Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Haraldur og félagar í Sarpsborg upp í úrvalsdeildina Haraldur Björnsson stóð vaktina í marki Sarpsborg 08 sem vann 3-2 heimasigur á Notodden í næstsíðustu umferð norsku b-deildarinnar í knattspyrnu í dag. Með sigrinum tryggði Sarpsborg 08 sé sæti í efstu deild. 4.11.2012 13:37
Umfjöllun: Rúmenía - Ísland 30-37 Íslenska handboltalandsliðið er með fullt hús í sínum riðli eftir nokkuð öruggan sjö marka sigur í Rúmeníu í dag, 37-30. Íslenska liðið var í vandræðum framan af leik en lék mun betur í seinni hálfleiknum og sigur liðsins var aldrei í hættu í lokin. 4.11.2012 13:30
Matthías lék eftir tilþrif Zlatans frá EM 2004 Matthías Vilhjálmsson skoraði tvö mörk fyrir Start þegar liðið tryggði sér sigur í norsku b-deildinni með 3-0 heimasigri á Kongsvinger í dag. Start hefur sex stiga forskot á Sarpsborg 08 þegar ein umferð er eftir en bæði Íslendingaliðin hafa tryggt sér sæti í norsku úrvalsdeildinni. 4.11.2012 13:24
Jón Arnór og félagar enduðu taphrinuna Jón Arnór Stefánsson og félagar í CAI Zaragoza unnu langþráðan sigur í spænska körfuboltanum í dag þegar liðið fór illa með Blusens Monbus á heimavelli. Zaragoza var með örugga forystu frá upphafi leiks og vann á endanum með 18 stigum, 76-58. 4.11.2012 12:58
Hvorki Messi né Ronaldo skoruðu Það er löngu hætt að vera fréttnæmt þegar snillingarnir Lionel Messi og Cristiano Ronaldo skora fyrir lið sín Barcaelona og Real Madrid í spænska boltanum. 4.11.2012 12:45
Fer Neymar til Manchester City? Þrátt fyrir ungan aldur er hinn tvítugi Brasilíumaður Neymar búinn að vera undir smásjá stærstu fótboltaliða heims í langan tíma. Enska blaðið The People greinir frá því í dag að eitt fyrsta verk nýráðins íþróttastjóra Manchester City, Txiki Begiristain, sé að krækja í Brasilíumanninn unga. Blaðið segir að Neymar sé efstur á óskalista Mancini. 4.11.2012 12:15
Inter stöðvaði Juventus - met AC Milan úr hættu Juventus tapaði í fyrsta sinn í 49 deildarleikjum í gær þegar liðið beið Juventus ósigur á móti Inter Milan í 11. umferð ítölsku A-deildarinnar. Inter vann 3-1 þegar liðin mættust í Tórínó. 4.11.2012 11:45
Strákarnir unnu Frakka Íslenska 19 ára landsliðið í handbolta vann frábæran sigur á Frökkum í gær á á fjögurra landa æfingamóti í Frakklandi. Frakkar voru 15-14 yfir í hálfleik en íslensku strákarnir unnu leikinn 25-24 eftir jafnan og spennandi leik. 4.11.2012 11:38
Svíar sluppu með skrekkinn Svíar unnu Hollendinga 33-31 á útivelli í 5. riðli undankeppni Evrópumótsins í handbolta í gærkvöldi. Svíar höfðu tveggja marka forystu í hálfleik, 17-15. 4.11.2012 11:15
NBA: "Fjögurra stiga" karfa hjá Ray Allen í blálokin San Antonio Spurs byrjar NBA-tímabilið vel en liðið vann þriðja sigurinn í röð. Miami Heat getur þakkað fjögurra stiga sókn frá Ray Allen fyrir nauman sigur á Denver Nuggets, Boston Celtics vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu, Brooklyn Nets vann sinn fyrsta heimasigur og sigurganga Houston Rockets endaði með tapi í framlengingu á móti Portland Trail Blazers.. 4.11.2012 11:00
Strákarnir okkar hafa aldrei unnið í Rúmeníu Íslenska karlalandsliðið í handbolta er mætt til Rúmeníu þar sem íslenska liðið mætir heimamönnum í öðrum leik sínum í undankeppni EM í Danmörku 2014. Ísland vann átta marka sigur á Hvíta-Rússlandi á sama tíma og Rúmenar töpuðu með átta marka mun á móti Slóveníu. 4.11.2012 10:00
Ekkert Barcelona-lið hefur byrjað betur Barcelona vann 3-1 sigur á Celta Vigo í spænsku úrvalsdeildinni í gær og hefur þar með náð í 28 stig af 30 mögulegum í fyrstu tíu umferðum deildarinnar. Þetta er besta byrjun félagsins frá upphafi í spænsku deildinni. 4.11.2012 08:00
Faðmaði dómarann í miðjum leik Strákarnir á Leikbrot.is eru oft fljótir að duglegir að birta flottustu tilþrifin í íslenska körfuboltanum og setja þau saman í skemmtilegt myndbrot á heimasíðu sinni.Nýjasta myndbrotið snýst þó meira um mannlega þáttinn í körfuboltanum heldur en tilþrif í sjálfum körfuboltanum. 4.11.2012 07:00
Newcastle nældi í stig á Anfield Luis Suarez skoraði sitt sjöunda deildarmark fyrir Liverpool þegar lið hans gerði 1-1 jafntefli gegn Newcastle á Anfield Road í dag. 4.11.2012 00:01
QPR og Reading skildu jöfn | Hvorugt liðanna unnið leik QPR og Reading gerðu 1-1 jafntefli á Loftus Road í Lundúnum í dag. Um botnbaráttuslag var að ræða en hvorugt liðanna hefur unnið leik það sem af er tímabili. 4.11.2012 00:01
Fór hann yfir línuna? - dómari og línuvörður ósammála Þóra Björg Helgadóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir og félagar þeirra í LdB Malmö töpuðu sænska meistaratitlinum á markatölu í dag og það er enn meira svekkjandi fyrir íslensku landsliðskonurnar að þær töldu sig hafa skorað jöfnunarmark í úrslitaleiknum á móti Tyresö sem hefði tryggði Malmö-liðinu titilinn. 3.11.2012 23:00
Breiðdalsá: Meðalþyngdin 10 pund í sumar! Um 55% af veiddum laxi var sleppt; 20% af laxinum var drepinn og þá allt smálax, en restin 25% var tekin í klak yfir veiðitímann og sett í kistur af veiðimönnum sem sérvalinn stórlax til undaneldis. 3.11.2012 22:04
Zlatan fékk rautt fyrir karatespark og PSG tapaði Þetta var ekki góður dagur fyrir Svíann Zlatan Ibrahimovic og félaga hans í franska liðinu Paris Saint–Germain sem urðu að sætta sig við 1-2 tap á heimavelli á móti Saint-Étienne. 3.11.2012 22:00
Mons-liðið stoppaði Eið Smára Eiður Smári Guðjohnsen náði ekki að skora í fimmta leiknum í röð þegar Cercle Brugge tapaði 2-3 á útivelli á móti Mons í belgísku úrvalsdeildinni í kvöld. 3.11.2012 20:56
Vettel refsað og ræsir aftastur Sebastian Vettel hefur verið færður á aftasta rástað fyrir Formúlu 1-kappaksturinn í Abu Dhabi á morgun. Vettel þurfti að stöðva bilinn áður en hann komst til baka inn á viðgerðarsvæðið. 3.11.2012 20:51
Hörður Axel með mikilvæga þrista í lokin í naumum útisigri Hörður Axel Vilhjálmsson átti fínan leik með Mitteldeutscher BC í þýska körfuboltanum í kvöld þegar liðið vann 76-70 útisigur á New Yorker Phantoms Braunschweig í spennuleik í þýsku úrvalsdeildinni. 3.11.2012 20:33
Mancini: Ánægður með frammistöðuna en ekki úrslitin Roberto Mancini, stjóri Manchester City, horfði upp á sína menn tapa tveimur stigum á móti West Ham í kvöld þegar liðin gerðu markalaust jafntefli á Upton Park. 3.11.2012 19:56
Snæfell á topppnum eftir þriðja örugga sigurinn í röð Snæfellingar eru komnir í toppsæti Dominosdeildar karla i körfubolta eftir öruggan 13 stiga sigur á KFÍ í Stykkishólmi í kvöld, 108-95. Leikurinn átti að fara fram í gær en var frestað vegna veðurs. Jón Ólafur Jónson átti enn einn stórleikinn með Hólmurum. 3.11.2012 19:41
Ngog tryggði Bolton sigur á Cardiff og sá síðan rautt Heiðar Helguson, Aron Einar Gunnarsson og félagar þeirra í Cardiff þurftu að sætta sig við tap á móti Bolton í ensku b-deildinni í kvöld. Cardiff var 1-0 yfir í hálfleik en fékk á sig tvö mörk á síðustu 22 mínútum leiksins. 3.11.2012 19:29
Grétar Rafn og félagar með fyrsta sigurinn undir stjórn Prosinecki Grétar Rafn Steinsson og félagar hans í Kayserispor unnu í dag sinn fyrsta deildarsigur síðan að Króatinn Robert Prosinecki tók við liðinu af Shota Arveladze. Kayserispor vann þá 3-0 heimasigur á Karabükspor. 3.11.2012 18:34
Dramatískur Haukasigur í Grindavík Siarre Evans tryggði Haukum eins stigs sigur á nýliðum Grindavíkur á vítalínunni þegar liðin mættust í eina leik dagsins í Dominosdeild kvenna í körfubolta. Haukar unnu leikinn 79-78, enduðu með því fjögurra leikja taphrinu og komust upp úr botnsæti deildarinnar. 3.11.2012 18:31
Real Madrid upp í þriðja sætið Real Madrid komst upp í 3. sæti spænsku deildarinnar í kvöld eftir 4-0 heimasigur á Real Zaragoza en það hjálpaði líka lærisveinum Jose Mourinho að Málaga tapaði fyrir Rayo Vallecano fyrr í kvöld. 3.11.2012 18:30
Eyjakonur fyrstar til að vinna í Digranesinu í vetur Eyjakonur unnu sinn fjórða sigur í röð í N1 deild kvenna í dag þegar þær sóttu tvö stig í Digranes. ÍBV vann 35-30 sigur á heimastúlkum í HK sem höfðu fyrir leikinn unnið alla heimaleiki vetrarins. 3.11.2012 17:31
Guðjón með sextánda markið á tímabilinu Guðjón Baldvinsson skoraði mark Halmstad í 1-1 jafntefli á móti Landskrona í lokaumferð sænsku b-deildarinnar í dag. Guðjón skoraði 16 mörk á tímabilinu og varð þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar. 3.11.2012 17:16
Manchester City tapaði stigum á Upton Park Manchester City tókst ekki að komast upp að hlið nágrönnum sínum í Manchester United í toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir að liðið náði aðeins markalausu jafntefli á móti West Ham á Upton Park í kvöld. 3.11.2012 17:00
Messi skoraði ekki og meiddist í sigri Barcelona Barcelona náði þriggja stiga forskoti á Atlético Madrid á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir 3-1 heimasigur á Celta Vigo í Nývangi í kvöld. 3.11.2012 16:30
Fékk treyjuna hans Van Persie í miðjum leik Robin van Persie var í sviðsljósinu í dag þegar Manchester United vann 2-1 sigur á hans gömlu félögum í Arsenal í 10. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Van Persie skoraði fyrra mark United í upphafi leiks en það sem gerðist á leið leikmanna liðanna til búningsklefa í hálfleik vakti ekki síður athygli. 3.11.2012 16:00
Fram og Valur safna áfram stórsigrum Fram og Valur eru áfram með fullt hús á toppi N1 deildar kvenna í handbolta eftir stórsigra í dag. Fram hefur unnið alla sjö leiki sína en Valskonur hafa unnið alla sex leiki sína. Það er ekki búist við að liðin tapi stigum fyrr en þau mætast innbyrðis í fyrsta sinn en það verður ekki fyrr en eftir áramót. 3.11.2012 15:50
Mancini lætur Guardiola-sögusagnir ekki trufla sig Roberto Mancini, stjóri Manchester City, hefur ekki neinar áhyggjur af því þótt fjölmiðlar séu að orða Pep Guardiola við starfið hans hjá City. Txiki Begiristain vann lengi með Guardiola hjá Barcelona og hefur nú tekið við starfi yfirmanni knattspyrnumála hjá City. 3.11.2012 15:30
Wenger: Við hefðum getað komið til baka með 11 menn Arsene Wenger, stjóri Arsenal, sá sína menn tapa 1-2 á móti Manchester United í hádegisleiknum í ensku úrvalsdeildinni í dag. Gamli Arsenal-maðurinn Robin Van Persie kom United yfir strax á 3. mínútu og Arsenal endaði leikinn með tíu menn eftir að Jack Wilshere fékk sitt annað gula spjald. 3.11.2012 15:21
Robin van Persie: Þetta var sérstakur dagur fyrir mig Robin van Persie skoraði fyrra mark Manchester United í 2-1 sigri á hans gömlu félögum í Arsenal í hádegisleik ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Van Persie var búinn að skora eftir aðeins þrjár mínútur. 3.11.2012 15:03
Langþráð hjá Agbonlahor og Villa - öll úrslitin í enska Norwich og Aston Villa unnu bæði mikilvæga sigra 1-0 í neðri hluta ensku úrvalsdeildarinnar í dag og Everton varð að sætta sig við enn eitt jafntefli. Stigið nægði þó Everton til að komast upp fyrir Tottenham og upp í fjórða sætið. 3.11.2012 14:45
Gylfi kom inn á 23. mínútu í tapi Tottenham Tottenham tapaði 0-1 á heimavelli á móti Wigan í 10. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag en þetta var annað deildartap liðsins í röð á White Hart Lane. Tottenham tapaði 2-4 á móti Chelsea í síðasta heimaleik sínum. 3.11.2012 14:30
Chelsea mistókst að ná aftur toppsætinu Chelsea náði ekki að endurheimta toppsætið í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið náði bara 1-1 jafntefli á móti Swansea í Wales. Manchester United komst upp í efsta sætið með sigri á Arsenal fyrr í dag. 3.11.2012 14:30
Hamilton greip tækifærið þegar Vettel lenti í vandræðum Lewis Hamilton ræsir af fremsta rásstað í Abu Dhabi-kappakstrinum á morgun. Hann náði besta tíma í tímatökunni í dag og var langfljótastur. 3.11.2012 14:23
Þóra og Sara misstu af titlinum Þóra Björg Helgadóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir og félagar þeirra í LDB Malmö urðu að sætta sig við silfurverðlaunin í sænska fótboltanum eftir 0-1 tap á móti Tyresö í lokaumferð sænsku kvennadeildarinnar. Malmö nægði jafntefli til þess að tryggja sér titilinn þriðja árið í röð. 3.11.2012 14:00
Katrín skoraði annan leikinn í röð en liðið féll Katrín Jónsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, skoraði eitt marka Djurgården í 4-3 sigri á Piteå IF í lokaumferð sænsku kvennadeildarinnar í dag en það dugði ekki til að bjarga liðinu frá falli. 3.11.2012 13:55
Þjálfari FCK: Það vantar upp á fagmennskuna hjá Sölva Landsliðsmiðvörðurinn Sölvi Geir Ottesen hefur ekki fengið mörg tækifæri hjá FC Kaupamannahöfn að undanförnu og það hefur mikið breyst síðan að hann tryggði liðinu sæti í Meistaradeildinni fyrir tveimur árum. 3.11.2012 13:15
Ian Holloway tekur við Crystal Palace Ian Holloway er hættur með lið Blackpool og hefur þess í stað gert fjögurra og hálfs árs samning við Crystal Palace sem spilar einnig í ensku b-deildinni. Crystal Palace keypti um samning Holloway hjá Blackpool. 3.11.2012 12:30
Van Persie skoraði gegn Arsenal og United fór á toppinn Robin van Persie skoraði í 2-1 sigri á Manchester United á Arsenal á Old Trafford í hádegisleiknum í ensku úrvalsdeildinni en United-menn komust í toppsætið með þessum sigri. Chelsea getur reyndar endurheimt efsta sætið með sigri á Swansea á eftir. Arsenal-liðið endaði leikinn manni færri eftir að Jack Wilshere fékk sitt annað gula spjald á 69. mínútu. 3.11.2012 12:15