Messi skoraði ekki og meiddist í sigri Barcelona Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. nóvember 2012 16:30 Lionel Messi. Mynd/Nordic Photos/Getty
Barcelona náði þriggja stiga forskoti á Atlético Madrid á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir 3-1 heimasigur á Celta Vigo í Nývangi í kvöld. Það vakti kannski einna mesta athygli að Lionel Messi tókst ekki að skora en að sama skapi náðu tveir af þremur í varnarlínu Barcelona að skora. Adriano skoraði fyrsta mark leiksins á 21. mínútu eftir flotta sókn og sendingu frá Pedro og Jordi Alba kom Barcelona í 3-1 á 61. mínútu eftir sendingu David Villa. Markið átti þó aldrei að standa þar sem vinstri bakvörðurinn var greinilega rangstæður. Adriano og Jordi Alba voru í þriggja manna varnarlínu Barcaelona ásamt Javier Mascherano en Marc Bartra kom síðan inn í vörnina í hálfleik. Mario Bermejo jafnaði metin fyrir Celta Vigo aðeins þremur mínútum eftir að Adriano kom Barca í 1-0 en það tók David Villa aðeins tvær mínútur að koma Barcelona aftur yfir þegar hann skoraði eftir sendingu frá Andrés Iniesta. Lionel Messi skoraði ekki í leiknum og fékk að auki högg á hægri hné. Hann kláraði leikinn af því að Barcelona var búið með skiptingarnar en meiðslin litu ekki vel út. Argentínumaðurinn fékk því ekki tækifæri til að halda upp á fæðingu sonar síns.
Spænski boltinn Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Almar ekki í kassanum Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Fleiri fréttir Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM „Hafið þið ekki horft á leikina?“ Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Almar ekki í kassanum Trump mætir ekki í kvöld Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Mourinho sækir fyrsta leikmanninn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Bestu-deildarpar á von á barni saman Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Sjá meira