Fleiri fréttir

Brynjar skoraði

Brynjar Björn Gunnarsson skoraði í dag fyrir Reading þegar liðið vann Wolves 3-2 í æfingaleik á Molineux heimavelli Úlfana í dag. Seyi Olofinjana kom Wolves í 1-0 en Stephen Hunt jafnaði metin. Brynjar kom Reading yfir þegar hann skoraði á 32. mínútu.

Keypti leikmenn fyrir 5 milljarða án þess að sjá þá spila

Knattspyrnustjóri Manchester City, Sven Göran Eriksson, hefur verið duglegur að kaupa leikmenn undanfarna daga. Hann er búinn að kaupa leikmenn fyrir tæpa 5 milljarða króna og marga þeirra hefur enn hann ekki séð spila. Sven Göran viðurkennir að hann hafi kíkt á myndbandsspólur og séð til leikmanna þar en ekki séð þá í leik.

Rangers byrjar vel

Keppni í skosku úrvalsdeildinni hófst í dag. Glasgow Rangers, sem hefur 51 sinni orðið Skotlandsmeistari byrjaði á því að vinna Inverness Caledonian 3-0 á útivelli. Fyrirliðinn Barry Ferguson skoraði tvö markanna og Spánverjinn Nacho Novo eitt. Skotlandsmeistarar Glasgow Celtic hefja titilvörn sína á morgun en þá mætir liðið Kilmarnock á heimavelli.

Leeds byrjar með 15 stig í mínus

Hið fornfræga fótboltafélag Leeds United fékk í gær heimild til þess að hefja leik í 3. efstu deild á Englandi. Leiktíðin hefst eftir viku en Leeds byrjar boltasparkið með 15 stig í mínus.

Teves ódýrasti framherjinn

Darren Bent sóknarmaður Charlton var seldur til Tottenham fyrir 16 milljónir punda. Það er átta sinnum hærri upphæð en West Ham fær fyrir Carlos Teves. Enn liggur ekki fyrir hvað Manchester United þarf að borga fyrir Argentínumanninn en nokkrir sóknarmenn hafa verið keyptir til liða í ensku úrvalsdeildinni í sumar fyrir miklu hærri fjárhæð en 2 milljónir punda.

Vissi ekki að hann hefði skorað

Paulo José de Oliveiera, brasilíski framherjinn hjá Häcken sem skoraði sigurmarkið gegn KR í Evrópuleiknum á fimmtudaginn, missti meðvitund í rúma mínútu þegar hann lenti í samstuði við markvörð KR. Hann var í kjölfarið fluttur á sjúkrahús.

Hataði Benitez

Neil Warnock, fyrrum stjóri Sheffield United, lýsir því í nýútkominni ævisögu sinni hversu mikið hann hataði kollega sinn hjá Liverpool, Rafael Benitez, eftir lokasprett síðasta tímabils. Liverpool tapaði fyrir Fulham í næstsíðustu umferð deildarinnar og segir Warnock að þau úrslit hefðu orðið Sheffield að falli.

Sýnd veiði en ekki gefin

Andstæðingar ensku liðanna Liverpool og Arsenal í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu eru með þeim erfiðari sem hægt var að dragast á móti. Sigurvegarnir úr einvígi FH og FC Bate mætir Zaglabie Lubin eða Staua Búkarest.

Van Gaal líkir tilboði Middlesbrough við þjórfé

Louis van Gaal, knattspyrnustjóri AZ Alkmaar, hefur engan áhuga á að missa íslenska bakvörðinn Grétar Rafn Steinsson frá félaginu fyrir eitthvað klink, eins og hann orðaði það sjálfur í samtali við enska fjölmiðla í gær. Van Gaal gerði lítið úr nýlegu tilboði Middlesbrough í leikmanninn og líkti því við þjórfé.

Verð að fara að skora fyrir Breiðablik

Fanndís Friðriksdóttir 17 ára stelpa úr Breiðabliki varð markahæsti leikmaður Evrópumóts 19 ára landsliða kvenna sem fram fór hér á landi og lauk með sigri Þjóðverja um síðustu helgi. Fanndís skoraði jafnmörg mörk og þær Mary-Laure Delie hjá Frakklandi og Ellen White hjá Englandi en lék færri leiki en þær báðar.

Eiður telur sig eiga góða möguleika

Enskir fjölmiðlar héldu áfram að bendla Eið Smára Guðjohnsen við sölu til West Ham í gær eftir að Íslendingafélagið samþykkti tveggja milljón króna greiðslu frá umboðsmanninum Kia Joorabchian til að losa argentínska framherjann Carlos Tevez undan samningi við félagið.

Alex fær atvinnuleyfi á Englandi

Brasilíumanninum Alex hefur verið veitt atvinnuleyfi á Englandi og getur því gengið til liðs við Chelsea. Chelsea hefur lengi beðið eftir að fá leikmanninn frá PSV og getur nú loks reynt að semja við varnarmanninn sterka.

KR úr leik eftir tap á heimavelli

KR tapaði í kvöld fyrir sænska liðinu Häcken í Frostaskjóli. Leikurinn fór 1-0 fyrir gestina og þar með er KR úr leik í Evrópukeppni félagsliða þar sem fyrri leikurinn fór 1-1 í Svíþjóð. KR-ingar spiluð góðan bolta en voru óheppnir að fá á sig mark þegar aðeins 7 mínútur voru til leiksloka. KR hefði nægt markalaust jafntefli til að komast áfram. Þetta var fyrsti leikur Loga Ólafssonar sem þjálfari KR.

Frank Lampard er tábrotinn

Miðjumaðurinn Frank Lampard hjá Chelsea er tábrotinn á vinstri fæti og verður frá keppni á næstunni, en ekki er vitað hversu lengi hann verður frá. Talið er að táin hafi brotnað á fyrstu æfingu Chelsea í Bandaríkjunum fyrir þremur vikum, en það var ekki fyrr en í dag sem að hann fór í röntgenmyndatöku og í ljós kom að táin væri brotin.

Tevez-málinu loksins að ljúka?

Búist er við því að forráðamenn West Ham muni tilkynna á morgun að þeir hafi samþykkt að leysa Carlos Tevez undan samningi. Það þýðir að nánast er öruggt að kappinn fari til Manchester United áður en leikmannaglugginn lokar.

Ármann Smári og Kristján Örn skoruðu í sigri Brann

Norska liðið Brann sigraði Camarthen Town 6-3 í undankeppni Evrópukeppni félagsliða í dag. Brann vann fyrri leikinn 8-0 og því samanlagt 14-3 eftir leikina tvo. Ármann Smári Björnsson og Kristján Örn Sigurðsson skoruðu sitthvort markið fyrir Brann, en þeir skoruðu einnig báðir í fyrri leiknum.

Arsenal vann Lazio

Arsenal byrjaði vel á Amsterdam mótinu í dag en liðið sigraði Lazio með tveimur mörkum gegn engu. Daninn Nicklas Bendtner kom skyttunum yfir á 18. mínútu með góðu marki. Goran Pandev jafnaði fyrir Lazio á 25. mínútu en Króatinn Eduardo da Silva tryggði Lundúnaliðinu sigur með góðu skallamarki á 54. mínútu eftir hornspyrnu.

Keflavík tapaði í Danmörku og er fallið úr leik

Keflavík tapaði fyrir FC Midtjylland í dag 2-1 í seinni leik liðanna í undankeppni Evrópukeppni félagsliða. Keflavík vann fyrri leikinn á heimavelli 3-2 og staðan því samanlagt 4-4 eftir leikina tvo. Keflavík er þar með dottið úr leik því að FC Midtjylland skoraði fleiri mörk á útivelli.

Reading kaupir miðjumann fyrir metfé

Íslendingaliðið Reading hefur fest kaup á Emerse Fae frá Nantes fyrir 2,5 milljónir punda, en það er það mesta sem að félagið hefur borgað fyrir leikmann. Fae er 23 ára miðjumaður frá Fílabeinsströndinni. Íslensku landsliðsmennirnir Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson leika með Reading.

Evrópumótið í mýrarknattspyrnu haldið um helgina

Evrópumótið í mýrarknattspyrnu verður haldið um helgina á Ísafirði. Þetta er í fjórða sinn sem að mótið verður haldið og verður umgjörðin flottari en nokkru sinni fyrr. Leikið verður á í það minnsta fjórum knattspyrnuvöllum og hafa á þriðja hundrað manns skráð sig.

Finnan skrifar undir nýjan samning við Liverpool

Varnarmaðurinn Steve Finnan hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Liverpool. Finnan er 31 árs gamall og var keyptur frá Fulham árið 2003 fyrir 3,5 milljónir punda. Finnan var búinn að samþykkja samninginn í síðasta mánuði en gat ekki skrifað undir strax vegna þátttöku Liverpool í Asíubikarnum.

Eduardo da Silva fær leikheimild með Arsenal

Króatinn Eduardo da Silva hefur fengið heimild til að spila með Arsenal eftir að félagið. Upphaflega stóð til að leikmaðurinn fengi ekki heimild vegna þess að hann hafði ekki spilað 75% af landsleikjum Króatíu síðastliðin tvö ár, en hann lék aðeins 50% leikja á því tímabili.

Joey Barton ákærður fyrir líkamsárás

Joey Barton, leikmaður Newcastle, hefur verið ákærður fyrir líkamsárás. Hann er kærður fyrir að berja félaga sinn Ousmane Dabo á æfingu þann 1. maí síðasliðinn þegar hann var leikmaður Manchester City. Barton var handtekinn í maí vegna árásarinnar en sleppt gegn tryggingu. Hann á að mæta fyrir rétt þann 9. ágúst. Dabo endaði á spítala eftir árásina vegna meiðsla á gagnauga, nefi og vörum.

City kaupir Brasilíumanninn Elano

Manchester City hefur tilkynnt að félagið hafi fest kaup á brasilíska miðjumanninum Elano frá Shakhtar Donetsk. Elano er þriðji leikmaðurinn sem félagið kaupir í dag, því áður hafði félagið tryggt sér þá Javi Garrido og Vedran Corluka. Elano kostar félagið átta milljónir punda og hefur City því eytt nálægt 20 milljónum punda í dag.

Keflvíkingar leika í dag síðari leik sinn gegn danska liðinu Midtjylland

Keflvíkingar leika í dag síðari leik sinn gegn danska liðinu Midtjylland. Búist er við 10 þúsund áhorfendum á leikinn sem fram fer í Danmörku. Keflvíkingar unnu fyrri leik liðanna sem fram fór fyrir hálfum mánuði í Keflavík. Danirnir náðu þá tveggja marka forystu en Keflvíkingar skoruðu þrjú mörk og unnu mikilvægan 3-2 sigur.

KR mætir Häcken í kvöld

KR-ingar taka á móti sænska liðinu Häcken í kvöld en þetta er síðari leikur liðanna í fyrstu umferð Evrópukeppninnar. Liðin gerðu 1-1 jafntefli í fyrri viðureign liðanna í Gautaborg fyrir hálfum mánuði. Svíarnir komust í 1-0 eftir 10 mínútna leik, en Guðmundur Pétursson jafnaði metin fyrir KR á 68. mínútu og ættu KR -ingar því að teljast í ágætis málum fyrir leikinn í dag.

Sagan heldur áfram með Tevez

West Ham framhaldssagan heldur áfram í dag. Ráðgjafar Carlosar Tevez og West Ham funda í dag og reyna að komast að utanréttarsamkomulagi. Takist það ekki verður réttað í málinu þann 22. ágúst.

Newcastle og United ná samkomulagi um Alan Smith

Newcastle hefur náð samkomulagi um kaupverð á framherjanum Alan Smith. Talið er að Newcastle borgi sex milljónir punda fyrir leikmanninn ef að hann skrifar undir samning við félagið. Smith hefur verið orðaður við Middlesbrough, Everton, West Ham og Sunderland en nú er Newcastle líklegast til að hreppa hnossið.

Logi lofar sókndjarfara liði

Logi Ólafsson nýráðinn þjálfari KR segir að búast megi við sókndjarfara liði frá stjórnartíð forvera síns. Fyrsta verkefni Loga með KR liðið verður í Evrópukeppni félagsliða á KR velli í kvöld.

Amsterdam mótið hefst í dag

Hið árlega Amstardam mót í knattspyrnu hefst í dag en mótið er eitt það virtasta á undirbúningstímabili evrópskra knattspyrnuliða. Eins og ávalt er gestgjafinn Ajax og keppa alls fjögur lið um titilinn að venju.

Manchester United tapaði fyrir Inter

Englandsmeistararnir frá Manchester töpuðu í kvöld fyrir Ítalíumeisturum Inter. Leikurinn fór 3-2 og skoraði Wayne Rooney fyrra mark Manchester áður en Adriano skoraði sjálfsmark með skalla eftir aukaspyrnu frá Christiano Ronaldo. Davis Suazo skoraði tvívegis fyrir Inter og Zlata Ibrahimovic eitt.

Dyer fær grænt ljós til að ræða við West Ham

Miðjumaðurin Kieron Dyer hefur fengið grænt ljós til að hefja samningsviðræður við West Ham eftir að Newcastle og West Ham komust að samkomulagi um kaupverð á kappanum. Ekki er gefið upp hver upphæðin er en Newcastle hafði áður farið fram á fjórar milljónir punda fyrir leikmanninn.

FH-ingar lágu í Kaplakrikanum

FH-ingar töpuðu í kvöld fyrir Bate frá Hvíta-Rússlandi í fyrri leik liðanna í 2. umferð Meistaradeildar Evrópu, 1-3. FH-ingar komust yfir á 3. mínútu með marki frá Matthíasi Vilhjálmssyni en Hvít-Rússarnir náðu að jafna á 31. mínútu. Staðan var 1-1 í hálfleik, en leikmenn Bate náðu að setja tvö mörk í seinni hálfleik.

KR sigraði Breiðablik.

KR sigraði Breiðablik í kvöld í 9. umferð Landsbankadeildar kvenna með sex mörkum gegn tveimur. KR-ingar leiddu 2-0 í hálfleik. Með sigrinum er KR komið við hlið Vals á toppnum með 25 stig en Valur er með betri markatölu. Breiðablik er í 3. sæti með 13 stig.

1-1 í Kaplakrika

Flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign FH og Bate í fyrri leik liðanna í 2. umferð Meistaradeildar Evrópu. Staðan er 1-1, en FH-ingar komust yfir á 3. mínútu þegar Matthías Vilhjálmsson skoraði eftir góða sókn. Eftir markið náðu leikmenn Bate taki á leiknum og voru mun meira með boltann. Á 31. mínútu jöfnuðu þeir leikinn með góðu marki en Daði Lárusson var nálægt því að verja.

FH mætir Bate í Kaplakrika í kvöld

Íslandsmeistarar FH leika fyrri leik sinn í annarri umferð forkeppni Meistaradeildarinnar í kvöld. FH-ingar mæta Bate Borisov frá Hvíta-Rússlandi og hefst leikurinn kl. 19:00 á Kaplakrikavelli.

Casper gerir samning við Breiðablik út 2008

Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur framlengt samning við markvörðinn Casper Jacobsen sem verið hefur hjá félaginu frá því í byrjun júní þar sem Hjörvar Hafliðason þurfti að gangast undir aðgerð vegna meiðsla. Samningurinn gildir út keppnistímabilið 2008.

City að kaupa króatískan varnarmann fyrir 8,7 milljónir punda?

Samkvæmt fréttamiðlum í Króatíu hefur Manchester City náð samkomulagi við Dinamo Zagreb um kaup á varnarmanninum Vedran Corluka. Kaupverðið er talið vera um 8,7 milljónir punda. Corluka þarf þó að fá atvinnuleyfi áður en gengið er frá kaupunum.

United býst við að fá Beattie

Bryan Robson, framkvæmdastjóri Sheffield United, er vongóður um að framherjinn James Beattie samþykki að ganga til liðs við Sheffield frá Everton eftir að samingsviðræður þeirra á milli áttu sér stað. Liðin hafa samþykkt kaupverð á kappanum, en Everton er talið fá um fjórar milljónir punda fyrir framherjann.

Nesta hættur með landsliðinu

Ítalski varnarmaðurinn Alessandro Nesta hefur tilkynnt að hann sé hættur að spila fyrir landsliðið. Nesta, sem er 31 árs gamall, vann meistardeildina á síðasta tímabili með AC Milan eftir sigur á Liverpool, og hann var einnig hluti af landsliði Ítala sem urðu heimsmeistarar síðasta sumar.

Einn leikur í Landsbankadeild kvenna í kvöld

Einn leikur verður leikinn í 9. umferð Landsbankadeildar kvenna í kvöld. Breiðablik heimsækir KR í vesturbæinn og hefst leikurinn klukkan 17:30. KR er í öðru sæti deildarinnar og Breiðablik í því þriðja en talsverður munur er á liðunum í stigafjölda. Leikurinn er mjög þýðingamikill fyrir KR því að með sigri komast þær við hlið Vals á toppi deildarinnar.

Gallas vill verða næsti fyrirliði Arsenal

Franski varnarmaðurinn William Gallas segist vilja verða næsti fyrirliði Arsenal. Arsene Wenger, framkvæmdastjóri klúbbsins, hefur nefnt Gallas sem einn af þeim þremur sem koma til greina til að taka við fyrirliðabandinu frá Thierry Henry sem gekk til liðs við Barcelona fyrr í sumar, en Gilberto Silva og Kolo Toure koma einnig til greina.

City nær samkomulagi við Juventus um kaupverð á Bojinov

Manchester City hefur náð samkomulagi við Fiorentina um kaupverð á búlgarska framherjanum Valeri Bojinov. Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum borgar City 5,7 milljónir fyrir kappann. Bojinov, sem er aðeins 21 árs gamall, gekk til liðs við Fiorentina frá Lecce árið 2005 fyrir 10 milljónir punda, en þar fékk hann lítið að spila.

Alan Curbishley áhugasamur um Smith

Alan Curbishley, framkvæmdastjóri West Ham, hefur nú hafið viðræður við framherjann Alan Smith hjá Manchester United, í von um að krækja loksins í leikmanninn en Smith hefur verið lengi undir smásjá West Ham. Alan Smith er þó talinn vilja vera áfram á Old Trafford en hann hann getur nú valið á milli fjögurra liða eða Middlesbrough, Newcastle, Everton og nú West Ham.

Sjá næstu 50 fréttir