Fleiri fréttir

Newcastle leiðir 4-1 í hálfleik

Newcastle hefur farið á kostum í fyrri hálfleik gegn AZ Alkmaar í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða. Grétar Rafn Steinsson varð fyrir því óláni að koma heimamönnum yfir með sjálfsmarki í byrjun leiks og síðan hafa þeir Obafemi Martins (2) og Kieron Dyer komið Newcastle í 4-1 eftir að Shota Arveladze minnkaði muninn í 3-1 með glæsilegu marki. Leikurinn er sýndur beint á Sýn.

Newcastle að sundurspila AZ Alkmaar

Newcastle er komið í 3-0 eftir aðeins 23 mínútur gegn AZ Alkmaar í Evrópukeppni félagsliða. Leikmenn Newcastle fara á kostum í leiknum sem sýndur er beint á Sýn. Grétar Rafn Steinsson skoraði sjálfsmark eftir 8 mínútur og þeir Kieron Dyer og Obafemi Martins skoruðu svo annað og þriðja markið með stuttu millibili.

Alex stal senunni - Arsenal úr leik

Varnarmaðurinn Alex hjá PSV Eindhoven var maður kvöldsins í Meistaradeild Evrópu þegar hann skoraði bæði mörkin í 1-1 jafntefli Arsenal og PSV í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum. Alex skoraði sjálfsmark á 58. mínútu en tryggði PSV svo áfram í keppninni með glæsilegu skallamarki á þeirri 83.

Makaay skoraði eftir 10 sekúndur og setti met

Hollenski framherjinn Roy Makaay hjá Bayern Munchen setti nýtt met í Meistaradeild Evrópu í kvöld þegar hann skoraði fyrsta mark liðsins eftir aðeins 10 sekúndur. Hér fyrir neðan er listi yfir þá sem hafa verið fljótastir að skora í sögu Meistaradeildarinnar.

Wembley afhentur á föstudaginn?

Svo gæti farið að verktakarnir sem staðið hafa að byggingu nýja Wembley leikvangsins í Lundúnum afhendi lyklana að nýju byggingunni á föstudag. Breska sjónvarpið greinir frá þessu í kvöld.

Tap fyrir Ítalíu

Íslenska kvennalandsliðið tapaði í kvöld 2-1 fyrir því ítalska í fyrsta leik sínum í Algarve bikarnum sem fram fer í Portúgal. Ítalska liðið skoraði sigurmarkið í uppbótartíma, en áður hafði Margrét Lára Viðarsdóttir jafnað leikinn úr vítaspyrnu. Þetta var fyrsti leikur íslenska liðsins undir stjórn Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar.

Houllier: Ég fer hvergi

Knattspyrnustjórinn Gerard Houllier segist ekki ætla að segja starfi sínu hjá Lyon lausu þrátt fyrir að lið hans hafi verið illa leikið af Roma á heimavelli sínum í gær. Margir spáðu því að Lyon færi langt í Meistaradeildinni þetta árið, en liðið var arfaslakt gegn Rómverjunum í gær og steinlá 2-0 í fyrsta tapi sínu á heimavelli síðan 2002 í keppninni.

Henry á bekknum hjá Arsenal

Thierry Henry verður á varamannabekk Arsenal þegar liðið tekur á móti PSV í Meistaradeildinni í kvöld. Þá verður Ryan Giggs á bekknum hjá Manchester United sem tekur á móti Lille. Bæði lið verða í eldlínunni í beinum útsendingum sjónvarpsstöðva Sýnar.

Ótti og trú

Gordon Strachan, þjálfari Celtic, segir sýna menn verða að hafa rétta blöndu af ótta og trú á sjálfa sig í kvöld þegar þeir sækja AC Milan heim í Meistaradeildinni. Fyrri leiknum í Skotlandi lauk með markalausu jafntefli.

Benitez: Carragher á að vera í byrjunarliði Englendinga

Rafa Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að frammistaða varnarmannsins Jamie Carragher í leikjunum gegn Barcelona í Meistaradeildinni hafi undirstrikað að hann eigi að vera fastamaður í vörn enska landsliðsins.

Gerrard fær skaðabætur

Steven Gerrard, fyrirliða Liverpool, fékk í dag óuppgefna peningaupphæð frá London Sport Magazine í kjölfar skaðabótamáls sem hann höfðaði á hendur vefsíðu þess vegna fréttar sem það birti um hann á sínum tíma.

Cannavaro verður ekki með Real í kvöld

Miðvörðurinn Fabio Cannavaro getur ekki leikið með Real Madrid í kvöld þegar liðið sækir Bayern Munchen heim í síðari viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Cannavaro meiddist á nára á æfingu í gær og þetta þýðir að þeir Ivan Helguera og Sergio Ramos munu líklega standa í hjarta varnarinnar og hinn ungi Miguel Torres tekur bakvarðarstöðu Ramos.

Veron aftur í argentínska landsliðið

Miðjumaðurinn Juan Sebastian Veron hefur verið kallaður aftur inn í landslið Argentínu í fyrsta skipti síðan árið 2003. Veron fer fyrir sérstöku liði sem fer í æfingabúðir í Argentínu í vikunni en það er aðeins skipað leikmönnum sem spila í heimalandinu.

Mancini: Navarro er skræfa

Roberto Mancini, þjálfari Inter Milan, segir að David Navarro hjá Valencia sé skræfa. Þetta sé eina orðið sem hægt sé að nota til að lýsa manni sem hagar sér eins og Navarro gerði í gær.

Valencia og Inter kærð vegna ólátanna í gær

Evrópska knattspyrnusambandið hefur kært Valencia og Inter Milan vegna slagsmálanna sem brutust út eftir leik liðanna í gær. Þá hafa fimm leikmenn úr liðunum verið kærðir sérstaklega fyrir alvarleg agabrot.

Platini ráðalaus þegar kemur að óeirðum í knattspyrnu

Michel Platini, nýkjörinn forseti evrópska knattspyrnusambandsins, segst ráðþrota þegar kemur að bulluskap og óeirðum sem verið hafa mjög áberandi í knattspyrnuheiminum á síðustu vikum. Hann segir málið að stórum hluta í höndum lögregluyfirvalda.

Ole Gunnar ætlar að snúa aftur í þessum mánuði

Norski markahrókurinn Ole Gunnar Solskjær segist viss um að hann verði klár í slaginn á ný með Manchester United í lok þessa mánaðar eftir að hann fór í lítinn hnéuppskurð á dögunum. United-liðið er fáliðað í framlínunni þessa dagana.

Stuðningsmaður Celtic lést í Mílanó

Stuðningsmaður skoska liðsins Glasgow Celtic lét lífið í Mílanó í gærkvöldi eftir að leigubíll ók á hann á götu skammt frá San Siro leikvangnum. Maðurinn var 36 ára gamall og ælað ásamt fjölda landa sinna að fylgja liði Celtic á síðari leikinn gegn AC Milan í meistaradeildinni í kvöld.

Koeman hleður pressu á Arsenal

Ronald Koeman, þjálfari PSV Eindhoven, segir að ekkert megi útaf bera hjá Arsenal í kvöld þegar liðin mætast í síðari leik sínum í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Hollenska liðið hefur 1-0 forystu fyrir leikinn á Emirates í kvöld.

Navarro biðst afsökunar

David Navarro, leikmaður Valencia, hefur beðist afsökunar á framkomu sinni í leiknum gegn Inter í Meistaradeildinni í gær þar sem hann hljóp inn á völlinn og kýldi Nicolas Burdisso hjá Inter. Völlurinn logaði í slagsmálum eftir að flautað var af þar sem spænska liðið fór áfram í keppninni.

United og Bayern í góðum málum

Manchester United og Bayern Munchen eru í mjög góðum málum í Meistaradeildinni. Henrik Larsson er búinn að koma United í 1-0 gegn Lille á Old Trafford og þá var Brasilíumaðurinn Lucio að koma Bayern í 2-0 gegn Real Madrid. Liðin eru því í afar vænlegri stöðu þegar aðeins 15 mínútur eru til leiksloka.

Arsenal leiðir á sjálfsmarki

Arsenal er komið í 1-0 gegn PSV á Emirates í Meistaradeildinni. Markið var sjálfsmark frá varnarmanninum Alex, en það var einmitt hann sem skoraði sjálfsmark og sendi lið sitt úr keppni síðast þegar liðin mættust í keppninni. Staðan í rimmunni er því orðin 1-1. Enn er ekkert mark komið í öðrum leikjum kvöldsins síðan Roy Makaay kom Bayern í 1-0 gegn Real Madrid.

Martröð í byrjun hjá Real Madrid

Keppni í Meistaradeild Evrópu hefst með látum í kvöld, en framherjinn Roy Makaay hjá Bayern Munchen hefur eflaust farið langt með að setja nýtt met í keppninni þegar hann kom Bayern í 1-0 gegn Real Madrid eftir aðeins um 10 sekúndna leik. Eins og staðan er núna er Bayern því á leið áfram í keppninni á útimörkum.

Rijkaard: Liverpool átti skilið að fara áfram

Frank Rijkaard, þjálfari Barcelona, var auðmjúkur eftir að hans menn féllu úr keppni í Meistaradeildinni í kvöld þrátt fyrir 1-0 sigur á Anfield. Hann sagði Liverpool eiga skilið að fara áfram og hrósaði enska liðinu fyrir gott skipulag og baráttu.

Carragher: Við slógum besta lið í heimi úr keppni

Varnarmaðurinn Jamie Carragher hjá Liverpool var í góðum anda í kvöld eftir að Liverpool sló Barcelona út úr Meistaradeildinni þrátt fyrir tap á heimavelli. Hann sagði þessa niðurstöðu líklega besta afrek Liverpool í Meistaradeildinni fyrir utan það að lyfta sjálfum bikarnum.

Liverpool og Chelsea í 8-liða úrslit

Liverpool og Chelsea tryggðu sér í kvöld sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Barcelona lagði Liverpool 1-0 á Anfield með marki Eiðs Smára Guðjohnsen, en enska liðið fer áfram á mörkum skoruðum á útivelli. Chelsea lagði Porto 2-1 með mörkum frá Arjen Robben og Michael Ballack.

Cannavaro: Dauðadæmdir ef við dettum í vörn

Miðvörðurinn Fabio Cannavaro hjá Real Madrid segir sína menn ekki ætla að falla í þá gryfju að verja forskot sitt þegar þeir sækja Bayern Munchen heim annað kvöld. Real hefur 3-2 forystu eftir fyrri leikinn á Spáni en liðið hefur ekki riðið feitum hesti frá síðustu viðureignum sínum í Munchen.

Ekkert hrísgrjónarusl

Kínverskir knattspyrnumenn verða að hætta að lifa á eintómum kolvetnum og fara að borða nautakjöt og drekka mjólk ef þeir ætla sér að vera samkeppnishæfir á knattspyrnuvellinum. Þetta er niðurstaða vísindalegrar rannsóknar sem ráðgjafar kínverska þingsins létu gera á dögunum, en fjölmiðlafár hefur verið þar í landi síðan Ólympíulið Kínverja var leikið grátt í slagsmálum við leikmenn QPR í vináttuleik fyrir nokkru.

Mourinho: Hvaða pressa?

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segist ekki finna fyrir pressu í starfi frá neinum nema sjálfum sér og segir að ef hann yrði rekinn frá Chelsea myndi hann taka að sér nýtt starf eftir tvær vikur - og ríkur í þokkabót.

Henry hugsanlega í byrjunarliði Arsenal

Thierry Henry verður líklega í byrjunarliði Arsenal þegar það tekur á móti PSV í síðari leik liðanna í Meistaradeildinni annað kvöld. Henry hefur verið mjög tæpur vegna meiðsla en Arsene Wenger upplýsti í dag að hann væri klár í byrjunarliðið. Hann segir þó nokkra áhættu fólgna í því að láta Henry spila og hefur enn ekki gert upp hug sinn.

Saha verður ekki með gegn Lille

Franski framherjinn Louis Saha verður ekki með liði Manchester United þegar það mætir Lille öðru sinni í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar annað kvöld. Félagi hans Wayne Rooney hefur hinsvegar fengið grænt ljós á að spila leikinn. Ole Gunnar Solskjær verður frá í þrjár vikur og Patrice Evra er talinn mjög tæpur eftir að hann gat ekki tekið þátt í lokaæfingu liðsins.

Rijkaard: Það er gott að vera alvitur

Frank Rijkaard, þjálfari Barcelona, brást hinn versti við þegar hann heyrði að Rafa Benitez kollegi sinn hjá Liverpool væri þegar búinn að spá því hvaða leikmenn yrðu í byrjunarliði Barcelona í leik þeirra í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

Benitez: Barcelona mun sækja stíft

Rafael Benitez, stjóri Liverpool, segist vera tilbúinn undir stórsókn Barcelona í kvöld þegar liðin mætast í síðari leik sínum í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á Anfield. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn og hefst útsending klukkan 19:30.

McCarthy tippar á Chelsea

Framherjinn Benni McCarthy hjá Blackburn segist eiga von á því að Chelsea vinni sigur í Meistaradeildinni í vor. McCarthy var í liði Porto sem vann keppnina undir stjórn Jose Mourinho árið 2004.

Myndband af leik West Ham og Tottenham til rannsóknar

Lögreglan í Lundúnum hefur nú tekið myndband til rannsóknar sem tekið var upp á leik West Ham og Tottenham um síðustu helgi, en á myndbandinu syngja stuðningsmenn West Ham lög sem þykja bera vott um gyðingahatur. Myndbrotið var til sýninga á netinu en hefur nú verið tekið úr umferð.

FH, KR og HK á sigurbraut

FH, KR og HK unnu öll leiki sína í Lengjubikarnum um helgina. FH vann 2-1 sigur á Val, KR vann Þrótt 2-0 og HK vann Grindavík 1-0.

Rannsaka meint kynþáttahatur stuðningsmanna West Ham

Einmitt þegar vandræði enska úrvalsdeildarliðsins West Ham virðast ekki geta orðið meiri hefur enn eitt áfallið dunið yfir því breska lögreglan og enska úrvalsdeildin hafa hafið rannsókn á því hvort stuðningsmenn liðsins hafi gerst sekir um kynþáttafordóma á leik West Ham og Tottenham á sunnudag.

Preston komið í umspilssæti

Preston North End komst í gærkvöldi í fimmta sæti ensku 1. deildarinnar í fótbolta eftir sigur á Southampton. Neil Mellor kom heimamönnum í Preston yfir í lok fyrri hálfleiks en leikurinn var sýndur beint á Sýn.

Rooney verður með

Wayne Rooney er búinn að jafna sig af meiðslunum sem hann hlaut á laugardag í leik Manchester United og Liverpool. Rooney haltraði af velli í seinni hálfleik eftir samstuð við Jamie Carragher varnarmann Liverpool. Knattspyrnustjóri Manchesterliðsins, Sir Alex Ferguson segir Rooney tilbúinn í slaginn annað kvöld en þá keppir United við franska liðið Lille. Wayne Rooney hefur ekki verið á skotskónum í meistaradeildinni frá því hann þreytti frumraun sína í keppninni. Hann skoraði þrennu í leik gegn Fenerbache í september 2004.

Spenna í Meistaradeildinni í kvöld

Fjögur lið munu í kvöld tryggja sér farseðilinn í 8 liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu. Evrópumeistarar Barcelona þurfa að skora minnst tvö mörk á heimavelli Liverpool til að falla ekki úr keppninni.

Miði á leik Liverpool og Barcelona á 1700 pund

Það er án vafa gríðarlega mikill áhugi fyrir leik Liverpool og Barcelona sem fer fram á Anfield í kvöld. Leikurinn er síðari viðureign liðanna í 16 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Chelsea getur náð Man Utd, segir Carvalho

Ricardo Carvalho, miðvörður Chelsea, er ekkert búinn að gefa upp vonina um að verja enska meistaratitilinn þó að Manchester United sé með níu stiga forskot.

Eiður skoraði strax

Eiður Smári Guðjohnsen var ekki lengi að setja mark sitt á leik Liverpool og Barcelona á Anfield og skoraði laglegt mark nánast um leið og hann kom inn sem varamaður. Barcelona þarf eitt mark í viðbót til að tryggja sig áfram í keppninni.

Eiður kominn á vettvang

Eiður Smári Guðjohnsen kom inn í lið Barcelona sem varamaður á 71. mínútu í leik liðsins gegn Liverpool í Meistaradeildinni. Staðan er enn 0-0 og því þurfa Börsungar að sækja grimmt síðustu 20 mínútur leiksins. Chelsea er búið að jafna í 1-1 gegn Porto þar sem Arjen Robben skoraði í upphafi síðari hálfleiks. Roma er yfir 2-0 gegn Lyon og jafnt er 0-0 hjá Valencia og Inter.

Jafnt á Anfield í hálfleik - Chelsea undir

Staðan í leik Liverpool og Barcelona á Anfield Road er jöfn 0-0 þegar flautað hefur verið til hálfleiks. Evrópumeistararnir mega þakka fyrir að hafa haldið jöfnu því Liverpool hefur átt 9 skot á markið en Barca aðeins 1 og hefur enska liðið átt fleiri en eitt skot í tréverkið.

Sjá næstu 50 fréttir