Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vísir velur úrvalslið U21 leikmanna Vísir hefur valið ellefu af efinlegustu leikmönnum ensku deildarinnar í úrvalslið. Kíktu á liðið okkar og láttu okkur vita hvað þér finnst. 14.8.2007 14:25
Video: Leikmenn Blackburn takast á á dansgólfinu Þeir David Bentley og David Dunn eru ekki bara góðir knattspyrnumenn. Þeir eru líka hörkudansarar. Þetta sýndu kapparnir nýlega á næturklúbbi í Preston þegar leikmenn Blackburn kíktu saman út á lífið. Plötusnúður staðarins hreifst svo mjög af danshæfileikum félaganna að hann skoraði á þá að mæta hvor öðrum í danskeppni. 14.8.2007 13:15
Benitez róar reiðan Crouch Rafael Benitez segir að hann hafi þurft að tala við Peter Crouch vegna óánægju hans yfir því að hafa ekki verið valinn í hóp liðsisn sem mætti Aston Villa. Benitez, sem löngum hefur verið þekktur fyrir að stilla sjaldan upp sama liði tvisvar segist eiga úr "of mörgum leikmönnum" að velja. 14.8.2007 12:37
Southampton selur og selur til að fara ekki á hausinn George Burley, framkvæmdastjóri hins fornfræga félags Southampton, segist hafa verið tilneyddur til að selja alla sína bestu leikmenn til að forða því að klúbburinn yrði tekinn til gjaldþrotaskipta. 14.8.2007 11:48
Meiðsli Rooney skónum að kenna? Nú á sér stað mikil umræða í Englandi um hvort fjölgun meiðsla á borð við þau sem Wayne Rooney hlaut um helgina megi rekja til nýrrar gerðar af skóm sem íþróttavöruframleiðendur hafa sent frá sér undanfarið. Nýju skórnir eru svo léttir og þunnir að þeir veita ekki lengur þá vernd sem skór gerðu á árum áður. 14.8.2007 10:34
FH sigraði Val í Laugardalnum FH sigraði Val í kvöld á dramatískan hátt í 8-liða úrslitum VISA-bikarsins með einu marki gegn engu. Ásgeir Gunnar Ásgeirsson skoraði sigurmark FH á 91. mínútu eftir mikinn darraðadans í teig Valsmanna. Þar með er FH búið að tryggja sér þátttökurétt í undanúrslitum ásamt Fjölni, Breiðablik og Fylki. Dregið verður í undanúrslit á morgun. 13.8.2007 21:51
Landsbankadeild kvenna: KR valtaði yfir Fylki Þrír leikir fóru fram í Landsbankadeild kvenna í kvöld. KR gerði sér lítið og sigraði Fylki með tíu mörkum gegn engu á heimavelli. Keflavík sigraði ÍR 3-0 á útivelli og Breiðablik sigraði Stjörnuna 2-1 í Garðabænum. 13.8.2007 21:20
Markalalaust í hálfleik hjá Val og FH Ekkert mark hefur verið skorað í leik Vals og FH í 8-liða úrslitum VISA-bikarsins, en flautað hefur verið til leikhlés á Laugardalsvellinum. Þetta er síðasti leikur 8-liða úrslitanna en Fjölnir, Fylkir og Breiðablik hafa þegar tryggt sér þáttökurétt í undanúrslitum keppnarinnar. 13.8.2007 20:59
Fjölnir sigraði Hauka í fjörugum leik Fjölnir sigraði Hauka með fjórum mörkum gegn þremur í 8-liða úrslitum VISA-bikarsins í bráðskemmtilegum leik. Haukar leiddu í hálfleik 0-1. Fjölnismenn skoruðu svo þrjú mörk á fyrstu 19 mínútum seinni hálfleiks og komust í 3-1. Haukar minnkuðu muninn í 3-2 áður en Fjölnismenn bættu við sínu fjórða marki. Haukar skoruðu svo sitt þriðja mark fimm mínútum fyrir leikslok. 13.8.2007 20:17
Eiður Smári hefur áhyggjur af meiðslum sínum Miklar vangaveltur hafa verið um framtíð Eiðs Smára Guðjohnsens hjá Barcelona en þær eru allar í biðstöðu vegna hnémeiðsla hans. Eiður Smári hefur áhyggjur af meiðslunum því að bati er enginn og sprautumeðferð hefur ekki skilað neinum árangri. Eiður Smári vonast til að þurfa ekki að fara undir hnífinn. 13.8.2007 20:02
Fjölnismenn komnir yfir gegn Haukum Staðan í leik Fjölnismanna og Hauka í 8-liða úrslitum VISA-bikarsins er 2-1 fyrir Fjölni. Haukar voru 1-0 yfir í hálfleik eftir að Ásgeir Ingólfsson skoraði á 28. mínútu eftir gott spil. Gunnar Már Guðmundsson jafnaði leikinn á 52. mínútu með skalla eftir hornspyrnu og var svo aftur á ferðinni á 60. mínútu þegar hann fylgdi vel á eftir skoti Fjölnismanna sem hafnaði í stöng. 13.8.2007 19:47
Gunnar Már jafnar fyrir Fjölni Gunnar Már Guðmundsson er búinn að jafna fyrir Fjölni gegn Haukum og staðan því 1-1. Gunnar Már skoraði markið á 52. mínútu með skalla eftir hornspyrnu. Staðan var 1-0 í hálfleik eftir að Ásgeir Ingólfsson hafði komið Haukum yfir með marki á 28. mínútu eftir gott spil. 13.8.2007 19:09
Gummi Ben: Þetta verður bara stál í stál Valur tekur á móti FH í 8-liða úrslitum bikarkeppnarinnar í kvöld. Liðin hafa mæst einu sinni í deildinni á þessu tímabili og sigruðu Valsmenn 4-1 á heimavelli. Þetta er stærsti leikur 8-liða úrslitanna, en Valur er í öðru sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir FH sem situr á toppnum. Guðmundur Benediktsson leikmaður Vals sagði í samtali við Vísi.is að hann búist við jöfnum leik. 13.8.2007 18:09
Gallas: Við sýndum öllum að við getum barist á toppnum í vetur William Gallas, fyrirliði Arsenal, segir að liðið hafi sýnt það í leiknum gegn Fulham um helgina að liðið sé tilbúið til að vera í toppbaráttunni í vetur. Arsenal gátu þó varla byrjað tímabilið verr því að David Healy skoraði strax fyrir Fulham í upphafi leiks eftir slæm mistök hjá markverðinum Jens Lehmann. Mörk frá Robin van Persie og Alexander Hleb seint í leiknum tryggðu Arsenal 2-1 sigur. 13.8.2007 17:32
Kristján Ómar: Höfum ekki tapað á Fjölnisvelli á þessari öld Haukar heimsækja Fjölni í kvöld í átta liða úrslitum bikarkeppnarinnar á Fjölnisvelli. Kristján Ómar Björnsson, miðjumaður Hauka segir í samtali við Vísi.is að Haukar hafi ekki tapað á Fjölnisvelli á þesari öld og stefnan sé að halda þeirri hefð. 13.8.2007 17:05
Óttast um heilsu Wenger Nánustu samstarfsmenn Arsene Wenger eru farnir að óttast það að hið gríðarlega álag sem þjálfarinn er undir sé farið að taka sinn toll. Álagið mun hafa aukist mikið eftir að nánasti samstarfsmaður hans hjá Arsenal, David Dein, lét af störfum fyrir skömmu. 13.8.2007 16:04
Bolton kaupir O´Brien Bolton hefur fest kaup á varnarmanninum sterka, Andy O´Brien, frá Portsmouth. Kaupverðið er ekki gefið upp en leikmaðurinn hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Sammy Lee, framkvæmdastjóri Bolton, hefur því fengið tólf leikmenn til liðsins síðan hann tók við stjórnartaumunum undir lok síðasta leiktímabils. 13.8.2007 15:01
Kevin Davies meiddur næstu sex vikurnar Framherjinn Kevin Davies hjá Bolton verður frá vegna meiðsla í allt að sex vikur eftir að hafa meiðst í leik gegn Newcastle um helgina. Davies þurfti að yfirgefa völlinn á 57. mínútu en Heiðar Helguson kom inn á í hans stað og krækti sér í gult spjald. Meiðsli Davies eru mikið áfall fyrir Bolton en búist er við að þau opni leið fyrir Heiðar inn í byrjunarliðið. 13.8.2007 14:50
5 nýir sem slógu í gegn Nú þegar fyrsta umferðin í Enska boltanum er að baki er lag að líta við og skoða fimm leikmenn sem stimpluðu sig inn í deildina með stæl. 13.8.2007 13:50
Rooney frá í tvo mánuði Nýjusu tíðindi af meiðslun Wayne Rooney herma að hann verði frá í tvo mánuði. Rooney brákaði ristarbein í gær eftir samstuð við Michael Duberry, leikmann Reading. Þetta þýðir að Carlos Tevez mun að öllum líkindum byrja um næstu helgi þegar United spilar við erkióvini sína í Manchester City. 13.8.2007 12:26
Myndaveisla úr Enska boltanum Enski boltinn fór af stað með látum um helgina. Hér eru nokkrar myndir sem klófestu stemninguna í opnunarumferðinni. 13.8.2007 11:43
Scmeichel ekki í áætlunum Sven Goran Sven Goran Erikson, knattspyrnustjóri Manchester City, segir að liðið verði að kaupa markmann til þess að leysa hinn meidda Andreas Isakson af hólmi. Isakson er fingurbrotinn og Kasper Schmeichel, sonur Peter Schmeichel sem stóð í marki Manchester United í mörg ár, leysti hann af hólmi um helgina. 13.8.2007 10:36
Gestum Allardyce úthýst á Reebok vellinum Eiginkona og sonur Sam Allardyce voru á meðal nokkurra gesta hans sem var meinaður aðgangur að forstjóraboxi Reebok vallarins þegar Bolton tók á móti Newcastle, hinu nýja liði Allardyce um helgina. 13.8.2007 09:42
Barcelona hafnar 40 milljón pundum frá AC Milan Umboðsmaður Ronaldinho, Roberto Assis, sagði í viðtali við blaðið Gazzetta della Sport um helgina að Barcelona hefði hafnað 40 milljón punda tilboði í leikmanninn. Assis sem er einnig bróðir leikmannsins segir að svo virðist sem Barcelona ætli í staðinn að leggja fram nýtt samningstilboð sem haldi Ronaldinho hjá Barcelona til ferill hans er enda. 13.8.2007 09:13
Terry að verða klár í slaginn Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, er vongóður um að fyrirliði sinn John Terry verði fyrr klár í slaginn en reiknað var með en Terry er að jafna sig eftir að hafa tábrotnað í æfingaferð Chelsea í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Mourinho bindur vonir við að Terry verði klár í stórleikinn gegn Liverpool 19. ágúst næstkomandi. 13.8.2007 00:01
Sjáðu mörkin í ensku úrvalsdeildinni á Vísi Nú gefst lesendum Vísis kost á því að sjá öll mörkin í ensku úrvalsdeildinni hér á vefnum. Þessi þjónusta kostar ekki neitt og verður aðgengileg á hverju sunnudagskvöldi þegar umferð er um helgi og á miðnætti á leikdag þegar leikið er á virkum dögum. 13.8.2007 00:00
Martins er maður 1. umferðar í Englandi Nígeríski framherjinn Obafemi Martins, sem leikur með Newcastle, er leikmaður 1. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar að mati Vísis. Martins fór á kostum þegar Newcastle bar sigurorð af Bolton, 3-1, og skoraði tvö mörk. Fyrra markið var sérstaklega glæsilegt, bakfallsspyrna úr miðjum teig sem Jussi Jaaskalainen, markvörður Bolton, átti ekki möguleika að verja. 12.8.2007 23:02
Halldór skaut Fylki áfram Halldór Hilmisson var hetja Fylkismanna þegar þeir báru sigurorð af ÍA, 3-1, í framlengdum leik á Fylkisvelli í átta liða úrslitum VISA-bikars karla í fótbolta. Staðan var jöfn, 1-1, eftir venjulegan leiktíma en Halldór skoraði bæði mörk Fylkis í framlengingunni, fyrst á 99. mínútu og gulltryggði síðan sigurinn á 116. mínútu. Sigur Fylkismanna markar ákveðin tímamót því fyrir leikinn var Guðjón Þórðarson, þjálfari Skagamanna, ósigraður í 20 bikarleikjum í röð. 12.8.2007 20:09
Rooney með sprungu í beini Wayne Rooney, framherji Manchester United og enska landsliðsins, er með sprungu í beini á vinstri fæti og verður væntanlega frá í nokkrar vikur. Hann lenti í samstuði við Michael Duberry, varnarmann Reading, undur lok fyrri hálfleiks í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag og varð að fara af velli fljótlega eftir það. 12.8.2007 19:04
Framlengt hjá Fylki og ÍA Framlengja þarf leik Fylkis og ÍA á Fylkisvellinum í VISA-bikar karla í fótbolta en staðan eftir venjulegan leiktíma var jöfn, 1-1. Fylkismenn komust yfir á 4. mínútu með sjálfsmarki Skagamannsins Guðjóns Heiðars Sveinssonar en Björn Bergmann Sigurðsson jafnaði metin fyrir ÍA á 41. mínútu. 12.8.2007 19:48
Blikar í undanúrslit Breiðablik er komið í undanúrslit VISA-bikars karla í fótbolta eftir öruggan sigur á Keflavík, 3-1, á Kópavogsvelli. Staðan var markalaus í hálfleik en Blikar voru miklu sterkari í síðari hálfleik. Árni Kristinn Gunnarsson kom Blikum yfir á 62. mínútu, Prince Rajcomar bætti öðru marki við á 74. mínútu og Keflvíkingurinn Baldur Sigurðsson varð síðan fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 80. mínútu. Pétur Heiðar Kristjánsson skoraði eina mark Keflavíkinga á 85. mínútu. 12.8.2007 19:41
Markalaust jafntefli á Old Trafford Englandsmeistararnir í Manchester United náðu ekki að innbyrða sigur í fyrsta leik sínum á nýju tímabili. Reading, einum manni færri eftir að Paul Kitson var vísaði af velli á 71. mínútu, pökkuðu í vörn og ætluðu sér aldre annað en jafntefli í leiknum. Íslendingarnir Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson stóðu sig mjög vel í leiknum. 12.8.2007 14:58
Eggert ekki búinn að gera tilboð í Eið Smára Eggert Magnússon stjórnarformaður West Ham segir rangt að félagið sé búið að gera tilboð í Eið Smára Guðjohnsen. Eggert staðfesti þó í viðtali við Sýn tvö að félagið sé á höttunum eftir Eiði. Arnar Björnsson hitti Eggert á Upton Park í gær. 12.8.2007 13:21
Ajax sigraði PSV Eindhoven 1-0 Ajax bar sigurorð af PSV Eindhoven í árlegum úrslitaleik um ofurbikarinn í Hollandi þegar liðin áttust við í Amsterdam í gær. Leikurinn jafnast á við góðgerðarskjöldinn á Englandi og markar upphaf keppnistímabilsins þar í landi en um þennan titil keppa ávalt ríkjandi Hollandsmeistarar og bikarmeistarar. 12.8.2007 13:09
Toulouse lagði Frakklandsmeistara Lyon Toulouse sem mætir Liverpool í forkeppni Meistaradeildarinnar í vikunni, gerði sér lítið fyrir og lagði Frakklandsmeistara Lyon þegar liðin mættust í frönsku úrvalsdeildinni í gær. 12.8.2007 13:06
Arsenal innbyrði sigur á síðustu mínútunum Nú rétt í þessu var að ljúka leik Arsenal og Fulham og Emirates vellinum í Norður-London. Arsenal sigraði 2-1 með tveimur mörkum á síðustu sex mínútum leiksins. Áður hafði David Healy komið Fulham yfir eftir slæm mistök Jen Lehman í marki Arsenal. Mörk Arsenal skoruðu Robin Van Persie úr vítaspyrnu á 83. mínútu og Aleksander Hleb á 89. mínútu 12.8.2007 12:43
Chelsea vann Birmingham naumlega Chelsea vann nú rétt í þessu nauman sigur á nýliðum Birmingham. Forsell kom Birmingham yfir áður en Malouda og Pizzaro svöruðu fyrir Chelsea. Kapo jafnaði þá fyrir Birmingham áður en Essien tryggði sínum mönnum sigur með góðu marki á 49. mínútu. Lokatölur 3-2 12.8.2007 12:06
Gerrard tryggði Liverpool sigur Litlu munaði að Liverpool tapaði tveimur stigum á Villa Park í dag eftir að Gareth Barry breytti stöðu leiksins í 1-1 skömmu fyrir leikslok. Það hefðu orðið afar ósanngjörn úrslit þar sem Liverpool stjórnaði leiknum lengst af og var mun betra liðið. Aðdáendur þeirra önduðu þó léttar skömmu síðar þegar Steven Gerrard tryggði sínum mönnum sigur með stórkostlegu skoti beint úr aukaspyrnu. Lokatölur því 2-1. Liverpool leiðir í hálfleik með einu marki gegn engu í leik sinum við Aston Villa sem nú fer fram fer á Villa Park í Birmingham. Það var Daninn Martin Laursen sem var svo óheppinn að koma Liverpool yfir með sjálfsmarki á 31. mínútu. Markið kom eftir fyrirgjöf frá Dirk Kuyt en skömmu áður hafi Fernando Torres látið verja frá sér í dauðafæri. 11.8.2007 17:04
Stjórarnir um úrslit dagsins: Sjáðu hvað knattspyrnustjórnarnir hafa að segja um leiki dagsins. Jol, Moyes, Redknapp, Sven og Sammy Lee á Vísi. Smelltu á meira hér fyrir neðan og fáðu að vita hvað gekk upp og hvað fór úrskeiðis í leikjum dagsins. 11.8.2007 18:21
Nwosu ekki meira með Fram í sumar Knattspyrnumaðurinn Henry Nwosu sem gekk til liðs við Fram í Landsbankadeildinni um síðustu mánaðarmót, leikur ekki meira með liðinu í sumar. Nwosu meiddist illa í leik Fram og ÍA á fimmtudagskvöld og hefur komið í ljós að leikmaðurinn er með slitið krossband. 11.8.2007 18:12
Hvetur Eið til að leita á önnur mið Yfirmaður knattspyrnudeildar hjá Barcelona hvetur Eið Smára Guðjohnsen til að leita á önnur mið. Hann segir ákvörðun Eiðs um að vera áfram hjá félaginu, slæma ákvörðun. 11.8.2007 18:01
Úrslit dagsins í Enska Manchester City vann góðan 2-0 sigur á West Ham rétt í þessu. Rolando Bianchi kom Man City yfir eftir 17. mínútna leik. Markið kom eftir frábæran einleik hjá Elano Gomer sem sendi hann svo fyrir markið á Bianchi sem potaði honum inn af stuttu færi. Bæði Gomer og Bianchi eru að leika sinn fyrsta leik fyrir Man City. West Ham reyndu hvað þeir gátu að jafna en City sló smiðshöggið á leikinn þegar Geovanni skoraði gott mark tveim mínútum fyrir leikslok. 11.8.2007 14:23
Hermann í byrjunarliðinu - Heiðar á bekknum Hermann Hreiðarsson er í byrjunarliði Portsmouth sem nú leikur á móti Derby County. Það blæs ekki byrlega fyrir Hermann og félaga því Matt Oakley kom Derby yfir eftir fimm mínútna leik. Heiðar Helguson situr á bekknum hjá Bolton sem leikur nú gegn Newcastle. 11.8.2007 14:13
Sunderland sigraði Tottenham Nú er nýlokið leik Sunderland og Tottenham. Honum lauk með 1-0 sigri nýliðana í Sunderland. Það var Michael Chopra sem skoraði sigurmarkið þegar þrjár mínútur voru komnar yfir venjulegan leiktíma. 11.8.2007 13:26
Spáð í spilin: Middlesbrough v Blackburn Hér er á ferðinni afar forvitnilegur leikur. Bæði liðin voru að berjast um miðja deild í fyrra og eru staðráðinn í að endurtaka ekki þann leik. Þau vilja stefna hærra. Af þessum tveimur liðum segja spekingar að Blackburn séu líklegri að ná takmarki sínu. Þeir hafa styrkt sig töluvert á meðan Gareth Southgate virðist eiga í vandræðum með að fóta sig á leikmannamarkaðnum. 11.8.2007 13:18