Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kennir körlum að elda Fríða Sophia Böðvarsdóttir kennir matreiðslu jafnt dag sem kvöld. Hún er heimilisfræðakennari í Víkurskóla í Grafarvogi og heldur jafnframt námskeið í Kvöldskóla Kópavogs. 10.5.2007 00:01
Drukkin á tökustað Leikkonan geðþekka Felicity Huffman sem við þekkjum úr þáttaröðinni Aðþrengdar eiginkonur viðurkennd í viðtali við Parade Magazine að hún hefði í einhverjum tilfellum verð drukkin við tökur á myndinni Georgia Rule. 9.5.2007 18:46
Britney að syngja með Marilyn Samkvæmt nýjustu fregnum ætlar Britney Spears sér að gefa út nýtt lag. Lagið verður dúett og sú sem syngur með henni verður engin önnur en Marilyn Monroe. Breska blaðið Daily Star skýrði frá þessu í dag. 9.5.2007 17:55
Beckham kominn með nýja klippingu David Beckham frumsýndi nýja klippingu á æfingu hjá Real Madrid. Nú er kappinn með lítið sem ekkert hár og sögðu gárungarnir að hann hefði ákveðið að snoða sig eftir mikla dramatík á hárgreiðslustofunni. 9.5.2007 17:41
Tom Jones spilar á Díönu tónleikum Söngvarinn og hjartaknúsarinn Tom Jones og rapparinn P Diddy koma fram á tónleikum til minningar um líf Díönu prinsessu á Wembley leikvanginum í London. Tónleikarnir verða á afmælisdegi prinsessunnar 1. júlí næstkomandi en þá hefði hún orðið 46 ára. Söngvarinn Will Young og kanadíska stjarnan Nelly Furtado eru einnig á lista tónlistarmanna sem koma fram. 9.5.2007 15:42
Málhaltir gamlingjar ekki eftirsóttir í kvikmyndir Kvikmyndaleikarinn Kirk Douglas hefur gefið út bókina „Let´s face it“. Í henni fer hann mikinn um ástand heimsins í dag auk þess sem hann fjallar um einkalíf sitt á opinskáan hátt. Og hann segist vera tilbúinn í fleiri hlutverk; „vandamálið er að það eru ekki mörg hlutverk fyrir málhalta gamlingja.“ 9.5.2007 12:04
George bannaður frá Bandaríkjunum George Michael gæti lent í fangelsi og yrði hugsanlega bannað að ferðast til Bandaríkjanna ef hann verður dæmdur fyrir að keyra undir áhrifum lyfja. Þetta kemur fram í breska dagblaðinu Daily Telegraph. Söngvarinn viðurkenndi brot sitt fyrir dómi í gær og kenndi um þreytu og lyfseðilsskyldum lyfjum. Hámarksrefsing er sex mánaða fangelsisdómur auk ökubanns. 9.5.2007 11:00
Selur ímyndaðan vin á eBay Maður á Bretlandi hefur auglýst ímyndaðan vin sinn til sölu á uppboðsvefnum eBay. Nú þegar hafa boðist um tvö hundruð þúsund íslenskar krónur í vininn. Í auglýsingunni segir: „Ímyndaði vinur minn Jon Malipieman er að verða of gamall fyrir mig. Ég er 27 ára og finnst ég hafa þroskast frá honum.“ 9.5.2007 10:55
Kynþokki Eiríks þykir ærandi Flestir spá Úkraínu sigri í Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva í ár. Lagið þykir ekki það besta en dragdrottningin sem það syngur nær athygli allra. Flutningur Eiríks Haukssonar þykir hrífandi en það eru kyntöfrar hans sem helst eru til umræðu í tengslum við framlag Íslendinga. 9.5.2007 10:15
Brynhildi skipt út fyrir breska leikkonu „Skjótt skipast veður í þessum bransa. Þetta er vissulega súrt í broti en svona getur þetta verið," segir Ingvar Þórðarson, framleiðandi hjá Kvikmyndafélagi Íslands. 9.5.2007 10:00
Landbúnaðarráðherra klæðist kindinni „Þetta er óskaplega skemmtilegt og íslenska sauðkindin er mikið módel,“ segir Guðni Ágústsson en Gunnlaugur Ingivaldur Grétarsson, annar eigandi bolabúðarinnar Ósóma, afhenti landbúnaðarráðherranum eitt stykki Kind-bol í gær. 9.5.2007 10:00
Prince stúderar Biblíuna Bandaríski söngvarinn Prince tilkynnti í gær að hann mundi halda 21 tónleika í London í haust. Hann sagðist einnig áforma að taka sér hlé frá tónlist til þess að kynna sér Biblíuna. Á blaðamannafundi í borginni útskýrði Prince ástæðu þess að London varð fyrir valinu en ekki aðrar Evrópuborgir. 9.5.2007 09:54
Dreymir um að reka eigið hótel Rafn Þórisson fagnaði sigri á Íslandsmóti barþjóna sem haldið var á Hótel Nordica síðastliðið sunnudagskvöld. Alls kepptu þrettán barþjónar en Rafn stóð uppi sem sigurvegari með drykknum Toppi sem samanstendur af gini, ferskjulíkjör, þurru Martini og ástaraldinssírópi. Rafn var leystur út með glæsilegum vinningum en hann verður einnig fulltrúi okkar Íslendinga á heimsmeistaramóti barþjóna sem haldið verður í Taívan í nóvember. 9.5.2007 09:45
Ein dóttirin og foreldrar hennar. Föstudaginn 10. maí kl. 17 verður opnuð í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, sýning á málverkum listakonunnar Temmu Bell. 9.5.2007 09:30
Óvænt uppákoma í brúðkaupi Sóleyjar Sóley Kristjánsdóttir, betur þekkt sem DJ Sóley, og unnusti hennar Freyr Frostason gengu í það heilaga um helgina. Í athöfninni sjálfri var brúðhjónunum komið á óvart, þegar vinahópur parsins stóð upp og söng. „Þetta var alveg æðislegt. 9.5.2007 09:00
Þrjú ár í lokaþátt Lost Þrjár þáttaraðir til viðbótar af hinum vinsælu sjónvarpsþáttum Lost verða teknar upp. Eftir það ljúka þættirnir göngu sinni, árið 2010. Að sögn framleiðenda mun lokaþátturinn sem svo margir hafa beðið eftir koma fólki gjörsamlega í opna skjöldu. 9.5.2007 09:00
Slegist um rússneskan lax „Þeir eru þekktir fyrir að sprengja upp öll verð. Ég er ekki viss um að það verði góður kostur í framtíðinni að fara til Yokanga fyrir hinn almenna veiðimann," segir Hilmar Hansson umboðsmaður veiðiferðaskrifstofunnar Frontiers hér á landi. 9.5.2007 08:00
Snúa aftur Vinkonurnar Skoppa og Skrítla hafa snúið aftur í Ævintýraland Þjóðleikhússins. Leikkonurnar Hrefna Hallgrímsdóttir og Linda Ásgeirsdóttir eru í hlutverkum Skoppu og Skrítlu en Hrefna gerir einnig handritið. Hallur Ingólfsson semur tónlistina og búninga og leikmynd gerir Katrín Þorvaldsdóttir. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson. 9.5.2007 07:00
Das Leben des Anderen - fjórar stjörnur Margverðlaunuð kvikmynd leikstjórans Florians Henckel von Donnersmarck, Líf annarra, gerist í sundruðu Þýskalandi árið 1984, austanmegin í Berlín hefur öryggislögreglan Stasi nef sitt í hvers manns koppi og vænisýkin er í hámarki. 9.5.2007 00:01
Vaknaði með jeppa við hliðina á sér Rúmenskur maður sem vaknaði við mikinn hávaða í svefnherberginu uppgötvaði að jeppi hafði lagt sig með honum. 8.5.2007 23:37
Glæsileg stúdíóíbúð Parisar Ef að áfrýjun Parisar Hilton gengur ekki upp mun hún brátt flytja inn í þessa stórgóðu stúdíóíbúð. Íbúðin er sirka 2,5 sinnum 3,5 metrar að flatarmáli. Í henni er þægileg tveggja hæða koja. Þá er bæði heitt og kalt vatn til staðar í henni ásamt klósetti. Klósettið er ekki í sérherbergi til þess að leggja áherslu á að um stúdíóíbúð sé að ræða. 8.5.2007 23:12
Blanchett orðin ofurmjó Leikkonan Cate Blanchett kom aðdáendum sínum óþægilega á óvart fyrir stuttu þegar hún birtist, ofurmjó, á góðgerðarkvöldi listasafnsins í New York. Hárgreiðsla hennar og farði hjálpuðu ekki til og ýttu undir hið nýja útlit hennar. 8.5.2007 23:01
Seðlaveski kvennabósa finnst eftir 55 ár Seðlaveski sem rann úr vasa karlmanns í rómantísku faðmlagi fyrir 55 árum hefur nú fundið eiganda sinn að nýju. Veskið fannst í aftursæti gamallar bifreiðar þegar tveir bílasafnarar skoðuðu möguleika á endurbótum. Eftir leit á internetinu fundu þeir eigandann Glenn Goodlove. 8.5.2007 15:07
Jóhann G. Jóhannsson gefur út lag til varnar hálendinu „Hálendi Íslands" er heiti á nýju lagi Jóhanns G. Jóhannsonar, tónlistar- og myndlistarmanns. Jóhann vann lagið með fulltingi Landverndar og fleiri umhverfissamtaka og er því dreift ókeypis á Netinu. 8.5.2007 10:35
Vildu ekki Framsókn í brúðkaupið „Já, ég fann fyrir þau annan sal og sá um veisluna fyrir þau. Ég sjálfur er sjálfstæðismaður og skildi þeirra sjónarmið,“ segir Stefán Ingi, veitingamaður hjá Veisluhaldi ehf. 8.5.2007 10:30
Óvænt endurkoma Simma í handboltann „Ég gat varla staðið í fæturna eftir leikinn og Hjálmar bróðir var rúmliggjandi," segir Sigmar Vilhjálmsson. Hann lék síðasta leikinn með meistaraflokki Hattar frá Egilsstöðum í fyrstu deild Íslandsmótsins í handknattleik á dögunum, ásamt bróður sínum Hjálmari Vilhjálmssyni. 8.5.2007 10:15
Gerir það gott í Þýskalandi Þorleifi Erni Arnarssyni hafa borist fimm tilboð frá þýskum leikhúsum í kjölfar sýninga á Eilífri hamingju í Berlín í febrúar. Þorleifur er leikstjóri sýningarinnar og stundar nú leikstjóranám í Berlín. „Leikhúsin eru öll að ákveða hvað þau ætla að gera næsta vetur. Það á eftir að koma í ljós hvað passar inn og hvað ég get tekið að mér,“ sagði Þorleifur og bendir á að staðan sé enn nokkuð óljós. 8.5.2007 10:00
Hafnaði drottningunni Helen Mirren hefur móðgað Elísabetu Bretlandsdrottningu með því að afþakka persónulegt boð hennar um kvöldverð í Buckingham-höll. Leikkonan fékk Óskarsverðlaunin fyrir túlkun sína á Elísabetu í kvikmyndinni Drottningin en taldi sig vera of upptekna fyrir kvöldverðinn. Að sögn er Elísabet sármóðguð yfir hegðun Mirren. 8.5.2007 10:00
París kennir blaðafulltrúanum um ófarir sínar Hótelerfinginn París Hilton er afar ósátt við 45 daga fangelsisdóm sem hún fékk fyrir helgi. París var dæmd fyrir að rjúfa skilorð sem hún fékk þegar hún var tekin ölvuð undir stýri. Hilton kennir blaðafulltrúa sínum um fangelsisdóminn og hefur látið hann róa. 8.5.2007 09:45
Gómaði bíræfna matarþjófa Sveinn Kjartansson, matreiðslumeistarinn góðkunni á Fylgifiskum, sýndi mikið hugrekki og dirfsku á föstudaginn þegar hann elti uppi glæpaflokk frá Rússlandi. Þeir höfðu látið greipar sópa í veisluþjónustu staðarins á Suðurlandsbraut og rænt bíl staðarins. „Þetta gæti líka hafa verið heimska,“ segir Sveinn í samtali við Fréttablaðið. 8.5.2007 09:45
Kate Moss langar í barn Kate Moss vill eignast barn með kærasta sínum Pete Doherty. Samkvæmt breska blaðinu Daily Express sagði Kate vinkonu sinni frá þessari ósk. 8.5.2007 09:45
Þrjár til viðbótar Að minnsta kosti þrjár kvikmyndir til viðbótar verða gerðar um köngulóarmanninn. Sú nýjasta, Spider Man 3, hefur farið fram úr björtustu vonum framleiðenda myndarinnar hvað varðar aðsóknartölur og ætla þeir þess vegna að hamra járnið á meðan það er heitt. 8.5.2007 09:00
Hýrnar um hólma og sker Léttsveit Kvennakórs Reykjavíkur heldur tvenna vortónleika í kvöld og annað kvöld í Bústaðakirkju. Hefjast tónleikarnir bæði kvöldin kl. 20. Tveir karlar slæðast með í tónleikahald kórsins: Tómas R. Einarsson bassaleikari hefur fylgt kórnum um árabil og styrkt þær með áslætti sínum og í kvöld verður Bergþór Pálsson söngvari gestur við flutning á dagskrá sem er sótt hingað og þangað. 8.5.2007 08:45
Sprækir salsa-diplómatar Hljómsveitin Salsa Celtica snýr aftur til Íslands til að leika á heimstónlistarhátíðinni Vorblót. Tónlist hennar er frumleg blanda af suðrænni sveiflu og norrænum áhrifum sem vakið hefur stormandi lukku og fjör í fótum um allar jarðir. 8.5.2007 08:30
Mannamyndir sýndar í Höfn Verk eftir sex íslenska listamenn voru valin á stórsýningu á portrettlistaverkum sem nú er uppi í Friðriksborgarhöll í Kaupmannahöfn. Það eru þau Dodda Maggý Kristjánsdóttir, Helgi Gíslason, Kristveig Halldórsdóttir, Magdalena Margrét Kjartansdóttir, Sesselja Tómasdóttir og Sigrún Eldjárn sem nutu þess heiðurs að fá inni á sýningunni, sem var opnuð á fimmtudag. 8.5.2007 08:15
Volta fær góðar viðtökur Nýjasta plata Bjarkar Guðmundsdóttur, Volta, kom út í gær og stefnir í að verða vinsælasta plata hennar í langan tíma. Volta hefur selst afar vel hérlendis síðan hún kom út í gær. „Salan hérna heima er sú mesta sem við höfum séð hjá Björk í langan tíma," segir Ásmundur Jónsson, útgáfustjóri Smekkleysu. 8.5.2007 08:00
Hálf milljón til Sólstafa Aðstandendur Óbeislaðrar fegurðar, hinnar óhefðbundnu fegurðarsamkeppni sem fram fór á Ísafirði síðasta dag vetrar, söfnuðu alls 497.000 krónum til handa Sólstöfum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá hópnum, en upphaflegt takmark var hálf milljón króna. „Það er okkur mikill heiður og ánægja að geta lagt Sólstöfum lið, því mikið starf er óunnið hjá þessum hetjum sem standa að Sólstöfum,“ segir í tilkynningu. 8.5.2007 08:00
Sparar í fatakaupum Julia Roberts ætlar að klæða nýjasta erfingjann í notuð föt. Roberts á von á þriðja barni sínu með tökumanninum Danny Moder í haust, en fyrir eiga þau tvíburana Hazel og Phinnaeus. 8.5.2007 07:45
Hipp og hopp Hinn heimsfrægi hiphop-dansflokkur Pokemon Crew heldur tvær sýningar á Stóra sviði Borgarleikhússins í kvöld og annað kvöld. 8.5.2007 07:30
Vill gullinn hljóðnema Friðrik Jónsson, sendiráðunautur í utanríkisráðuneytinu, er fertugur í dag. Friðrik er liðtækur tónlistarmaður og réttur höfundur framsóknarlagsins svokallaða. 8.5.2007 07:00
Birta, bækur og búseta Í tilefni af tuttugu og fimm ára afmæli Bókasafns Garðabæjar efnir menningar- og safnanefnd bæjarins til upplestrardagskrárinnar „Bókin og birtan“ þar á bæ. Í kvöld heimsækja Jón Yngvi Jóhannsson, bókmenntafræðingur og gagnrýnandi, og Rúnar Helgi Vignisson, rithöfundur og þýðandi, safnið. 8.5.2007 07:00
Iron Lung spilar í kvöld Bandaríska þungarokkshljómsveitin Iron Lung heldur tónleika hér á landi í kvöld og annað kvöld. Iron Lung, sem er dúett, ætlar að hefja tónleikaferð sína um Evrópu hér á landi. Tónlist sveitarinnar er kraftmikil, þung og sér á báti. 8.5.2007 06:30
Fnykur Þann 18. maí n.k kemur út hljómplatan Fnykur með Stórsveit Samúels Jóns Samúelssonar. Sama dag heldur Stórsveit Samúels útgáfutónleika á tónlistarhátíðinni Vorblóti "Rite of Spring" á Nasa sem fram fer á vegum Hr. Örlygs dagana 17-19 mai. 7.5.2007 14:58
Spiderman slær í gegn á Íslandi Spiderman 3 sló heldur betur í gegn hér heima eins og víðast hvar um heiminn. Myndina sáu hátt í 15 þúsunds manns á aðeins þremur dögum og er þetta því stærri opnun en bæði Spiderman 1 og Spiderman 2. 7.5.2007 13:42
Doherty handtekinn aftur Pete Doherty var handtekinn í Kensington í London á laugardagskvöldið grunaður um að vera með fíkniefni. Lögregla stöðvaði hann á bíl sínum og færði til yfirheyrslu á lögreglustöð. Honum var síðan sleppt með tryggingu, en þarf að mæta aftur á stöðina í júní. Dómari hafði áður skipað honum að sækja sér meðferð vegna fíkniefnaneyslu. 7.5.2007 10:53