Fleiri fréttir

Arnór Sveinn í hópinn fyrir Grétar Rafn

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari karla í knattspyrnu, varð að gera eina breytingu á landsliðshópi sínum í dag þegar Grétar Rafn Steinsson boðaði forföll.

Joey Barton ákærður

Það kom nákvæmlega engum á óvart að enska knattspyrnusambandið hafi í dag ákveðið að kæra Joey Barton fyrir ofbeldisfulla hegðun.

Wilkins hættur hjá Chelsea

Chelsea kom á óvart í dag er félagið tilkynnti að Ray Wilkins væri hættur hjá félaginu. Samningur hans við félagið átti að renna út í lok leiktíðar. Ekki var áhugi á því að framlengja samninginn og Wilkins hætti því í dag.

Ronaldo: Ferguson er besti þjálfari heims

Cristiano Ronaldo er ekki alveg búinn að gleyma tímanum hjá Man. Utd. Ronaldo talar afar fallega um Sir Alex Ferguson, stjóra Man.Utd, í viðtali við Metro.

Holloway hótar að hætta

Ian Holloway, stjóri Blackpool, hefur hótað því að hætta með liðið ef enska knattspyrnusambandið ákveður að refsa honum fyrir að gera miklar breytingar á liði sínu fyrir leikinn gegn Aston Villa.

McShane samdi við Grindavík

Paul McShane hefur skrifað undir tveggja ára samning við Pepsi-deildarlið Grindavíkur. McShane kemur til félagsins frá Keflavík.

Wenger: Tæklingin hjá Fabregas var slys

Það hefur líklega enginn stjóri í ensku deildinni kvartað eins mikið yfir hættulegum tæklingum andstæðinganna og Arsene Wenger, stjóri Arsenal. Í gær kom það aftur á móti fyrir að einn leikmaður Arsenal gerði sig sekan um slæma tæklingu og útskýrir Wenger málið svo að um slys hafi verið að ræða.

Stórlið með Gylfa undir smásjánni

Landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson heldur áfram að vekja athygli í Evrópuboltanum og hann er í dag orðaður við fjölda stórliða í Evrópu.

Barton sló Pedersen í magann - myndband

Vandræðagemsinn Joey Barton virðist vera búinn að koma sér í vandræði enn eina ferðina. Enska knattspyrnusambandið ætlar að skoða atvik í leik Newcastle og Blackburn í gær. Þá virðist Barton kýla Morten Gamst Pedersen, leikmann Blackburn.

Slagurinn um Manchester, myndband

Það var fátt um tilþrif og takta í grannaslagnum í Manchester í kvöld þegar Manchester City og Manchester United áttust við í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Liðin skildu jöfn í markalausum leik en helstu atriðin úr leiknum eru aðgengileg á visir.is.

Alex Ferguson: Alltof mikil spenna í aðdraganda leiksins

Alex Ferguson, stjóri Manchester United, náði ekki að stýra sínum mönnum til sigurs á móti nágrönnunum í Manchester City í kvöld. Leikurinn var tíðindalítill, hvorugt liðið gaf færi á sér og markalaust jafntefli varð niðurstaðan.

Manchester liðin gerðu markalaust jafntefli

Manchester-slagurinn í kvöld var langt frá því að standa undir væntingum. Manchester City og Manchester United gerðu markalaust jafntefli í tíðindalitlum leik.

Essien snéri aftur og tryggði Chelsea þrjú stig

Chelsea vann 1-0 sigur á Fulham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld og jók forskot sitt á toppnum. Marouane Chamakh skoraði bæði mörk Arsenal í sigri á Wolves en Liverpool náði bara jafnatefli á móti Wigan.

Abidal aftur valinn í franska landsliðið

Laurent Blanc, landsliðsþjálfari Frakklands, hefur valið hópinn sem mun mæta Englandi í vináttulandsleik þann 17. nóvember næstkomandi. Það er fátt sem kemur á óvart hjá Blanc.

Sundsvall tapaði fyrri umspilsleiknum á móti Gefle

Sundsvall er ekki í alltof góðum málum eftir 0-1 tap á móti Gefle í kvöld í fyrri umspilsleik liðanna um sæti í sænsku úrvalsdeildinni á næsta ári. Hannes Þ. Sigurðsson og Ari Freyr Skúlason lék báðir allan leikinn með Sundsvall.

Cassano hlýddi engum skipunum

Mál Antonio Cassano og Sampdoria er afar áhugavert. Félagið freistar þess nú að segja upp samningnum við leikmanninn og þarf að fara með málið fyrir dómstóla til þess.

Eiður Smári aðeins með 13 deildarmörk á síðustu fimm árum

Eiður Smári Guðjohnsen hefur ekki verið á skotskónum síðustu tímabil sín þar sem hann hefur spilað með Barcelona, Mónakó og Stoke. Markaleysi Eiðs Smára kom vel fram í samantekt Harðar Magnússonar í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Silva: Gríðarlega mikilvægur leikur

Spænski landsliðsmaðurinn David Silva hjá Man. City er afar bjartsýnn fyrir Manchesterslaginn í kvöld. Hann er fullviss um að Man. City muni vinna leikinn.

Pires gæti verið á leið til Tælands

Franski knattspyrnukappinn Robert Pires er ekki af baki dottinn þó svo hann finni ekki félag sem vill semja. Hann hefur haldið sér í formi með því að æfa með Arsenal en fær ekki samning þar.

Fabregas: Megum ekki misstíga okkur í kvöld

Cesc Fabregas, fyrirliði Arsenal, segir að Arsenal megi alls ekki við því að misstíga sig frekar í toppslagnum ætli félagið að halda sig þar. Arsenal mætir Wolves í kvöld.

Bale og unnusta eru eins og Gavin og Stacey

Gareth Bale er heitasti leikmaðurinn í enska boltanum um þessar mundir. Þessi welski vængmaður hefur heillað knattspyrnuunnendur um allan heim upp úr skónum með frábærum leik síðustu vikur.

Orri framlengir og Helgi ráðinn aðstoðarþjálfari

Það er nóg að gera hjá Grindvíkingum við að undirbúa liðið fyrir næsta sumar. Félagið hefur nú ráðið Helga Bogason sem aðstoðarþjálfara Ólafs Arnar Bjarnasonar og svo er Orri Freyr Hjaltalín búinn að framlengja við félagið til ársins 2014.

Hodgson: Þurfum að fá nýjan framherja

Roy Hodgson, stjóri Liverpool, viðurkennir að félagið þurfi sárlega að fá nýjan framherja til þess að styðja við bakið á Fernando Torres. Hodgson gerir sér þó grein fyrir því að hann gæti þurft að bíða fram á næsta sumar eftir nýjum framherja.

Ancelotti: Carroll þarf að bæta sinn leik

Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, hefur viðurkennt að hann sé aðdáandi Andy Carroll, framherja Newcastle. Hann segir þó að Carroll þurfi enn að bæta sinn leik.

Hernandez ætlar að hefna sín á Tevez í kvöld

Leikurinn Man. Utd og Man. City í kvöld hefur mikla þýðingu fyrir Javier Hernandez, leikmann Man. Utd. Hernandez segist ekki enn hafa jafnað sig á tapi Mexíkó gegn Argentínu á HM og hann vill því hafa betur gegn Carlos Tevez í kvöld.

Hermann kom inn á fyrir Kanu

Hermann Hreiðarsson og félagar í Portsmouth voru nálægt því að vinna sigur á toppliði Queens Park Rangers í ensku b-deildinni í kvöld. Tommy Smith tryggði QPR jafntefli með því að skora úr vítaspyrnu í uppbótartíma leiksins.

Mancini hefur ekki áhyggjur af Balotelli

Roberto Mancini, stjóri Manchester City, hefur ekki áhyggjur af hegðun Mario Balotelli sem fékk að líta rauða spjaldið í leik City gegn West Brom um helgina.

Stoke vann langþráðan sigur á Birmingham

Stoke City endaði fjögurra leikja taphrinu í ensku úrvalsdeildinni með 3-2 heimasigri á Birmingham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Eiður Smári Guðjohnsen sat allan tímanna á bekknum en Dean Whitehead skoraði sigurmark Stoke-liðsins fimm mínútum fyrir leikslok.

Affelay spenntur fyrir Barcelona

Hollendingurinn Ibrahim Affelay, leikmaður PSV Eindhoven, er spenntur fyrir því að ganga til liðs við Barcelona á Spáni.

Eiður Smári kominn aftur inn í hópinn hjá Stoke

Eiður Smári Guðjohnsen er á bekknum hjá Stoke sem fær Birmingham í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Eiður Smári kemur aftur inn í hópinn en hann var ekki með á móti Sunderland um síðustu helgi.

Þjálfari Dana: Ég vildi bara sleppa við Spánverja

Keld Bordinggaard, þjálfari danska 21 árs landsliðsins, var ánægður með riðilinn sem Danir spila í á Evrópumótinu næsta sumar en danska landsliðið dróst í riðil með Íslandi, Sviss og Hvíta-Rússlandi.

Sjá næstu 50 fréttir