Fleiri fréttir

Hefði ekki fengið hlutverk í Latabæjarsýningunni sjálfur

„Þetta var ótrúlega ánægjulegt og eiginlega bara algjör snilld,“ segir Magnús Scheving en hann var viðstaddur áheyrnarprufur á miðvikudag fyrir Latabæjar-leiksýningu sem setja á upp í London í febrúar á næsta ári.

Sjónvarp dauðans

Þess berast nú fregnir að Þjóðverjar hyggist á haustdögum setja á stofn sérstaka sjónvarpsrás sem helguð verður dauðanum. Vefrit Deutsche Welle greinir frá því að samband þýskra útfararstjóra standi að baki stöðinni sem mun sjónvarpa efni allan sólarhringinn en þar verði meðal annars fjallað um sorgarferli, útfararsiði, reglugerðir og annað tilstand er fylgir þessu óumflýjanlega hlutskipti.

Tónleikar Stones í Belgrad færðir vegna hrossa

Fyrirhugaðir risatónleikar Rolling Stones í Belgrad í Serbíu hafa verið færðir vegna mikilla mótmæla dýraverndunarsinna um þau slæmu áhrif sem tónlistin gæti haft á hross í nágrenninu.

Jim Carrey drekkur stíft

Gamaleikarinn Jim Carrey ætlar að framleiða og leika aðal­hlutverkið í gamanmyndinni Sober Buddies. Fjallar hún um drykkfelldan forstjóra tölvufyrir­tækis sem er fyrir rétti dæmdur til að taka með sér félaga á ráðstefnu í Las Vegas sem á að halda honum frá Bakkusi. Þróast málin þannig að félaginn, sem er leikinn af Carrey, missir sjálfur fótana í drykkjunni og lendir í hinum ýmsu vandræðum.

Sýking í sjávardýragarðinum á Ísafirði

„Fiskarnir fengu sýkingu í augun og þess vegna þurfti ég að tæma búrið,“ segir Lísbet Harðardóttir, sjávardýragarðsstjóri á Ísafirði. Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir skömmu opnaði Lísbet lítinn sjávardýragarð, sem var í raun eitt 1.800 lítra fiskabúr, utandyra í Neðsta kaupstað á Ísafirði. Sjávardýragarðurinn vakti mikla lukku en nú stendur hann tómur.

Örvar með framhaldssögu um fótbolta

Tónlistarmaðurinn Örvar Þóreyjarson Smárason úr hljómsveitinni Múm hefur samið framhaldssöguna Kempur í knattspyrnu. Gerist hún í Vestur-Þýskalandi á sjötta áratugnum og fjallar um hinn drykkfellda fótboltakappa, Ottmar Oberfüss. Inga Birgisdóttir, systir Jónsa úr Sigur Rós, myndskreytir söguna.

Rokkabillí brimbrettagæjar

Brimbrettagæjar voru Alexander McQueen greinilega hugleiknir er hann hannaði nýjustu herralínu sína sem sýnd var í Mílanó á dögunum.

41 lag um Þjóðhátíð

Tvöfalda safnplatan Í brekkunni – Á Þjóðhátíð í Eyjum er komin út. Á plötunum, sem innihalda 41 lag, eru flest af vinsælustu Þjóðhátíðarlögunum í gegnum tíðina og einnig lög sem hafa tengsl við Þjóðhátíð og stemninguna í Eyjum.

Vilhjálmur aftur í fang Kate

Vilhjálmur Bretaprins var kominn aftur í fang kærustu sinnar, Kate Middleton, aðeins fjórum dögum eftir að þau tilkynntu að þau væru hætt saman. Þau hafa haldið sambandi sínu leyndu síðan í apríl.

Dansarar hnoðast um bæinn

Danshópurinn Hnoð samanstendur af fjórum ungum stúlkum sem stunduðu allar nám í Listdansskóla Íslands. „Við erum aðallega að vekja athygli á dansi, leikum okkur mikið með spuna og vinnum út frá aðstæðunum. Þetta er svolítið í dansleikhússtíl,“ segir Ásrún Magnúsdóttir en hópurinn er hluti af Skapandi sumarstarfi Hins hússins.

Þjóðlögin óma alls staðar að

Þjóðlagahátíðin á Siglufirði hefst eftir helgina en að þessu sinni verða kvæðamenn áberandi á hátíðinni en þá verður einnig boðið upp á námskeið á háskólastigi um íslenska þjóðlagatónlist.

Stella mótmælir á netinu

Stella McCartney mun setja á svið fyrstu netmótmæli í heimi gegn pelsum þann 12. júlí næstkomandi. Þá hyggst hún mótmæla notkun á dýrafeldi í tískuheiminum en þetta gerir hún í samvinnu við PETA dýraverndunarsamtökin.

Dita strippaði fyrir fræga fólkið

Fatafellan Dita von Teese kom nýlega fram á einkasýningu fyrir fólk eins og Jasmine Guiness, Rosario Dawson, Henry Holland, Gareth Pugh og Steven Tyler. Hún er andlit nýs varalits frá MAC sem nefnist Viva Glam og á sýningunni dansaði hún upp á risastórum þriggja metra háum, dökkbleikum Viva Glam varalit.

Velgengnin mömmu að kenna

Systkinin Smári og Fríða Dís Guðmundsbörn er fólkið á bakvið blúshljómsveitina Klassart, sem nýverið gaf út sína fyrstu plötu og á lag vikunnar á Tónlist.is.

Sýn leigjendanna

Samsýningin „Leigjendurnir“ var opnuð í húsakynnum SÍM á Seljavegi 32 á dögunum. Þar sýna fimm erlendir gestalistamenn verk sín sem eru í vinnslu á vinnustofum þeirra.

Stórtónleikar fyrir austan

„Við stefnum að sjálfsögðu að því að fylla húsið enda er þetta metnaðarfullt prógramm,“ segir Áskell Heiðar Ásgeirsson sem stendur fyrir tónleikum á Borgarfirði eystri 28. júlí næstkomandi.

Örvhentur eins og Hendrix

Einar Þór Jóhannesson, gítarleikari Dúndurfrétta, fór á kostum þegar sveitin spilaði The Wall í Laugardalshöll á miðvikudagskvöld. Einar Þór er örvhentur, rétt eins og átrúnaðargoð sitt Jimi Hendrix. „Við vorum alveg í skýjunum hvað þetta kom vel út," segir Einar Þór um tónleikana. „Stemningin var engu lík og betri en maður hefur komist í tæri við áður. Að sjá næstum fulla Laugardalshöll í bandbrjáluðu stuði, það var ekki leiðinlegt."

Ingvi Hrafn óttast ekki laxaleysið

„Ég hef ekki nokkrar áhyggjur af ástandinu. Ég er sannfærður um að það kemur sprenging á næstunni, spurningin er aðeins hvenær hún verður,“ segir sjónvarps-, laxveiði- og athafnamaðurinn Ingvi Hrafn Jónsson, sem eins og undanfarin ár er við stjórnvölinn í Langá í Borgarfirði í sumar.

Blúsinn trekkir að á Ólafsfirði

„Hátíðin er alltaf að vaxa. Í fyrstu var þetta ein kvöldskemmtun en nú er þetta þriggja daga hátíð með öllu tilheyrandi,“ segir Gísli Rúnar Gíslason, aðalskipuleggjandi Blúshátíðarinnar á Ólafsfirði, en hún var haldin í áttunda sinn um helgina.

Velheppnað popp

Hin 19 ára gamla græneygða Robyn Rihanna Fenty frá Barbados sló í gegn fyrir tveimur árum með Karíbahafslitaða r&b sumarsmellnum Pon De Replay og fylgdi honum eftir með S.O.S. í fyrra. Good Girl Gone Bad er hennar þiðja plata og það er ekkert lát á smellunum. Lagið Umbrella sem hún syngur ásamt Jay-Z stefnir í að verða eitt af lögum sumarsins 2007.

Drullugir upp fyrir haus

Hljómsveitin Trabant er nýkomin heim úr mánaðarlangri tónleikaferð um Bretlandseyjar þar sem hún spilaði á rúmlega tuttugu tónleikum. Doddi trommari játar að vera orðinn ansi lúinn eftir törnina. „Það er ekki mikill tími til að slappa af. Menn eru komnir á fullt í alls konar dóterí annað. Manni hefði ekki veitt af því að fara í mánaðar sumarfrí úti á landi en það er ekki alveg í boði,“ segir Doddi.

Paris sökuð um lygar

Paris Hilton hefur verið sökuð um að hafa logið að spjallþáttastjórnandum Larry King í viðtali sem tekið var við hótelerfingjann nokkrum dögum eftir að henni hafði verið sleppt úr fangelsi. Í viðtalinu sagðist Paris aðspurð aldrei hafa prófað eiturlyf á sinni ævi en í kjölfarið hafa ýmsir fjölmiðlar ytra rifjað upp gamlar sögur af stúlkunni.

Rödd Bjarkar aðalatriðið

Björk Guðmundsdóttir segir í viðtali við tímaritið Plan B að rödd hennar hafi verið aðalmálið í gegnum tíðina, ekki hverja hún hitti eða hvað hún gerði. „Allir segja: „Hún er svo heppin: hún klæddist svanakjólnum og lamdi blaðamanninn,“ og allt þetta klisjukennda bull. Málið er að alveg síðan ég var í Sykurmolunum hefur allt snúist um röddina mína,“ segir Björk.

Á að verða flottasta sundlaugin á landinu

Á kvenréttindadaginn 19. júní skrifuðu athafnakonurnar Steinunn Jónsdóttir og Lilja Pálmadóttir undir samning við fulltrúa sveitarfélagsins í Skagafirði um byggingu sundlaugar á Hofsósi en þær stöllur hafa komið sér vel fyrir á glæsilegum sveitabæjum þar í kring. Skrifað var undir samninginn á Bæ þar sem Steinunn hefur aðsetur en þar er einnig starfrækt listasetur sem nýlega var opnað og hefur strax fengið mikil og góð viðbrögð enda þykir náttúrufegurðin þar einstök.

Ekki undirgefinn

Isaiah Washington, sem var rekinn úr þáttunum Grey"s Anatomy fyrir ummæli sín um samkynhneigða, segir að kynþáttafordómar hafi átt þátt í brottrekstri hans.

Yfirlit um Georg Guðna

Sumarsýning Listasafnsins á Akureyri, sem verður opnuð í dag, er helguð yfirliti á verkum Georgs Guðna landslagsmálara, en þar gefur að líta höfundarverk eins helsta listamanns sinnar kynslóðar. Sýningin er yfirgripsmikil og gefur gestum Listasafns Akureyrar tækifæri til að skoða verk Georgs Guðna í stóru samhengi.

Skáldleg söguskoðun

Breski rithöfundurinn David Mitchell vinnur nú að sinni fimmtu skáldsögu en hann hefur þegar vakið töluverða athygli fyrir bækur sínar Cloud Atlas, number9dream og Black Swan Green. Þær tvær fyrrnefndu voru til að mynda tilnefndar á stuttlista Man Booker bókaverðlaunanna á sínum tíma.

Áhrif frá Jackson

Gareth Pugh hefur vakið mikla athygli fyrir íburðarmiklar flíkur og brjálaðar tískusýningar. Hann vakti strax athygli þegar hann útskrifaðist frá Central Saint Martins en hann segir það mjög erfitt að komast áfram í tískubransanum. "Ég held að fólk kalli útskriftarsýningar "lokasýningar“ vegna þess að það er síðasta sýning sem nemandinn mun gera!“ sagði hann í gríni og átti við hversu erfitt er að gera þá næstu.

Cannibal Corpse áritar í Tónastöðinni

Alex Webster og Pat O'Brien, liðsmenn bandarísku dauðarokksveitarinnar Cannibal Corpse, mæta í Tónastöðina í Skipholti og árita á mánudaginn kl. 18.00.

Ekta sveitabrúðkaup hjá Hreimi og æskuástinni

Popparinn Hreimur Heimisson mun ganga í það heilaga í dag með unnustu sinni til margra ára, Þorbjörgu Sif Þorsteinsdóttur. Þetta verður sannkallað sveitabrúðkaup því athöfnin mun fara fram í Fljótshlíð og verður traktor notaður sem brúðarbíll.

Toyota fer troðnar slóðir

Toyota Auris er nýr hlaðbakur sem ætlað er að taka við af hlaðbaksútgáfum Corolla. Barnið vex en brókin ekki. Bílar gera það hinsvegar. Gott dæmi er Toyota Corolla sem hefur gegnum tíðina stækkað úr smábíl í fullvaxinn fólksbíl og um leið orðið að mjög fjölbreyttri bílalínu.

Nærbolur McClane á Smithsonian-safnið

Skítugur nærbolur hetjunnar John McClane úr Die Hard-myndunum, sem Bruce Willis leikur, er á meðal þess sem bandaríska safnið Smithsonian hefur fengið að gjöf vegna nýrrar sýningar. Einnig fékk safnið kynningarplakat og upprunalegt handrit nýjustu Die Hard-myndarinnar.

Gjörbreyttur Rex opnar í kvöld

Starfsmenn Rex hafa undanfarna daga staðið í ströngu við að breyta og bæta en komin eru þrjú ár síðan staðurinn var síðast tekinn í gegn. „Það er búið að ganga rosalega vel síðastliðin þrjú ár og staðurinn orðinn svolítið sjúsk­aður. Við ákváðum að taka hann í gegn og bara gjörbreyta um stíl,“ segir Sverrir Rafnsson, framkvæmdastjóri staðarins.

Pálmi fékk framsóknarvönd

„Ég ligg nú bara að mestu fyrir, það er ekki glæsilegt upplitið á manni,“ segir Pálmi Gestsson leikari sem jafnar sig nú eftir slys sem hann varð fyrir í hestaferð í byrjun vikunnar. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá lenti Pálmi á óþekkri meri sem lék hann svo grátt að lífbeinið gliðnaði um 2-3 sentímetra. Hann fór í kjölfarið í aðgerð þar sem mjaðmagrindin var spennt saman.

Algjört dúndur í Höllinni

Hljómsveitin Dúndurfréttir spilaði plötu Pink Floyd, The Wall, í Laugardalshöll á miðvikudagskvöld við mjög góðar undirtektir. Sinfóníuhljómsveit Íslands lék undir á lipurlegan hátt.

Var alltaf öðruvísi

Debbie Harry ræddi um fatastíl sinn í nýlegu viðtali við Times og fannst hún alls ekki klæða sig einkennilega í gamla daga. „Ég er á þeirri skoðun að ég hafi ekki klætt mig það óeðlilega eins og af var látið. Það virtist bara vera þannig vegna þess að meginstraumur tískunnar var gjörsamlega andstæðan við minn stíl,“ segir Harry sem hefur fyrir löngu fengið á sig stimpil sem tískuíkon fyrir sérstaklega glæsilegan stíl.

McClane á gervihnattaöld

Hollywood hefur ekki tekist að skapa nýjar hetjur sem hvorki eru byggðar á myndasögum né hafa óeðlilega krafta í kögglum. Hetjur sem standa einar á móti öllu og beita gömlum en gildum aðferðum við að knésetja óþjóðalýðinn. Og því hefur draumasmiðjan endurvakið eina fræknustu, kjaftforustu og mannlegustu hetju síðari tíma og etur henni gegn nútímanum holdi klæddum; tölvuþrjót.

Beckham hefur störf föstudaginn þrettánda

Föstudagurinn þrettándi júlí er dagurinn sem David Beckham gengur til liðs við bandaríska fótboltaliðið Los Angeles Galaxy. Dagurinn er alþekkt tákn fyrir yfirvofandi óheppni.

Komin með alveg nóg af Paris Hilton

Fréttaþulur í Bandaríkjunum var svo mótfallin því að lesa frétt um Paris Hilton í upphafi fréttatíma að hún krumpaði handritið sitt, reyndi að kveikja í því og setti það að lokum í tætara.

B.Sig. með tónleika

Hljómsveitin B.Sig. heldur tónleika á Gauki á Stöng í kvöld. B.Sig., sem er hugarfóstur handboltakappans Bjarka Sigurðssonar, gaf nýlega út sína fyrstu plötu, Good Morning Mr. Evening, sem hefur fengið góðar viðtökur.

Auðkýfingur kaupir hlut í galleríi í miðborginni

„Þetta er nú engin stóreflisfjárfesting. Það er mikill listaáhugi í fjölskyldunni og þess vegna tókum við þátt í þessu,“ segir auðkýfingurinn Sindri Sindrason, hluthafi og stjórnarmaður í Actavis, sem ásamt fjölskyldu sinni hefur keypt stóran hlut í Gallerí Turpentine við Ingólfsstræti. Kaupverðið er ekki gefið upp en samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins hleypur það á tugum milljóna króna.

París las Biblíuna og hugleiddi

Paris Hilton var læst í 10 fermetra stórum fangaklefa í 23 klukkustundir á dag í þær rúmu þrjár vikur sem hún mátti dúsa í fangelsi í Los Angeles. Stærstan hluta þess tíma eyddi hún í að lesa Biblíuna, stunda hugleiðslu og ákveða hvernig hún gæti notað reynsluna innan múranna til að koma lífi sínu á réttan kjöl.

Kryddpíurnar snúa aftur

Kryddpíurnar hafa snúið aftur úr áralangri pásu og ætla í tónleikaferð um heiminn í desember og janúar. Allir upprunalegir meðlimir verða með í þetta sinn, þar á meðal Geri Halliwell sem hætti í maí 1998.

Sjá næstu 50 fréttir