Fleiri fréttir

Tipsað fyrir flugfari

Starfsmenn veitingahússins Vegamóta standa nú fyrir óvenjulegri söfnum undir slagorðinu Gústa heim. Söfnun þessi hófst fyrir helgi en þá var settur upp söfnunar­baukur á barborðinu á neðri hæð staðarins með slagorði söfnunarinnar og mynd af Gústa.

Ham á Nasa

Þann 29. júní verða hörkutónleikar á Nasa í Reykjavík. Þar stígur á svið ein af merkilegri hljómsveitum íslenskrar tónlistarsöguHam, ásamt mjög svo sérstökum gestum, drengjunum úr 9/11’s.

Í spegli Íslands

Miðvikudaginn 28. júní kl. 12 á hádegi heldur Sumarliði R. Ísleifsson sagnfræðingur erindi í bókasal Þjóðmenningarhússins í tilefni af opnun sýningar þar um skrif erlendra manna um Ísland og Íslendinga fyrr á öldum.

Aparnir í Eden

Hin margrómaða Köntrísveit Baggalúts hefur lokið upptökum á sinni annarri hljómskífu sem ber titilinn Aparnir í Eden. Lokaupptökur fóru fram í félagsheimilinu að Flúðum í síðustu viku.

Gull á Ítalíu

Útskriftarárgangur Listdansskóla Íslands vann í gærkveldi 1. verðlaun á Alþjóðlegri Samtímadanskeppni (Contemporary dans). " Dans Grand Prix Europe 2006" sem haldin var í borginni Cesena á Ítalíu síðustu daga.

Bætist við á Iceland Airwaves 2006

Iceland Airwaves 2006 fer fram í miðborg Reykjavíkur daganna 18.-22. október. Alls munu um 130 listamenn og hljómsveitir munu koma fram á hátíðinni - þar af yfir 100 innlendir.

Erfitt að kveðja fjölskylduna

Það reyndist ekki alls kostar auðveld ákvörðun fyrir Magna Ásgeirsson að taka þátt í Rockstar: Supernova. Magni er sem kunnugt er kominn í hóp fimmtán söngvara sem keppa um hylli aldinna rokkara í raunveruleikaþættinum.

Ingó leysir Magna af

Ingólfur Þórarinsson, Ingó úr Idol, mun syngja í fyrsta sinn með hljómsveitinni Á móti sól á hestamannaballi í Vík í Mýrdal í kvöld. Ingó hleypur í skarðið fyrir Magna Ásgeirsson, sem var nýverið valinn í 15 manna lokaúrtak fyrir bandaríska sjónvarpsþáttinn Rockstar: Supernova.

Nýtt lag með Ragnheiði Gröndal

Ragnheiður Gröndal hefur sent frá sér nýtt lag en næstu daga er hægt að sækja lagið endurgjaldslaust á tónlist.is í boði Landsbankans.

Diskó og Pönk í Árbæjarsafni

Sunnudaginn 25. júní býðst gestum Árbæjarsafns að upplifa diskó- og pönkstemningu. Á sýningunni "Diskó & Pönk - ólíkir straumar?" geta gestir safnsins virt fyrir sér ýmsa muni frá árunum 1975 - 1985 og fengið tilfinningu fyrir tíðarandanum.

Þúsundasti viðskiptavinur SKO

Rúmlega eitt þúsund manns hafa skráð sig í farsímaþjónustu lággjaldasímafélagsins SKO. Þúsundasti viðskiptavinur fyrirtækisins, Bára Hólmgeirsdóttir, var heiðruð sérstaklega af því tilefni og fékk hún 10 þúsund króna inneign og blómvönd frá fyrirtækinu.

Miðnætur- og Ólympíufjölskylduhlaup á Jónsmessu

Miðnætur- og Ólympíufjölskylduhlaup á Jónsmessu er haldið í dag föstudaginn 23.júní kl 22:00 en hlaupið verður frá Laugardalslaug. Mun Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri ræsa hlaupið sem hefst og lýkur við Sundlaugarnar í Laugardal.

Mezzoforte á Akureyri í kvöld

Loksins fá Akureyringar og nærsveitungar tækifæri til að hlýða á hina eitursnjöllu hljómsveit Mezzoforte en sveitin mun leika á einum tónleikum á Græna Hattinum þann í kvöld kl. 21

Verður þjóðareign eins og handboltalandsliðið

Mér líst bara ljómandi vel á en þetta er enn að síast inn í mann. Þetta verður alla vega mikið ævintýri, segir Magni Ásgeirsson söngvari sem hefur verið valinn til að taka þátt í bandaríska raunveruleikaþættinum Rockstar: Supernova.

Dansinn dunar á Kringlukránni

Danshljómsveitin Klassík sér um að halda uppi dansstuði á Kringlukránni um helgina. Hljómsveitin hefur nú starfað í tæp tvö ár og sérhæfir sig í að spila danslög fyrir fólk sem vill dansa og skemmta sér. Á efnisskránni eru einkum lög sem verið hafa vinsæl hér á landi, lög sem kalla fram minningar, allir kunna og geta sungið með.

Alþjóðleg sýn

Myndlistarsýningin Alþjóðleg sýn/ International View 2006 verður opnuð laugardaginn 1.júlí kl. 15. í Listasal Mosfellinga og alþjóðleg vinnusmiðja/ International Workwhop 2006 verður opnuð föstudaginn 7.júlí kl. 20. Þrúðvangi, Álafossvegi 20, Mosfellsbæ.

Jónsmessuganga á Þorbjörn

Laugardagskvöldið 24. júní munu Bláa Lónið og Grindavíkurbær í samstarfi við Leiðsögumenn Reykjaness bjóða upp á hina árlegu Jónsmessugöngu á fjallið Þorbjörn. Gangan hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár en hér er um að ræða skemmtilega afþreyingu fyrir alla fjölskylduna.

TAKA 2006

Mikil spenna ríkti á stuttmyndahátíð grunnskólanema Taka 2006 í Réttarholtsskóla í gær, en þar kepptu 40 myndir til verðlauna. Fyrstu verðlaun er hið eftirsótta klapptré með árituðu heiti myndar og vinningshafa.

Skógardagur á Héraði

Laugardaginn 24. júní næstkomandi, verður blásið til einstakrar skógarhátíðar í stærsta og þekktasta skógi landsins, Hallormsstaðaskógi en í ár eru liðin 36 ár síðan blómleg bændaskógrækt hófst á Héraði.

Fyrsta plata Snorra væntanleg í verslanir í byrjun júlí

Snorri Snorrason sem kom sá og sigraði Idol stjörnuleit Stöðvar 2 í vetur er nú í þann mund að ljúka upptökum á sinni fyrstu breiðskífu. Platan er væntanleg í verslanir í byrjun júlí og hefur hún hlotið nafnið "Allt sem ég á".

Magni áfram í Rock Star Supernova

Magni Ásgeirsson, söngvari hljómsveitarinnar Á móti sól, er kominn í 15 manna úrslit í raunveruleikaþættinum Rockstar Supernova. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skjáeinum sem sýnir þættina

Katrín Óskarsdóttir sýnir á Hvolsvelli

Karín Óskarsdóttir lauk námi í Grafískri hönnun frá Myndlista-og handíðaskólanum árið 1974 og hefur haldið nokkrar einkasýningar á undanförnum árum. Katrín vann um skeið á auglýsingastofu og var síðar sjálfstætt starfandi við skiltagerð, uppsetningu sýningarbása og við gluggaskreytingar.

Innipúkinn á Nasa

Innipúkinn verður haldinn 4. 5. og 6. ágúst á Nasa, en þetta er fimmta árið sem hátíðin fer fram um verslunarmannahelgina í Reykjavík. Tilgangur hátíðarinnar verður í ár sem áður að bjóða upp á góða tónlist í Reykjavík á sama tíma og vertíð útihátíða á Íslandi gengur í garð.

2500 miðar í boði á tónleika Nick Cave

Miðasala fyrir tónleika Nick Cave, sem fram fara í Laugardalshöll 16. september, hefst Fimmtudaginn 29. júní í verslunum Skífunnar, BT Akureyri, Egilstöðum og Selfossi og á www.midi.is. Um er að ræða sitjandi tónleika og verða aðeins seldir miðar í númeruð sæti.

Ljósalagið 2006

Hafin er leitin að lagi og texta til að taka þátt í sönglagakeppninni Ljósalagið, sem haldin er í Reykjanesbæ ár hvert. Sigurlag keppninnar verður notað sem einkennislag fyrir Ljósanótt, menningar- og fjölskylduhátíð Reykjanesbæjar,sem haldin er fyrstu helgina í september.

Hádegistónleikar í Hallgrímskirkju

Næstkomandi fimmtudag, þann 22. júní klukkan 12.00, kemur Hörður Áskelsson organisti Hallgrímskirkju og söngmálastjóri þjóðkirkjunnar, fram á fyrstu fimmtudagstónleikum tónleikaraðarinnar „Alþjóðlegt orgelsumar“ á þessu sumri.

Ævintýraveröld ófétanna

Agnarlitlu ófétin eiga heima í blómum og fljúga á fiðrildum. Í heimi þeirra er hið smáa risavaxið og allt er fullt af undrum og óvæntum uppákomum. Stilkar blómanna eru eins og trjábolir og grasþykknið er eins og þéttur frumskógur.

Flottar konur í Hafnarfirði

Á vordögum ákváðu þrjár hafnfirskar konur sem þá voru nýbúnar að fjárfesta í reiðhjólum að kanna hug kynsystra sinna í bæjarfélaginu til þess að stofna félagsskap um hjólreiðar. Eftir samtöl við konur á öllum aldri kom í ljós gríðarlegur áhugi fyrir slíku félagi.

Ghostigital í Hyde Park

Hljómsveitin Ghostigital spilar á Wireless hátíðinni í Hyde Park sunnudaginn 25. júní næstkomandi.

Tónleikar í 12 tónum í dag

Í dag kl 17:00 verða haldnir tónleikar í verslun 12 Tóna við Skólavörðustíg. Þar kemur fram dansk/hollenska dúóið "The Story of Modern Farming"

SS bakhjarl "Einnar með öllu" á Akureyri

Vinir Akureyrar og Sláturfélag Suðurlands undirrituðu í dag samning sem felur í sér að SS bætist í hóp öflugra fyrirtækja sem eru bakhjarlar Fjölskylduhátíðarinnar “Ein með öllu,” sem haldin hefur verið undanfarin fimm ár á Akureyri um verslunarmannahelgina.

Mezzoforte í Ungverjalandi

Mezzoforte spilaði í Ungverjalandi í fyrsta skipti um helgina en þar var hljómsveitinni afar vel tekið. Hljómsveitin er nú á leið norður í land og spilar á Græna Hattinum föstudaginn 23. júní og í Egilsbúð 24. júní á Jazzhátíð Egilsstaða á Austurlandi.

Vill ekki verða steinn í veggnum

Fyrrverandi Pink Floyd meðlimurinn Roger Waters, sem mánudaginn 12. júní spilaði fyrir um 15.000 Íslendinga í Egilshöll, hefur aflýst fyrirhugðum tónleikum sínum í Tel Aviv í Ísrael og fært þá í friðarþorpið Neve Shalom/Wahat al-Salam sem byggt er bæði byggt Palestínumönnum og Ísraelum.

Dr. Mister & Mr. Handsome

Íslenska danshljómsveitin "Dr. Mister & Mr. Handsome" hefur komið fram á íslenska tónlistarmarkaðinn eins og þruma úr heiðskíru lofti á þessu ári. Hljómsveitin gerði sér lítið fyrir og tyllti sér í 1. sæti Netlista Tónlist.is í þessari viku með nýjasta smelli sínum "Is it Love?"

Jafningjafræðslan fagnar í kjallara Hins hússins

Næstkomandi fimmtudag mun Jafningjafræðslan opna nýja heimasíðu. Af því tilefni verður haldin allsherjar uppákoma í kjallara Hins hússins. Ýmis tónlistaratriði ásamt dansi og ljósmyndasýningu er meðal þess sem í boði er.

PÍPÓLA á Sirkus

Sirkus leitar að tveimur þáttarstjórnendum til að stýra nýjum íslenskum sjónvarpsþætti, Pípóla, í sumar. Nafn þáttarins er gamallt íslenskt orð sem þýðir leika, dansa, spila.

Villtar plöntur skoðaðar

Í dag verður samnorræni blómadagurinn haldinn hátíðlegur á öllum Norðurlöndunum. Hér á Íslandi skipuleggja Flóruvinir daginn en markmið hans er að vekja áhuga almennings á villtum plöntutegundum. Dagurinn byrjar á plöntuskoðun fyrir áhugasama í samstarfi við Ferðafélag Íslands í Undirhlíðum á Reykjanesfólkvangi.

Staldrar við innan veggja leikhússins

Þetta kom mér mjög á óvart og mér datt ekki í hug að ég mundi taka þetta enda fannst mér hinir sem voru tilnefndir líklegri til vinnings, segir Hugleikur Dagsson en hann var valinn leikskáld ársins á uppskeruhátíð leikhússins, Grímunni, á föstudag fyrir sýninguna Forðist okkur.

Sniglabandið leikur óskalög fyrir Akureyringa

Hljómsveitin Sniglabandið verður með vikulega skemmtiþætti eftir hádegi á sunnudögum á Rás 2 þar sem sveitin bregður á leik í beinni útsendingu með alls konar sprelli undir dyggri stjórn útvarpsmannsins Magnúsar Einarssonar.

Nýr ilmur frá Cartier

Cartier-tískuhúsið hefur sett nýjan ilm á markað. Cartier hefur getið sér gott orð innan tískuheimsins fyrir fallega skartgripi og fylgihluti og er þekkt fyrir að hanna skartgripi á kóngafólkið enda slagorð fyrirtækisins kings of jewelleries, jewelleries for kings.

Diskó & Pönk í Árbæjarsafni

Frá og með laugardeginum 17. júní býðst gestum Árbæjarsafns að sjá nýja sýningu er nefnist Diskó & Pönk – ólíkir straumar?

Vildi skemmta sjálfum sér

Tónlistarmaðurinn Einar Tönsberg hefur gefið út sína aðra sólóplötu, Voff Voff, undir listamannsnafninu Eberg. Freyr Bjarnason spjallaði við Einar, sem er kominn með annan fótinn til Íslands.

Valgeir Guðjónsson snýr aftur eftir langt hlé

Þann 17. júní hefja Stuðmenn sína árlegu landsyfirreið en fyrsti viðkomustaður verður höfuðstaður Norðurlands, Akureyri. Þetta hefur verið árviss viðburður hjá hljómsveitinni sem nú birtist landsmönnum með heldur breyttu sniði.

Tíminn tvinnaður

Listasafn Reykjanesbæjar stendur fyrir alþjóðalegri listasýningu sem ber heitið „Tíminn tvinnaður“ en hér er á ferðinni listhópurinn Distill sem samanstendur af sjö nútímalistamönnum sem búsettir eru í borgum víða um heim.

Sjá næstu 50 fréttir