Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eggert býður í Ashley Young Allar líkur eru taldar á því að Watford samþykki tilboð upp á átta milljónir punda frá Eggert Magnússyni í framherjann Ashley Young. Watford hafði áður hafnað boði West Ham upp á sjö milljónir punda en staðfesti hefur verið að Eggert og félagar lögðu fram nýtt og endurbætt tilboð í gær. 14.1.2007 15:07
Ekki spurning hvort heldur hvenær Að sögn Rick Parry, stjórnarformanns Liverpool, er það ekki lengur spurning um hvort heldur hvenær auðkýfingarnir frá Dubai gangi frá kaupum á meirihluta í félaginu. Parry segir að verið að sé að ganga frá smáatriðum í kaupsamningum og að eigendaskiptin gætu gengið í gegn innan fárra daga. 14.1.2007 14:50
Bullard á góðum batavegi Jimmy Bullard, miðvallarleikmaður Fulham, er á góðum batavegi eftir að hafa lent í hrottalegum hnémeiðslum strax í upphafi leiktíðar og útilokar knattspyrnustjórinn Chris Coleman ekki að Bullard spili með liðinu síðar á tímabilinu. 14.1.2007 14:45
Reading komið yfir gegn Everton Reading er komið með forystu í viðureign sinni gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni en það var varnarmaðurinn Joleon Lescott sem varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 28. mínútu. Ívar Ingimarsson er í byrjunarliði Reading en Brynjar Björn Gunnarsson er frá vegna meiðsla. 14.1.2007 14:18
Robson lætur Beckham heyra það Gamli refurinn Bobby Robson gagnrýnir David Beckham harðlega í pistli sem hann skrifar í enska dagblaðið Daily Mail og birtist í morgun. Robson segir að ákvörðun Beckham um að fara til Bandaríkjanna sanni að hann hafi ekki lengur metnaðinn né lystina til að keppa á meðal þeirra bestu. 14.1.2007 14:06
Beckham útilokar ekki landsliðið David Beckham hefur ekki gefið landsliðsferilinn með Englandi upp á bátinn þrátt fyrir að hann sé á leið í heldur lágt skrifuðu bandarísku atvinnumannadeildina. Beckham kveðst alltaf ætla að gefa kost á sér í landsliðið. 14.1.2007 14:01
Jon Terry boðar uppreisn Fyrirliði Chelsea, John Terry, kveðst ætla að beita sér að fullum krafti í að halda Jose Mourinho hjá félaginu en hann hefur sterklega verið orðaður við að brottför frá Chelsea í lok leiktíðar. Terry boðar uppreisn á meðal leikmanna gegn stjórn félagsins. 14.1.2007 13:31
Inter setti met á Ítalíu Inter Milan setti í gærkvöld met í ítölsku A-deildinni þegar liðið vann sinn 12. leik í röð. Í gær var það Torino sem lá í valnum, 3-1, en Adriano, Zlatan Ibrahimovich og Marco Materazzi skoruðu mörk Inter. Þjálfarinn Roberto Mancini vill ekki gera of mikið úr metinu. 14.1.2007 12:00
Vont tap hjá Barcelona “Við þurfum að vakna,” sagði Frank Rijkaard, þjálfari Barcelona, eftir 3-1 tap liðsins gegn Espanyol í gærkvöldi. Barcelona hefur ekki náð að sigra í síðustu þremur leikjum sínum í deildinni en er áfram í 2. sæti deildarinnar – a.m.k. um stundarsakir. Eiður Smári Guðjohnsen lék fyrstu 63 mínútur leiksins. 14.1.2007 11:09
Mourinho verðleggur Cech á 50 milljónir punda Jose Mourinho, stjóri Chelsea, sagði eftir sigur sinna manna á Wigan í dag að markvörðurinn Peter Cech væri búinn að fá grænt ljós á að hefja æfingar að fullum krafti. Mourinho sagði Cech vera besta markvörð í heimi og smellti í leiðinni 50 milljón punda verðmiða á Tékkann stóra og stæðilega. 13.1.2007 21:00
Fyrsta tap Juve á tímabilinu Juventus tapaði sínum fyrsta leik í ítölsku B-deildinni í fótbolta í dag gegn Mantova á útivelli, 1-0. Sjálfsmark frá Robert Kovac réði úrslitunum í leiknum en við tapið fellur Juventus niður í 6. sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir toppliði Napoli og einu stigi á eftir Mantova. 13.1.2007 20:03
Walter Smith ver ákvörðun sína Walter Smith, frávarandi þjálfari skoska landsliðsins og nýráðinn þjálfari Glasgow Rangers í Skotlandi, hefur varið ákvörðun sína um að yfirgefa herbúðir landsliðsins til að snúa aftur á Ibrox. Smith segir að nánast allir knattspyrnustjórar í heiminum hefðu tekið sömu ákvörðun og hann. 13.1.2007 19:15
10 leikmenn Arsenal lögðu Blackburn Leikmenn Arsenal sýndu mikinn karakter með því að leggja Blackburn af velli á útivelli í kvöldleik ensku úrvalsdeildarinnar, 2-0. Gilberto Silva var vikið af leikvelli strax á 12. mínútu leiksins en þrátt fyrir að vera manni fleiri átti Blackburn ekki roð í fríska leikmenn Arsenal. Kolo Toure og Thierry Henry skoruðu mörk Arsenal. 13.1.2007 19:06
Beckham getur haft gríðarleg áhrif Koma David Beckham til LA Galaxy getur komið liðinu í hóp fremstu félagsliða veraldar, að því er Alexei Lalas, fyrrum landsliðsfyrirliði Bandaríkjanna og núverandi framkvæmdastjóri LA Galaxy, heldur fram. 13.1.2007 17:30
Man. Utd. gefur ekkert eftir Manchester United og Chelsea unnu bæði góða sigra í leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni í dag. Man. Utd. átti ekki í erfiðleikum með Aston Villa á heimavelli sínum og vann 3-1 og þá spilaði Chelsea sinn besta leik í langan tíma þegar það lagði Wigan af velli, 4-0. Íslendingaliðið West Ham missti unnin leik niður í jafntefli á síðustu stundu. 13.1.2007 16:55
Mourinho: Ekki lesa blöðin Jose Mourinho hefur hvatt stuðningsmenn Chelsea til að leiða hjá sér allar vangaveltur um framtíð sína hjá félaginu, en portúgalski stjórinn hefur ítrekað verið orðaður við brotthvarf úr stjórastólnum í vor. Mourinho vill enn ekki tjá sig efnislega um meint ósætti hans og stjórnar félagsins og segja spænsk dagblöð í morgun að umboðsmaður hans sé í viðræðum við Real Madrid. 13.1.2007 16:00
Man. Utd. að valta yfir Aston Villa Topplið Manchester United er að sýna allar sínar bestu hliðar í leik sínum við Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni. Þegar flautað hefur verið til hálfleiks er staðan 3-0, en Ji-Sung Park, Michael Carrick og Cristiano Ronaldo hafa skorað mörkin. Chelsea er einnig yfir gegn Wigan, 1-0, en það var Frank Lampard sem skoraði mark meistaranna. 13.1.2007 15:46
Heiðar byrjar hjá Fulham Heiðar Helguson er í fremstu víglínu hjá Fulham þegar liðið sækir Eggert Magnússon og félaga hjá West Ham heim í ensku úrvalsdeildinni í dag. Nýju mennirnir hjá West Ham. Luis Boa Morte og Nigel Quashie, eru báðir í byrjunarliðinu ásamt Carlos Tevez. 13.1.2007 15:02
Öruggt hjá Liverpool Liverpool vann sannfærandi 3-0 útisigur á Watford í ensku úrvalsdeildinni í dag þar sem framherjarnir Dirk Kuyr og Peter Crouch sáu um að skora mörkin. Sá síðarnefndi skoraði tvívegis. Með sigrinum styrkir Liverpool stöðu sína í þriðja sæti deildarinnar, fjórum stigum á undan Arsenal en fimm stigum á eftir Chelsea. 13.1.2007 14:48
Beckham spilar ekki meira fyrir Real David Beckham hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Real Madrid, að því er Fabio Capello, knattspyrnustjóri liðsins, staðfesti nú í morgun. Beckham á hálft ár eftir af samningi sínum við Real og fær að æfa með liðinu - en ekki spila. 13.1.2007 14:14
Liverpool með forystu í hálfleik Liverpool hefur 2-0 forystu gegn Watford á útivelli í hádegisleik enska boltans nú þegar flautað hefur verið til hálfleiks. Peter Crouch og Dirk Kuyt hafa skorað mörk Liverpoool, en knattspyrnustjórinn Rafa Benitez stillir upp einkar sókndjörfu liði í leiknum. 13.1.2007 13:56
Doyle er ekki á förum frá Reading Kevin Doyle, framherji Reading og einn helsti spútnikleikmaður enska boltans í ár, kveðst ekki reiðubúinn að yfirgefa herbúðir nýliðinna í ensku úrvalsdeildinni þrátt fyrir að stærri lið hafi sýnt honum áhuga á síðustu vikum. Doyle hefur slegið í gegn á leiktíðinni og skorað 10 mörk. 13.1.2007 13:45
Inter getur sett met með sigri á morgun Ítalíumeistarar Inter Milan geta sett nýtt met í ítölsku A-deildinni á morgun þegar keppni eftir hefst á ný þar í landi eftir vetrarfrí, en liðið vann sinn ellefta leik í röð í deildinni þegar það skellti Atalanta á síðasta keppnisdegi fyrir jólafrí. Liðið mætir Torino á morgun. 12.1.2007 22:15
McClaren sendi Beckham til Ameríku Arsene Wenger hefur ákveðnar skoðanir á fyrirhuguðum vistaskiptum knattspyrnustjörnunnar David Beckham, en hann telur að ef leikmaðurinn hefði ekki misst sæti sitt í enska landsliðinu, hefði hann klárlega samið við lið í Evrópu. 12.1.2007 20:55
Ferguson vill að Mourinho verði áfram Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segist vonast til að keppinautur hans Jose Mourinho verði áfram við stjórnvölinn hjá Chelsea í ljósi þeirra frétta sem gengið hafa á Englandi í dag. Því er haldið fram að Mourinho hætti hjá Chelsea í vor. 12.1.2007 20:40
Blatter vill ekki lýsa yfir fullum stuðningi við Platini Sepp Blatter, forseti Alþjóða Knattspyrnusambandsins, segir knattspyrnugoðið Michel Platini eiga erfitt verkefni fyrir höndum í lok mánaðarins þegar forsetakosningar fara fram hjá Knattspyrnusambandi Evrópu. Platini býður sig þar fram gegn sitjandi forseta, Svíanum Lennart Johansson, en sá hefur verið í valdastól síðan árið 1990. 12.1.2007 20:15
Róbert Magnússon aðstoðar Guðjón Þórðarson Róbert Magnússon hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Guðjóns Þórðarsonar hjá knattspyrnuliði ÍA á Akranesi. Róbert hefur áður starfað með Guðjóni og var m.a. sjúkraþjálfari í teymi Guðjóns þegar hann stýrði Barnsley á Englandi á sínum tíma. 12.1.2007 17:36
Garcia er miður sín Spánverjinn Luis Garcia hjá Liverpool segist vera gjörsamlega miður sín vegna meiðslanna alvarlegu sem hann varð fyrir á hné í leik Liverpool og Arsenal í deildarbikarnum á dögunum. Hann segist sérstaklega fúll yfir að missa af leikjunum við Barcelona í Meistaradeildinni. 12.1.2007 17:27
Emre ákærður fyrir kynþáttaníð Tyrkneski miðjumaðurinn Emre hjá Newcastle hefur verið ákærður fyrir kynþáttafordóma af aganefnd enska knattspyrnusambandsins eftir að leikmenn Everton kvörtuðu undan framkomu hans í leik Newcastle og Everton þann 30. desember sl. Leikmaðurinn hefur frest til 29. janúar að svara fyrir sig. 12.1.2007 17:22
Beckham hefði farið til AC Milan Adriano Galliani, yfirmaður AC Milan á Ítalíu, segir að félagið hefði klárlega gert David Beckham tilboð ef hann hefði ekki ákveðið að fara til Bandaríkjanna næsta sumar. Þá sagði Galliani að félagið ætlaði ekki að bjóða í framherjann Ronaldo hjá Real Madrid eins og slúðrað hefur verið um í marga mánuði. 12.1.2007 16:43
Wenger hefur neitað tilboðum í Ljungberg Arsene Wenger segir að fleiri en eitt lið hafi gert tilboð í sænska miðjumanninn Freddie Ljungberg, en tekur það fram að leikmaðurinn sé alls ekki til sölu. Hann segist einnig hafa fengið tilboð í framherjann Jeremie Aliadiere, en sá er heldur ekki til sölu nema hann krefjist þess að fá að fara frá félaginu. 12.1.2007 16:36
Ákvörðun Beckham kom Ferguson ekki á óvart Sir Alex Ferguson segist hafa séð það fyrir að fyrrum leikmaður hans David Beckham færi til Bandaríkjanna eftir að hann féll úr náðinni hjá Real Madrid. Félagar hans á Spáni segjast muni sakna hans þegar hann heldur vestur um haf. 12.1.2007 16:25
Vel heppnaður samningafundur í dag Framkvæmdastjóri KSÍ átti í hádeginu fund með samninganefnd félags deildardómara og þar náðist samkomulag um nýjan þriggja ára samning við dómara fyrir árin 2007-2009. Samningurinn er þó gerður með fyrirvara um að hann verði samþykktur á fundi félags deildadómara. Þetta kemur fram á vef KSÍ í dag. 12.1.2007 16:20
Lyon bauð í Shevchenko Franska stórliðið Lyon er sagt hafa gert Chelsea kauptilboð í úkraínska framherjann Andriy Shevchenko í dag, en tilboðinu var neitað undir eins. Lyon er nú að leita sér að framherja og hefur liðið verið orðað við menn eins og Milan Baros hjá Aston Villa og David Trezeguet hjá Juventus á Ítalíu. 12.1.2007 14:30
Fær 500 sinnum hærri laun en samherjarnir David Beckham segir peninga ekki helstu ástæðu þess að hann ákvað að ganga í raðir bandaríska liðsins LA Galaxy í sumar, en þar mun hinn 31 árs gamli leikmaður verða á 500 sinnum hærri launum en félagar hans í liðinu. 12.1.2007 14:15
Davids í viðræðum við Kana Hollenski miðjumaðurinn Edgar Davids hjá Tottenham fetar mögulega í fótspor David Beckham á næstunni, því knattspyrnustjóri FC Dallas í MLS deildinni hefur nú gefið það upp að félagið sé í viðræðum við Tottenham um að fá Davids til sín. Leikmaðurinn hefur ekki átt fast sæti í liði Tottenham í vetur. 12.1.2007 13:30
Jafet gefur kost á sér til formanns Jafet S. Ólafsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Verðbréfastofunnar og Íslenska útvarpsfélagsins, hefur ákveðið að gefa kost á sér í kosningu til formanns KSÍ á ársþingi sambandsins sem haldið verður þann 10. febrúar næstkomandi. 12.1.2007 12:35
Wenger neitar að gangast við ákæru Arsene Wenger hefur neitað að gangast við ákæru enska knattspyrnusambandsins vegna ósæmilegrar hegðunar sinnar á leik Arsenal og Portsmouth þann 16. desember sl. Wenger veittist þá að dómurum leiksins í hálfleik og hefur nú farið fram á lokaðan fund með aganefndinni sem haldinn verður fljótlega. 12.1.2007 12:30
Ronaldo er besti leikmaður í heimi í dag Miðjumaðurinn Paul Scholes hjá Manchester United segir að enginn leikmaður í heiminum sé búinn að spila betur en Cristiano Ronaldo félagi hans undanfarnar vikur. Ronaldo er búinn að skora 12 mörk í deildinni í vetur og United hefur sex stiga forskot á toppi úrvalsdeildarinnar. 12.1.2007 12:30
Bayern hefur áhuga á Robben Forráðamenn þýska félagsins Bayern Munchen hafa gefið það upp að þeir hafi mikinn áhuga á að fá til sín hollenska vængmanninn Arjen Robben hjá Chelsea. Þessar fréttir komu upp úr kafinu í kjölfar þess að Chelsea er sagt hafa blandað sér í hóp þeirra liða sem vilja fá Owen Hargreaves frá Bayern. 12.1.2007 12:27
Forráðamenn Chelsea hljóðir Forráðamenn enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea hafa neitað að tjá sig í dag eftir að þær fréttir gengu fjöllum hærra í morgun að Jose Mourinho hefði tjáð vini sínum að hann ætlaði að hætta hjá liðinu í vor. Mourinho hefur ekki fengið að kaupa þá leikmenn sem hann óskaði í janúar og svo er því haldið fram að hann eigi í deilum við hátt setta menn innan félagsins. 12.1.2007 12:24
Kári samdi við AGF Eins og fram kom hér á Vísi á dögunum hefur landsliðsmaðurinn Kári Árnason nú gengið frá samningi við danska félagið AGF. Kári hefur verið á mála hjá sænska liðinu Djurgarden, en er nú samningsbundinn danska liðinu til ársins 2010. 12.1.2007 12:18
Beckham verður með 1,5 milljón á tímann hjá LA Galaxy Beckham hjónin David og Victoria ættu að hafa það sæmilegt í Los Angeles næstu fimm árin því að David á von á launahækkun. Samningur Beckhams við LA Galaxy hljóðar upp á fimm sinnum hærri laun en hann hefur haft hjá Real Madrid. Tímakaupið verður 1,5 milljón króna og búist er við að Beckham verði teljuhæsti íþróttamaður heims. 12.1.2007 12:01
Formaður á flótta Það hefur verið áhugavert að fylgjast með framgöngu, og framkomu, formanns KSÍ, Eggerts Magnússonar, síðustu vikur. Brátt lýkur 19 ára valdatíð Eggerts og verður ekki sagt að útganga formannsins sé glæsileg. 12.1.2007 00:01
Tottenham hafnaði boði Fulham í Routledge Sky sjónvarpsstöðin greindi frá því í dag að samkvæmt heimildum stöðvarinnar hefði Tottenham hafnað tilboði Fulham um að ganga frá formlegum kaupum á U-21 árs landsliðsmanninum Wayne Routledge. Leikmaðurinn hefur verið í láni hjá Fulham í vetur og hefur staðið sig ágætlega, en Tottenham virðist ekki tilbúið að láta hann fara þó hann hafi alls ekki náð að sanna sig í þeim fáu leikjum sem hann hefur spilað fyrir félagið. 11.1.2007 21:45