Fleiri fréttir

Robson: Rooney getur orðið næsti fyrirliði Englands

Bryan Robson, fyrrum leikmaður Manchester United og Englands, segir í samtali við BBC Sport að Wayne Rooney geti tekið við fyrirliðabandi enska landsliðsins af Steven Gerrard sem tilkynnti í gær að hann væri búinn að leggja landsliðsskóna á hilluna.

Evra fer til Juventus

Patrice Evra mun yfirgefa herbúðir Manchester United og ganga til liðs við Ítalíumeistara Juventus.

Manchester United ekki hætt á leikmannamarkaðnum

Ed Woodward, framkvæmdarstjóri Manchester United, segir að það sé nóg eftir af aurum fyrir nýjum leikmönnum þrátt fyrir að félagið sé þegar búið að eyða 60 milljónum punda.

Drogba í samningaviðræðum við Chelsea

Didier Drogba virðist vera að snúa aftur á Brúnna þar sem hann lék í átta ár en samkvæmt heimildum L'Equipe samþykkti Drogba eins árs samning í gær.

Liverpool á eftir Isco

Real Madrid er tilbúið að selja Isco aðeins einu ári eftir að félagið gekk frá kaupunum á spænska sóknartengiliðnum frá Malaga.

Wenger lofar nýjum markverði | Casillas vill koma

Spænski knattspyrnumarkvörðuinn Iker Casillas hefur óskað eftir að fá að yfirgefa Real Madrid og er hann sagður vilja fara til Arsenal en Arsene Wenger segir að félagið muni semja við markvörð áður en sumarið er allt.

Remy á leið til Liverpool

Loic Remy hefur samþykkt 8 milljón punda tilboð enska úrvalsdeildarliðsins Liverpool í leikmanninn sem er samningsbundinn QPR. Remy er með klásúlu í samningi sínum sem gerir honum frjálst að fara til félags í Meistaradeild Evrópu fyrir 8 milljónir punda.

Gylfi á æfingu með Seattle Seahawks

Gylfi Þór Sigurðsson er mættur til Bandaríkjanna í æfingarferð Tottenham Hotspur en hann tók þátt í sameiginlegri æfingu Tottenham og Seattle Seahawks í dag.

Rodgers: Mun ekki eyða að óþörfu

Brendan Rodgers er ekki hættur á leikmannamarkaðnum í sumar en hann mun ekki kaupa hvaða leikmann sem er aðeins til þess að eyða peningunum sem fékkst fyrir Luis Suárez.

Michu genginn til liðs við Napoli

Napoli og Swansea gengu frá samningi í dag þess efnis að Napoli fengi Spánverjann Michu á láni og mun hann því leika með ítalska félaginu í vetur.

Debuchy genginn til liðs við Arsenal

Arsenal gekk frá kaupunum á franska bakverðinum Mathieu Debuchy frá Newcastle rétt í þessu en honum er ætlað að fylla í skarð Bacary Sagna.

Emmanuel Riviere genginn til liðs við Newcastle

Emmanuel Riviere varð í kvöld tíundi Frakkinn í herbúðum Newcastle þegar félagið gekk frá kaupunum á honum frá Monaco. Talið er að Newcastle greiði rúmlega 6 milljónir punda fyrir Riviere.

Zamora áfram hjá QPR

Kolbeinn Sigþórsson er sagður með samningstilboð í höndunum frá félaginu.

Besiktas og Chelsea í viðræðum um Demba Ba

Forseti Besiktas staðfesti í dag að félagið væri í viðræðum við Chelsea um kaup á Demba Ba. Talið er að Besiktas sé tilbúið að greiða átta milljónir punda fyrir Ba.

Sjá næstu 50 fréttir