Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Aboubakar tryggði Kamerún óvæntan sigur og sá rautt eftir fagnaðarlætin Tilfinningarnar báru Vincent Aboubakar, framherji Kamerún, ofurliði þegar hann skoraði það sem reyndist sigurmark Kamerún gegn Brasilíu í lokaleik liðanna í riðlakeppni HM í fótbolta. Hann reif sig úr að ofan og fékk sitt annað gula spjald í kjölfarið. 2.12.2022 21:05
Glódís Perla setur pressu á Sveindísi Jane Bayern München vann Hoffenheim 3-0 á útivelli i þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Glódís Perla Viggósdóttir var að venju í hjarta varnar Bayern. 2.12.2022 20:16
Elfar Freyr skrifar undir tveggja ára samning á Hlíðarenda Valur hefur staðfest komu miðvarðarins Elfars Freys Helgasonar. Hann skrifar undir tveggja ára samning við liðið. 2.12.2022 19:35
Breyttu um leikkerfi eftir að miðinn sem Eriksen fékk komst í þeirra hendur Það vakti mikla athygli þegar Christian Eriksen, fyrirliði danska landsliðsins í fótbolta, fékk miða á stærð við A3 blað í leik Danmerkur og Ástralíu. Miðinn endaði í höndum Ástralíu sem gerðu í kjölfarið taktíska breytingu og sendu Dani heim af HM sem nú fer fram í Katar. 2.12.2022 19:01
Bæði lið gengu niðurlút af velli eftir fréttirnar úr hinum leiknum Úrúgvæ tókst ekki að tryggja sér sæti í sextán liða úrslitum á heimsmeistaramótinu þrátt fyrir að hafa unnið 2-0 sigur á Gana í lokaumferð H-riðils. 2.12.2022 17:05
Bæði lið áfram eftir magnaðan sigur Kóreumanna Suður-Kórea afrekaði það að vinna Portúgal, 2-1, í lokaumferð H-riðils á HM karla í fótbolta og það dugði liðinu til að komast í 16-liða úrslit á fleiri skoruðum mörkum en Úrúgvæ. 2.12.2022 16:51
Gerðu stólpagrín að Þjóðverjum í sjónvarpinu Katarskir sjónvarpsmenn stóðust ekki mátið og gerðu stólpagrín að Þjóðverjum eftir að Þýskaland féll úr keppni á HM karla í fótbolta í Katar í gær. 2.12.2022 15:30
Pelé kveður fréttir af heilsubresti sínum í kútinn Brasilíski fótboltasnillingurinn hefur reynt að kveða áhyggjur af heilsufari sínu í kútinn. Hann var fluttur á sjúkrahús fyrr í vikunni. 2.12.2022 14:01
Sagði nafnið sem mátti ekki nefna og fékk ekki að lýsa seinni hálfleik Alper Bakircigil missti starfið sitt í gær en hann hefur í mörg ár starfað sem fótboltalýsandi í Tyrklandi. Ástæðan er þó afar furðuleg í augum flestra. Hann nefndi á nafn knattspyrnugoðsögn Tyrkja. 2.12.2022 13:00
Freyr hrósar mikið manninum sem er ekki nógu góður fyrir íslenska landsliðið Freyr Alexandersson þjálfar danska úrvalsdeildarliðið Lyngby Boldklub og veit allt um það sem er að gerast í danska fótboltanum. Freyr veit því vel hvað Aron Sigurðarson hefur verið að gera góða hluti með Horsens í dönsku deildinni. 2.12.2022 12:01
Kynþokkafullur Kóreumaður leikur sama leik og Rúrik Fjöldi fylgjenda suður-kóreska framherjans Cho Gue-sung á Instagram hefur margfaldast síðan að HM í Katar hófst, ekki ósvipað því sem gerðist hjá Rúrik Gíslasyni á HM í Rússlandi fyrir fjórum árum. 2.12.2022 11:01
Arnar ætlar að taka niður myndirnar af börnunum sínum og setja plakat af meistara Moriyasu í staðinn Japanski landsliðsþjálfarinn Hajime Moriyasu er ekki bara elskaður í heimalandi sínu eftir frábæran árangur japanska liðsins á HM í Katar heldur á hann einn mikinn aðdáanda í einum besta þjálfara Bestu deildar karla. 2.12.2022 10:31
Segir að Spánverjar hafi ekki reynt að tapa Sergio Busquests, fyrirliði spænska fótboltalandsliðsins, segir ekkert til í því að Spánverjar hafi reynt að tapa fyrir Japönum til að fá auðveldari leiki í útsláttarkeppninni á HM í Katar. 2.12.2022 10:00
Pulisic segir að pungurinn hafi sloppið ómeiddur Christian Pulisic, stærsta stjarna bandaríska fótboltalandsliðsins, segist ekki hafa fengið högg í punginn þegar hann skoraði sigurmark Bandaríkjanna gegn Íran á HM í Katar. Með sigrinum komust Bandaríkjamenn áfram í sextán liða úrslit mótsins. 2.12.2022 09:30
Segir klúðrið hjá Þjóðverjum algjöra kata(r)strófu Thomas Müller segir að klúður Þjóðverja að komast ekki upp úr sínum riðli á HM í Katar sé algjör katastrófa. 2.12.2022 08:30
Dómarar fúlir út í Fótbolta.net og mótið blásið af Félag deildardómara (FDD) í fótbolta hefur ákveðið að slíta samstarfi sínu við Fótbolta.net varðandi umsjón dómgæslu á hinu árlega Fótbolta.net-móti, vegna óánægju með umfjöllun um dómara á vegum miðilsins. 2.12.2022 08:01
Óskar Örn ekki búinn að ákveða hvort hann beygi til vinstri eða hægri á Reykjanesbrautinni Óskar Örn Hauksson er ekki búinn að semja við nýtt lið eftir að hann yfirgaf Stjörnuna að loknu tímabilinu í Bestu deildinni. Hann viðurkennir að tíminn hjá Stjörnunni hafi verið vonbrigði. 2.12.2022 07:00
Lukaku klúðraði öllu og braut síðan varamannaskýlið Belgíski framherjinn Romelu Lukaku mun eflaust eiga erfitt með svefn í nótt eftir að hafa misnotað fjölmörg færi þegar Belgía féll úr leik á heimsmeistaramótinu eftir jafntefli gegn Króatíu. 1.12.2022 22:32
Japan hirti efsta sætið af Spáni og skildi Þjóðverja eftir með sárt ennið Japan tryggði sér efsta sætið í E-riðli heimsmeistaramótsins með mögnuðum 2-1 sigri á Spánverjum í kvöld. Japan endar því með sex stig í efsta sæti en Spánn fer einnig áfram með jafn mörg stig og Þjóðverjar en betri markatölu. 1.12.2022 21:05
Þjóðverjar á leið heim þrátt fyrir sigur gegn Kosta Ríka Þýskaland er úr leik á heimsmeistaramótinu í Katar þrátt fyrir sigur á Kosta Ríka í frábærum leik í kvöld. Þjóðverjar gerðu sitt en þar sem Spánn tapaði á sama tíma fyrir Japan þá falla Þjóðverjar úr keppni með slakari markatölu en Spánverjar. 1.12.2022 21:00
Martinez hættur með Belga eftir vonbrigðin í Katar Jafnteflisleikur Belga gegn Króatíu í dag var síðasti leikur Roberto Martinez sem landsliðsþjálfari Belgíu. Hann tilkynnti eftir leikinn að hann væri hættur en jafnteflið þýddi að Belgar féllu úr leik á heimsmeistaramótinu. 1.12.2022 19:49
Marokkó vann Kanada og F-riðilinn í leiðinni Marokkó er komið í sextán liða úrslitin á heimsmeistaramótinu í Katar eftir 2-1 sigur á Kanada þar sem öll mörkin komu í fyrri hálfleiknum. 1.12.2022 16:56
Belgar úr leik eftir klúður Lukaku Króatía, silfurlið síðasta HM, komst í dag áfram í 16-liða úrslit HM í fótbolta í Katar en sendi um leið Belga heim. Belgar fengu dauðafæri til að komast yfir í seinni hálfleiknum. 1.12.2022 16:52
3,4 milljónir í laun á tímann allan sólarhringinn Góður átta tíma svefn gæti gefið Cristiano Ronaldo 27 milljónir í aðra hönd. Sænska Sportbladet hefur reiknað út möguleg ofurlaun Cristiano Ronaldo hjá sádí-arabíska félaginu Al Nassr. 1.12.2022 16:31
„Búnir að ala þá upp í að vera aumingjar“ Freyr Alexandersson starfaði í Katar og kynntist fótboltanum og fótboltamönnunum þar af eigin raun. Hann ræddi slakt gengi gestgjafa Katar á HM í fótbolta. 1.12.2022 15:31
Luis Suarez neitar að biðjast afsökunar Úrúgvæ og Gana mætast annað kvöld í lokaumferð riðlakeppni heimsmeistaramótsins í Katar þar sem sæti í sextán liða úrslitunum er í boði. 1.12.2022 15:00
Frakkar skiptu yfir í auglýsingar og héldu að þeir hefðu gert jafntefli Sjónvarpsáhorfendur í Frakklandi héldu eflaust að sínir menn í franska landsliðinu hefðu farið taplausir í gegnum riðlakeppnina á HM í fótbolta, vegna afglapa í útsendingu sjónvarpsstöðvarinnar TF1. 1.12.2022 14:01
Freyr Alexanders um ósýnilegu Danina, tilfinningaríka þjálfarann og af hverju þeir voru svona lélegir á HM Fá lið ollu meiri vonbrigðum á þessum heimsmeistaramóti í Katar en lið Dana sem fór alla leið í undanúrslitin á síðasta Evrópumóti. Íslenski þjálfarinn í dönsku úrvalsdeildinni hefur fylgst vel með gangi mála hjá danska liðinu síðustu vikur og mánuði. 1.12.2022 13:30
Mögulega vítakeppnir í riðlum á næsta HM FIFA, alþjóða knattspyrnusambandið, er með til skoðunar að notast við vítaspyrnukeppni verði jafntefli í leikjum í riðlakeppni á næsta heimsmeistaramóti karla, sem fram fer árið 2026. 1.12.2022 13:00
Vildu ekki sjá kvennaliðið undir þeirra hatti þótt þær beri sama nafn Kvennalið Lilleström á ekki upp á pallborðið hjá Lilleström. Það kom vel í ljós í kosningu á aðalfundi félagsins í gær. 1.12.2022 12:31
Argentínski þjálfarinn hneykslaður á keppnisfyrirkomulaginu á HM í Katar Argentínski landsliðsþjálfarinn Lionel Scaloni var auðvitað ánægður með að vinna Pólverja sannfærandi og að vinna riðilinn en hann var líka mjög hneykslaður á keppnisfyrirkomulaginu á heimsmeistaramótinu í Katar. 1.12.2022 12:00
Danir vilja framlengja við Hjulmand þrátt fyrir klúðrið í Katar Þrátt fyrir að Danir hafi fallið úr leik á neyðarlegan hátt á HM í Katar ætlar danska knattspyrnusambandið að framlengja samning landsliðsþjálfarans Kaspers Hjulmand. 1.12.2022 11:31
Frakkar klaga til FIFA Heimsmeistarar Frakka hafa sent kvörtun til FIFA vegna marksins sem var dæmt af Antoine Griezmann í uppbótartíma í leiknum gegn Túnisum á HM í Katar í gær. Þeir telja að dómurinn hafi verið rangur. 1.12.2022 11:00
Biðst afsökunar á að hafa hótað Messi Mexíkóski hnefaleikakappinn Canelo Álvarez hefur beðist afsökunar á að hafa hótað argentínska fótboltasnillingnum Lionel Messi. 1.12.2022 09:30
Konurnar græða miklu meira á HM karla í ár en þegar þær unnu HM sjálfar Nýr samningur við leikmenn bandaríska kvennalandsliðsins sér til þess að landsliðskonurnar frá Bandaríkjunum græða miklu meira á góðum árangri karlalandsliðsins á heimsmeistaramótinu í Katar en þegar þær urðu sjálfar heimsmeistarar árið 2019. 1.12.2022 09:30
Szczesny tapaði veðmáli við Messi áður en hann varði vítið Wojciech Szczesny veðjaði við Lionel Messi að hann myndi ekki fá vítaspyrnu í leik Argentínu og Póllands á heimsmeistaramótinu í Katar í gær. Hann segist skulda argentínska snillingnum hundrað evrur. 1.12.2022 08:30
Leyndarmálið um stuðningsmenn Katar á HM Stuðningsmenn Katar á yfirstandandi heimsmeistaramóti hafa vakið töluverða athygli, þá sérstaklega fyrir þá gríðarmiklu stemningu sem þeim fylgdi. En hverjir eru þessir menn eiginlega? 1.12.2022 08:01
Vlahovic segir fráleitt að hann hafi haldið við eiginkonu samherja síns Dusan Vlahovic, framherji Juventus, segir ekkert til í því að hann hafi haldið við konu samherja síns í serbneska landsliðinu. 1.12.2022 07:31
Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni áfram laus gegn tryggingu eftir handtöku vegna nauðgunar í sumar Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu verður áfram laus gegn tryggingu eftir að hafa verið handtekinn í sumar sakaður um nauðgun. Leikmaðurinn var valinn í lokahóp landsliðs sem keppir á heimsmeistaramótinu í Katar. 1.12.2022 07:00