Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vopnahlé í herbúðum Chelsea Nokkur ensku dagblaðanna segja frá því í morgun að Jose Mourinho og æðstu stjórnarmenn Chelsea hafi komist að samkomulagi um vopnahlé – að minnsta kosti fram á sumar. Lausnin felst í því að gefa Mourinho einhvern pening til að kaupa varnarmann til liðsins í janúar. 15.1.2007 16:00
Fer Raul til Liverpool? Rafael Benitez reynir nú af öllum krafti að ná samkomulagi við Real Madrid um kaup á spænska gulldrengnum Raul til Liverpool. Spænskir fjölmiðlar greina frá þessu í morgun og segjast hafa fyrir því öruggar heimildir. Real Madrid hefur ekkert látið hafa eftir sér um málið. 15.1.2007 11:24
Tekur Lippi við af Mourinho? Forráðamenn Chelsea eru sagðir hafa viðrað þá hugmynd við ítalska þjálfarann Marcello Lippi, sá er stýrði ítalska landsliðið til sigurs á HM í Þýskalandi í sumar, um að að taka við af Jose Mourinho – fari svo að portúgalski stjórinn yfirgefi herbúðir Englandsmeistaranna eftir tímabilið. 14.1.2007 18:45
Newcastle vann Tottenham í frábærum leik Newcastle sýndi mikinn karakter í leik sínum gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag og sigraði 3-2 eftir að hafa hafa lent undir í síðari hálfleik. Leikurinn var frábær skemmtun og buðu bæði lið upp á bullandi sóknarleik. Marktilraunir í leiknum voru alls 38 talsins, þar af áttu heimamenn 26 þeirra. 14.1.2007 17:57
Benitez hafnaði Real Madrid í sumar Rafael Benitez hafnaði boði um að gerast þjálfari Real Madrid síðasta sumar en frá þessu greindi stjórnarformaður Liverpool, Rick Parry, í morgun. Parry segir að Benitez hafi hugsað málið vandlega en að lokum ákveðið að halda áfram því starfi sem hann hafði byrjað á Anfield. 14.1.2007 17:03
Stallone stal senunni Bandaríski kvikmyndaleikarinn Silvester Stallone stal senunni á Goodison Park í dag þar sem leikur Everton og Reading fór fram. Stallone var sérstakur heiðursgestur Bill Kenwright, stjórnarformanns Everton á leiknum, og var leikarinn hylltur af áhorfendum á vellinum fyrir leikinn. Stallone fagnaði ógurlega þegar Andy Johnson skoraði jöfnunarmark Everton þegar skammt var eftir. 14.1.2007 16:02
Jafnt hjá Everton og Reading Evrton og Reading skildu jöfn, 1-1, í viðureign liðanna í ensku úrvalsdeildinni sem var að ljúka rétt í þessu. Það var Andy Johnson sem jafnaði leikinn fyrir heimamenn í Everton á 81. mínútu eftir mistök Marcus Hahnemann í marki gestanna. 14.1.2007 15:41
Eggert býður í Ashley Young Allar líkur eru taldar á því að Watford samþykki tilboð upp á átta milljónir punda frá Eggert Magnússyni í framherjann Ashley Young. Watford hafði áður hafnað boði West Ham upp á sjö milljónir punda en staðfesti hefur verið að Eggert og félagar lögðu fram nýtt og endurbætt tilboð í gær. 14.1.2007 15:07
Ekki spurning hvort heldur hvenær Að sögn Rick Parry, stjórnarformanns Liverpool, er það ekki lengur spurning um hvort heldur hvenær auðkýfingarnir frá Dubai gangi frá kaupum á meirihluta í félaginu. Parry segir að verið að sé að ganga frá smáatriðum í kaupsamningum og að eigendaskiptin gætu gengið í gegn innan fárra daga. 14.1.2007 14:50
Bullard á góðum batavegi Jimmy Bullard, miðvallarleikmaður Fulham, er á góðum batavegi eftir að hafa lent í hrottalegum hnémeiðslum strax í upphafi leiktíðar og útilokar knattspyrnustjórinn Chris Coleman ekki að Bullard spili með liðinu síðar á tímabilinu. 14.1.2007 14:45
Reading komið yfir gegn Everton Reading er komið með forystu í viðureign sinni gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni en það var varnarmaðurinn Joleon Lescott sem varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 28. mínútu. Ívar Ingimarsson er í byrjunarliði Reading en Brynjar Björn Gunnarsson er frá vegna meiðsla. 14.1.2007 14:18
Robson lætur Beckham heyra það Gamli refurinn Bobby Robson gagnrýnir David Beckham harðlega í pistli sem hann skrifar í enska dagblaðið Daily Mail og birtist í morgun. Robson segir að ákvörðun Beckham um að fara til Bandaríkjanna sanni að hann hafi ekki lengur metnaðinn né lystina til að keppa á meðal þeirra bestu. 14.1.2007 14:06
Beckham útilokar ekki landsliðið David Beckham hefur ekki gefið landsliðsferilinn með Englandi upp á bátinn þrátt fyrir að hann sé á leið í heldur lágt skrifuðu bandarísku atvinnumannadeildina. Beckham kveðst alltaf ætla að gefa kost á sér í landsliðið. 14.1.2007 14:01
Jon Terry boðar uppreisn Fyrirliði Chelsea, John Terry, kveðst ætla að beita sér að fullum krafti í að halda Jose Mourinho hjá félaginu en hann hefur sterklega verið orðaður við að brottför frá Chelsea í lok leiktíðar. Terry boðar uppreisn á meðal leikmanna gegn stjórn félagsins. 14.1.2007 13:31
Mourinho verðleggur Cech á 50 milljónir punda Jose Mourinho, stjóri Chelsea, sagði eftir sigur sinna manna á Wigan í dag að markvörðurinn Peter Cech væri búinn að fá grænt ljós á að hefja æfingar að fullum krafti. Mourinho sagði Cech vera besta markvörð í heimi og smellti í leiðinni 50 milljón punda verðmiða á Tékkann stóra og stæðilega. 13.1.2007 21:00
McClaren sendi Beckham til Ameríku Arsene Wenger hefur ákveðnar skoðanir á fyrirhuguðum vistaskiptum knattspyrnustjörnunnar David Beckham, en hann telur að ef leikmaðurinn hefði ekki misst sæti sitt í enska landsliðinu, hefði hann klárlega samið við lið í Evrópu. 12.1.2007 20:55
Ferguson vill að Mourinho verði áfram Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segist vonast til að keppinautur hans Jose Mourinho verði áfram við stjórnvölinn hjá Chelsea í ljósi þeirra frétta sem gengið hafa á Englandi í dag. Því er haldið fram að Mourinho hætti hjá Chelsea í vor. 12.1.2007 20:40
Garcia er miður sín Spánverjinn Luis Garcia hjá Liverpool segist vera gjörsamlega miður sín vegna meiðslanna alvarlegu sem hann varð fyrir á hné í leik Liverpool og Arsenal í deildarbikarnum á dögunum. Hann segist sérstaklega fúll yfir að missa af leikjunum við Barcelona í Meistaradeildinni. 12.1.2007 17:27
Emre ákærður fyrir kynþáttaníð Tyrkneski miðjumaðurinn Emre hjá Newcastle hefur verið ákærður fyrir kynþáttafordóma af aganefnd enska knattspyrnusambandsins eftir að leikmenn Everton kvörtuðu undan framkomu hans í leik Newcastle og Everton þann 30. desember sl. Leikmaðurinn hefur frest til 29. janúar að svara fyrir sig. 12.1.2007 17:22
Wenger hefur neitað tilboðum í Ljungberg Arsene Wenger segir að fleiri en eitt lið hafi gert tilboð í sænska miðjumanninn Freddie Ljungberg, en tekur það fram að leikmaðurinn sé alls ekki til sölu. Hann segist einnig hafa fengið tilboð í framherjann Jeremie Aliadiere, en sá er heldur ekki til sölu nema hann krefjist þess að fá að fara frá félaginu. 12.1.2007 16:36
Lyon bauð í Shevchenko Franska stórliðið Lyon er sagt hafa gert Chelsea kauptilboð í úkraínska framherjann Andriy Shevchenko í dag, en tilboðinu var neitað undir eins. Lyon er nú að leita sér að framherja og hefur liðið verið orðað við menn eins og Milan Baros hjá Aston Villa og David Trezeguet hjá Juventus á Ítalíu. 12.1.2007 14:30
Davids í viðræðum við Kana Hollenski miðjumaðurinn Edgar Davids hjá Tottenham fetar mögulega í fótspor David Beckham á næstunni, því knattspyrnustjóri FC Dallas í MLS deildinni hefur nú gefið það upp að félagið sé í viðræðum við Tottenham um að fá Davids til sín. Leikmaðurinn hefur ekki átt fast sæti í liði Tottenham í vetur. 12.1.2007 13:30
Wenger neitar að gangast við ákæru Arsene Wenger hefur neitað að gangast við ákæru enska knattspyrnusambandsins vegna ósæmilegrar hegðunar sinnar á leik Arsenal og Portsmouth þann 16. desember sl. Wenger veittist þá að dómurum leiksins í hálfleik og hefur nú farið fram á lokaðan fund með aganefndinni sem haldinn verður fljótlega. 12.1.2007 12:30
Ronaldo er besti leikmaður í heimi í dag Miðjumaðurinn Paul Scholes hjá Manchester United segir að enginn leikmaður í heiminum sé búinn að spila betur en Cristiano Ronaldo félagi hans undanfarnar vikur. Ronaldo er búinn að skora 12 mörk í deildinni í vetur og United hefur sex stiga forskot á toppi úrvalsdeildarinnar. 12.1.2007 12:30
Forráðamenn Chelsea hljóðir Forráðamenn enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea hafa neitað að tjá sig í dag eftir að þær fréttir gengu fjöllum hærra í morgun að Jose Mourinho hefði tjáð vini sínum að hann ætlaði að hætta hjá liðinu í vor. Mourinho hefur ekki fengið að kaupa þá leikmenn sem hann óskaði í janúar og svo er því haldið fram að hann eigi í deilum við hátt setta menn innan félagsins. 12.1.2007 12:24
Tottenham hafnaði boði Fulham í Routledge Sky sjónvarpsstöðin greindi frá því í dag að samkvæmt heimildum stöðvarinnar hefði Tottenham hafnað tilboði Fulham um að ganga frá formlegum kaupum á U-21 árs landsliðsmanninum Wayne Routledge. Leikmaðurinn hefur verið í láni hjá Fulham í vetur og hefur staðið sig ágætlega, en Tottenham virðist ekki tilbúið að láta hann fara þó hann hafi alls ekki náð að sanna sig í þeim fáu leikjum sem hann hefur spilað fyrir félagið. 11.1.2007 21:45
Gallas meiddist aftur Franski varnarmaðurinn William Gallas hjá Arsenal getur ekki byrjað að spila aftur með liðinu fyrr en í fyrsta lagi eftir tvær til þrjár vikur að sögn Arsene Wenger knattspyrnustjóra. Stefnt var að því að Gallas sneri aftur um næstu helgi, en meiðsli hans á læri tóku sig upp að nýju á æfingu. Hann hefur verið frá keppni síðan í nóvember vegna þessa. 11.1.2007 20:30
Ronaldo leikmaður mánaðarins Portúgalski vængmaðurinn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United var í dag kjörinn leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni, annan mánuðinn í röð. Ronaldo er aðeins þriðji leikmaðurinn í sögu úrvalsdeildarinnar til að hljóta verðlaunin tvisvar í röð, en áður höfðu Robbie Fowler (´96) og Dennis Bergkamp (´97) hlotið þann heiður. 11.1.2007 19:06
Allardyce stjóri mánaðarins Sam Allardyce hjá Bolton var í dag kjörinn knattspyrnustjóri mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni. Undir stjórn Allardyce vann Bolton fimm leiki í röð í desember og er nú komið í hörkubaráttu um sæti í Evrópukeppninni eftir slaka byrjun. Þetta er í fjórða skipti sem Allardyce er kjörinn stjóri mánaðarins síðan hann tók við Bolton árið 1999. 11.1.2007 19:02
Diawara og O´Brien skipta um félög Varnarmaðurinn Souleymane Diawara hjá Charlton var í dag sendur til Portsmouth í skiptum fyrir írska landsliðsmanninn Andy O´Brien. Hvorugur leikmaðurinn hefur náð að festa sig í sessi hjá félagi sínu til þessa og standa vonir manna til að vistaskiptin hjálpi þeim að hleypa lífi í ferilinn á ný. 11.1.2007 17:17
Liverpool kaupir ungan Svía Liverpool hefur gengið frá kaupum á sænska unglingalandsliðsmanninum Astrit Ajdarevic frá Falkenberg í Svíþjóð. Leikmaðurinn er aðeins 16 ára gamall og talinn mikið efni. Kaupverðið er sagt á bilinu 1-2,5 milljónir punda, háð því hve vel honum gengur að sanna sig í herbúðum enska liðsins. 11.1.2007 16:05
Charlton kaupir Thatcher Enska úrvalsdeildarliðið Manchester City samþykkti í dag kauptilboð Charlton í varnarmanninn Ben Thatcher og gengið verður frá kaupunum ef Thatcher samþykkir kaup og kjör. Thatcher er 31 árs gamall og má teljast góður að fá að ganga laus eftir grófa líkamsárás á knattspyrnuvellinum í byrjun leiktíðar. 11.1.2007 14:40
Portsmouth kaupir Traore Enska úrvalsdeildarfélagið Portsmouth er duglegt á leikmannamarkaðnum þessa dagana og í morgun gekk það frá kaupum á Malímanninum Djimi Traore frá Charlton. Traore hefur ekki gert gott mót í veru sinni hjá Charlton en hann var áður hjá Liverpool. Kaupverðið er 1 milljón punda og hefur hann gert tveggja og hálfs árs samning. 11.1.2007 14:35
Mourinho fær ekki að kaupa leikmenn Jose Mourinho segist ekki ætla að selja einn einasta leikmann frá liði Chelsea í janúar því sér hafi verið bannað að styrkja hópinn. Hann hefði ætlað sér að kaupa sóknar- og varnarmann, en nú virðist vera komið upp vandamál í sambandi Mourinho og stjórnar félagsins. 11.1.2007 14:29
Wycombe náði jöfnu gegn Chelsea Kraftaverkalið Wycombe heldur áfram að koma á óvart í enska deildarbikarnum og í kvöld náði liðið 1-1 jafntefli gegn Chelsea á heimavelli sínum. Wayne Bridge kom Chelsea yfir í fyrri hálfleik, en hinn magnaði Jermaine Easter jafnaði metin fyrir Wycombe, sem er þremur deildum neðar en Chelsea í töflunni. Easter hefur nú skorað í öllum leikjum liðsins í keppninni. Síðari leikur liðanna er svo á Stamford Bridge. 10.1.2007 21:58
Souness leggur fram formlegt tilboð í Wolves Hópur fjárfesta undir stjórn fyrrum knattspyrnustjórans Graeme Souness lagði í dag fram formlegt yfirtökutilboð í knattspyrnufélagið Woves. Tilboðið hljóðar upp á 20 milljónir punda og þykir áhugavert fyrir þær sakir að aðeins Englendingar koma að því, en mikið veður hefur verið gert á Englandi vegna mikilla umsvifa erlendra fjárfesta í knattspyrnunni þar í landi. 10.1.2007 19:24
Tveir leikir í beinni í kvöld Sjónvarpsstöðvar Sýnar verða með tvær beinar útsendingar í fótboltanum í kvöld og hefjast þær báðar klukkan 19:50. Fyrri leikur Wycombe og Chelsea í undanúrslitum enska deildarbikarsins verður sýndur á Sýn og á Sýn Extra verður fyrri leikur Alaves og Barcelona í spænska bikarnum, þar sem Eiður Smári Guðjohnsen verður væntanlega í byrjunarliði Katalóníuliðsins. 10.1.2007 19:02
Portsmouth fær miðjumann að láni Enska úrvalsdeildarfélagið Portsmouth hefur fengið miðjumanninn Arnold Mvuemba að láni frá franska liðinu Rennes út leiktíðina. Mvuemba þessi er 21 árs gamall og ef hann stendur sig vel á Englandi gæti farið svo að Portsmouth gengi frá kaupum á honum í sumar. 10.1.2007 18:52
Jákvæðar fréttir hjá Everton Lið Everton fékk þær góðu fréttir í dag að miðjumaðurinn Tim Cahill sé orðinn heill á ný eftir meiðsli og svo gæti farið að hann fengi strax sæti í byrjunarliðinu á ný eftir að Everton tapaði illa í síðasta leik. David Moyes hefur boðað breytingar í kjölfarið og þá fékk félagið þau tíðindi í dag að meiðsli bakvarðarins Nuno Valente væru ekki eins alvarleg og talið var í fyrstu - svo gæti farið að hann missti aðeins úr tvo leiki. 10.1.2007 18:48
Mills frjálst að fara frá City Stuart Pearce, stjóri Manchester City, segir að varnarmanninum Danny Mills sé frjálst að fara frá félaginu. Mills missti sæti sitt í hendur hins unga og efnilega Micah Richards og hefur verið sem lánsmaður hjá Hull City í 1. deild í tvo mánuði. Þar hefur hann staðið sig vel og sagt er að félagið hafi áhuga á að ganga frá kaupum á leikmanninum. 10.1.2007 18:45
Benitez kvartar yfir peningaleysi Rafa Benitez, stjóri Liverpool, segir að félagið hafi ekki nógu mikla peninga úr að moða til að geta fjárfest í ungum og efnilegum leikmönnum. Leikmannakaup stjórans á liðnum árum voru gagnrýnd nokkuð í breskum blöðum í dag í kjölfar ófara liðsins í leikjunum tveimur gegn Arsenal. 10.1.2007 17:21
Stutt í endurkomu Petr Cech Nú styttist óðum í endurkomu markvarðarins Petr Cech hjá Chelsea, en hann hefur ekki spilað leik í þrjá mánuði eftir að hann höfuðkúpubrotnaði í leik gegn Reading í október. Markvörðurinn segist vera kominn í fínt form en bíður eftir að fá endanlega græna ljósið frá læknum til að fá að spila á ný. 10.1.2007 17:16
Luis Garcia spilar ekki meira í vetur Spánverjinn Luis Garcia hjá Liverpool verður ekki meira með liðinu á leiktíðinni eftir að hann sleit krossbönd í hné í leiknum gegn Arsenal í bikarnum í gær. Garcia getur ekki spilað fótbolta í amk 6 mánuði vegna þessa. Þá verður félagi hans Mark Gonzalez frá í um þrjár vikur vegna meiðsla sem hann hlaut í sama leik. 10.1.2007 16:38
Wenger og Ljungberg ósáttir Sænska dagblaðið Expressen hefur eftir vini Freddy Ljungberg hjá Arsenal að Arsene Wenger knattspyrnustjóri sé að bola honum frá félaginu. Wenger á að hafa gert Svíanum það ljóst að hann hafi spilað sinn síðasta leik fyrir Arsenal. 10.1.2007 15:59
Nedved neitaði Tottenham Tékkneski miðjumaðurinn Pavel Nedved hjá Juventus segist hafa neitað tilboði um að ganga í raðir Tottenham og fleiri liða síðasta sumar. Hann segist hafa neitað tilboðinu því fjölskylda hans sé búin að koma sér svo vel fyrir í Tórínó og þar ætli hann að búa eftir að hann leggur skóna á hilluna. 10.1.2007 15:27