þær sorgarfréttir að gítarleikarinn Ronald „Ron“ Asheton væri látinn. Lögreglan fann hann látinn á heimili hans í Ann Arbor í Michigan-ríki Bandaríkjanna eftir tilkynningu um að ekkert hefði til hans spurst dögum saman. Hann mun hafa verið látinn í nokkra daga en krufning mun leiða í ljós dánarorsökina. Ron var sextugur.

Sjá næstu 50 fréttir