Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Í heildina erum við með jafn gott lið Evrópuævintýri Íslandsmeistara FH er lokið í ár eftir 4-2 tap samanlagt gegn hvítrússneska liðinu BATE. Síðari leiknum í gær lyktaði með 1-1 jafntefli þar sem Tryggvi Guðmundsson kom FH yfir úr víti í fyrri hálfleik sem hann fékk sjálfur, en BATE jafnaði metin á lokamínútunni þegar FH freistaði þess að sækja annað mark. 9.8.2007 00:45
Veigar lagði upp eitt mark í 3-0 sigri Stabæk Veigar Páll Gunnarsson lagði upp fyrsta mark Stabæk sem bar sigurorð af Tromsö, 3-0, á heimavelli í fjórðu umferð norsku bikarkeppninnar í kvöld. Daniel Nanneskog skoraði tvö mörk fyrir Stabæk og Somen Tchoyi eitt. 8.8.2007 19:39
Ronaldo verður tilbúinn þegar tímabilið byrjar Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri AC Milan, segir að brasilíski snillingurinn Ronaldo verði búinn að ná sér af meiðslum áður en tímabilið byrjar á Ítalíu. Ronaldo hefur verið meiddur síðan í lok síðasta tímabils og hefur ekki tekið þátt í neinum leikjum á undirbúningstímabili liðsins. 8.8.2007 18:56
Valencia að tryggja sér Zigic? Samkvæmt breskum fjölmiðlum hefur spænska liðið Valencia náð samkomulagi um kaup á hávaxna framherjanum Nikola Zigic frá Racing Santander. Talið er að umsamið verð á leikmanninum sé um 10,1 milljón punda. Fleiri félög hafa sýnt þessum serbneska landsliðsmanni áhuga, þ.á.m. Manchester City, Werder Bermen og Fenerbache. 8.8.2007 18:40
FH dottið úr undankeppni Meistaradeildar Evrópu FH féll í dag úr leik í undankeppni Meistaradeildar Evrópu eftir að hafa gert 1-1 jafntefli FC Bate í Hvíta-Rússlandi í dag. FH-ingar töpuðu fyrri leiknum í Kaplakrika 3-1 og samanleg staða því 4-2 fyrir FC Bate. Tryggvi Guðmundsson skoraði mark FH úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik en Platonov jafnaði fyrir heimamenn undir lok leiksins. Auðun Helgason fékk rautt spjald í fyrri hálfleik. 8.8.2007 18:02
Gunnlaugur: Eyðileggjum titilvonir Valsmanna í kvöld Gunnlaugur Jónsson, fyrirliði KR, segir í samtali við Vísi að gott andrúmsloft sé í herbúðum liðsins fyrir komandi átök í fallbaráttu Landsbankadeildarinnar. KR-ingar mæta Valsmönnum á heimavelli í kvöld og greinilegt að leikurinn er mjög mikilvægur fyrir bæði lið þar sem Valsmenn eru í harðri toppbaráttu í deildinni, en KR situr á botni deildarinnar. 8.8.2007 16:56
Campbell tilbúinn ef að kallið kemur frá McClaren Sol Campbell, varnarmaður Portsmouth, greindi frá því í gær að hann muni glaður svara kallinu ef að Steve McClaren muni óska eftir þjónustu hans í enska landsliðinu aftur. Campbell var sár eftir að honum var tilkynnt fyrir ári að hann væri dottinn úr landsliðshópnum, en McClaren las skilaboðin inn á talhólfið hans. 8.8.2007 16:11
Eiður Smári og Messi æfðu í gær - Eiður aðeins í 15 mínútur Eiður Smári Guðjohnsen æfði í gær á æfingasvæði Barcelona með Lionel Messi en þetta var fyrsta æfing Messi eftir þáttöku hans í Suður-Ameríkubikarnum í sumar. Þeir tóku létta æfingu þar sem þeir hlupu með bolta, æfðu sendingar og gerðu stuttar þolæfingar. Eiður Smári æfði þó aðeins í 15 mínútur þar sem hann er að jafna sig af hnémeiðslum, en Messi æfði einn í kjölfarið. 8.8.2007 15:39
Shay Given missir af byrjun tímabilsins Shay Given, markvörður Newcastle, mun missa af byrjun ensku úrvalsdeildarinnar vegna meiðsla. Given meiddist í vináttuleik við Sampdoria um síðustu helgi en ekki er enn vitað hversu slæm meiðslin eru, en talið er að meiðslin séu svipuð og hann átti í erfiðleikum með á síðustu leiktíð. 8.8.2007 14:51
Keane keypti dýrasta markvörð Bretlands Skotinn Craig Gordon varð í gær dýrasti markmaður Bretlandseyja og þriðji dýrasti markmaður í heimi þegar hann gekk til liðs við Sunderland frá Hearts í Skotlandi. 8.8.2007 13:30
Mikið í húfi fyrir KR og Val Tólfta umferð Landsbankadeildar karla í knattspyrnu hefst í kvöld með sannkölluðum stórleik. Þá tekur KR á móti Val en gríðarlega mikið er í húfi fyrir bæði lið. 8.8.2007 13:21
Fótboltamenn fluttir á sjúkrahús með niðurgang Fjórir leikmenn Norwich voru fluttir á sjúkrahús í gær eftir að fengið heiftarlega matareitrun í grillveislu sem eigandi liðsins, stjörnukokkurinn Delia Smith, stóð fyrir. 8.8.2007 11:43
Liverpool á eftir Brassa Spænskir fjölmiðlar segja frá því í dag að Liverpool hafi bæst í kapphlaupið um að klófesta brasilíska bakvörðinn Cicinho 8.8.2007 10:08
Robben færist nær Real Svo virðist sem félagaskipti Arjen Robben frá Chelsea til Real Madrid gangi í gegn eftir allt saman. Samkvæmt The Daily Telegraph hefur Real nú lagt 22.5 milljón punda tilboð á borðið. 8.8.2007 09:26
Sunderland kaupir markvörð fyrir metfé Sunderland hefur náð samkomulagi við skoska landsliðsmarkvörðinn Craig Gordon. Sunderland borgar Hearts níu milljónir punda fyrir leikmanninn sem er hæsta upphæð sem að lið á Bretlandseyjum hefur borgað fyrir markvörð. Þetta er einnig hæsta upphæð sem að Sunderland hefur borgað fyrir leikmann í sögu félagsins. 7.8.2007 21:49
Playboystúlka á Anfield Búlgarski U21 landsliðsmaðurinn Nikolay Mihaylov sem gekk til liðs við Liverpool í síðasta mánuði er kannski ekki þekktur fyrir að skora hjá andstæðingunum enda er hann markvörður. Hann er hins vegar mest þekktur fyrir að skora hjá kærustu sinni, Nikoleta Lozanova, enda var hún Leikfélagi ársins hjá Playboy í Búlgaríu árið 2006. 7.8.2007 21:25
Pesic hættur hjá Fram Stjórn Fram og Igor Pesic hafa komist að þeirri niðurstöðu að rifta samningi leikmannsins. Pesic hefur því lokið leik með Fram en hann kom til liðsins frá ÍA fyrir þetta leiktímabil. Hann lék níu leiki fyrir Fram í sumar og klúðraði meðal annars tveimur vítaspyrnum. Fram er í næstneðsta sæti Landsbankadeildarinnar með átta stig eftir 11 leiki. Félagið hefur fengið til sín tvo útlendinga á síðustu dögum, Nígeríumann og Dana. 7.8.2007 20:14
Solskjær ánægður með að fá Tevez til United Norðmaðurinn Ole Gunnar Solskjær, framherji Manchester United, segir að leikmenn liðsins séu mjög spenntir fyrir að fá Argentínumanninn Carlos Tevez til liðsins. Tevez bíður nú eftir að hann verði löglegur með liðinu og vonast er til að hann geti spilað gegn Reading á sunnudaginn. 7.8.2007 19:53
Aston Villa hefur viðræður við Gordon á morgun Skoska liðið Hearts hefur samþykkt tilboð frá Aston Villa í markvörðinn Craig Gordon og mun leikmaðurinn hefja samningsviðræður við Martin O´Neill, framkvæmdastjóra Aston Villa á morgun. Kaupverðið er talið vera um sjö milljónir punda. 7.8.2007 16:40
Mido: Þrjú lið á eftir mér Framherjinn sterki hjá Tottenham, Mido, segir í viðtali við The Daily Mail í dag að þrjú lið séu á höttunum eftir honum. 7.8.2007 16:37
Biðlar til stuðningsmanna um að hætta að syngja níðvísur Þjálfari skoska liðsins Glagow Rangers, Ally McCoist, biðlaði í dag til stuðningsmanna liðsins um að hætta að syngja níðvísur um kaþólikka. 7.8.2007 16:12
Erikson setur Mills, Dabo og Dickov á sölulista Sven-Göran Eriksson, framkvæmdastjóri Manchester City, segist vera tilbúinn að skoða tilboð sem berast í leikmennina Danny Mills, Ousmane Dabo og Paul Dickov. Erikson hefur fengið átta leikmenn til liðsins síðan hann tók við stjórn liðsins í júlí og ætlar losa sig við þremenningana þar sem hann telur þá ekki hafa það sem þarf til að koma liðinu í fremstu röð. 7.8.2007 16:09
Settu þitt mark á 4 4 2 4 4 2 með Guðna Bergs er ekkert minna en bylting í umfjöllun um enska boltann á Íslandi. Þátturinn verður á dagskrá öll laugardagskvöld og hefst skömmu eftir að flautað er til leiksloka í síðasta laugardagsleiknum. 7.8.2007 16:00
Máli Tevez seinkar enn Enn dragast félagaskipti Carlos Tevez í Manchester United á langinn. Talið var að frá þeim yrði gengið í dag og að Tevez gæti leikið með sínu nýja liði gegn Reading í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á laugardag. Sky Sports greindi frá því rétt í þessu að af því verði ekki og Tevez verði ekki löglegur með United um næstu helgi. 7.8.2007 15:07
Heinze ákveðinn í að komast frá United - Fer fyrir úrskurðarnefnd Argentínski bakvörðurinn Gabriel Heinze hefur farið fram á það að hann fái að flytja mál sitt frammi fyrir úrskurðarnefnd ensku úrvalsdeildarinnar, en Heinze vill komast frá Manchester United og ganga til liðs við Liverpool. 7.8.2007 14:38
Leroy Lita meiddist í rúminu Leroy Lita, framherji Reading, er nú í kapphlaupi við tímann svo að hann geti spilað fyrsta leik félagsins á tímabilinu gegn Manchester United á sunnudaginn. Lita er meiddur á fæti, en það er ekki vitað hvað er að honum. Hann vaknaði í rúminu sínu á sunnudaginn og var þá sárkvalinn. 7.8.2007 14:29
West Bromwich Albion kaupir Morrison frá Middlesbrough West Bromwich Albion hefur keypt miðjumanninn James Morrison frá Middlesbrough á 1,5 milljónir punda, en kaupverðið gæti hækkað í 2,2 milljónir punda. Morrison, sem er 21 árs gamall, skrifaði undir fjögurra ára samning við West Bromwich. 7.8.2007 14:18
Eggert Magnússon í viðtali við Guardian Eggert Magnússon, stjórnarformaður knattspyrnuliðsins West Ham, segir að þær tölur sem hafi verið nefndar varðandi launagreiðslur liðsins til leikmanna hafi verið slitnar úr öllu samhengi. Í viðtali við breska blaðið Gurdian hafnar hann þeirri gagnrýni að leikmenn fái of mikið greitt. 7.8.2007 11:04
Newcastle kaupir Enrique frá Villareal Newcastle hefur tryggt sér þjónustu spænska U21 árs landsliðsmannsins Jose Enrique frá Villareal. Newcastle borgar 6,3 milljónir punda fyrir leikmanninn en hann skrifaði undir fimm ára samning við félagið. Enrique er sjöundi leikmaðurinn sem Newcastle fær í sumar. 6.8.2007 18:08
McClaren ætlar að fljúga til Bandaríkjanna til að hitta Beckham Steve McClaren, knattspyrnustjóri enska landsliðsins, ætlar að fljúga til Bandaríkjanna á fimmtudaginn til að hitta David Beckham og meta styrkleika bandarísku deildarinnar. Beckham hefur ekki ennþá spilað í deildinni vegna meiðsla og er ekki líklegt að hann verði tilbúinn fyrir vináttulandsleikinn gegn Þýskalandi í næstu viku. 6.8.2007 17:33
Ballack: Ég er ekki á leiðinni til Madrid Miðjumaðurinn Michael Ballack hefur sagt að hann sé ánægður hjá Chelsea og að það sé ekkert til í þeim sögum að hann sé á leiðinni til Real Madrid. Ballack gekk til liðs við Chelsea síðasta sumar en fjölmiðlar á Spáni segja Real Madrid ætla að kaupa bæði Ballack og Arjen Robben frá Chelsea. 6.8.2007 16:25
Allardyce ver ákvörðun Newcastle um selja ekki Dyer Sam Allardyce, framkvæmdastjóri Newcastle, ver ákvörðun klúbbsins um að hætta við að selja Kieron Dyer til West Ham. Allt leit út fyrir að vera frágengið þegar Newcastle hætti skyndilega við að selja leikmanninn. Allardyce segist vera óánægður með vinnubrögð West Ham og Alan Curbishley, framkvæmdastjóra West Ham. 6.8.2007 15:47
Aston Villa og Sunderland á eftir markverði skoska landsliðsins Markvörður Celtic, Craig Gordon, verður ekki með liði sínu á mánudaginn í vináttuleik þar sem hann verður í Englandi að ræða við forráðamenn ensku Úrvalsdeildarliðin Aston Villa og Sunderland. Gordon er fyrirliði Celtic og einnig aðalmarkvörður skoska landsliðsins. Talið er að markvörðurinn kosti allt að tíu milljónum punda. 6.8.2007 14:58
Enska knattspyrnusambandið breytir reglum sem að lúta að leikmannaviðskiptum Deilan um Carlos Tevez varð til þess að enska knattspyrnusambandið hefur breytt reglum í tengslum við sölu á leikmönnum. 6.8.2007 14:48
John Terry verður frá í að minnsta kosti mánuð Það blæs ekki byrlega fyrir Chelsea í upphafi tímabils í enska boltanum. Komið hefur í ljós að fyrirliðinn John Terry verður frá keppni í að minnsta kosti mánuð en hann meiddist illa á hné á æfingu fyrir helgi. Alls eru níu leikmenn á sjúkralista Chelsea. Auk John Terry eru það Didier Drogba, Paulo Ferreira, Wayne Bridge, Salmon Kalou, Andriy Shevchenko, Claude Makalele, Michael Ballack og Arjen Robben. 6.8.2007 14:44
Lyon hóf titilvörnina með sigri Frakklandsmeistararnir í knattspyrnu, Olympique Lyon hófu titilvörnina í gær á sigri en keppni í frönsku úrvalsdeildinni hófst um helgina að loknu sumarfríi. 6.8.2007 14:40
Everton kaupir Baines fyrir fimm milljónir punda Enska Úrvalsdeildarliðið Wigan hefur staðfest að varnarmaðurinn Leighton Baines hafi ákveðið að ganga til liðs við Everton og fær Wigan 5 milljónir punda í sinn hlut fyrir leikmanninn. Baines fékk leyfi til að ræða við Davis Moyes, framkvæmdastjóra Everton, um helgina og þá náðust samningar þeirra á milli. 6.8.2007 14:28
Mark Hannesar dugði skammt Hannes Sigurðsson skoraði fyrir Viking í Stafangri þegar liðið mætti Sandefjörd í norsku úrvalsdeildinni í dag. Hannes kom Vikingi yfir á 9. mínútu en Sandefjörd skoraði síðan 4 mörk og vann leikinn 4-1. 5.8.2007 18:44
AC Milan vann í vítaspyrnukeppni. Evrópumeistarar AC Milan unnu rússneska liðið Lokomotiv í Moskvu í leik um þriðja sætið á knattspyrnumóti í Moskvu í dag. 5.8.2007 17:54
Alan Smith byrjar vel Alan Smith byrjar vel með nýja liðinu sínu Newcastle United. Newcastle er nú að spila við Sampdoria og staðan er 1-0. Smith skoraði markið á 59. mínútu. Fyrir helgi var Smith seldur frá Manchester United til Newcastle á 6 milljónir punda. 5.8.2007 15:38
Bendtner ekki nógu góður Þrátt fyrir að hafa skorað fyrir Arsenal í tveimur leikjum á undirbúningstímabilinu telur knattspyrnustjóri Arsenal, Arsene Wenger, að danski landsliðsmaðurinn Nicklas Bendtner sé ekki nógu góður til þess að vera í byrjunarliðinu. 5.8.2007 14:46
Leeds fær markmann Danski markvörðurinn Casper Ankergren er ætlað að leysa markmannsvandræði enska 2. deildarliðsins Leeds United. Í gær gekk hann frá þriggja ára samningi við Leeds sem þarf að greiða Bröndby 3 milljónir danskra króna eða 35 milljónir íslenskra króna. 5.8.2007 14:41
Manchester United vann Samfélagsskjöldinn Manchester United vann Chelsea í leik um Samfélagsskjöldinn eftir vítaspyrnukeppni á Wembley í dag. Markvörður Manchester Unied, Edvin van der Sar, varði þrjár vítaspyrnur 5.8.2007 13:41
Úrvalsdeildarlið keyptu sóknarmenn fyrir 163 milljónir punda í sumar. 30 sóknarmenn hafa verið keyptir til úrvalsdeildarliða í sumar og verðið fyrir pakkann er 163,2 milljónir punda eða tæpir 20,8 milljarðar króna. 18 félög í úrvalsdeild hafa keypt sóknarmenn, aðeins Everton og Reading hafa ekki krækt sér í sóknarmann en Everton er þó sagt hafa boðið 11 milljónir í Argentínumanninn Luis Gonzalez sem reyndar er miðjumaður. Enska blaðið Sunday Telegraph greinir frá þessu í dag. 5.8.2007 11:30
Ráðist á Ravelli í Gautaborg Fyrrverandi markvörður sænska landsliðsins í fótbolta, Thomas Ravelli, varð fyrir árás í gær í skemmtigarðinum Liseberg í Gautaborg. Sá sem réðist á Ravelli hafði skömmu áður verið hent út af veitingastaðnum Tyrolen. Fyrir utan rakst hann á Thomas Ravelli og sló til hans. Ravelli komst óskaddaður frá árásinni sem minnir óneitanlega á tilefnislausa árás á landsliðsfyrirliðann Eið Smára Guðjohnsen í Reykjavík í síðustu viku. Ravelli gerir lítið úr atvikinu í samtali við sænska blaðið Expressen. Líkt og landsliðsfyrirliðinn ákvað Ravelli að kæra ekki til lögreglu. 5.8.2007 09:55
Vilja sjá Þórólf hugsa líka um konurnar: „Gæti gert þetta að ríkasta liði landsins“ Íslenski boltinn