

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum breska fjölmiðilsins The Guardian mun Manchester United reyna að selja Harry Maguire næsta sumarið. Félagið keypti hann dýrum dómum sumarið 2019 en hann er ekki í plönum Erik ten Hag sem stendur.
Fyrsta verkefni Nathan Jones sem þjálfara Southampton verður talsvert auðveldara þar sem það verður enginn Jürgen Klopp geltandi á hann þegar Liverpool tekur á móti Dýrlingunum í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.
YouTube-stjarnan Speed flaug alla leið frá Bandaríkjunum til Manchester til að sjá Cristiano Ronaldo spila með Manchester United gegn Aston Villa í enska deildabikarnum í gær. En hann fór í fýluferð.
Sonur enska fótboltamannsins Nobbys Stiles er ekki í nokkrum vafa um að fótboltinn hafi drepið föður hans.
Það eru umrótatímar hjá Liverpool eftir að það fréttir að enska úrvalsdeildarfélagið væri til sölu en Fenway Sports Group er að kanna möguleika á því að selja félagið fyrir hámarksupphæð.
Caoimhin Kelleher var enn og aftur hetja Liverpool í vítaspyrnukeppni þegar liðið sló C-deildarlið Derby County úr leik í 3. umferð enska deildabikarsins í gær.
Nathan Jones er nýr knattspyrnustjóri Southampton. Hann skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við Dýrlingana.
Heill haugur af leikjum í enska deildarbikarnum fór fram í kvöld. Þar ber helst að nefna að Brighton & Hove Albion lagði Arsenal, Nottingham Forest lagði Tottenham Hotspur, Manchester City lagði Chelsea og leikur Liverpool Derby County fór alla leið í vítaspyrnukeppni.
Englandsmeistarar Manchester City hafa ekki borgað meinta nauðgaranum Benjamin Mendy laun í rúmt ár.
Írski bardagakappinn Conor McGregor segir að hann myndi elska að kaupa enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool.
Brasilíumenn völdu í gær HM-hópinn sinn og það var hægt að sjá hvert dramatíska myndbandið á fætur öðru þar sem leikmönnum fögnuðu því að vera valdir í hópinn.
Fenway Sports Group fjárfestingafélagið á enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool en það gæti breyst á næstunni því í gær kom fram að Liverpool væri til sölu.
Fjórðungur liða ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta hefur rekið þjálfara sinn það sem af er tímabili. Ralph Hasenhüttl var sá síðasti sem fékk sparkið en Southampton ákvað að láta Austurríkismanninn fara eftir 4-1 tap gegn Newcastle United um helgina.
Harry Kane skorar ekki bara mörk fyrir Tottenham og enska landsliðið heldur reynir hann einnig að láta gott af sér leiða og miðla af reynslu sinni.
Aston Villa vann 3-1 sigur á Manchester United í ensku úrvalsdeildinni um helgina en glæsilegt aukaspyrnumark frá Frakkanum Lucas Digne skipti gríðarlega miklu máli í þessum leik á Villa Park.
Fenway Sports Group hefur gefið það út að enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool sé nú til sölu.
Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, segir að mamma Trents Alexander-Arnold hafi bannað honum að fá sér húðflúr eftir að liðið vann Meistaradeild Evrópu fyrir þremur árum.
Gary Neville segir að slakur varnarleikur Trents Alexander-Arnold gæti kostað hann sæti í HM-hópi Englands.
Mohamed Salah var maðurinn á bakvið sigur Liverpool á útivelli gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag. Hann skoraði bæði mörk liðsins í 2-1 sigri.
Newcastle United vann öruggan 4-1 útisigur á Southampton og heldur áfram að láta sig dreyma um sæti í Meistaradeild Evrópu. Þá kom Crystal Palace til baka gegn West Ham United.
Unai Emery byrjar þjálfaratíð sína hjá Aston Villa frábærlega en hans menn unnu einstaklega sannfærandi 3-1 sigur á Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Ótrúlegt gengi Arsenal í ensku úrvalsdeildinni heldur áfram en liðið vann 1-0 útisigur á nágrönnum sínum í Chelsea. Sigurmarkið skoraði varnarmaðurinn Gabriel um miðbik síðari hálfleiks.
Thomas Frank, þjálfari enska úrvalsdeildarfélagsins Brentford, hefur staðfest að markmannsþjálfari liðsins sé með áverka eftir að lenda upp á kant við vallarstarfsmann Nottingham Forest fyrir leik liðanna í gær, laugardag.
Tottenham Hotspur verður án þriggja sterkra pósta þegar liðið fær Liverpool í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni síðar í dag.
Norska markamaskínan Erling Braut Håland tryggði Manchester City dramatískan sigur á Fulham í ensku úrvalsdeildinni með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma. Norðmaðurinn viðurkenndi að taugarnar hafi verið þandar þegar hann stillti boltanum upp.
Leicester City vann 2-0 útisigur á Everton í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Sigurinn lyfti Leicester upp úr fallsæti.
Leeds United og Bournemouth mættust í ensku úrvalsdeildinni í dag. Lauk leiknum með 4-3 sigri Leeds en Bournemouth komst 3-1 yfir. Þá vann Brighton & Hove Albion 3-2 sigur á Úlfunum á meðan Nottingham Forest og Brentford gerðu dramatískt 2-2 jafntefli.
Erling Braut Haaland tryggði Manchester City í ensku úrvalsdeildinni þegar hann skoraði úr vítaspyrnu á lokasekúndum leiksins gegn Fulham. City fer þar með í efsta sæti deildarinnar en Arsenal getur náð því á ný með sigri á morgun.
Jürgen Klopp, þjálfari enska fótboltaliðsins Liverpool, segir það gjörsamlega galið að HM í Katar hefjist aðeins viku eftir að enska úrvalsdeildin fer í frí.
Dagný Brynjarsdóttir, fyrirliði West Ham United, er tilnefnd sem leikmaður mánaðarins í ensku kvennadeildinni.
Erik ten Hag virðist vera að takast að snúa við skipinu á Old Trafford en það hefur allt annað verið að sjá til Manchester United liðsins á þessu tímabili. Hollenski stjórinn er greinilega mjög sérstakur stjóri ef marka má einn af hans nýjustu lærisveinum.
Norski framherjinn Erling Braut Haaland er kominn upp í efsta sætið á lista yfir verðmætustu knattspyrnumenn heimsins.
Manchester United rennir hýru auga til Erics Maxim Choupo-Moting, framherja Bayern München, og telur hann geta komið í stað Cristianos Ronaldo.
Rico Lewis varð í gærkvöldi annar yngsti Englendingurinn til að skora í Meistaradeildinni þegar hann skoraði í sigurleik Manchester City á móti Sevilla.
Liverpool vann 2-0 sigur á Napoli í Meistaradeildinni í gær og létti aðeins af pressunni á liðinu eftir tvö vandræðaleg töp í röð í ensku úrvalsdeildinni fyrir liðum í fallsæti.
Það var mikil spenna fyrir leik Tottenham og Marseille í Meistaradeildinni í gær enda sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í boði.
Grétar Rafn Steinsson. fyrrum landsliðsmaður Íslands í knattspyrnu og leikmaður í ensku úrvalsdeildinni, var mikið í sviðsljósinu í gærkvöldi.
Sadio Mane er ekki lengur leikmaður Liverpool liðsins og mörgum finnst þeir sjái það greinilega á leik þess. Úrslitin benda til þess að liðið sakni Senegalans og tölfræðin sýnir það svart á hvítu.
Marcus Rashford ætlar ekki að láta hugann reika í átt til heimsmeistaramótsins í Katar heldur einbeita sér að fullu að liði Manchester United.
Newcastle United er á frábærri siglingu í ensku úrvalsdeildinni og situr í Meistaradeildarsæti eftir þrjá sigra í röð og fimm sigra og ekkert tap í síðustu sex leikjum.