Fleiri fréttir

Betra að borða í hádeginu

Unglingar sem borða ekki hádegismat eru líklegri til að verða of þungir en jafnaldrar þeirra sem borða í hádeginu. Þetta kemur fram í norskri rannsókn sem nýlega birtist.

Lægri vextir í boði en áður

Bílalán höfðu í upphafi það orð á sér að bera háa vexti. Síðan hafa þau þróast og hafa um allnokkurt skeið verið ódýrari en almenn bankalán.

Blazer S10 44

Tryllitæki vikunnar er frúarbíllinn Svaðilfari en hann er Blazer S10 44, árgerð 1985 og eigandi hans er Alma Ágústsdóttir, Akureyringur.

14,7% aukning frá fyrra ári

P. Samúelsson hf. afhenti um síðustu helgi þrjúþúsundasta Toyota bílinn á þessu ári. Aðalbjörg Jónasdóttir og fjölskylda hennar tók við lyklunum að hvítum Avensis Wagon úr hendi Péturs Magnússonar sölumanns.

Kíkt á bensínstöðvarnar

Tölvupóstur gekk milli manna í vikunni þar sem hvatt var til að kaupa ekkert annað en bensín hjá þeim olíufélögum sem orðið hafa uppvís að verðsamráði og sýna þar með hug sinn til þeirra í verki.

Stærsta mótorhjólasýning í Evrópu

Fyrsta flugs félagið og Iceland Express bjóða upp á hópferð til London og Birmingham þar sem farið verður á stærstu og íburðarmestu mótorhjólasýningu Evrópu um næstu helgi, 13. til 15. nóvember.

Hækkun hámarkshraða

Hækkun á hámarkshraða á norskum vegum hefur ekki fjölgað slysum. Árið 2001 var gerð sú tilraun að hækka hámarkshraða á tveimur vegum til reynslu.

Heilsuátak í Kópavogi

Sjúkraþjálfun Kópavogs hefur í vetur hrundið af stað margskonar heilsuátaksnámskeiðum og kennir þar ýmissa grasa.

Sjónvarpsgláp barna

Börn yngri en tveggja ára eiga ekki að horfa á sjónvarp að mati lækna við barnaspítala í Seattle í Bandaríkjunum.

Galaxy Fitness-mótið

"Við hittumst aðeins í Árbæjarlauginni til að ræða um mótið og fara yfir greinarnar. Það eru nokkrir nýir að taka þátt í ár og gott er að fara vel yfir brautina með öllum," segir Ívar Guðmundsson, skipuleggjandi Galaxy Fitness-mótsins.

Koma ekki í veg fyrir krabbamein

Ávextir og grænmeti eru holl fæða og góð fyrir hjartað en í nýrri könnun Harvard-háskóla þar sem 100.000 einstaklingar voru rannsakaðir á löngu tímabili, kemur í ljós að þessar fæðutegundir koma ekki í veg fyrir krabbamein.

Steikt gæs

Gæsaveiðitímabilið stendur yfir og væntanlega eru ýmsir komnir með fugl í frystinn sem bíður þess að verða matreiddur og borinn á borð.

Norrænir bíódagar

Norrænir bíódagar standa nú yfir í Háskólabíói og í Sambíóunum í Keflavík. Sýndar verða sex úrvalsmyndir frá Svíþjóð, Noregi Danmörku. Þeirra á meðal er sænska gamanmyndin Kops, í leikstjórn Josef Fares, þess hins sama og gerði síðast smellinn "Jalla Jalla". Þá er sjálfstætt framhald myndarinnar Elling sýnt á norrænum bíódögum, Mors Elling.

Hljóp ber upp í hjólabúnað

Kanadískur maður sem neitað var um flugmiða til Ástralíu frá Los Angeles, brá á það ráð að afklæðast og hlaupa upp í hjólabúnað vélarinnar, þar sem hún var á ferð á flugbrautinni. Betur fór þó en á horfðist, því að starfsmönnum flugvallarins tókst að stöðva vélina áður en hún fór í loftið og handsama manninn.

Inneignir í lýtaaðgerð í jólagjöf

Inneignarnótur hjá lýtalæknum eru orðnar vinsæl jólagjöf í Bretlandi. Þarlendir lýtalæknar hafa vart undan eftirspurninni eftir færri hrukkum, stærri brjóstum og þrýstnari vörum fyrir jólin og hafa því brugðið á það ráð að selja gjafmildum eiginmönnum, vinum og ættmennum inneignarnótur í lýtaaðgerðir.

Sögurnar eru þemað í ár

"Hátíðin verður með hefðbundnu sniði enda ekki þörf á að breyta strúktúrnum. Þó má upplýsa að þemað í þetta sinn er "sögurnar". Þessi bransi gengur út á að segja sögur í ýmsu formi og innslögin segja okkur sögurnar á bak við tjöldin; hvaða hlutverki hver og einn gegnir," segir Pétur Óli Gíslason framkvæmdastjóri Storm, sem sér um Eddu-verðlaunahátíðina.

Ætlar að kaupa sér nýja skyrtu

"Þetta kom mér mjög á óvart og ég átti alls ekki von á þessu. Fékk bullandi hjartslátt við tilnefninguna en er búinn að jafna mig. Það er allt í fínu lagi núna," segir kvikmyndagerðarmaðurinn Páll Steingrímsson þegar hann er spurður út í stóru tíðindin; að fá heiðursverðlaun Eddu þetta árið.

Nemendur komnir í gang á ný

"Krakkarnir í mínum bekk skiluðu sér allir eftir verkfallið og eru þokkalega stemmdir. Mér skilst að sumir hafi eitthvað kíkt í bækurnar en í dönskunni er sjálfsnám dálítið erfitt því þar er margt sem þarf að leiða þá í gegnum," segir Sóley Halldórsdóttir, dönskukennari í Háteigsskóla og umsjónarkennari í 10. bekk.

Föndurstofan með námskeið

Þegar kvöldin lengjast kviknar áhuginn á ýmisskonar föndri. Því hefur Geirþrúður Þorbjörnsdóttir í Föndurstofunni Hátúni 6 komið á fót námskeiðum þar sem hún kennir gerð ýmisskonar muna, mynda og korta.

Útivistaráfangi í FNV

Íþróttir úti nefnist einn áfangi í Framhaldsskóla Norðurlands vestra og er þetta fyrsta önnin sem hann er við lýði. Ein eining fæst út úr því að ljúka honum. "Þetta er trimmáfangi," segir Árni Stefánsson, íþróttkennari skólans.

Hreyfigreining með golffimi

"Við sjáum fyrir okkur að fólk geti bætt sveifluna og lækkað forgjöfina með þessum námskeiðum. Nú, þegar búið er að lýsa upp braut uppi í Grafarholti þar sem auðvelt er að iðka æfingar þar, eftir tímana hjá okkur," segir Þorsteinn Hallgrímsson golfari sem leiðbeinir á námskeiði í golffimi sem er að hefjast í Hreyfigreiningu við Höfðabakka í Reykjavík.

Skilningur á fjármálaumhverfi

Sparisjóðurinn hefur á síðustu vikum staðið fyrir fjármálanámskeiðum. Vegna góðrar aðsóknar hefur verið ákveðið að bæta tveimur námskeiðum við.

Vesturfaranámskeið

"Þetta verður saga landnámsins í Vesturheimi, bókmenntasagan og samskiptin við innfædda." Þannig lýsir Böðvar Guðmundsson nýju námskeiði um vesturfarana sem verður haldið í Borgarleikhúsinu nú í nóvember.

Blandar saman prjóni og perlum

"Ég byrjaði að prjóna fyrir nokkrum árum og gat ekki farið eftir uppskrift. Ég byrjaði þá að prjóna eftir auganu og hef gert það síðan. Flíkurnar sem ég prjóna koma út nákvæmlega eins og ég vil að þær geri."

Þrjár systur í verslunarrekstri

"Það eru náttúrulega algjör forréttindi að fá að vinna með systrum sínum. Við reynum auðvitað að halda fyrirtækinu innan fjölskyldunnar eins lengi og við getum og ölum dæturnar upp í störfin," segir Stefanía Gunnarsdóttir en hún er eigandi verslunarinnar Duka í Kringlunni ásamt systrum sínum Sigrúnu og Aðalbjörgu Gunnarsdætrum.

Ljósin í bænum

Danski hönnuðurinn og arkitektinn Verner Panton á að baki langan og litríkan feril en hann hefur hannað hvert meistaraverkið á fætur öðru.

Mjólkurþeytarinn

Þetta litla tæki er ætlað til að flóa mjólk fyrir allskyns kaffidrykki eins og café latte, cappuchino og macchiato.

Zone-línan

Danir eru þekktir fyrir góða hönnun. Zone-vörurnar eru engin undantekning á þeirri reglu, einföld og formfögur hönnun á nytsamlegum hlutum.

Ný ferðaskrifstofa í Höfðatúni

Ný ferðaskrifstofa og umferðarmiðstöð Iceland Excursions Allrahanda var opnuð með pompi og pragt síðastliðinn miðvikudag.

Hljómastemmning á Kringlukránni

Það verður sannkölluð Hljóma-stemmning á Kringlukránni um næstu helgi. Stutt er í að nýr geisladiskur frá Hljómum líti dagsins ljós og af því tilefni ætla Kringlukráin og Hljómar að halda stórdansleik bæði föstudags- og laugardagskvöld. Hljómsveitin mun spila lög af nýja disknum í bland við þau gömlu góðu.

Jakobsvegurinn hjólaður

Margir kófsvitna bara við tilhugsunina um einn spinning-tíma í ræktinni. Það er þó aðeins dropi í hafið fyrir hin fjögur fræknu: Kristinn Karl Dulaney, Ingibjörgu Richardsdóttur, Bjarna Helgason og Sigrúnu Harðardóttur.

Aðventuferðir í Bása

Útivist gengst fyrir árlegri fjölskylduferð í Bása í Þórsmörk helgina 26. til 28. nóvember. Að þessu sinni verður hægt að hefja hana hvort sem er í Reykjavík eða á Hvolsvelli.

Grúví hárgreiðslustofa

Hártískan er eins og fatatískan í vetur, opin í báða enda, allt er leyfilegt. "Klassískar klippingar eru inni í bland við sterka liti og persónulegt yfirbragð er æskilegt. Fólk á að vera óhrætt við að leika sér og prófa eitthvað nýtt án þess að vera stílfært um of,"

Hálsbindi

Hálsbindi eins og við þekkjum þau í dag eiga sér rúmlega 100 ára sögu. Þau þróuðust frá hálsklútum sem karlmenn byrjuðu að bera á sautjándu öld.

Nýr ilmur frá Tommy Hilfiger

Tommy Hilfiger hefur kynnt nýjan ilm á markaðinn sem heitir True Star. Andlit þessa nýja ilms er poppstjarnan Beyoncé. Auðvitað tileinkar hún lag ilminum sem heitir Wishing on a Star.

Litur skammdegisins frá Mac

Rauður er svo sannarlega liturinn hjá snyrtivöruframleiðandanum Mac nú á haustmánuðum. Vörurnar í rauðu línunni Red Haute er bæði hægt að nota hversdagslega og fínt og brjóta einmitt upp vinnudaginn með því að setja sterkan svip á andlitið í skammdeginu.

Nýtt í Debenhams

Debenhams í Smáralind hefur þá sérstöðu að hafa mörg vörumerki undir sama hatti. Sífellt eru fleiri að bætast við og breyta um.

Hillary hlýðir á Þresti

Stórmenni verða á hátíðarsamkomu American Scandinavian Foundation í kvöld. Samkoman er sérstaklega tileinkuð Íslandi og er forseti Íslands heiðursgestur. Hillary Clinton verður meðal gesta.

Íhugar að leggja skóna á hilluna

"Kosningarnar í Bandaríkjunum eru efstar í huga mér núna. Það verður spennandi að sjá hvor leiðir þar," segir Sunna Gestsdóttir, frjálsíþróttakona í fremstu röð.

Bjargaði mannslífi

Anton Gylfi Pálsson sölumaður og handboltadómari, sýndi snarræði á dögunum þegar hann hnoðaði og blés lífi í mann sem fengið hafði hjartastopp. Sá er á góðum batavegi og vonast Anton til að hitta hann fljótlega. </font /></b />

Fjárhættuspil í flugvélum

Svo gæti verið að flugfarþegum verði boðið upp á fjárhættuspil meðan á flugi stendur áður en langt um líður. Forstjóri lággjaldaflugfélagsins Ryanair sagði í dag að ekki væri útilokað að félagið byði upp á slíkt.

Versti rithöfundur í heimi?

Hvernig getur svona vondur rithöfundur - "frægasti rithöfundur í heimi" núna, eins og stendur á kápu - náð svona mikilli metsölu? Það er sannkölluð ráðgáta, margbrotnari en allt sem stendur í bókum hans...

Herragarður í Mosfellsdal

Þeir sem leið eiga um Mosfellsdal veita eflaust athygli nýbyggingum sem sprottið hafa upp á síðustu misserum skammt fyrir neðan Gljúfrastein, á hægri hönd þegar ekið er upp dalinn.

Sjá næstu 50 fréttir