Fleiri
Hamilton lang fjótastur á föstudagsæfingum 23.3.2012 16:00 Svali Björgvins spáir í spilin í úrslitakeppnum körfuboltans Svali Björgvinsson mætti til Valtýs Bjarnar Valtýssonar í Boltanum á X-inu 977 í dag og fór yfir íslenska körfuboltann en framundan er úrslitakeppnin í Iceland Express deild karla og kvenna. Svali fór líka yfir gang mála í umspili um sæti í Iceland Express deild karla auk þess að hann og Valtýr ræddu aðeins stöðuna í NBA-deildinni. 23.3.2012 15:30 Vinnur Njarðvík sjötta sigurinn í röð á Snæfelli? | Úrslitakeppni kvenna hefst í kvöld Úrslitakeppni Iceland Express deild kvenna í körfubolta hefst í kvöld þegar undanúrslitaeinvígi Njarðvíkur og Snæfells fer af stað í Ljónagryfjunni í Njarðvík. Það lið sem vinnur fyrr þrjá leiki tryggir sér sæti í úrslitaeinvíginu um íslandsmeistaratitilinn. Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19.15 en liðið mætast síðan á sunnudaginn í Hólminum. 23.3.2012 15:15 Fín byrjun hjá Tiger Woods | lofar góðu fyrir Mastersmótið Tiger Woods byrjaði ágætlega á PGA móti í golfi sem hófst í gær í Orlando í Bandaríkjunum. Hinn 36 ára gamli Woods lék á 69 höggum á Arnold Palmer Invitational meistaramótinu og er hann í fjórða sæti að loknum fyrsta keppnisdegi. Gríðarlegur áhugi er hjá fjölmiðlum sem fylgjast grannt með hverju skrefi hjá Woods í aðdraganda fyrsta stórmóts ársins – Mastersmótsins sem hefst þann 5. apríl. 23.3.2012 14:45 Gylfi átti eitt flottasta mark umferðarinnar og var líka valinn í úrvalsliðið Gylfi Þór Sigurðsson var maðurinn á bak við frábæran 3-0 útisigur Swansea City á Fulham í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi og forráðamenn ensku úrvalsdeildarinnar hafa líka verðlaunað íslenska landsliðsmanninn sem skoraði tvö fyrstu mörk velska liðsins í leiknum. 23.3.2012 14:15 Ferguson í sálfræðihernaði | örvænting hjá Man City? Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Englandsmeistaraliðs Manchester United er klókur þegar kemur að sálfræðihernaðinum sem þarf að nota í baráttunni um meistaratitilinn. Hinn þaulreyndi Ferguson sendi grannaliðinu Manchester City "kveðju“ í gegnum fjölmiðla í dag þar sem hann segir að Man City sé að fara á taugum og Man Utd eigi nóg af "skotfærum“ fyrir lokasprettinn á deildarkeppninni. 23.3.2012 13:30 Podolski stóðst læknisskoðun hjá Arsenal - kostar 10,9 milljónir punda James Olley , blaðamaður London Evening Standard, hefur heimildir fyrir því að þýski landsliðsmaðurinn Lukas Podolski sé búinn að ganga frá fjögurra ára samningi við Arsenal og verði tilkynntur sem nýr leikmaður liðsins í byrjun næstu viku. Olley setti þetta fram á twitter-síðu sinni í dag. 23.3.2012 12:45 UEFA greiðir um 17 milljarða kr. til félagsliða vegna EM 2012 Stærstu knattspyrnuliðin í Evrópu fá háa greiðslu frá Knattspyrnusambandi Evrópu á þessu ári vegna Evrópumóts karlalandsliða sem fram fer í Póllandi og Úkraínu í sumar. Alls skipta stærstu liðin um 17 milljörðum kr. á milli sín eða sem nemur um 83 milljónum punda. 23.3.2012 11:15 Brasilíumaðurinn David Luiz er orðaður við Barcelona David Luiz er vinsæll á meðal stuðningsmanna Chelsea þrátt fyrir að hann hafi gert ótal mistök frá því hann kom til liðsins frá Benfica í Portúgal. Varnarmaðurinn er nú orðaður við stórlið Barcelona á Spáni. Samkvæmt frétt Daily Mail gæti Barcelona boðið allt að 35 milljónir punda eða sem nemur 7 milljörðum kr í hinn 24 ára gamla Brasilíumann. 23.3.2012 09:45 Clippers í frjálsu falli | Boston stöðvaði sigurgöngu Milwaukee Það gengur frekar illa hjá LA Clippers þessa dagana í NBA deildinni í körfuknattleik og stórstjörnur liðsins Blake Griffin og Chris Paul hafa ekki náð að koma í veg fyrir þriggja leikja taphrinu liðsins. Liðið tapaði 97-90 á útivelli gegn New Orelans í nótt þar sem að Chris Paul lék áður. Alls fóru sex leikir fram í nótt. 23.3.2012 09:00 Vonandi fyrst til að vinna Margrét Lára Viðarsdóttir komst í gær í undanúrslit Meistaradeildarinnar með þýska liðinu Turbine Potsdam. Margrét Lára spilaði sinn fyrsta leik eftir meiðsli og vill ekki tjá sig um umdeild ummæli þjálfara síns hjá Potsdam. 23.3.2012 07:45 Ágúst: Þolinmæði og aga þurfti til þess að klára leikinn Eftir tvö töp í fyrstu tveimur leikjum riðlakeppninnar kom að því að stelpurnar okkar fögnuðu sigri. Þær unnu sannfærandi sjö marka sigur, 19-26, á Sviss en það tók liðið samt drjúgan tíma að hrista svissneska liðið af sér. 23.3.2012 07:00 Þór nældi í þriðja sætið - myndir Nýliðar Þórs frá Þorlákshöfn gerðu sér lítið fyrir og lönduðu þriðja sætinu í deildarkeppni Iceland Express-deildar karla. Þeir munu mæta Snæfelli í úrslitakeppninni. 23.3.2012 06:00 Körfu - og handbolti í aðalhlutverki í Boltanum á X977 Körfubolti og handbolti verða í aðalhlutverki í Boltanum á X-inu 977 á milli 11-12 í dag. Valtýr Björn Valtýsson íþróttafréttamaður ætlar að gera upp deildarkeppnina í Iceland Express deild karla ásamt Svala Björgvinssyni körfuboltasérfræðingi Stöðvar 2 sport. Það er ljóst hvaða lið mætast í úrslitakeppninni. Að auki verður farið yfir umferðina sem fram fer í N1 deild karla í handbolta og farið yfir það sem er efst á baugi í íþróttaheiminum. 23.3.2012 10:30 Sjá næstu 50 fréttir
Bayern München minnkaði forskot Dortmund Bayern München vann 2-1 sigur á Hannover 96 á Allianz-leikvanginum í München í dag. Forskot Dortmund á toppnum er því aðeins tvö stig en þýsku meistararnir sækja Köln heim á morgun. 24.3.2012 17:27
Svarthvítur Jesús á Akureyri Akureyringum og nærsveitungum brá vafalítið í brún í miðbæ Akureyrar í gærkvöldi þar sem svo virtist sem heilagur Jesús Kristur væri mættur til leiks. Þegar betur var að gáð var um Björn Jónsson, knattspyrnumann úr KR, að ræða. 24.3.2012 16:00
Alfreð lagði upp mark og fyrsti bikarinn í hús Alfreð Finnbogason var í byrjunarliði Helsingborgar þegar liðið lagði AIK í Ofurbikarnum, viðureign landsmeistaranna og bikarmeistaranna, í sænska boltanum í dag. 24.3.2012 14:50
Pepe fékk tveggja leikja bann | Ramos slapp með skrekkinn Spænska knattspyrnusambandið hafði í nógu að snúast í gær þegar agabrot leikmanna og forsvarsmanna Real Madrid í jafnteflinu gegn Villareal í vikunni voru til umræðu. 24.3.2012 13:15
KR-ingurinn og Leiknismaðurinn báðust afsökunar samdægurs Leikmaður KR í 3. flokki karla, sem var í vikunni dæmdur í þriggja leikja bann fyrir kynþáttafordóma í garð leikmanns Leiknis, bað hann afsökunar samdægurs. Þetta kemur fram á fotbolti.net 24.3.2012 11:45
Markaleysi og tvö töp í röð hjá Íslandsmeisturunum Íslandsmeistarar Stjörnunnar töpuðu 2-0 gegn Eyjakonum í viðureign liðanna í Lengjubikarnum en leikið var í Kórnum í gærkvöldi. 24.3.2012 11:00
Skallagrímur hafði betur í stútfullu Fjósinu Skallagrímur er kominn með forystu í einvíginu gegn ÍA um laust sæti í efstu deild karla í körfuknattleik. Borgnesingar lögðu Skagamenn 91-82 í fyrsta leik liðanna í Borgarnesi í gærkvöldi. 24.3.2012 10:00
San Antonio Spurs vann Texas-slaginn án Tony Parker San Antonio Spurs lagði Dallas Mavericks að velli 104-87 á heimavelli í nótt. Þetta var í þriðja skipti á tímabilinu sem liðið leikur án Tony Parker og loks tókst Spurs að hafa betur. 24.3.2012 09:30
Hamilton á ráspól í Malasíu og Button annar McLaren ökuþórarnir endurtóku leikinnfrá því í Ástralíu fyrir viku síðan og röðuðu bílum sínum fremst á ráslínuna fyrir kappaksturinn í Malasíu á morgun. 24.3.2012 09:25
Tiger Woods í góðum málum í Orlando Tiger Woods spilaði annan hringinn á Arnold Palmer boðsmótinu á sjö höggum undir pari í gær. Hann deilir forystusætinu með Charlie Wie frá Suður-Kóreu. 24.3.2012 09:00
Þetta tilboð var brandari Kristinn Kjærnested, formaður knattspyrnudeildar KR, segir lánstilboð Sogndal í Skúla Jón Friðgeirsson hafa verið hlægilegt. Honum líst mjög illa á þá þróun að norsk lið vilji fá bestu íslensku strákana lánaða fyrir litlar upphæðir. 24.3.2012 08:00
Ágúst: Vil sjá fullt hús á leiknum Stelpurnar okkar mæta Sviss öðru sinni á nokkrum dögum á morgun. Leikurinn er liður í undankeppni EM og þarf íslenska liðið sárlega á sigri að halda. Stelpurnar töpuðu fyrstu tveimur leikjum sínum í riðlinum en komust á sigurbraut fyrir helgi er þær lögðu svissneska liðið ytra. 24.3.2012 07:00
Arsenal óstöðvandi | Liverpool tapaði heima gegn Wigan Skemmtiferðasigling Arsenal í ensku úrvalsdeildinni heldur áfram en liðið lagði Aston Villa að velli 3-0 í dag. Ófarir Liverpool halda áfram en liðið lá 1-2 gegn Wigan á Anfield. 24.3.2012 00:01
Markalaust í Lundúnarslagnum á Brúnni Chelsea og Tottenham gerðu markalaust jafntefli í Lundúnarslag á Stamford Bridge í dag. Leikmenn Tottenham naga sig vafalítið handarbökin en liðið fékk frábær færi til þess að tryggja sér sigur í leiknum. 24.3.2012 00:01
Redknapp: Mesta vitleysan sem ég hef heyrt Harry Redknapp, stjóri Tottenham, gefur lítið fyrir þær kenningar að Tottenham sé að missa dampinn í ensku úrvalsdeildinni vegna umræðunnar um að hann sé að fara að taka við enska landsliðinu eða vegna pressunnar á að liðið tryggi sér sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili. 23.3.2012 23:30
Hjartastopp Muamba minnti Roy Hodgson á atvikið með Solbakken Roy Hodgson, stjóri West Bromwich Albion, sagði frá því á blaðamannafundi í dag að atvikið með Bolton-manninn Fabrice Muamba á laugardaginn var hafi rifjað upp slæmar minningar frá því þegar hann var þjálfari FC Kaupmannahafnarliðsins og Stale Solbakken hneig niður á æfingu. 23.3.2012 22:45
Einar: Dómgæslan var skelfileg Einari Jónssyni, þjálfara Fram, var heitt í hamsi eftir leikinn gegn Akureyri í kvöld. Þar köstuðu hans menn sigrinum frá sér undir lokin. 23.3.2012 21:52
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Afturelding 21-19 Haukar eru orðnir deildarmeistarar í handbolta þrátt fyrir að ein umferð sé enn eftir af N1-deild karla. Þeir unnu Aftureldingu í kvöld en á sama tíma mistókst FH að vinna HK. 23.3.2012 14:29
Umfjöllun og viðtöl: Fram - Akureyri 29-29 Fram og Akureyri skildu jöfn 29-29 í N1 deildinni í kvöld. Leikurinn var æsispennandi og kaflaskiptur og hefðu Framarar getað unnið leikinn á lokasekúndunum en tókst ekki. 23.3.2012 14:26
Umfjöllun og viðtöl: FH - HK 24-24 | FH-ingar komnir í úrslitakeppnina FH-ingar unnu upp fimm marka forskot HK í seinni hálfleik og tryggðu sér 24-24 jafntefli og um leið öruggt sæti í úrslitakeppninni þegar FH og HK mættust í spennandi leik í Kaplakrika í N1 deild karla í kvöld. HK var 17-12 yfir í hálfleik og FH komst síðast yfir í leiknum í stöðunni 6-5 þegar fyrri hálfleikurinn var hálfnaður. 23.3.2012 14:21
ÍR tryggði sér sæti í N1-deildinni ÍR mun leika í deild þeirra bestu í handboltanum næsta vetur. ÍR-ingar tryggðu sér sigur í 1. deildinni í kvöld er þeir skelltu Víkingi örugglega. 23.3.2012 22:36
Anton afgreiddi sína gömlu félaga Valur hristi Gróttu af sér í síðari hálfleik í kvöld og vann góðan sigur á botnliðinu sem hefur lítið gert í vetur. 23.3.2012 21:21
Njarðvík vann fyrstu rimmuna gegn Snæfelli Njarðvíkurstúlkur hafa tekið forystu í undanúrslitaeinvíginu gegn Snæfelli í Iceland Express-deild kvenna eftir nauman sigur í fyrsta leik liðanna í kvöld. 23.3.2012 20:53
Sverre og félagar gerðu jafntefli við Lemgo Sverre Andreas Jakobsson og félagar í Grosswallstadt komust upp í ellefta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í kvöld er liðið gerði jafntefli, 21-21, við Lemgo. Lemgo er sem fyrr í sjöunda sæti. 23.3.2012 20:24
Drekarnir flengdir | Stórleikur Loga dugði ekki til fyrir Solna Sænsku meistararnir í Sundsvall Dragons fengu slæman skell er þeir mættu LF Basket öðru sinni í úrslitakeppninni. Lokatölur 85-52 fyrir LF Basket og staðan í einvíginu 1-1. 23.3.2012 19:45
Petr Cech: Tottenham-leikurinn á morgun er lykilleikur fyrir okkur Petr Cech, markvörður Chelsea, hefur tjáð sig um mikilvægi leiks helgarinnar en Chelsea tekur á móti Tottenham á Stamford Bridge í hádegisleik ensku úrvalsdeildarinnar á morgun. Chelsea er fyrir leikinn fimm stigum á eftir Tottenham sem situr í fjórða og síðasta sætinu sem gefur þátttökurétt í Meistaradeildinni. 23.3.2012 18:45
Sir Alex ánægður með samvinnu Jonny Evans og Rio Ferdinand Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, er ánægður með framlag miðvarðarins Jonny Evans til enska liðsins á þessu tímabili en United hefur treyst meira á Evans í forföllum fyrirliðans Nemanja Vidic. 23.3.2012 18:15
Koscielny hrósar Van Persie fyrir varnarvinnuna Hollendingurinn Robin Van Persie er ekki bara skila mörkum og stoðsendingum til Arsenal-liðsins því liðsfélagi hans Laurent Koscielny sá ástæðu til þess að vekja athygli á því að hollenski framherjinn eigi þátt í bættum varnarleik liðsins. 23.3.2012 17:30
Þjálfari Hoffenheim: Ég reikna með því að fá Gylfa aftur í sumar Gylfi Þór Sigurðsson hefur vakið mikla athygli fyrir frábæra frammistöðu sína í ensku úrvalsdeildinni eftir áramót og í framhaldinu hafa spekingar og fjölmiðlamenn verið að velta því fyrir sér að hann fari í stærra lið í ensku úrvalsdeildinni á næstu tímabili. 23.3.2012 17:00
Kallaði andstæðing helvítis negrakúk og var laminn fyrir vikið Það sauð upp úr í 3. flokks leik á milli KR og Leiknis á dögunum. Leikmaður KR kallaði þá leikmann Leiknis af erlendum uppruna "helvítis negrakúk". Leiknismaðurinn brást við með því að ganga í skrokk á KR-ingnum. 23.3.2012 16:52
Haukar geta orðið deildarmeistarar í kvöld - heil umferð í N1 deild karla Haukar geta tryggt sér deildarmeistaratitilinn í kvöld verði úrslitin þeim hagstæð en þá fer fram næstsíðasta umferðin í N1 deild karla í handbolta. Vinni Haukarnir Aftureldingu á sama tíma og nágrannar þeirra í FH tapa stigum á móti HK þá næla Haukar í þriðja titilinn á tímabilinu en þeir hafa þegar unnið bikarinn og deildarbikarinn. 23.3.2012 16:30
Svali Björgvins spáir í spilin í úrslitakeppnum körfuboltans Svali Björgvinsson mætti til Valtýs Bjarnar Valtýssonar í Boltanum á X-inu 977 í dag og fór yfir íslenska körfuboltann en framundan er úrslitakeppnin í Iceland Express deild karla og kvenna. Svali fór líka yfir gang mála í umspili um sæti í Iceland Express deild karla auk þess að hann og Valtýr ræddu aðeins stöðuna í NBA-deildinni. 23.3.2012 15:30
Vinnur Njarðvík sjötta sigurinn í röð á Snæfelli? | Úrslitakeppni kvenna hefst í kvöld Úrslitakeppni Iceland Express deild kvenna í körfubolta hefst í kvöld þegar undanúrslitaeinvígi Njarðvíkur og Snæfells fer af stað í Ljónagryfjunni í Njarðvík. Það lið sem vinnur fyrr þrjá leiki tryggir sér sæti í úrslitaeinvíginu um íslandsmeistaratitilinn. Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19.15 en liðið mætast síðan á sunnudaginn í Hólminum. 23.3.2012 15:15
Fín byrjun hjá Tiger Woods | lofar góðu fyrir Mastersmótið Tiger Woods byrjaði ágætlega á PGA móti í golfi sem hófst í gær í Orlando í Bandaríkjunum. Hinn 36 ára gamli Woods lék á 69 höggum á Arnold Palmer Invitational meistaramótinu og er hann í fjórða sæti að loknum fyrsta keppnisdegi. Gríðarlegur áhugi er hjá fjölmiðlum sem fylgjast grannt með hverju skrefi hjá Woods í aðdraganda fyrsta stórmóts ársins – Mastersmótsins sem hefst þann 5. apríl. 23.3.2012 14:45
Gylfi átti eitt flottasta mark umferðarinnar og var líka valinn í úrvalsliðið Gylfi Þór Sigurðsson var maðurinn á bak við frábæran 3-0 útisigur Swansea City á Fulham í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi og forráðamenn ensku úrvalsdeildarinnar hafa líka verðlaunað íslenska landsliðsmanninn sem skoraði tvö fyrstu mörk velska liðsins í leiknum. 23.3.2012 14:15
Ferguson í sálfræðihernaði | örvænting hjá Man City? Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Englandsmeistaraliðs Manchester United er klókur þegar kemur að sálfræðihernaðinum sem þarf að nota í baráttunni um meistaratitilinn. Hinn þaulreyndi Ferguson sendi grannaliðinu Manchester City "kveðju“ í gegnum fjölmiðla í dag þar sem hann segir að Man City sé að fara á taugum og Man Utd eigi nóg af "skotfærum“ fyrir lokasprettinn á deildarkeppninni. 23.3.2012 13:30
Podolski stóðst læknisskoðun hjá Arsenal - kostar 10,9 milljónir punda James Olley , blaðamaður London Evening Standard, hefur heimildir fyrir því að þýski landsliðsmaðurinn Lukas Podolski sé búinn að ganga frá fjögurra ára samningi við Arsenal og verði tilkynntur sem nýr leikmaður liðsins í byrjun næstu viku. Olley setti þetta fram á twitter-síðu sinni í dag. 23.3.2012 12:45
UEFA greiðir um 17 milljarða kr. til félagsliða vegna EM 2012 Stærstu knattspyrnuliðin í Evrópu fá háa greiðslu frá Knattspyrnusambandi Evrópu á þessu ári vegna Evrópumóts karlalandsliða sem fram fer í Póllandi og Úkraínu í sumar. Alls skipta stærstu liðin um 17 milljörðum kr. á milli sín eða sem nemur um 83 milljónum punda. 23.3.2012 11:15
Brasilíumaðurinn David Luiz er orðaður við Barcelona David Luiz er vinsæll á meðal stuðningsmanna Chelsea þrátt fyrir að hann hafi gert ótal mistök frá því hann kom til liðsins frá Benfica í Portúgal. Varnarmaðurinn er nú orðaður við stórlið Barcelona á Spáni. Samkvæmt frétt Daily Mail gæti Barcelona boðið allt að 35 milljónir punda eða sem nemur 7 milljörðum kr í hinn 24 ára gamla Brasilíumann. 23.3.2012 09:45
Clippers í frjálsu falli | Boston stöðvaði sigurgöngu Milwaukee Það gengur frekar illa hjá LA Clippers þessa dagana í NBA deildinni í körfuknattleik og stórstjörnur liðsins Blake Griffin og Chris Paul hafa ekki náð að koma í veg fyrir þriggja leikja taphrinu liðsins. Liðið tapaði 97-90 á útivelli gegn New Orelans í nótt þar sem að Chris Paul lék áður. Alls fóru sex leikir fram í nótt. 23.3.2012 09:00
Vonandi fyrst til að vinna Margrét Lára Viðarsdóttir komst í gær í undanúrslit Meistaradeildarinnar með þýska liðinu Turbine Potsdam. Margrét Lára spilaði sinn fyrsta leik eftir meiðsli og vill ekki tjá sig um umdeild ummæli þjálfara síns hjá Potsdam. 23.3.2012 07:45
Ágúst: Þolinmæði og aga þurfti til þess að klára leikinn Eftir tvö töp í fyrstu tveimur leikjum riðlakeppninnar kom að því að stelpurnar okkar fögnuðu sigri. Þær unnu sannfærandi sjö marka sigur, 19-26, á Sviss en það tók liðið samt drjúgan tíma að hrista svissneska liðið af sér. 23.3.2012 07:00
Þór nældi í þriðja sætið - myndir Nýliðar Þórs frá Þorlákshöfn gerðu sér lítið fyrir og lönduðu þriðja sætinu í deildarkeppni Iceland Express-deildar karla. Þeir munu mæta Snæfelli í úrslitakeppninni. 23.3.2012 06:00
Körfu - og handbolti í aðalhlutverki í Boltanum á X977 Körfubolti og handbolti verða í aðalhlutverki í Boltanum á X-inu 977 á milli 11-12 í dag. Valtýr Björn Valtýsson íþróttafréttamaður ætlar að gera upp deildarkeppnina í Iceland Express deild karla ásamt Svala Björgvinssyni körfuboltasérfræðingi Stöðvar 2 sport. Það er ljóst hvaða lið mætast í úrslitakeppninni. Að auki verður farið yfir umferðina sem fram fer í N1 deild karla í handbolta og farið yfir það sem er efst á baugi í íþróttaheiminum. 23.3.2012 10:30