Fleiri fréttir

Paris Hilton gerð arflaus

Fangelsisvist, djammlíf og grasreykingar Parisar Hilton féllu ekki betur í kramið hjá afa hennar en svo að hann hefur gert hana arflausa. Afinn, Barron Hilton, er sonur stofnanda Hilton keðjunnar og átti þangað til nýlega rúm fimm prósent hlutabréfa í henni.

Spilað gegn kynbundnu ofbeldi á Grand Rokk

Baráttutónleikar gegn kynbundnu ofbeldi verða haldnir á morgun á skemmtistaðnum Grand Rokk í Reykjavík. Karlahópur femínistafélagsins, Vdags samtökin og Jafningjafræðslan standa fyrir tónleikunum sem hefjast klukkan átta. Í tilkynningu frá fyrrnefndum samtökum kemur fram að þau vilji leggja í sameiningu áherslu á mikilvægi þess að fólk taki virkan þátt í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi

Pete Doherty vill fá Kate aftur

Eiturlyfjagosinn Pete Doherty vill fá Kate Moss aftur. Súpermódelið henti Doherty út fyrir skemmstu þegar hún komst að því að hann hefði verið að lúlla hjá suður-afrískri fyrirsætu. ,,Ég elska hana ennþá. Hún hryggbraut mig" sagði söngvarinn við breska dagblaðið The Sun.

Britney skilin

Britney Spears og Kevin Federline eru loksins skilin, en gengið var frá pappírunum í dag. Þau giftust í október árið 2004 átta mánuðum eftir að skammlíft hjónaband Spears og æskuvinar hennar var ógilt. Söngkonan sótti svo um skilnað frá Federline 7. nóvember í fyrra, og bar við óleysanlegum ágreiningi. Hjónin eignuðust saman synina Sean Preston, sem nú er 22 mánaða gamall, og hinn 10 mánaða gamla Jayden James. Þau hafa deilt forræði yfir drengjunum hingað til, en lögfræðingur Spears vildi ekki gefa upp hvaða fyrirkomulag yrði á þeim málum í kjölfar skilnaðarins.

Frágangur - Megas og Senuþjófarnir

Frágangur er fyrsta plata Megasar með nýju efni síðan Far þinn veg kom út árið 2001 ef frá er talin Megasukk platan Hús datt sem kom út fyrir tveimur árum. Megas hefur verið áberandi í útgáfu síðustu ára aðallega vegna endurútgáfu á fyrstu 13 plötunum hans og útgáfu á áður óútkomnu tónleikaefni, en nú er sem sagt loksins komin alvöru ný Megasarplata.

Styrktartónleikar Para-Dís

Lokatónleikar verkefnisins „Tónaregn í Reykjavík“ fara fram í Dómkirkjunni annað kvöld. Hafdís Vigfúsdóttir og Kristján Karl Bragason mynda saman dúóið Para-Dís, en þau hafa unnið að Tónaregni í Reykjavík á vegum Hins hússins í sumar.

Safnplata á leiðinni

Hljómsveitin Sigur Rós gefur út safnplötuna Hvarf-Heim hinn 5. nóvember, sama dag og tónleikamynd sveitarinnar Heima kemur út. Plötunni verður skipt í tvo hluta.

Rob ráðleggur Lindsay

Margir hafa tjáð sig um mál Lindsayar Lohan að undanförnu og er grínistinn Rob Schneider sá nýjasti og hefur hann afar sterkar skoðanir á málinu.

Rottweiler ráðast á eftirlitsþjóðfélagið

„Lagið snýst um þetta 1984-kjaftæði sem komið er upp í þessu þjóðfélagi, hvernig fylgst er með öllum eins og þeir séu glæpamenn,“ segir Erpur Þ. Eyvindarson, forsprakki rapphljómsveitarinnar XXX Rottweilerhunda. Erpur og félagar tóku um helgina upp myndband við fyrsta nýja lag sveitarinnar í nokkur ár.

Ingmar Bergman er látinn

Sænski leikstjórinn og rithöfundurinn Ingmar Bergman lést á heimili sínu á eyjunni Faro í Svíþjóð í gærmorgun. Hann var 89 ára að aldri.

Íslensk sýning í Hangar-7

Listasafnið Hangar-7 í Austurríki setur í lok september upp sýningu tileinkaða íslenskum listamönnum. Sjö íslenskir listamenn verða valdir til að sýna þar. Mikill fjöldi fólks sækir sýningar þarna og er þetta því mikill fengur fyrir þá listamenn sem verða valdir.

Einar Snorri með stuttmynd á Live Earth

Leikstjórinn Einar Snorri Einarsson leikstýrði á dögunum stuttmynd í tilefni Live Earth-tónleikanna sem voru haldnir um allan heim þann 7. júlí síðastliðinn.

Afar krefjandi ævintýri

Þrír starfsmenn Arctic Truck tókust á hendur svaðilför ásamt sjónvarpsmönnunum frægu úr bílaþættinum Top Gear, sem sýndur er á BBC við miklar vinsældir.

Íslendingar flykkjast á Simpsons

Bíómyndin um vinsælustu fjölskyldu heims virðist ætla að ganga vel ofan í Íslendinga, en myndin sló fjölda aðsóknarmeta um helgina. Hvorki fleiri né færri en 16.007 Íslendingar sáu myndina á fyrstu 3 sýningardögum og halaði hún inn rúmlega 12.5 milljónum króna. Myndarinnar hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu, en hún hefur verið tæp sex ár í vinnslu.

Eddie Murphy trúlofast

Grínistinn Eddie Murphy hefur trúlofast kærustu sinni til tíu mánaða, Tracey Edmonds. Trúlofunarhringurinn var ekkert slor, með risavöxnum átta karata gulum demanti.

Tom Cruise og Nicole Kidman sameinuð

Leiðir Nicole Kidman og Tom Cruise liggja saman á ný í haust þegar þau verða bæði við tökur í Bablesburg stúdíóunum í Berlín, þar sem þau leika hvort í sinni helfararmyndinni.

Leikur ársins

Tímaritið Develope Magazine fær ár hvert 100 sérfræðinga úr leikjaiðnaðinum til að verðlauna þá sem þykja skara fram úr. Að þessu sinni hlaut leikurinn Crackdown á Xbox 360 þann heiður að vera valinn leikur ársins.

Íslenskur Simpsons þáttur endursýndur vegna truflana

Simpsons þátturinn sem sýndur var á Stöð 2 í gærkvöldi verður endursýndur á Stöð 2 Sirkus í kvöld klukkan 19.45 vegna truflana í útsendingu í gær. Um er ræða 400. þáttinn um hina vinsælu Simpsons-fjölskyldu og hefur hann af því tilefni verið talsettur á íslensku.

Sorgleg og hlægileg saga Duke Nukem Forever

Duke Nukem 3D var einn vinsælasti tölvuleikur heims þegar hann kom út 1996. Ári síðar byrjuðu framleiðendurnir, 3D Realms, á framhaldsleik sem átti að skjóta fyrirrennaranum ref fyrir rass. Hann er ekki enn kominn út.

Penelope Cruz og Bono nýtt par?

Miklar vangaveltur eru nú uppi um mögulegt samband Penelope Cruz og Bono, söngvara U2. Það sást til skötuhjúanna skemmta sér saman á franska næturklúbbnum VIP Room. Svo fóru þeim heim um fjögurleitið, í sama bíl.

ArtFart hefst í annað sinn

Sviðslistahátíðin artFart hefst um helgina, með frumsýningu á dansverkinu Moment Seen í Tjarnarbíói. Samband ungra sviðslistamanna stendur að hátíðinni, sem hóf göngu sína í fyrra.

Jan Mayen til Englands

„Ég er helvíti glaður með þetta,“ segir Ágúst Bogason, gítarleikari rokkhljómsveitarinnar Jan Mayen. Önnur breiðskífa Jan Mayen er væntanleg í búðir eftir verslunarmannahelgi en þrjú ár eru síðan fyrsta plata þeirra kom út.

Beyoncé dettur kylliflöt

Söngkonan Beyoncé Knowles varð fyrir því óláni að hrynja niður stiga á tónleikum sínum í Florida fyrr í vikunni. Hún virðist þó hafa sloppið með skrekkinn því hún stóð snöggt á fætur og hélt áfram að syngja eins og ekkert hefði í skorist. Sumir áhorfenda voru meira að segja á því að söngkonan hefði ekki misst úr eitt einasta orð.

Leno gerir grín að Lindsay

Leikkonan Lindsay Lohan var tekin öðru sinni fyrir ölvunarakstur í vikunni líkt og fram kom í Fréttablaðinu. Handtakan kom sér illa fyrir fleiri en Lindsay því þáttastjórnandinn Jay Leno hafði bókað hana í þáttinn sinn sama kvöld. Þar var henni ætlað að kynna nýja mynd sína I Know Who Killed Me.

Damon á frægðarstétt

Leikarinn Matt Damon fékk nýverið stjörnu sína á frægðarstétt Hollywood. Damon segist hafa ungur að árum horft á stéttina og dreymt um að komast þangað einn daginn.

Einkasýning Heklu

Hekla Dögg Jónsdóttir opnar einkasýningu í Nýlistasafninu í dag. Sýningin ber heitið „Liminality; alveg á mörkunum“ og stendur til 19. ágúst. „Liminality” vísar til millibilssvæðis eða griðastaðar sem áhorfanda gefst færi á að dvelja í, að því er segir í fréttatilkynningu.

Vináttan sem sprakk

Töluverð umræða hefur verið uppi um lagið „(Minnst tíu miljón) Flóabitanótt“ sem er að finna á nýjustu plötu Megasar, Frágangur. Hefur því verið haldið fram að í laginu sé Megas að skjóta föstum skotum að Bubba Morthens, sem Megas hefur reyndar sjálfur harðneitað í útvarpsviðtali.

Syndug hjörtu á Rauðasandi

Bjartur útgáfa gaf út tvær skáldsögur Gunnars Gunnarssonar, Svartfugl og Aðventu, nú í vikunni. Í tilefni af útgáfu Svartfugls verður boðið upp á menningardagskrá að Saurbæ á Rauðasandi annað kvöld. Dagskráin ber titlinn „Við klukknahljóm syndugra hjarta“.

Norrænt stúlknaband safnar fé fyrir bágstadda

„Okkar draumsýn er að láta gott af okkur leiða. Það er náttúrlega draumur ef maður getur unnið við það að hjálpa öðrum,“ segir söngkonan Birgitta Haukdal, sem vinnur nú með samtökunum Navia í félagi við þrjá aðra Íslendinga.

Ofar en Ozzy og Winehouse

Tónlistarkonan Hafdís Huld hefur fengið mjög góða dóma fyrir frammistöðu sína á tónlistarhátíðinni Hultsfred í Svíþjóð sem var haldin á dögunum. Hultsfred er ein stærsta tónlistarhátíðin á Norðurlöndunum og í ár komu 160 hljómsveitir frá öllum heimshornum þar fram.

Nýr þáttur í anda Beðmálanna

Aðdáendur Beðmála í borginni geta glaðst því nýr þáttur frá hugmyndasmið Sex and the City, Darr­en Star, er í vinnslu fyrir sjónvarpsstöðina ABC.

Björgólfur með einkaþjálfara í fullu starfi

Ríkasti maður Íslands, Björgólfur Thor Björgólfsson, er mikið á ferð og flugi starfs síns vegna. Það aftrar honum þó ekki frá því að gefa sér tíma til að sinna heilsunni og þegar hann er staddur hér á landi æfir hann af krafti í Laugum.

Vinir í 101 Gallerí

Helgi Þórsson og Morgan Betz opna í dag samsýninguna Bermuda Love Triangle: the story of Doctor Son and Mister Bates, í 101 Gallerí að Hverfisgötu 18a.

Sótti áhrif í íslensk sjómannaklæði

Hildigunnur Sigurðardóttir lauk nýverið við BA í fatahönnun í skóla í Bretlandi. Þar fékk hún hæstu eink­unn fyrir lokalínu sína og fékk þann heiður að sýna á London Graduate Week ásamt útskriftarnemum úr öðrum skólum.

Í fótspor Möðruvallamunka

Minjasafnið á Akureyri, í samvinnu við Amtmannssetrið á Möðruvöllum, stendur fyrir sögugöngu frá miðaldakaupstaðnum Gásum að Möðruvöllum í Hörgárdal. Gangan hefst á því að Kristín Sóley Björnsdóttir, verkefnisstjóri Gásaverkefnisins, veitir gestum leiðsögn um Gásakaupstað.

Það er engin leið að hætta

Það er eins og gömlu jálkarnir í Rolling Stones geti ekki hugsað sér að hætta að rokka. A Bigger Bang-túrinn sem enn er í gangi er stærsta tónleikaferð sögunnar. Eftir helgina kemur út fjögurra diska DVD-pakki með efni frá honum.

Maraþon í hjólastól

Hjónin Guðrún og Sigurður ætla að hlaupa Glitnismaraþonið þann átjánda águst næstkomandi. Það væri kannski ekki í frásögur færandi nema fyrir það að Sigurður ætlar að ýta Guðrúnu í hjólastól alla leiðina - 42 kílómetra.

Spector saklaus?

Allt er komið á hvolf í þrálátum réttarhöldum yfir tónlistarframleiðandanum Phil Spector, sem er sakaður um morð á leikkonunni Lönu Clarkson. Réttarlæknir sem bar vitni í réttarhöldunum á dögunum heldur því fram að líklega hefði leikkonan framið sjálfsmorð og Spector hvergi komið þar nærri.

Syndug hjörtu á Rauðasandi

Laugardaginn 28. júlí verður efnt til menningarkvölds að Saurbæ á Rauðasandi undir yfirskriftinni: Við klukknahljóm syndugra hjarta. Tilefnið er ný útgáfa Bókaútgáfunnar Bjarts á skáldsögunni Svartfugli eftir Gunnar Gunnarsson.

Heimildamynd um íslenskan plötusnúð í bígerð

Verið er að leggja smiðshöggið á heimildamyndina From Oakland to Iceland: Hip Hop Homecoming. Myndin fjallar um þrítugan íslenskan plötusnúð, DJ Platurn, sem hefur verið búsettur í Kaliforníu frá sjö ára aldri, og lifir og hrærist í hip-hop og plötusnúða- menningunni þar. Honum er fylgt eftir í heimsókn á æskuslóðirnar haustið 2006 þar sem hann ferðast um landið, kynnist íslenskum plötusnúðum og röppurum og spilar, meðal annars á Iceland Airwaves hátíðinni.

Simpson frumsýnd á morgun

Kvikmyndin um Simpson fjölskylduna verður frumsýnd hér á landi á morgun. Sama dag verður einnig sýndur á Stöð 2 tímamótaþáttur - sá fjögurhundruðasti í röðinni.

Marc Jacobs til Íslands

Aðdáendur hins heimsfræga hönnuðs Marc Jacobs eru væntanlega glaðir núna því í fyrsta sinn eru vörur frá honum væntanlegar í búð á Íslandi. Það er verslunin Kronkron sem mun selja flíkur úr ódýrari línu hans, Marc by Marc Jacobs en þessa dagana eru „Gleðidagar“ í búðinni þar sem verið er að rýma fyrir Marc ásamt öðrum nýjum og hressandi vörum.

Ítölsk matargerð í blóðinu

Myndlistarkonan Ásdís Spanó eldar forláta pastarétti, enda rennur ítalskt blóð í æðum hennar. Pabbi er ítalskur og við höfum búið úti, einu sinni þegar ég var mjög ung og svo aftur þegar ég var ellefu ára,“ útskýrði Ásdís, sem segir ítalska matargerð því eðlilega vera í uppáhaldi hjá fjölskyldunni.

Í beinu sambandi við Jónas

„Ég vil meina að Jónas sé að tala í gegnum mig,“ segir kvikmyndagerðarmaðurinn Valdimar Leifsson sem er að ljúka tökum á sjónvarpsmynd í fullri lengd um Jónas Hallgrímsson, einn af Fjölnismönnum okkar á nítjándu öld. Myndin er samansett af leiknum atriðum og viðtölum og er að sögn leikstjórans eins konar ljóð til Jónasar í kabarettstíl.

Reykholtshátíð er hafin

Alþjóðleg tónlistarhátíð í Reykholti var í gær sett í ellefta sinn. Karlakór Basil dómkirkjunnar í Moskvu opnar hátíðina í kvöld, með tónleikum sínum klukkan 20. Kórinn syngur aftur á morgun á sama tíma. Hann vakti mikla hrifningu áheyrenda á Listahátíð í Reykjavík árið 2004 og er nú aftur kominn til landsins.

Sjá næstu 50 fréttir