Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Podolski skoraði tvö í endurkomu sinni Arsenal vann í dag öruggan 4-0 sigur á Köln í Þýskalandi. Þetta var síðasti undirbúningsleikur liðsins fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst í næstu viku. 12.8.2012 17:34
Liverpool vann síðasta æfingarleik sinn fyrir úrvalsdeildina Liverpool vann síðasta undirbúningsleik sinn áður en tímabilið byrjar sannfærandi en leiknum lauk með 3-1 sigri Liverpool gegn Leverkusen. 12.8.2012 17:15
Kolbeinn skoraði í jafntefli Kolbeinn Sigþórsson tryggði Ajax 2-2 jafntefli gegn AZ Alkmaar í fyrstu umferð hollensku deildarinnar í dag. 12.8.2012 16:30
Newcastle að kaupa miðjumann frá Ajax Newcastle virðast vera að ganga frá kaupunum á Vurnon Anita, 23 ára leikmanni sem leikur með Ajax í Hollandi. Newcastle hafa verið að leitast eftir að styrkja lið sitt og hafa lengi fylgst með Anita. 12.8.2012 16:30
Bandaríkin unnu gullið í spennuleik gegn Spánverjum Bandaríkjamenn tryggðu sér gullið í 107 - 100 sigri á Spánverjum í London. Þetta er í fimmta sinn á síðustu 6 Ólympíuleikum sem Bandaríkjamenn sigra körfuboltamót Ólympíuleikanna og aðra Ólympíuleikanna í röð sem þeir sigra Spánverja í úrslitum. 12.8.2012 16:14
Hver er þessi Chukwudi Chijindu sem er að slá í gegn hjá Þór? Chukwudi Chijindu skoraði bæði mörk Þórsara í 2-1 sigri á Víkingum í toppslag 1. deildar karla í Ólafsvík í gær. Chijindu hefur skorað fjögur mörk í fyrstu þremur leikjum sínum með Þór og er þegar orðinn markahæsti leikmaður liðsins í sumar. 12.8.2012 15:45
Frakkar Ólympíumeistarar á öðrum leikunum í röð Frakkar eru Ólympíumeistarar í handbolta karla eftir eins marks sigur á Svíum, 22-21, í úrslitaleik í London í dag. Frakkar vörðu þar með titil sinn frá því fyrir fjórum árum þegar þeir unnu Íslendinga í úrslitaleik. 12.8.2012 15:38
Rory Mcllroy efstur á US PGA Rory Mcllroy er efstur á US PGA mótinu eftir þrjá daga en leikmenn voru að ljúka síðustu holum þriðja hringsins rétt í þessu. Leik var frestað í gær vegna veðurs og í dag fóru fram síðustu holur þriðja dagsins. 12.8.2012 15:00
Alfreð með tvö mörk og eina stoðsendingu í stórsigri Alfreð Finnbogason og félagar í Helsingborg unnu 7-2 stórsigur á Kalmar í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Alfreð skoraði tvö mörk í fyrri hálfleiknum og lagði síðan upp mark í þeim seinni. 12.8.2012 14:57
Manchester City vann tíu menn Chelsea - Chelsea manni færri í 47 mínútur Englandsmeistarar Manchester City byrjuðu tímabilið eins og þeir enduðu það eða með því að vinna titil. Liðið vann 3-2 sigur á bikarmeisturum Chelsea á Villa Park í árlegum leik meistaraliða síðasta árs um Samfélagsskjöldinn. 12.8.2012 14:31
Aron Pálmarsson valinn í úrvalslið Ólympíuleikanna Aron Pálmarsson var valinn í úrvalslið handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í London en valið var tilkynnt fyrir úrslitaleik Svía og Frakka sem stendur nú yfir. 12.8.2012 14:28
Zlatan bjargaði stigi fyrir PSG Zlatan Ibrahimovic kom í veg fyrir neyðarlegt tap í fyrsta leik sínum fyrir Paris Saint German í gærkvöldi. Zlatan sem kom til liðsins frá Milan skoraði tvö mörk í jafntefli liðsins við Lorient. 12.8.2012 13:45
Tvær norskar í úrvalsliði Ólympíuleikanna Norski markvörðurinn Kari Aalvik Grimsbo og norski línumaðurinn Heidi Loke voru báðar valdar í úrvalslið handboltakeppni kvenna á Ólympíuleikunum í London en val sérstakar nefndar á vegum IHF var tilkynnt í dag. 12.8.2012 13:15
Bannað að taka við bronsinu sínu Landslið Suður-Kóreu vann brons í fótboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í London en einn leikmanna liðsins var þó hvergi sjáanlegur þegar Kóreumenn tóku við bronsinu sínu í gær. Alþjóðaólympíunefndin útilokaði hann nefnilega frá verðlaunaafhendingunni eftir að leikmaðurinn varð uppvís að því að veifa fána með pólitískum skilaboðum eftir sigurinn á Japan í leiknum um 3. sætið. 12.8.2012 13:00
Everton og Manchester City komast að samkomulagi um Rodwell Enski miðjumaðurinn Jack Rodwell virðist vera fyrstu kaup Manchester City þetta sumarið en Everton gaf frá sér yfirlýsingu fyrir stuttu sem staðfesti samkomulag liðanna um kaupverð á honum. 12.8.2012 12:15
Nýju Timberwolves-mennirnir fóru fyrir sigri Rússa í bronsleiknum Rússar tryggðu sér bronsverðlaunin í körfuboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í London eftir 81-77 sigur á Argentínu í mjög spennandi leik um 3. sætið. Bandaríkjamenn og Spánverjar mætast í úrslitaleiknum seinna í dag. 12.8.2012 11:58
Króatar tóku bronsið - unnu Ungverja létt Króatar urðu í þriðja sæti í handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í London eftir öruggan sjö marka sigur á Íslandsbönum Ungverja, 33-26, í leiknum um bronsverðlaunin. Króatar voru fimm mörkum yfir í hálfleik og náðu mest átta marka forskoti í seinni hálfleiknum þannig að sigurinn var afar sannfærandi. 12.8.2012 11:39
Barry og Richards verða ekki með meisturum City í dag Ensku landsliðsmennirnir Gareth Barry og Micah Richards verða fjarri góðu gamni í dag þegar Englandsmeistarar Manchester City mæta bikarmeisturum Chelsea í árlegum leik um Samfélagsskjöldinn sem fer fram á Villa Park. Leikurinn hefst klukkan 12.30 og er í beinni á Stöð 2 Sport og Stöð 2 Sport 2. 12.8.2012 11:30
Fyrsta stórmótið þar sem íslensku strákarnir vinna verðandi meistara Íslenska handboltalandsliðið afrekaði það á Ólympíuleikum í London sem íslensku strákanir hafa aldrei náð áður á stórmóti en það er að vinna verðandi meistara. Þetta varð ljóst um leið og Frakkar og Svíar tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum í gær. 12.8.2012 10:00
Gifti sig í miðri sveitakeppni í golfi Það var nóg að gera um helgina hjá Alfreð Brynjari Kristinssyni, liðsmanni í sveit Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar í Sveitakeppninni í golfi því hann gifti sig í gær í miðri sveitakeppni. Þetta kemur fram á kylfingur.is. Alfreð hefur sigrað í tveimur tvímenningsleikjum af þremur í mótinu hingað til en GKG hefur ekki tapað leik í mótinu til þessa og þykir líklegt til afreka. 12.8.2012 07:00
Besta knattspyrnukona heims búin að spila sinn síðasta landsleik Japanska landsliðskonan Homare Sawa tilkynnti það eftir tapleikinn á móti Bandaríkjunum í úrslitaleik knattpyrnukeppni kvenna á Ólympíuleikunum í London að hún væri búin að spila sinn síðasta landsleik. Bandaríkin vann leikinn 2-1 og tryggði sér gullið. 12.8.2012 06:00
Miðstöð Boltavaktarinnar | Allir leikirnir á einum stað Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum upp á að fylgjast með öllum leikjum dagsins í Pepsi-deild karla samtímis en þá fer fram öll fimmtánda umferðin. 12.8.2012 19:00
Þórir og norsku stelpurnar unnu Ólympíugullið í kvöld - myndir Þórir Hergeirsson gerði norska kvennalandsliðið í handbolta að Ólympíumeisturum í London í kvöld og íslenski þjálfarinn er því búinn að ná gullnu þrennunni þar sem liðið hans hefur unnið öll þrjú stórmótin, EM, HM og ÓL, á undanförnum þremur árum. 11.8.2012 22:42
Unnu bronsið og sluppu við herþjónustu Suður-kóreska fótboltalandsliðið vann fyrstu verðlaun þjóðar sinn í fótboltakeppni Ólympíuleikanna í gær þegar liðið lagði Japan 2-0 í bronsleiknum á ÓL í London. Leikmenn liðsins fengu ekki bara bronsið að launum eftir sigurinn. 11.8.2012 23:30
Di Matteo: Ég geri engar róttækar breytingar Roberto Di Matteo, stjóri Chelsea, ætlar ekki að gera miklar breytingar á því skipulagi sem færði félaginu tvo titla í lok síðasta. Di Matteo segir að Chelsea ætli ekki að fara spila fótbolta eins og Barcelona þrátt fyrir að hafa keypt nokkra sókndjarfa leikmenn í sumar. 11.8.2012 22:45
Bandarísku körfuboltakonurnar unnu úrslitaleikinn með 36 stigum Bandaríkin er Ólympíumeistari kvenna í körfubolta á fimmtu Ólympíuleikunum í röð eftir 36 stiga sigur á Frakklandi, 86-50, í úrslitaleiknum í kvöld. Bandaríska liðið var algjört yfirburðarlið á mótinu og vann alla átta leiki sína sannfærandi. 11.8.2012 21:39
Þórir vann gullnu þrennuna með Noregi Noregur varð í kvöld Ólympíumeistari í handknattleik kvenna eftir sigur á Svartfjallalandi, 26-23, í spennandi úrslitaleik í London í kvöld. 11.8.2012 21:02
Kagawa tryggði United endurkomusigur á Hannover - Real og Barca unnu Japaninn Shinji Kagawa skoraði sigurmark Manchester United í 4-3 sigri á þýska liðinu Hannover í æfingaleik í Þýskalandi í kvöld. United lenti 3-1 undir í leiknum en skoraði þrjú mörk á síðustu tuttugu mínútum leiksins. Real Madrid og Barcelona unnu bæði sína leiki í kvöld. 11.8.2012 20:30
Úlfar landsliðsþjálfari: Mikið afrek hjá Axel Axel Bóasson náði frábærum árangri i dag þegar hann hafnaði i 8. til 12. sæti á Evrópumóti einstaklinga á Írlandi. Axel lék lokadaginn á 70 höggum og var i heildina á fimm höggum undir pari. Axel jafnaði með þessu besta árangur Íslendings á þessu sterka áhugamannamóti en Ólafur Mar Sigurðsson hafnaði einnig i 8. sæti á þessu sama móti árið 2002. 11.8.2012 19:29
Axel í 8. sæti og jafnaði met Ólafs: Ekki hægt annað en að vera sáttur Axel Bóasson, 22 ára kylfingur úr Keili, varð í 8. til 12. sæti á Evrópumóti áhugamanna í golfi sem lauk á Írlandi í dag. Evrópumótið er eitt sterkasta áhugamannamót sem fram fer á hverju ári og þetta er frábær árangur hjá stráknum. 11.8.2012 19:22
Áströlsku körfuboltakonurnar nældu í verðlaun á fimmtu leikunum í röð Ástralía tryggði sér bronsið í körfuboltakeppni kvenna á Ólympíuleikunum í London í kvöld með því að vinna níu stiga sigur á Rússlandi, 83-74, í leiknum um þriðja sætið. Ástralía var búið að vinna silfur á síðustu þremur leikum og vann brons í Atlanta 1996. 11.8.2012 18:47
Birkir Már lagði upp tvö mörk í sigri Brann Landsliðsbakvörðurinn Birkir Már Sævarsson lagði upp tvö fyrstu mörk Brann í 3-2 sigri á Haugesund í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Næsti leikur Birkis er með íslenska landsliðinu á móti Færeyjum á Laugardalsvellinum á miðvikudaginn. 11.8.2012 17:55
Krzyzewski hættir með bandaríska liðið eftir úrslitaleikinn á ÓL Mike Krzyzewski, þjálfari bandaríska karlalandsliðsins í körfubolta, hefur ákveðið að úrslitaleikurinn á Ólympíuleikunum í London verði hans síðasti með liðið. Bandaríkjamann spila við Spánverja um Ólympíugullið á morgun. 11.8.2012 17:30
Hvítá/Ölfusá: Net tekin upp vegna laxleysis Hópur netaveiðirétthafa í Ölfusá og Hvítá mælist til þess að netabændur á svæðinu taki net sín upp það sem eftir lifir sumars eða dragi úr sókn. Ástæðan er lítil veiði á stöng í hliðarám og fjölmargir óvissuþættir um ástand laxastofna 11.8.2012 11:51
Spænsku stelpurnar náðu bronsinu eftir tvíframlengdan leik Spænska kvennalandsliðið í handbolta tryggði sér bronsverðlaun á Ólympíuleiknum í London í kvöld eftir dramatískan 31-29 sigur á Suður-Kóreu í tvíframlengdum leik. Þetta eru fyrstu verðlaun spænska kvennalandsliðsins í sögu handboltakeppni Ólympíuleikanna. 11.8.2012 18:18
Þórsarar upp í annað sætið - Chijindu með bæði mörkin Þórsarar eru komnir upp í annað sætið í 1. deild karla í fótbolta eftir 2-1 sigur á Víkingum í Ólafsvík í dag en Ólafvíkur-Víkingar eru engu að síður með tveggja stiga forskot á toppnum. Þórsarar eiga leik inni og eru í góðum málum í baráttu sinni fyrir að endurheimta sæti sitt í Pepsi-deildinni. 11.8.2012 17:58
Hallgrímur þriðji leikmaðurinn sem boðar forföll í Færeyjaleikinn Hallgrímur Jónasson varð í dag þriðji leikmaður íslenska karlalandsliðsins í fótbolta sem dregur sig út úr landsliðshóp Lars Lagerbäck fyrir vináttulandsleik á móti Færeyjum á Laugardalsvellinum á miðvikudaginn kemur. 11.8.2012 16:57
Aron Einar með tvö mörk í sigri á Newcastle Aron Einar Gunnarsson fór á kostum þegar Cardiff City vann 4-1 sigur á úrvalsdeildarliði Newcastle í æfingaleik í Cardiff í dag. Aron Einar er að koma aftur inn eftir meiðsli og er greinilega orðinn góður af þeim. 11.8.2012 16:34
Þórir: Við erum ekki búin að vinna gullið ennþá Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalandsliðsins í handbolta, var ekki alltof sáttur með línumanninn Heidi Löke í gær þegar hún lét mynda sig með gullmedalíu á blaðamannafundi í gær. Noregur mætir Svartfjallalandi klukkan 19.30 í kvöld í úrslitaleiknum á Ólympíuleikunum í London. 11.8.2012 16:30
Mexíkó vann á Wembley - bið Brasilíu eftir Ólympíugulli lengist enn Mexíkó kom flestum á óvart með því að vinna 2-1 sigur á Brasilíu í úrslitaleik knattspyrnukeppni karla á Ólympíuleikunum í London en úrslitaleikurinn fór fram á Wembley í dag. Mexíkó lék án sinnar stærstu stjörnu, Giovani Dos Santos, sem gat ekki spilað vegna meiðsla, en það kom ekki að sök og mexíkóska liðið vann nokkuð sannfærandi sigur eftir að hafa skorað fyrra markið sitt eftir aðeins 28 sekúndna leik. 11.8.2012 15:53
Sölvi Geir missir af leiknum gegn Færeyjum Sölvi Geir Ottesen, leikmaður danska liðsins FC Kaupmannahafnar, verður ekki með íslenska landsliðinu í vináttuleiknum gegn Færeyingum á Laugardalsvellinum á miðvikudag. Sölvi Geir á við meiðsli að stríða en hann missti líka af leikjunum við Svía og Frakka í maí. 11.8.2012 15:27
Axel kláraði á fimm höggum undir pari á Írlandi - er í 10. til 11. sæti Keilismaðurinn Axel Bóasson stóð sig frábærlega á Evrópumóti áhugamanna í golfi sem fer fram á Írlandi. Axel lék holurnar 72 á fimm höggum undir pari og er sem stendur í 10. til 11. sæti sem er frábær árangur. 11.8.2012 15:02
Níu Napoli-menn réðu ekki við Juventus í ítalska súperbikarnum Juventus vann í dag Súperbikarinn á Ítalíu í árlegum leik ítölsku meistaranna og ítölsku bikarmeistaranna en leikið var annað árið í röð í Fuglahreiðrinu í Peking í Kína. Meistararnir í Juventus unnu 4-2 sigur á bikarmeisturum Napoli eftir framlengdan leik. 11.8.2012 14:38
Fótboltamaður á Ítalíu í hungurverkfalli - liðsfélagi Emils hjá Verona Emanuele Pesoli er búinn að hlekkja sig við hliðið á höfuðstöðvum ítalska knattspyrnusambandsins í Róm og er jafnframt farinn í hungurverkfall til að mótmæla því að hann var dæmdur í þriggja ára keppnisbann fyrir hlut sinn í hagræðingu úrslita í ítalska boltanum. 11.8.2012 13:45
Sænskur landsliðsmaður á sjúkrahús eftir sigurinn á Ungverjum í gær Dalibor Doder, byrjunarliðs-leikstjórnandi sænska landsliðsins, gat ekki klárað undanúrslitaleikinn á móti Ungverjum í gær en sænska liðinu tókst engu að síður að tryggja sér sæti úrslitaleiknum. 11.8.2012 13:15