Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sjálfstraustið er í fínu lagi Hinn 35 ára gamli markvörður, Shay Given, fær loksins að spila aftur fótbolta í vetur eftir að hafa samið við Aston Villa. Hann mátti gera sér það að góðu að fylgjast með leikjum af bekknum hjá Man. City. 20.7.2011 12:30
Barcelona búið að kaupa Sanchez Það virðist fátt geta komið í veg fyrir að Alexis Sanchez gangi í raðir Barcelona eftir að Börsungar náðu samkomulagi við Udinese um kaupverð á leikmanninum. Sanchez verður því væntanlega orðinn leikmaður Barcelona á næstu dögum. 20.7.2011 11:45
Redknapp vill fá Adebayor Harry Redknapp, stjóri Spurs, hefur nú beint spjótum sínum að framherjanum Emmanuel Adebayor. Hann vill fá leikmanninn frá Man. City og útilokar ekki lánssamning. 20.7.2011 11:00
Ferguson myndi skilja Berbatov ef hann vildi fara Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, segist hafa fullan skilning á því ef Búlgarinn Dimitar Berbatov ákveður að söðla um í sumar. 20.7.2011 10:15
Tevez fer ekki til Corinthians Þrátt fyrir yfirlýsingar um annað er nú orðið ljóst að ekkert verður af því Carlos Tevez gangi í raðir brasilíska liðsins Corinthians. 20.7.2011 09:30
Suarez skaut Úrúgvæ í úrslit Úrúgvæ tryggði sér í nótt sæti í úrslitaleik Copa America. Úrúgvæar lögðu þá Perú, 2-0, í undanúrslitaleik. 20.7.2011 09:00
Fyrirliðinn fór fyrir Stjörnuliðinu - myndir Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, skoraði þrennu fyrir Stjörnuna í 4-1 útisigri á Fylki í Pepsi-deild kvenna í gærkvöldi. Stjarnan hélt því áfram sigurgöngu sinni og er áfram með tveggja stiga forskot á Val á toppi deildarinnar. 20.7.2011 08:00
Verður refsað fyrir að taka vítaspyrnu með hælnum Awana Diab landsliðsmaður Sameinuðu arabísku furstadæmanna, sló í gegn á YouTube, eftir að hann tók vítaspyrnu með hælnum en mótherjar og samherjar hans voru allt annað en hrifnir. Awana tók vítið í 7-2 sigri Sameinuðu arabísku furstadæmanna í vináttulandsleik gegn Líbanon og það er hægt að sjá spyrnuna hér fyrir ofan. 19.7.2011 23:45
Þær japönsku hafa nú sett stefnuna á Ólympíugullið Homare Sawa, fyrirliði Heimsmeistara Japans í kvennafótbolta, var yfirlýsingaglöð á blaðamannafundi í Tókýó þegar japanska landsliðið snéri heim eftir sigurinn á HM í Þýskalandi. Sawa segir að nú ætli liðið sér að vinna gullið á Ólympíuleikunum í London á næsta ári. 19.7.2011 23:15
Sir Alex Ferguson: Liverpool mun blanda sér í titilbaráttuna í vetur Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, reiknar með því að Liverpool-liðið verði í titilbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni á komandi tímabil nú þegar að Kenny Dalglish sé tekinn við stjórnartaumunum á Anfield. 19.7.2011 22:45
Skagamenn komnir með tólf stiga forskot í 1. deildinni Skagamenn unnu 6-0 stórsigur á Þrótti, liðinu í 4. sæti, á Valbjarnarvelli í fyrsta leik 13. umferðar 1. deildar karla í kvöld og náðu með því tólf stiga forskoti á Selfoss og 17 stiga forskoti á liðin í 3. og 4. sæti. 19.7.2011 22:05
Stjarnan og Valur unnu góða sigra - langþráður sigur Aftureldingar Stjarnan og Valur, toppliðin í Pepsi-deild kvenna, unnu bæði leiki sína á útivelli í kvöld og halda Stjörnukonur því áfram tveggja stiga forskoti á Val á toppnum. Stjarnan vann 4-1 sigur á Fylki í Árbænum þar sem fyrirliðinn Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir skoraði þrennu og Valur vann 6-0 sigur í Grindavík. Afturelding vann 3-0 sigur á KR í þriðja leik kvöldsins og hoppaði með því upp í sjöunda sæti. 19.7.2011 21:08
Strákarnir fóru illa með Wales í fyrsta leik á Svíþjóðarmótinu Strákarnir í 19 ára landsliðinu í fótbolta byrjuðu Svíþjóðarmótið vel þegar þeir unnu 5-1 stórsigur á Wales eftir að hafa verið 2-1 yfir í hálfleik. Fimm leikmenn íslenska liðsins skoruðu í leiknum. 19.7.2011 20:51
Ferguson ætlar ekki að færa Rooney á miðjuna Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, segir það ekki koma til greina að færa Wayne Rooney á miðjuna til þess að fylla skarðið sem Paul Scholes skilur eftir sig. Ferguson segir að leikmennirnir séu einfaldlega of ólíkir. 19.7.2011 20:00
Blatter óvinsælli en Osama Bin Laden Sepp Blatter, forseti FIFA, er skúrkur síðasta áratugar samkvæmt skoðanakönnun SyFy-sjónvarpsstöðvarinnar. Blatter sló Osama Bin Laden við í könnuninni. 19.7.2011 19:30
Pepsimörkin: Harka í leik Þórs og Keflavíkur Það var virkilega fast tekist á þegar Þór tók á móti Keflavík í gær. Bæði lið vildu sjá rautt spjald á andstæðinginn. 19.7.2011 18:45
Lampard segir hóp Chelsea vera nógu góðan Frank Lampard, miðjumaður Chelsea, hefur engar áhyggjur af því að Man. Utd sé að láta til sín taka á leikmannamarkaðnum þessa dagana. Hann segir að Chelsea sé nú þegar með hóp sem geti orðið enskur meistari. 19.7.2011 18:00
Björn Einarsson: Þetta var mjög erfið ákvörðun Andri Marteinsson var í kvöld látinn fara sem þjálfari meistaraflokks karla hjá Víkingum og félagið leitar nú að eftirmanni hans. Víkingar vonast til að geta tilkynnt um nýjan þjálfara á morgun sem verður þá þriðji þjálfari liðsins á rúmum fjórum mánuðum. 19.7.2011 17:59
Andri Marteinsson rekinn frá Víkingi Andri Marteinsson er hættur sem þjálfari Víkinga í Pepsi-deild karla í fótbolta en hann stýrði sínum síðasta leik þegar Víkingar töpuðu 0-1 á móti Fram í gær í sannkölluðum sex stiga leik í botnbaráttu deildarinnar. 19.7.2011 17:29
Pepsimörkin: Úrvalslið fyrri helmings Íslandsmótsins Sérfræðingar Pepsi-markanna hafa valið úrvalslið fyrri umferðar Íslandsmótsins í knattspyrnu. 19.7.2011 17:15
Neymar ætlar að vera áfram í Brasilíu Eins og við var búist hefur brasilíska undrabarnið Neymar ákveðið að spila áfram með Santos í heimalandinu í stað þess að fara til Evrópu. 19.7.2011 16:30
Pepsimörkin: Andri er í erfiðri stöðu Andri Marteinsson, þjálfari Víkings, er í sjóðheitu sæti en hvorki gengur né rekur hjá Víkingum í Pepsi-deildinni. 19.7.2011 15:45
Kínverskt félag til í að tvöfalda laun Park Hið moldríka kínverska félag Guangzhou Evergrande ætlar sér að fá Suður-Kóreumanninn Ji-Sung Park frá Man. Utd og hefur nú boðist til að tvöfalda laun leikmannsins. Samningur Park við Man. Utd rennur út næsta sumar. 19.7.2011 14:15
Þjálfari Brasilíu heldur starfi sínu Þó svo brasilíska landsliðið hafi aðeins komist í átta liða úrslit á Copa America þá er staða þjálfarans, Mano Menezes, örugg. 19.7.2011 13:30
Stjórnarformaður Arsenal: Höfum ekkert heyrt frá Barcelona Peter Hill-Wood, stjórnarformaður Arsenal, segist ekkert hafa heyrt í Barcelona síðan félagið hafnaði fyrsta tilboði spænska liðsins í leikmanninn. 19.7.2011 12:45
Eiður Smári: Ný og skemmtileg áskorun Eiður Smári Guðjohnsen er formlega orðinn leikmaður gríska liðsins AEK Aþenu. Eiður fór í læknisskoðun í morgun og skrifaði síðan undir samning. Í kjölfarið var hann kynntur fyrir fjölmiðlum. Eiður skrifaði undir tveggja ára samning við félagið og mun leika í treyju númer 22. 19.7.2011 12:16
Gaupahornið á Akureyri Guðjón Guðmundsson brá sér til Akureyrar á dögunum og tók út mögulega framtíðarstúku Þórsara á Akureyri. 19.7.2011 12:00
Redknapp: Þurfum að sýna metnað okkar í verki Harry Redknapp, stjóri Tottenham, er að reyna að byggja upp nýtt stórveldi í enska boltanum en það er ekki auðvelt verk enda mikið reynt að kroppa í hans bestu menn. 19.7.2011 11:15
Blaðamannafundur Eiðs Smára í Aþenu í beinni Eiður Smári Guðjohnsen verður kynntur til leiks sem nýr leikmaður AEK Aþenu innan skamms. Mikill áhugi er hjá grískum fjölmiðlum fyrir komu Eiðs Smára og er meðal annars hægt að fylgjast með blaðamannafundinum beint á netinu. 19.7.2011 11:03
Hughes farinn heim - óvissa með Garðar Eyjafréttir greina frá því í dag að Englendingurinn Bryan Hughes sé búinn að spila sinn síðasta leik fyrir ÍBV og sé farinn aftur heim til Englands. 19.7.2011 10:41
Pepsimörkin: Öll mörkin og tilþrifin í 11. umferð Það voru skoruð nokkur lagleg mörk og einnig var eitthvað af umdeildum atvikum í 11. umferð Pepsi-deildar karla. 19.7.2011 10:30
Kári orðinn leikmaður Aberdeen Kári Árnason er genginn í raðir skoska liðsins Aberdeen en hann kemur til félagsins frá enska liðinu Plymouth. Hann var rekinn frá Plymouth fyrir að vilja fá útborgað. 19.7.2011 09:54
Man. City ætlar að bjóða í Aguero Roberto Mancini, stjóri Man. City, hefur viðurkennt að félagið ætli sér að gera tilboð í Argentínumanninn Sergio Aguero sem ætlar að yfirgefa Atletico Madrid í sumar. 19.7.2011 09:45
Corinthians hafnar orðum Mancini Skrípaleikurinn í kringum Carlos Tevez heldur áfram. Í gær greindi Roberto Mancini, stjóri Man. City, frá því að City væri búið að ná samkomulagi við Corinthians um kaupverð á leikmanninum. Í dag hafna forráðamenn Corinthians þessum fréttum. 19.7.2011 09:12
Lennon var hetja Framliðsins strax í fyrsta leik - myndir Skotinn Steven Lennon tryggði Fram 1-0 sigur á Víkingi í sínum fyrsta leik í Frambúningnum sem fór fram á Framvellinum í gærkvöldi. Markið kom á lokamínútum fyrri hálfleiks. 19.7.2011 08:30
Eiður Smári fékk stórstjörnumóttökur á flugvellinum í Aþenu Eiður Smári Guðjohnsen fékk sannkallaðar stórstjörnumóttökur á flugvellinum í Aþenu í gær þegar hann kom til Grikklands. Hann mun að öllum líkindum skrifa undir samning við AEK í dag. Um tvö þúsund manns tóku á móti honum á flugvellinum þar sem fólkið söng sigursöngva, hyllti nýju hetjuna sína og kallaði: „Guðjohnsen, Guðjohnsen.“ 19.7.2011 08:00
Harpa aftur heim í Stjörnuna: Fótboltinn er bara fíkn Landsliðskonan Harpa Þorsteinsdóttir er búin að klæða sig í takkaskóna að nýju eftir að hafa eignast Steinar Karl fyrir aðeins þremur mánuðum. Harpa ákvað að snúa aftur heim í Stjörnuna en hún hefur verið í Breiðabliki síðustu þrjú sumur. 19.7.2011 07:00
Birkir Kristinsson: Hjóla í leikina Birkir Kristinsson markmannsþjálfari Fram og fyrrum landsliðsmarkvörður var að setjast á reiðhjólið eftir sigur Framara í Víkinni í dag. Hann var að vonum ánægður með sigurinn. 18.7.2011 23:02
Guðmundur Steinarsson: Hallaði á okkur í dómgæslunni Keflvíkingar voru langt því frá að vera sáttir við dómgæsluna í leik sínum gegn Þór á Þórsvellinum í kvöld en Þórsarar tryggðu sér 2-1 sigur á lokamínútunum. 18.7.2011 22:42
Lennon: Hélt ég væri að spila á HM Skotinn Steven Lennon var hetja Framara í kvöld í hans fyrsta leik fyrir félagið. Lennon skoraði eina mark leiksins í 1-0 útisigri á Víkingum sem um leið var fyrsti sigur Framara í sumar. 18.7.2011 22:39
Jóhann Helgi: Því miður fór þetta í tæklingar og vitleysu Jóhann Helgi Hannesson var hetja Þórs á móti Keflavík í Pepsi-deildinni í kvöld. Jóhann var að vonum sáttur við sigurinn hjá sínum mönnum. 18.7.2011 22:26
Beckham útskýrir nafnið Harper Seven - nýir skór Það hefur ekki farið framhjá neinum að Beckham-hjónin David og Victoria eignuðust dóttur fyrir skömmu. Snótin hlaut nafnið Harper Seven og hafa verið uppi getgátur um tilurð nafnsins. 18.7.2011 22:00
Greta Mjöll tryggði Blikastúlkum þrjú stig í Laugardalnum Greta Mjöll Samúelsdóttir skoraði eina markið þegar Breiðablik vann 1-0 sigur á Þrótti á Valbjarnarvellinum í Pepsi-deild kvenna í kvöld. Þetta var annar sigur Breiðabliks í þremur leikjum síðan að Ólafur Brynjólfsson tók við liðinu. 18.7.2011 21:31
Shay Given búinn að gera fimm ára samning við Aston Villa Írski markvörðurinn Shay Given er búinn að ganga frá fimm ára samningi við enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa og fær samkvæmt heimildum Guardian á bilinu 3,5 til 4 milljónir punda fyrir. Það gerir um 664 til 758 milljónir íslenskra króna. 18.7.2011 20:15
Arsenal búið að losa sig við Denílson - lánaður til Sao Paulo Denílson hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Arsenal í bili því Arsene Wenger og félagar hafa ákveðið að lána hann til brasilíska félagsins Sao Paulo. Arsenal er jafnframt við það að ganga frá samningi við Joel Campbell, stórefnilegan framherja frá Kosta Ríka. 18.7.2011 19:45