Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bayern: Ekki í viðræðum við Mourinho Forráðamenn Bayern Munchen sendu frá sér yfirlýsingu í gærkvöld þar sem það var tekið skýrt fram að félagið væri ekki enn komið í formlegar viðræður við þjálfara til að taka við liðinu á næstu leiktíð, en Ottmar Hitzfeld hefur enn sem komið er aðeins samþykkt að stýra því út leiktíðina. 6.2.2007 14:10
Kanar kaupa Liverpool Bandarísku auðjöfrarnir George Gillett og Tom Hicks eru að kaupa enska knattspyrnuliðið Liverpool. Stjórn Liverpool samþykkti í dag yfirtökutilboð upp á 174 milljónir punda. Gillett á fyrir íshokkíliðið Montreal Canadiens en Hicks á íshokkíliðið Dallas Stars. Þeir borguðu fimmþúsund pund á hlut og yfirtóku skuldir fyrir 45 milljónir punda. Heildarverðmæti samningsins er því 219 milljónir punda. 6.2.2007 13:30
Ákvörðunar að vænta á morgun Ítölsk íþróttamálayfirvöld munu ákveða á morgun hvort leika eigi knattspyrnu þar í landi fyrir luktum dyrum. Útför lögreglumannsins sem lést við skyldustörf á leik Catania og Palermo á föstudag var haldin í gær. 5.2.2007 21:38
Middlesbrough kaupir Woodgate Real Madrid hefur tilkynnt að félagið hafi náð samkomulagi um formlega sölu á enska landsliðsvarnarmanninum Jonathan Woodgate til Middlesbrough. Woodgate hefur spilað sem lánsmaður á Englandi á leiktíðinni og hefur náð að vinna sér sæti í enska landsliðinu á ný. Hann er 27 ára gamall en hefur átt við þrálát meiðsli að stríða í nokkur ár. 5.2.2007 18:24
Ronaldo á að fara til Barcelona Luiz Felipe Scolari, landsliðsþjálfari Portúgala, segir að Cristiano Ronaldo hjá Manchester United ætti að fara frá liðinu og ganga í raðir Barcelona á Spáni. Ronaldo hefur verið frábær með United í vetur, en "Stóri-Phil" segir tíma kominn á breytingar hjá hinum 22 ára gamla vængmanni. 5.2.2007 16:00
Heiðar í liði vikunnar á Sky Heiðar Helguson var kjörinn í úrvalslið vikunnar af sérfræðingum Sky sjónvarpsstöðvarinnar eftir frammistöðu sína með Fulham um helgina, en hann skoraði fyrsta mark Fulham í dýrmætum sigri liðsins á Newcastle. Heiðar fékk 9 í einkunn og var sagður hafa gert varnarmönnum Newcastle lífið leitt frá fyrstu mínútu. 5.2.2007 15:24
Eto´o: Næ ekki fullum styrk fyrr en eftir eitt ár Kamerúninn Samuel Eto´o sneri aftur úr meiðslum með liði Barcelona í gær þegar hann lék síðustu fimm mínúturnar í daufu jafntefli Börsunga við Osasuna. Spænskir fjölmiðlar spá því að hann verði jafnvel í byrjunarliði Barcelona í næsta leik þegar meistararnir mæta Santander næsta laugardag, en leikmaðurinn segir sig eiga langt í land með að ná bata. 5.2.2007 15:03
Kahn: Örvænting í vörninni hjá Bayern Markvörðurinn Oliver Kahn segir að örvænting ríki í varnarleik Þýskalandsmeistara Bayern Munchen og segir að gríðarlegar breytingar verði að eiga sér stað innan liðsins ef það eigi að tryggja sér Evrópusæti í deildinni í vor. Bayern steinlá 3-0 fyrir Nurnberg um helgina og situr nú í fjórða sæti deildarinnar. 5.2.2007 14:54
Capello ætlar að halda ótrauður áfram Ítalski þjálfarinn Fabio Capello hjá Real Madrid ætlar ekki að láta niðurlægjandi tap liðsins gegn Levante í gær hafa áhrif á sig og segist fullviss um að liðið geti náð að gera fína hluti í vor. Tap Real í gær var hið fjórða í síðustu fimm leikjum og stuðningsmenn Real létu vel í sér heyra eftir vonbrigðin í gær. 5.2.2007 14:45
Rooney verður í enska hópnum Wayne Rooney verður í enska landsliðshópnum sem mætir Spánverjum í vináttuleik á miðvikudagskvöldið, en framherjinn Andrew Johnson hefur dregið sig úr hópnum vegna ökklameiðsla. Leikurinn fer fram á Old Trafford í Manchester og verður sýndur beint á Sýn. 5.2.2007 14:36
O´Shea ætlar að rukka inn bónusinn fyrir að halda hreinu Írski varnarmaðurinn John O´Shea fékk það erfiða hlutverk að þurfa að standa í marki Manchester United síðustu tíu mínúturnar í sigri liðsins á Tottenham á útivelli. O´Shea viðurkenndi að hann hefði verið ansi taugaveiklaður þegar hann spilaði í fyrsta sinn sem markvörður í ensku úrvalsdeildinni. 4.2.2007 19:42
United valtaði yfir Tottenham Manchester United jók í dag forskot sitt á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í sex stig á ný eftir sannfærandi 4-0 sigur á lánlausu liði Tottenham á White Hart Lane í dag. Tottenham hélt í við toppliðið allt til loka fyrri hálfleiks þegar Cristiano Ronaldo kom United yfir úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur - en eftir það var leikurinn eign þeirra rauðu. 4.2.2007 18:02
Everton-menn ósáttir við ummæli Benitez Rafa Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, er í litlu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Everton í dag eftir að hann lét þau ummæli falla í gær að Everton væri smálið. Framkvæmdastjóri Everton segir Benitez vera einn um sínar skoðanir. 4.2.2007 14:48
United hefur yfir gegn Tottenham Manchester United hefur yfir 1-0 gegn Tottenham á White Hart Lane þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign liðanna í ensku úrvalsdeildinni. Það var hinn magnaði Cristiano Ronaldo sem skoraði mark United úr vítaspyrnu skömmu fyrir leikhlé. 4.2.2007 17:00
Óvæntur sigur AZ á PSV Grétar Rafn Steinsson og félagar í AZ Alkmaar í Hollandi gerðu sér lítið fyrir og lögðu meistara PSV Eindhoven á útivelli í hollensku deildinni í dag 3-2. Grétar Rafn spilaði allan tímann í liði AZ, sem minnkaði forskot PSV niður í sex stig á toppi deildarinnar. 3.2.2007 22:19
Jafnt hjá Arsenal og Middlesbrough Middlesbrough og Arsenal skildu jöfn 1-1 í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Yakubu kom Boro yfir úr vítaspyrnu og var Philippe Senderos hjá Arsenal vikið af velli í kjölfarið. Arsenal náði hinsvegar að jafna eftir skyndisókn á 77. mínútu og þar var að verki Thierry Henry. 3.2.2007 19:42
Heiðar skoraði fyrir Fulham Chelsea náði í dag að minnka forskotið á Manchester United niður í þrjú stig á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með 1-0 útisigri á Hermanni Hreiðarssyni og félögum í Charlton. Heiðar Helguson var á skotskónum hjá Fulham í sigri á Newcastle og West Ham tapaði enn einum leiknum. 3.2.2007 17:31
Everton og Liverpool skildu jöfn Grannliðin í Liverpool gerðu markalaust jafntefli í einvígi sínu á Anfield í dag. Everton varðist vel gegn Liverpool og þó þeir rauðu hafi verið með yfrburði í leiknum, náðu þeir ekki að tryggja sér sigur. Mark var dæmt af Craig Bellamy og Tim Howard sá vel við Peter Crouch, en besta færi leiksins átti Andrew Johnson hjá Everton, en hann lét Reina í marki Liverpool verja frá sér. 3.2.2007 15:33
Óskemmtileg endurkoma Hargreaves Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves sneri aftur með liði Bayern Munchen í gærkvöldi eftir langa fjarveru vegna fótbrots. Ekki er hægt að segja að frumraun Hargreaves og nýja þjálfarans Ottmar Hitzfeld hafi verið glæsileg, því meistararnir steinlágu fyrir Nurnberg 3-0. 3.2.2007 14:50
Lögreglumaður lét lífið í óeirðum á Sikiley Öllum leikjum í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu hefur verið frestað um óákveðinn tíma eftir að lögreglumaður lét lífið í óeirðum á leik grannliðanna Catania og Palermo á Stadio Massimino. Þá hefur vináttuleik Ítala og Rúmena á miðvikudaginn einnig verið frestað. 3.2.2007 14:07
Magath snerist hugur Þýska úrvalsdeildarfélagið hefur nú loks ráðið nýjan þjálfara til að taka við af Thomas Doll sem rekinn var á dögunum, en það verður ekki Felix Magath eins og fyrst var talið, heldur Hollendingurinn Huub Stevens. Sá leiddi Schalke til sigurs í Evrópukeppni félagsliða árið 1997. 2.2.2007 19:45
Joey Barton valinn í enska landsliðið í fyrsta sinn Miðjumaðurinn Joey Barton hjá Manchester City var í dag valinn í enska landsliðið í fyrsta sinn. Steve McClaren valdi í dag hóp sinn sem mætir Spánverjum í næstu viku og þar eru nokkrir menn að spila sinn fyrsta landsleik í langan tíma. 2.2.2007 16:29
Góð afkoma hjá KSÍ Ársreikningur KSÍ fyrir árið 2006 var birtur í dag og þar kemur fram að afkoma sambandsins er sem fyrr mjög góð. Tæplega 100 milljóna hagnaður var af rekstri sambandsins og var í framhaldi af þessu ákveðið að greiða sérstakt 16 milljóna framlag til aðildarfélaga sambandsins. Nánar má lesa um ársreikninginn á heimasíðu sambandsins, ksi.is. 2.2.2007 15:25
Þrír úr aðalliði United spiluðu með varaliðinu í gær Manchester United er nú fljótlega að endurheimta þrjá af lykilmönnum sínum úr meiðslum en í gær spiluðu þeir Alan Smith, Mikael Silvestre og Wes Brown allir 90 mínútur í markalausu jafntefli varaliðs félagsins við Liverpool. Kínverjinn Dong Fangzhou spilaði líka í gær og átti skot í stöng í leiknum, en Alex Ferguson var á meðal áhorfenda. 2.2.2007 14:27
Ledley King meiðist enn Miðvörðurinn og meiðslakálfurinn Ledley King hjá Tottenham verður væntanlega ekki mikið meira með liðinu á leiktíðinni eftir að í ljós kom að hann er með brákað bein í fæti. Síðast í morgun bárust fregnir af því að fyrirliðinn væri að ná heilsu, en þær reyndust heldur betur rangar og nú verður Lundúnaliðið að vera án King amk næstu tvo mánuðina. 2.2.2007 14:19
Bandaríkjamennirnir að eignast Liverpool Liverpool hefur náð samningum við amerísku viðskiptajöfrana George Gillett og Tom Hicks, sem væntanlega munu ganga frá yfirtöku í félaginu eftir helgina. Þeir áttu fund með stjórn Liverpool snemma í þessari viku og voru meginástæða þess að félagið hætti við að eiga viðskipti við DUI. Bandaríkjamennirnir eru sagðir ætla að greiða um 470 milljónir punda fyrir félagið og þar af fari 215 milljónir punda í nýjan leikvang. 2.2.2007 14:14
Óvíst að Owen spili á leiktíðinni Michael Owen segir að vel geti farið svo að hann spili ekkert á þessari leiktíð eftir að hann meiddist alvarlega á hné á HM síðasta sumar. Owen segist fara sér afar hægt í endurhæfingunni og ætlar ekki að taka neina áhættu. 2.2.2007 00:32
Mourinho fær stuðningsyfirlýsingu Forráðamönnum Chelsea virðist vera nóg boðið af endalausu slúðri bresku pressunnar um framtíð knattspyrnustjórans Jose Mourinho hjá félaginu, því í kvöld birti liðið stuðningsyfirlýsingu við stjórann og fullyrt er að hann fari hvergi á næstunni. 1.2.2007 21:20
Gattuso framlengir við Milan Harðjaxlinn Gennaro Gattuso hefur framlengt samning sinn við ítalska stórliðið AC Milan til ársins 2011 og fetaði þar með í fótspor Clarence Seedorf félaga síns, en þeir koma til með að klára ferilinn hjá félaginu. Tveir lykilmanna AC Milan fóru hinsvegar á meiðslalistann í dag. 1.2.2007 21:11
Meiðsli Cole ekki alvarleg Meiðsli enska landsliðsmannsins Ashley Cole hjá Chelsea eru ekki eins alvarleg og óttast var í fyrstu og mun leikmaðurinn ekki þurfa í uppskurð samkvæmt fyrstu niðurstöðum lækna. Cole skaddaði krossband í öðru hnénu í leiknum gegn Blackburn í gærkvöld, en forráðamenn Chelsea eru bjartsýnir á að hann nái heilsu fyrir lok leiktíðar í vor. 1.2.2007 20:41
Magath að taka við Hamburg Þýskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Felix Magath verði ráðinn knattspyrnustjóri botnliðs Hamburg á næsta sólarhring. Þessi tíðindi koma aðeins einum degi eftir að hann var rekinn frá meisturum Bayern Munchen, en mikil uppstokkun hefur verið í þjálfaramálum í þýsku úrvalsdeildinni síðustu daga. 1.2.2007 14:58
Forseti Barcelona hefur ekki áhyggjur af Saviola Joan Laporta, forseti Barcelona, segist ekki hafa áhyggjur af því hvort Argentínumaðurinn Javier Saviola fari frá félaginu í sumar eða ekki, en bætir því við að hann sé afar ánægður með frammistöðu hans í undanförnum leikjum. 1.2.2007 14:35
Torres: Ég hefði auðveldlega geta farið til Chelsea Framherjinn Fernando "El Nino" Torres hjá Atletico Madrid segir að hann hefði auðveldlega geta gengið í raðir Chelsea í janúarglugganum ef sig hefði langað að fara frá uppeldisfélagi sínu á Spáni. Það hafi hinsvegar ekki komið til greina fyrir sig. 1.2.2007 14:29
Pearce tekur við U-21 árs liði Englendinga Stuart Pearce hefur verið ráðinn þjálfari U-21 árs liðs Englendinga samhliða því að stýra liði Manchester City í ensku úrvalsdeildinni. Fyrsti leikur Pearce verður vináttuleikur liðsins við Spánverja í næstu viku og svo er Evrópumótið á dagskránni í sumar. 1.2.2007 13:46
Mourinho hefur miklar áhyggjur af Cole Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur miklar áhyggjur af hnémeiðslunum sem Ashley Cole varð fyrir í leiknu gegn Blackburn í gær, en Cole lagðist skyndilega í grasið í miklum sársauka án þess að nokkur kæmi við hann. Hann gengur undir ítarlega læknisskoðun í dag. 1.2.2007 13:42
Stjórnarformaður Leicester City segir af sér Andrew Taylor, stjórnarformaður enska knattspyrnuliðisins Leicester City, hefur sagt af sér eftir því sem greint er frá á vef breska ríkisútvarpsins. Þar eru ástæður þess ekki tilgreindar en sagt að afsögnin hafi ekki áhrif á fyrirhuguð kaup Serbans Milans Mandaric á félaginu. 1.2.2007 10:37
Öll helstu atvikin úr opnunarleiknum: Átti varnarmaður Bournemouth að vera rekinn af velli? Enski boltinn