Fleiri fréttir

Mátturinn er með mér

Gamalt máltæki segir að það séu allir froskar stórir í eigin drullupolli. Þetta sannast heldur betur í Cannes þar sem íslenskir blaðamenn eru álíka öflugir og moskítófluga á köldu Reykjavíkurkvöldi.

Á elleftu stundu

Það er ekki alveg málið að mæta í bíó í Cannes á slaginu. Biðraðirnar á pressusýningarnar eru klikkaðar og gamla frumskógarlögmálið fyrstir koma, fyrstir fá er í fullu gildi og skyldi engan undra þegar um 5000 manns vaða hér uppi með blaðamannapassa um hálsinn.

Uppnám í Menntaskólanum á Akureyri

Nemendur í uppeldis-og menntunarfræðum við Menntaskólann á Akureyri hafa unnið að rannsóknar- og heimildarverkefnum á vorönn og munu þeir kynna niðurstöður sínar á ráðstefnu í Kvosinni, sal Menntaskólans á Akureyri, laugardaginn 20. maí nk.

Forseti Íslands ræðir við Dadi Janki

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson á viðræðufund á morgun með Dadi Janki, virtri indverskri forystu- og baráttukonu á vettvangi mannréttinda, friðarmála og andlegra gilda.

Nýtt listaverk á Bessastaði

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff forsetafrú tóku í dag, föstudaginn 19. maí kl. 13:00, við umfangsmiklu listaverki sem grunnskólanemendur úr Álftanesskóla og frá Norður-Írlandi hafa sett upp norðan við heimreiðina að Bessastöðum.

Silvía Nótt komst ekki áfram

Lagið Congratulations í flutningi Silvíu Nætur komst ekki áfram í úrslit Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem fram fara á laugardag. Undankeppni fór fram í kvöld og flutti Silvía íslenska lagið síðust keppenda.

Stefnumót við engil

Það vantar ekki lífið í tuskurnar hérna í Cannes en samt er það altalað í hópi þeirra sem hafa komið hingað árum saman að þessi hátíð sé óvenju róleg. Það segir sína sögu að ég fékk strax borð á besta ítalska staðnum í bænum í hádeginu.

Romario unnusti Sylvíu Nóttar með matareitrun

Romario, unnusti Sylvíu Nóttar og annar tveggja sem eiga að dansa með Sylvíu Nótt á sviðinu í OAKA höllinni í Aþenu í kvöld er með matareitrun og var gefin næring í æð. Romario hefur ekki haldið neinu niðri og var því gefin næring í æð baksviðs í OAKA höllinni þar sem forkeppni Eurovision fer fram í kvöld en óttast var að hann gæti ofþornað. Romario ætlar þó að stíga á svið með Sylvíu Nótt eftir rúmar tvær klukkustundir.

Stórtónleikar á Nasa á föstudagskvöld

Cod Music í samstarfi við THULE og Tonlist.is heldur stórtónleika á NASA föstudaginn 19. maí. Fram koma þeir 6 flytjendur sem COD Music hefur á sínum snærum en útgáfufélagið hóf leit að 15 flytjendum í upphafi árs og en nú hefur verið ákveðið að vinna nánar með þessum sex flytjendum.

"Bright Nights" í Árnesi

Rafræn Reykjavik hefur verið iðinn við kolann í vetur að kynna og bjóða íslendingum upp á fyrsta flokks raftónlistarmenn. Nú hafa þeir sett saman eina allsherjar listahátíð sem mun fara fram í félagsheimilinu Árnesi í Skeiða og Gnjúpverjahreppi helgina 9-11 júní.

300 nördar hafa skráð sig

Sjónvarpsstöðin Sýn leitar að þátttakendum Í nýjum íslenskum raunveruleikaþætti sem heitir FC Nörd - eða Nördarnir - og verður tekinn til sýninga haustið 2006. Skráning hefur gengið vonum framar og nú hafa um þrjú hundruð manns lýst yfir áhuga á að taka þátt með því að skrá sig á www.syn.is.

Snýr baki við Silvíu Nótt

"Dropinn sem fyllti mælinn var fjarvera Silvíu Nætur á bensínstöð Esso við Ártúnshöfða nú á dögunum, þar sem aðdáendur hennar voru samankomnir í þeim tilgangi að fá nýja geisladiskinn hennar áritaðan. Þarna var fjöldi manns samankominn, en sorglegast var að sjá yngstu kynslóðina standandi þarna eins og strandaglópar með tárin í augunum og reiðar mæður að róa þau."

Gæti skitið á sviðið og unnið

“Æfingin var æðisleg. Hvað sem ég geri er æðislegt. Ég gæti skitið á sviðið og samt unnið keppnina,” sagði Silvía á ensku við blaðamann Fréttablaðsins rétt áður en einkabifreið hennar flutti hana burt úr O.A.K.A höllinni í Aþenu fyrr í dag, þar sem Eurovision fer fram: “Þau elska mig.”

McCartney-hjónin skilin

Bítillinn fyrrverandi, Paul McCartney, og kona hans, Heather Mills, eru að skilja að borði og sæng eftir fjögurra ára hjónaband. Í yfirlýsingu segir að þeim hafi reynst erfitt að viðhalda eðlilegu sambandi vegna mikils ágangs fjölmiðla.

Silvía Nótt dregur sig úr sviðsljósinu

Undankeppni Eurovision keppninnar er á morgun og þá stígur Silvía Nótt á sviðið fyrir hönd Íslands. Margt hefur gengið á og Gunnhildur Gunnarsdóttir hefur fylgst grannt með.

Mammút í Þýskalandi

Mammút lagði Leipzig að fótum sér sl. föstudagskvöld á stórhljómleikum með belgunum í Deus. Mammút sendi nýlega frá sér sinn fyrsta geisladisk, sem hefur fengið fína dóma tónlistargagngrýnenda. Íslenska gítarrokkinu var tekið fagnandi af Þjóðverjum. Hljómleikarnir voru haldnir í tónleikasal sem áður var verksmiðjusalur í A-þýskri vopnaverksmiðju.

20 ár í Eurovision

Hin magnaða safnskífa "Til hamingju Ísland! 20 ár í Eurovision" er komin út. Eins og nafnið gefur til kynna geymir hún þau íslensku lög sem keppt hafa til úrslita fyrir Íslands hönd í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva allt frá því að Ísland tók þátt í fyrsta sinn með Gleðibankanum í Bergen árið 1986.

Stefnumót við leiðtoga

Mikhail Gorbatsjov, fyrrverandi aðalritari sovéska Kommúnistaflokksins og leiðtogi Sovétríkjanna mun flytja hátíðarfyrirlestur í Háskólabíó fimmtudaginn 12. október í tilefni af 20 ára afmæli leiðtogafundarins í Höfða. Miðasalan hófst í dag klukkan 10:00.

Franskir og japanskir menningarstraumar á Iðavöllum

Franskir og japanskir menningarstraumar mættust á Iðavöllum við Egilsstaði í gær þar sem listahópurinn Pokkowa Pa skemmti Austfirðingum. Þeir þurftu þó hvorki að kunna frönsku né japönsku til að skilja sýninguna því ekkert var talað í henni.

Baðst afsökunar á orðbragðinu

Silvía Nótt blótaði sviðsmönnum, reitti yfirmann Sambands evrópskra sjónvarpsstöðva til reiði og móðgaði Grikki, sem gengu út úr Ólympísku höllinni. Bretar hlóu, en sögðust þó pínulítið vonsviknir í lokin.

Silvía Nótt á minnsirkus.is

Silvía Nótt er nú skráð á minnsirkus.is en þar skrifar hún hugleiðingar sínar og setur inn myndir. Hægt er að fylgjast með Silvíu Nótt með því að skrá sig á minnsirkus.is og skrá sig þar sem vin Sílvíu. Slóðin á síðu Silvíu er silvianight.minnsirkus.is.

Frumsýning í Íslensku óperunni

Söngleikurinn Litla hryllingsbúðin hefur slegið í gegn hjá Leikfélagi Akureyrar að undanförnu. Sýningin hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda og metaðsókn. Það eru sömu leikarar sem fara með hlutverkin í sýningunni fyrir norðan og sunnan en sýningin opnar í Óperunni laugardaginn 13. maí og er áætlað að sýna út júní.

Vortónleikar Norðurljósa

Sönghópurinn Norðurljós heldur sína árlegu vortónleika í Seljakirkju næstkomandi sunnudag. Söngstjóri sönghósins er Arngerður Árnadóttir. Einsöngvari er Elmar Þór Gilbersson. Dagskráin er fjölbreytt og skemmtileg og inniheldur meðal annars margar af perlum íslenskrar sönglistar.

Inga Þóra í úrslit þar sem hún keppir við Jónas Örn

Inga Þóra Ingvarsdóttir er komin í úrslit í spurningaþættinum Meistarinn sem sýndur er á Stöð 2. Úrslitaþátturin verður á uppstigningardag, 25. maí en þar etur Inga Þóra kappi við Jónas Örn Helgason og tekst á við hann um fimm milljóna króna verðlaunafé.

Framfylgdu ekki reglum

Þetta er mál sem kom upp strax og það er búið að glíma við það, segir Jónatan Garðarson, talsmaður Eurovision-keppninnar hérlendis um þá kvörtun sem hefur borist vegna dónalegs orðalags í enskum texta lagsins Til hamingju Ísland með Silvíu Nótt.

Hver mætir Jónasi í úrslitum?

Inga Þóra og Erlingur einum sigri frá úrslitaviðureigninni, hver verður andstæðingur Jónasar? Inga Þóra Ingvarsdóttir sagnfræðingur og Erlingur Sigurðarson safnstjóri mætast í seinni undanúrslitaviðureigninni í spurningaþættinum Meistaranum sem sýnd verður á stöð 2 í kvöld fimmtudaginn 11. maí kl. 20:05.

Reykjavík í öðru ljósi

NFS sýnir tímamótamynd Hrafns Gunnlaugssonar um framtíðarskipulag Reykjavíkur á morgun, fimmtudaginn 11. maí kl. 21:10.

Supergrass á Reykjavík Trópík 2006

Án efa ein vinsælasta hljómsveit sem hefur komið frá Bresku eyjaunum síðastliðin áratug er væntanleg til landsins fyrstu helgina í júní til að fremja músíkgaldur sinn á tónlistarhátíðinni, Reykjavík Trópík.

Hollenskt rauðbeðusalat er magnað meðlæti

Matarvenjur Rannveigar Gissurardóttur skarthönnuðar eru nokkuð hollenskar sem skýrist af því að á námsárum bjó hún fimm ár í Amsterdam og saug þar í sig ýmsa visku heimamanna.

Undanúrslit hefjast: Illugi mætir Jónasi Erni

Illugi Jökulsson fjölmiðlamaður og Jónas Örn Helgason verkfræðinemi mætast í fyrri undanúrslitaviðureigninni í spurningaþættinum Meistaranum sem sýndur verður á Stöð 2 í kvöld fimmtudaginn 4. maí kl. 20:05

Enn fleiri hljómsveitir bætast í hópinn

Það hefur verið staðfest að Kimono og Bang Gang bætast í sívaxandi hóp hljómsveita sem munu koma fram á tónlistarhátíðinni Reykjavík Trópík daganna 2.-4.júní. Fjöldi hljómsveita og listamanna sem munu koma fram er því orðin 21 og er enn von á meiru.

Styrktartónleikar Ljóssins

Selkórinn ásamt hljómsveit, ætlar á laugardag að efna til tónleika til styrktar Ljósinu, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra. Tónleikarnir verða í Neskirkju og gefa allir sem að tónleikahaldinu koma, vinnu sína.

Sjá næstu 50 fréttir