Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Aron Einar, Þorvaldur og Þorsteinn J í boltaþættinum á X-inu 977 Íþróttafréttamaðurinn Valtýr Björn Valtýsson stjórnar boltaþættinum á X-inu 977 í dag á milli 11-12. Gestur þáttarins verða þeir Þorvaldur Örlygsson og Þorsteinn J. Vilhjálmsson. Valtýr mun einnig slá á þráðinn og ræða við Aron Einar Gunnarsson leikmann enska fótboltaliðsins Coventry. 14.2.2012 10:52
Pique lenti í bílslysi í dag Gerard Pique, miðvörður Barcelona, slapp með skrekkinn er hann lenti i bílslysi þegar hann var á leið á æfingu í dag. 13.2.2012 22:30
KR-ingar réðu ekkert við Lennon - sjáið mörkin Það er óhætt að segja að Steven Lennon hafi verið maður á bak við Reykjavíkurmeistaratitil Framara en Lennon skoraði öll mörkin í úrslitaleiknum í Egilshöllinni í kvöld þegar Fram vann 5-0 sigur á KR. 13.2.2012 22:20
Lennon skoraði fimm mörk á móti KR | Fram Reykjavíkurmeistari Steven Lennon var í miklu stuði í kvöld þegar Fram tryggði sér Reykjavíkurmeistaratitilinn eftir 5-0 stórsigur á Íslands- og bikarmeisturum KR í úrslitaleik mótsins í Egilshöllinni. Lennon skoraði öll fimm mörkin þar af þrjú þeirra í fyrri hálfleiknum. 13.2.2012 21:20
Eigandi Liverpool sagður hafa pantað afsökunarbeiðnir John W. Henry, eigandi Liverpool, var ekki alls kostar sáttur við framkomu þeirra Luis Suarez og Kenny Dalglish á Old Trafford á laugardag. Báðir hafa beðist afsökunar á hegðun sinni. 13.2.2012 20:00
Hermt að það hafi verið hrækt á De Gea í hálfleik Breskir fjölmiðlar greina frá því í dag að lætin í leikhléi á milli Man. Utd og Liverpool hafi byrjað þegar hrækt var á David de Gea, markvörð Man. Utd, er hann var á leið inn í klefa. 13.2.2012 19:30
Beckenbauer: Robben er eigingjarn Franz Beckenbauer er ekki í aðdáendaklúbbi Hollendingsins Arjen Robben, sem leikur með Bayern Munchen. Beckenbauer segir að Robben sé allt of eigingjarn. 13.2.2012 18:30
Fyrsti úrslitaleikur Fram og KR í fimmtán ár er í kvöld Fram og KR mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmóts karla í Egilshöllinni í kvöld en leikurinn hefst klukkan 19.30. KR er komið í úrslitaleikinn fjórða árið í röð og vann titilinn 2009 og 2010 en Fram hefur ekki unnuð Reykjavíkurmeistaratitilinn síðan 2006 og er í sínum fyrsta úrslitaleik í fjögur ár. 13.2.2012 17:30
Skosku meistararnir í Rangers á leiðinni í greiðslustöðvun Skosku meistararnir Glasgow Rangers eru í það vondum málum fjárhagslega að félagið hefur nú tilkynnt að það sé á leiðinni í greiðslustöðvun á næstunni. Rangers stendur í málaferlum vegna skattaskulda og það mál spilar lykilhlutverk í slæmri fjárhagsstöðu félagsins. 13.2.2012 17:00
Eiður Smári fer í myndatöku á miðvikudaginn Knattspyrnumaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen er á leiðinni í myndatöku á miðvikudaginn þar sem kemur í ljós hversu vel beinin í fæti hans hafa gróið en Eiður Smári tvíbrotnaði á fæti í leik með AEK Aþenu á móti Olympiacos þann 15. október. Þetta kemur fram á vefsíðunni fótbolti.net. 13.2.2012 16:30
Pepe: Fjölmiðlar láta mig líta út eins og morðingja Portúgalski varnarmaðurinn Pepe er allt annað en ánægður með spænska blaðamenn og hefur nú ráðist harkalega að þeim þar sem hann segist fá mjög ósanngjarna meðferð í spænskum fjölmiðlum. 13.2.2012 16:15
Van Basten að taka við Heerenveen Hollenska goðsögnin Marco van Basten mun taka við stjórnartaumunum hjá Heerenveen í sumar. Þetta er hans fyrsta aðalþjálfarastarf síðan hann hætti með Ajax árið 2009. 13.2.2012 15:37
Ranieri: Stjórnin stendur með mér Claudio Ranieri gekk ágætlega að rífa Inter upp eftir að hann tók við liðinu snemma í vetur. Upp á síðkastið hefur síðan farið að síga á ógæfuhliðina á nýjan leik. 13.2.2012 15:30
Capello ekki heyrt frá Anzhi né öðru félagi Fabio Capello, fyrrum landsliðsþjálfari Englands, segist ekkert hafa heyrt frá rússneska félaginu Anzhi sem hann er nú orðaður við í ljósi þess að hann er atvinnulaus. 13.2.2012 14:45
Ronaldo: Við erum ekki búnir að vinna neitt Real Madrid er komið í afar vænlega stöðu í spænsku úrvalsdeildinni eftir helgina. Madridarliðið er nú með tíu stiga forskot á Barcelona og margir á því að liðið sé nú þegar búið að tryggja sér spænska meistaratitilinn. 13.2.2012 14:00
Tevez er klár í að spila með City á nýjan leik Sambandið á milli Roberto Mancini, stjóra Man. City, og Carlos Tevez, leikmanns Man. City, er að þiðna og ekki loku fyrir það skotið að Tevez muni klæðast búningi félagsins á nýjan leik fljótlega. 13.2.2012 12:30
McCarthy rekinn frá Wolves Eggert Gunnþór Jónsson og félagar í Wolves fá nýjan stjóra í vikunni því Wolves er búið að reka Mick McCarthy, stjóra félagsins. McCarthy er búinn að stýra Wolves frá árinu 2006. Wolves lá gegn WBA um helgina, 5-1, og féll um leið niður í fallsæti. Það sætti stjórn félagsins sig ekki við og rak því stjórann í morgun. 13.2.2012 11:03
King vill ekki missa Redknapp Ledley King, varnarmaður Tottenham, hefur beðið stjórann sinn, Harry Redknapp, um að gefa enska landsliðið upp á bátinn og halda áfram með sitt frábæra starf hjá Tottenham. 13.2.2012 11:00
Villas-Boas: Ekki lengur raunhæft að ná fyrsta eða öðru sæti Andre Villas-Boas, stjóri Chelsea, segist ekki hafa neinar áhyggjur af sínu starfi hjá félaginu en viðurkennir að hann verði að skila liðinu í Meistaradeildina á næstu leiktíð. 13.2.2012 09:30
Öskubuskusigur Sambíu eftir vítaspyrnukeppni Sambía er Afríkumeistari í knattspyrnu eftir sigur á Fílabeinsströndinni í vítaspyrnukeppni að loknu markalausu jafntefli í úrslitaleiknum í Gabon. Gervinho og Kolo Toure tókst ekki að skora úr sínum spyrnum. 12.2.2012 22:39
Redknapp vill fá Scholes aftur í landsliðið Harry Redknapp segir að það væri best fyrir enska landsliðið að fá Paul Scholes í liðið á nýjan leik. Hann segir að Steven Gerrard og Scott Parker gætu báðir tekið að sér fyrirliðahlutverk landsliðsins. 12.2.2012 23:18
Real með tíu stiga forystu á Spáni Real Madrid lenti óvænt undir gegn Levante í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld en vann á endanum sannfærandi 4-2 sigur. 12.2.2012 21:14
Dalglish baðst líka afsökunar | United þakklátt Kenny Dalglish hefur bæst í hóp með þeim Luis Suarez og Ian Ayre sem allir hafa beðist afsökunar á uppákomunni í leik Liverpool og Manchester United í gær. 12.2.2012 20:05
Þriðja tap Inter í fjórum leikjum Allt gengur á afturfótunum hjá Inter á Ítalíu um þessar mundir en í þetta sinn mátti liðið sætta sig við tap fyrir nýliðum Novara á heimavelli, 1-0. 12.2.2012 16:50
Birkir og félagar töpuðu fyrir toppliðinu Birkir Bjarnason var í byrjunarliði Standard Liege sem tapaði fyrir Anderlecht, 2-1, á heimvelli í belgísku úrvalsdeildinni í dag. 12.2.2012 16:40
Suarez blekkti forráðamenn Liverpool Ian Ayre, framkvæmdarstjóri Liverpool, segir að Luis Suarez hafi blekkt félagið með því að segja að hann myndi taka í hönd Patrice Evra fyrir leik liðsins gegn Manchester United í gær. 12.2.2012 16:12
Suarez baðst afsökunar Luis Suarez, leikmaður Liverpool, hefur beðist afsökunar fyrir að taka ekki í hönd Patrice Evra, fyrirliða Manchester United, fyrir leik liðanna í gær. 12.2.2012 14:39
Lescott skaut City aftur á toppinn Joleon Lescott tryggði Manchester City 1-0 sigur á Aston Villa í lokaleik 25. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. City endurheimti um leið topppsæti ensku úrvalsdeildarinnar. 12.2.2012 12:40
West Brom tók Wolves í kennslustund West Brom vann yfirburðasigur gegn Wolves í grannaslagnum liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag, 5-1. Peter Odemwingie skoraði þrennu. 12.2.2012 12:32
Óskar Ófeigur fékk fjölmiðlaviðurkenningu KSÍ Óskar Ófeigur Jónsson, íþróttablaðamaður á Vísi og Fréttablaðinu, fékk í gær fjölmiðlaviðurkenningu KSÍ á ársþingi sambandsins í gær. 12.2.2012 12:16
Mancini opnar dyrnar fyrir Tevez á ný Roberto Mancini, stjóri Manchester City, segir að ef Carlos Tevez hafi áhuga á því þá gæti hann vel spilað með liðinu á nýjan leik. Tevez hefur ekkert spilað síðan í lok september. 12.2.2012 12:00
Rooney vill vera fyrirliði einn daginn en mælir með Gerrard Wayne Rooney segist gjarnan vilja verða fyrirliði enska landsliðsins einn daginn en segir að Steven Gerrard eigi að taka við fyrirliðabandinu nú. 12.2.2012 11:30
Arnar Darri vill vera áfram í SönderjyskE Arnar Darri Pétursson segist í samtali við danska fjölmiðla vera ánægður í herbúðum SönderjyskE og vonast til að framlengja samning sinn við félagið en hann rennur út í sumar. 12.2.2012 10:00
Gísli tók sæti Jóns í stjórn KSÍ Ársþing KSÍ fór fram í gær og var kosið um fjögur sæti í stjórn. Skagamaðurinn Gísli Gíslason er sá eini sem kemur nýr inn í hana. 12.2.2012 08:00
Ásgeir Börkur til reynslu hjá sænsku félagi Miðjumaðurinn Ásgeir Börkur Ásgeirsson heldur eftir helgi út til Svíþjóðar þar sem hann verður til reynslu hjá sænska úrvalsdeildarfélaginu Åtvidaberg. 12.2.2012 06:00
Bramble neitar kæru um kynferðislega áreitni Titus Bramble, leikmaður Sunderland, kom fyrir rétt í Englandi í gær þar sem hann svaraði fyrir kæru um kynferðislega áreitni. Lýsti hann yfir sakleysi sínu fyrir dómara. 11.2.2012 23:15
Villas-Boas: Mögulega versti leikur tímabilsins Andre Villas-Boas, stjóri Chelsea, sagði frammistaða sinna manna gegn Everton í dag hafi verið léleg og leikurinn mögulega sá versti á tímabilinu. 11.2.2012 22:30
Adebayor: Enska landsliðið hefur meiri þörf fyrir Redknapp en við Emmanuel Adeabyor var hetja Tottenham þegar að liðið vann 5-0 sigur á Newcastle í ensku úrvalsdeildinni. Hann lagði upp fyrstu fjögur mörk sinna manna og skoraði svo það fimmta sjálfur. 11.2.2012 21:45
Jón Guðni spilaði allan leikinn í sigri Beerschot Jón Guðni Fjóluson var í byrjunarliði Beerschot í aðeins annað skiptið á tímabilinu í kvöld þegar að liðið vann 3-2 sigur á Sint-Truiden í belgísku úrvalsdeldinni. 11.2.2012 21:07
Ferdinand: Ég missti alla virðingu fyrir Suarez Rio Ferdinand segir að hann hafi neitað að taka í hönd Luis Suarez vegna þess að hann hafi misst alla virðingu fyrir honum. Manchester United vann Liverpool, 2-1, í hádegisleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. 11.2.2012 20:30
AZ gefur ekkert eftir Jóhann Berg Guðmundsson kom inn á sem varamaður þegar að lið hans, AZ, vann 2-0 sigur á Excelsior í hollensku úrvalsdeildinni í kvöld. 11.2.2012 19:46
Barcelona tapaði | Búið spil í spænsku deildinni? Osasuna styrkti stöðu Real Madrid á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld með því að vinna 3-2 sigur á Barcelona í stórskemmtilegum leik á heimavelli. 11.2.2012 19:32
Malí náði í bronsið í Afríkukeppninni Cheick Diabate skoraði tvívegis í 2-0 sigri Malí á Gana í bronsleik Afríkukeppninnar í knattspyrnu. 11.2.2012 21:21
AC Milan á toppinn eftir sigur á Udinese AC Milan vann afar mikilvægan sigur á Udinese í ítölsku úrvalsdeildinni í dag, 2-1, og skellti sér um leið á topp deildarinnar. 11.2.2012 19:41
Wenger: Leitt að missa Henry Arsene Wenger lofaði Thierry Henry í hástert eftir að Henry tryggði Arsenal 2-1 sigur á Sunderland í ensku úrvalsdeildinni í dag. 11.2.2012 19:01