Fleiri fréttir

Fönkskotin tónlist

Platan Fnykur með Stórsveit Samúels Jóns Samúelssonar kemur út á föstudag á vegum SJS Musik. Sama dag heldur Stórsveitin útgáfutónleika á tónlistarhátíðinni Vorblóti.

Bjartsýn á franskt/íslenskt framhald

Það var tilkomumikil sjón þegar götuleikhúsið Royal de Luxe sprengdi höfuð risans mislynda í loft upp og risessan sigldi úr Reykjavíkurhöfn. Þá var létt yfir mannskapnum sem undanfarna þrjá mánuði hefur staðið fyrir franska vorinu á Íslandi.

Star Wars í efsta sæti

Star Wars hefur verið kjörin sú mynd sem hefur haft mest áhrif á tæknibrellur annarra mynda í gegnum tíðina. Star Wars, sem kom út 1977, hvatti marga til að starfa við tæknibrellur í kvikmyndum, að því er kom fram niðurstöðum könnunar Samtaka tæknibrellna í Bandaríkjunum.

Lindsay Lohan fækkar fötum

Bandaríska leikkonan Lindsay Lohan lofar því að hún sýni meira af líkama sínum en nokkru sinni áður í nýrri mynd sinni.

Hagaskólanemendur hittast

„Þetta hefur ekki verið gert í fimmtán ár og við ætlum núna að bjóða fimmtán árgöngum, öllum sem voru í Hagaskóla á árunum 1950 til 1965,“ segir Ólafur Jóhannsson sem stendur fyrir „Re-unioni“ gamalla Hagaskólanema ásamt Guðjóni B. Hilmarssyni. „Það verða tvær gamlar skólahljómsveitir að spila, Sweet Dreams og Cogito, þetta verður mjög skemmtileg veisla.“

Einar Bárðarson kandídat í dómarasæti breska X-Factor

„Ég get svo sem alveg eins verið í sjónvarpinu hér í Englandi og röflað einhverja þvælu eins og á Íslandi. Ef til þess kemur,” segir Einar Bárðarson oft nefndur umboðsmaður Íslands. Einar er nú til athugunnar hjá Simon Cowell og fyrirtæki því sem framleiðir sjónvarpsþættina X-Factor í Englandi en nú er verið að stokka hann upp og fá inn nýja dómara.

Moss bjargaði Lily Allen

Breska söngkonan Lily Allen segir að fyrirsætan Kate Moss hafa bjargað henni úr slagsmálum sem hún lenti í. Þetta gerðist á Glastonbury-hátíðinni síðasta sumar eftir að Allen var ranglega sökuð um að hafa kokkálað stúlku nokkra. „Þetta var martröð, ég fékk til dæmis glóðaraugu á bæði augun. En svo mætti Kate og bjargaði mér. Hún er hetja,“ segir Lily.

Bauð Robbie Williams upp á ís

„Þeir voru bara með sænska peninga og kreditkort sem ekki voru tekin gild þarna. Robbie var svo byrjaður að borða ísinn sinn svo ég ákvað bara að flýta fyrir og bauðst til að borga fyrir þá,“ segir Sigurður Ágúst Pétursson rafmagnsiðnfræðingur. Sigurður lenti í þeim undarlegu aðstæðum fyrir skemmstu að bjóða bresku poppstjörnunni Robbie Williams upp á ís þar sem þeir voru báðir staddir á vídeóleigu í Kaupmannahöfn.

Líf og fjör á vorhátíð

Vorhátíð Laugarneshverfis hefst klukkan 14 í dag. „Þetta er sannkölluð fjölskylduhátíð þar sem börnin eru í forgrunni,“ sagði séra Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Laugarneskirkju, sem verður kynnir á hátíðinni.

Ekki siðlaus

Ástralska söngkonan Kylie Minogue hefur vísað á bug fréttum um að hún eigi í ástarsambandi með kvæntum manni. Kylie, sem er 38 ára, var ljósmynduð í Chile með kvikmyndaframleiðandanum Alexander Dahm, sem á ófríska eiginkonu.

Mæðginin taka glöð á móti gestum

Miðborg Reykjavíkur er þekkt fyrir urmulinn allan af kaffihúsum en eitthvað minna hefur farið fyrir þeim á landsbyggðinni. Nú hefur Rúna Esradóttir opnað fyrsta kaffihúsið á Súðavík í félagsheimilinu og það er allt brjálað að gera.

Coppola sýnir í Róm

Fyrsta kvikmynd leikstjórans Francis Ford Coppola í tíu ár verður frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Róm í október. Myndin nefnist Yout Without Youth og gerist í seinni heimsstyrjöldinni. Með aðalhlutverk fer Tim Roth. Leikur hann prófessor sem verður að skotmarki nasista eftir að hann kemst yfir formúlu fyrir ódauðleika.

Green Day í Simpsons

Bandaríska hljómsveitin Green Day kemur fram í gestahlutverki í kvikmyndinni The Simpsons sem kemur út í sumar eftir margra ára bið. Koma söngvarinn Billie Joe og félagar fram í stuttu atriði skömmu áður en myndin endar. Öskrar barþjónninn Moe á þá og biður um að spila ekki svona hátt.

Landnámssetrið eins árs

Ár er nú liðið frá opnun Landnámssetursins í Borgarnesi og af því tilefni eru aðdáendur afmæla og einkum þeir yngstu boðnir sérstaklega velkomnir í setrið.

Vill sexalógíu

Kvikmyndaframleiðandinn The Halcyon Co. hefur keypt sýningarréttinn að kvikmyndunum um Tortímandann og ætlar sér að búa til þrjár myndir til viðbótar þannig að úr verði sexalógía.

Upphefð í annað sinn

Sigríður Lára Sigurjónsdóttir leikskáld á heiðurinn að verkinu Listin að lifa sem var valið áhugaverðasta áhugaleiksýning leikársins 2006-2007. Þetta er í annað sinn sem höfundinum hlotnast þessi heiður en verkið verður sýnt í Þjóðleikhúsinu í júní.

Traustur maður á réttum stað

CoBrA-sýningin stóra sem var opnun Listahátíðarinnar í Reykjavík í gær verður ekki ekki til af sjálfu sér. Forráðamenn Listasafns Íslands drógu enga dul á að þegar farið var í alvöru að ræða hugmyndina, sem kom upp í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn, hafi enginn annar komið til greina til að setja sýninguna saman en Norðmaður á eftirlaunum: Per Hovdenakk, fyrrverandi safnstjóri á Onstadt-safninu í Osló.

Tónamínútur fyrir flautu og píanó

Verk Atla Heimis Sveinssonar, Tóna­mínútur, verður flutt á tónleikum í Þjóðleikhúsinu á morgun í tilefni af Listahátíð í Reykjavík. Tónamínútur er verk fyrir einleiksflautu og flautu og píanó en flytjendur verða Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari, Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari og tónskáldið sjálft.

Tilraunakenndari Leaves

Hljómsveitin Leaves er komin langt með upptökur á sinni þriðju plötu. Arnar Guðjónsson söngvari segir tónlistina tilraunakenndari en áður. „Við ætlum ekkert að gefa út fyrr en við erum orðnir ánægðir. Við ætlum að taka upp tvö lög í viðbót áður en við segjum þetta gott,“ segir Arnar Guðjónsson, söngvari Leaves.

Tengsl hests og manns

Þuríður Sigurðardóttir, Þura, kynnir myndbandsverk og sína nýjustu málverkaröð á sýningunni „STÓГ í galleríi Suðsuðvestur í Reykjanesbæ. Sýningin verður opnuð kl. 16 í dag.

Spáir tveimur undankeppnum að ári

„Þetta er nákvæmlega það sem ég spáði fyrir um fyrir þremur árum,“ sagði Jónatan Garðarsson, þaulreyndur Eurovision-spekingur, um úrslitin í undankeppni Euro­vision. Mikillar óánægju hefur orðið vart bæði á Íslandi og í löndum á borð við Noreg, Danmörku og Holland, þar sem enginn keppandi frá vesturhluta Evrópu komst áfram.

Þrír rómantískir menn

Saxófónleikarinn Sigurður Flosason og píanóleikarinn Kjartan Valdemarsson halda tónleika með völdum sönglögum eftir Franz Schubert í eigin útsetningum í Laugarneskirkju kl. 16 í dag. Þar geta íbúar á höfuðborgarsvæðinu róað taugar sínar á kjördag og varið innilegri klukkustund með með þremur rómantískum karlmönnum: Kjartani, Sigurði og Franz.

Megn óánægja með nærbuxnatal Sigmars

Eftir Eurovision-keppnina á fimmtudag loguðu allar símalínur í útvarpshúsinu við Efstaleiti. Voru þar á ferð í það minnsta þrjátíu ósáttir greiðendur afnotagjalda sem blöskraði klámfengið tal kynnisins, Sigmars Guðmundssonar í Kastljósinu, milli laga.

Sopranos-leikari á tímamótum

Michael Imperioli er staddur hér á landi til að leika í kvikmynd Ólafs Jóhannes­sonar, Stóra planið, þar sem hann fer með hlutverk glæpa­foringjans Alexanders. Freyr Gígja Gunnars­son hitti leikarann við sjávar­síðuna á Seltjarnarnesi.

Litla-Ellý fædd

„Litla Ellý fæddist í gærkvöldi klukkan 19:36. 13 merkur og 51 cm. Allt gekk eins og í sögu og við vorum komin heim skömmu eftir miðnæti. Með kveðju, Freyr, Ellý og börn," skrifaði stolt móðir, Ellý Ármanns, til vina og vandamanna í gærmorgun.

Michael stríddi Janet

Söngkonan Janet Jackson segir að bróðir sinn Michael, fyrrverandi konungur poppsins, hafi uppnefnt sig þegar þau voru lítil vegna þyngdar hennar. Í viðtali í bandarískum spjallþætti vildi hún samt lítið tjá sig um hvað hann kallaði hana.

Kvöldmessa og vorhátíð

Síðasta kvöldmessa vetrarins í Laugarneskirkju verður flutt annað kvöld að lokinni vor­hátíð safnaðarins. Þar verður flutt Misa criolla, argentínsk messa eftir Ariel Ramírez, í stað hefðbundinna messuliða og auk þess sungnir suðrænir sálmar til þess að æsa upp sumarskapið. Hildur Eir Bolladóttir prédikar og þjónar fyrir altari.

Minntust Syd Barrett

Meðlimir Pink Floyd stigu allir á svið á minningartónleikum um Syd Barrett, fyrrverandi liðsmann sveitarinnar, í London fyrir skömmu. Roger Waters, sem hélt tónleika í Egilshöll á síðasta ári, spilaði einn á sviðinu en David Gilmore spilaði með trommaranum Nick Mason og hljómborðs­leikaranum Rick Wright sem báðir voru í Pink Floyd. Gilmore og félagar spiluðu nokkur lög, þar á meðal fyrsta smáskífulag Pink Floyd, Arnold Layne.

Óvenjuleg listapör

Óvenjuleg myndlistarsýning á vegum hátíðarinnar List án landamæra verður opnuð í Norræna húsinu í dag. Þetta er sannkölluð parasýning þar sem fimmtán ólíkir listamenn sameina krafta sína en meðal þátttakenda eru meðal annars pörin Gauti Ásgeirsson og Finnbogi Pétursson, Halldór Dungal og Hulda Hákon og Guðrún Bergsdóttir og stúlkurnar í Gjörningaklúbbnum.

Gubbi Morthens á flottasta bílnum á Stöðvarfirði

Eftir því hefur verið tekið á Stöðvar­firði að nýr bíll er kominn í plássið. Um er að ræða svartan Land Rover Discovery jeppa árgerð 2006 sem var áður í eigu ekki ómerkari manns en Bubba Morthens. Nýi eigandinn er trillusjómaðurinn Guðbjörn Sigurpálsson sem gengur nú undir gælunafninu Gubbi Morthens í bænum.

Edda fyrir Eddu

Borgarleikhúsið og Edda Björgvinsdóttir standa fyrir styrktarsýningu á leikritinu Alveg Brilljant Skilnaður á miðvikudag 16. maí kl. 20:00 á Nýja Sviði Borgarleikhússins og mun allur ágóði sýningarinnar renna til leikkonunnar Eddu Heiðrúnar Backman sem stríðir nú við alvarlegan sjúkdóm.

Drew verður sendiherra

Leikkonan Drew Barrymore hefur verið gerð að sendiherra hjá Sameinuðu þjóðunum. Mun hún einbeita sér að því að berjast gegn hungri. Fetar hún þar með í fótspor þekktra nafna á borð við Angelina Jolie, George Clooney, Michael Douglas og Geri Halliwell.

Kalla mig Ömmu diskó

Helga Möller söngkona á afmæli í dag. Þessi ástsæla söngkona sem hefur fyrir löngu sungið sig inn í hug og hjörtu þjóðarinnar stendur nú á fimmtugu. Hún hefur þó engu tapað af lífsgleði með árunum, nema síður sé, enda sísyngjandi.

Andspyrnan og saga hennar

Evrópusambandið hefur nú komið á fót safni á netinu þar sem finna má viðtöl á myndböndum við félaga úr andspyrnuhreyfingum í Evrópu. Vefritið Deutsche Welle greindi frá þessu á dögunum.

Dansað í Óperunni

Dans-leikhúsið Pars pro toto er vaknað enn á ný eins og það gerir reglulega: tilefnið er boð um að sýna tvö verk á hátíð í Stuttgart í Þýskalandi hinn 18. og 19. maí næstkomandi. Þar hefur flokknum verið boðið að sýna verkin Von og G.Duo á Íslandshátíð þar í bæ.

Sniglarnir eru fyrir alla

Valdís Steinarrsdóttir kynntist mótorhjólum á Landsmóti Sniglanna og er nú sjálf formaður samtakanna.

BMW með vél ársins

Bílablaðamenn víðs vegar að völdu á dögunum vél ársins. BMW sigraði þriðja árið í röð.

Mótorhjólakragi

BMW hefur hafið framleiðslu á hálskrögum sem verja mótorhjólamenn fyrir mænuskaða.

Britney með nýjan kærasta

Britney Spears er komin með nýjan kærasta, tónlistamanninn Howie Day. Smekkur hennar á karlpeningi virðist ekki hafa skánað mikið, að minnsta kosti eru vinirnir ekki hrifnir og meira að segja Kevin Federline telur sig yfir hann hafinn. ,,Maður þarf að fara á ruslahaugana til að ná í sorp" sagði Kevin, og vísaði til þess að Britney hitti Howie í áfengismeðferð.

Krufning Parisar Hilton

Paris Hilton er fyrirmynd. Að minnsta kosti fyrirmynd höggmyndar sem listamaðurinn Daniel Edwards mun opinbera í Brooklyn í dag. Verkið, ,,Krufning Parisar Hilton" sýnir glamúrgelluna látna, nakta, með glennta fætur og farsíma í hendi.

Angelina Jolie vill fleiri börn

Fleiri líffræðileg börn, og fleiri ættleidd, sagði leikkonan Angelina Jolie í viðtali við People tímaritið, þegar hún var spurð að því hvort hún ætlaði að eignast fleiri börn.

Barnlaust par giftir kúna sína

Kýrin Sadhana gekk í heilagt hjónaband í þorpinu Guradia í Mið-Indlandi í fyrradag. ,,Athöfnin var í öllu samkvæmt helgisiðum Hindúa" sagði Shankar Lal Malviya, sem var gestur ,,brúðgumans". Hjónin verðandi voru skreytt samkvæmt kúnstarinnar reglum áður en skrúðganga fór með "brúðgumann" í fylgd lúðrasveitar og dansara heim til ,,brúðarinnar"

Austur-Evrópskt samsæri?

Íslendingar eru langt frá því að vera einir um það að vera svekktir með niðurstöðu Evróvisjón í Helsinki í gær.

Sjá næstu 50 fréttir