Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vettel féll úr leik í fyrsta skipti á árinu eftir að dekk sprakk Formúlu 1 ökumaðurinn Sebastian Vettel féll úr leik í fyrsta hring í kappakstrinum í Abú Dabí í dag, eftir að afturdekk sprakk skömmu eftir að keppendur voru ræstir af stað. Bíllinn snerist útaf brautinni, en það er óljóst er hvað olli því að dekkið sprakk, því Vettel lenti ekki í stamstuði við neinn annan keppanda í upphafi mótsins. Hann hafði verið fremstur á ráslínu og var í forystu í kappakstrinum þegar dekkið sprakk. 13.11.2011 20:50
Beckham fer ekki til QPR Neil Warnock, knattspyrnustjóri QPR, hefur nú gefið það út að ekkert verði að því að David Beckham gangi til liðs við félagið. Allar líkur eru á því að Beckham sé á leiðinni frá Bandaríkjunum og til félags í Evrópu, en hann hefur verið leikmaður LA Galaxy síðastliðin 4 ár. 13.11.2011 20:45
Lewis Hamilton vann í Abú Dabí Bretinn Lewis Hamilton, Mclaren, vann kappaksturinn í Abú Dabí í dag, en þetta er í þriðja sinn á tímabilinu sem hann fer með sigur af hólmi. 13.11.2011 20:09
Ferguson hefur mikinn áhuga á Eriksen Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur haft augastað á miðjumanninum Christian Eriksen hjá Ajax í talsverðan tíma og nú er talið líklegt að sá skoski ætli sér að klófesta þennan frábæra leikmann. 13.11.2011 20:00
Einar Andri: Allir leikmenn spiluðu vel í dag „Mér datt aldrei í hug að við myndum vinna 13 marka sigur á Akureyri í dag,“ sagði Einar Andri Einarsson, annar þjálfari FH, eftir sigurinn í kvöld. 13.11.2011 18:55
Atli: Við vorum til skammar „Það var hreinlega valtað yfir okkur í dag og ömurlegt hvernig við nálguðumst þennan leik, við vorum til skammar,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálfari Akureyrar, en lið hans steinlá fyrir FH í 16-liða úrslitum Eimskipsbikarsins, 34-21. 13.11.2011 18:39
Hamilton: Sigur er góður fyrir sálina Lewis Hamilton á McLaren vann sinn þriðja sigur á Formúlu 1 keppnistímabilinu í dag, þegar hann kom fyrstur í endarmark á Yas Marina brautinni í Abú Dabí. Hann tileinkaði móður sinni sigurinn þegar hann var kominn í endmark. 13.11.2011 18:29
Ólafur: Tileinkum Hemma þennan sigur "Við bjuggumst ekki við því að vinna þennan leik svona sannfærandi, en það áttu margir leikmenn toppdag hjá okkur,“ sagði Ólafur Gústafsson, leikmaður FH, eftir sigurinn í dag. 13.11.2011 18:28
Umfjöllun: FH - Akureyri 34-21 FH fór létt með að slá Akureyri út úr Eimskipsbikarnum, en liðið sigraði norðanmenn 34-21 í 16-liða úrslitum, leikurinn fór fram í Kaplakrika í dag. Sigurinn var aldrei í hættu og Fimleikafélagið mun sterkari aðilinn í leiknum. Ólafur Gústafsson fór mikinn í liði FH og skoraði 9 mörk. 13.11.2011 17:10
Marwijk mun hvíla van Persie gegn Þjóðverjum Bert van Marwijk, landsliðsþjálfari Hollands í knattpyrnu, hefur samþykkt að gefa Robin van Persie frí frá vitáttuleiknum gegn Þjóðverjum á þriðjudaginn. 13.11.2011 17:00
Enn eitt áfallið fyrir ÍR-inga - Johnson puttabrotnaði og Jarvis kallaður út ÍR-ingar urðu fyrir enn einu áfallinu í vikunni þegar Bandaríkjamaðurinn Willard Johnson puttabrotnaði illa á æfingu liðsins. Þetta er þriðja áfallið á stuttum tíma því fyrirliðinn Sveinbjörn Claessen er frá út tímabilið vegna hnémeiðsla og Bandaríkjamaðurinn James Bartolotta nefbrotnaði illa í leik gegn Grindavík. 13.11.2011 16:15
Framarar unnu sextán marka sigur á Val Fram er komið áfram í átta liða úrslit Eimskipsbikar karla eftir sextán marka sigur á Val 2, 40-24, í Vodafone-höllinni í dag. Fram hafði slegið Hauka 2 út í 32 liða úrslitunum. 13.11.2011 16:05
Christian Eriksen hjá Ajax: Það dreymir alla leikmenn um Barcelona Danski landsliðsmaðurinn Christian Eriksen hefur spilað afar vel með Ajax og danska landsliðinu á tímabilinu og hefur í kjölfarið verið orðaður við Barcelona sem hugsanlegur eftirmaður Xavi í framíðinni. 13.11.2011 14:45
Berbatov: Sir Alex kann að tala við leikmenn Búlgarinn Dimitar Berbatov talar vel um Sir Alex Ferguson, stjóra Manchester United, þrátt fyrir að hann fái ekki mörg tækifæri með liði United þessa dagana. 13.11.2011 14:00
Jón Arnór með 13 stig á 20 mínútum Jón Arnór Stefánsson átti sinn besta leik á tímabilinu þegar lið hans CAI Zaragoza vann 67-59 sigur á Murcia í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. Þetta var aðeins annar sigur liðsins í sex leikjum. 13.11.2011 13:17
Guardiola: Mourinho er líklega besti þjálfari heims Pep Guardiola, þjálfari Evrópu- og Spánarmeistara Barcelona, var sigursæll leikmaður áður en hann gerðist þjálfari en hann er ekki sammála því að þjálfarar þurfi helst að hafa spilað leikinn sjálfir. 13.11.2011 13:15
Capello hrósaði ungu strákunum eftir sigurinn á Spáni í gær Fabio Capello, þjálfari enska landsliðsins, var óhræddur við að kasta ungu leikmönnunum út í djúpu laugina á móti Heims- og Evrópumeisturum Spánar í vináttulandsleiknum á Wembley í gær en enska landsliðið vann leikinn 1-0 þökk sé sigurmarki Frank Lampard. 13.11.2011 12:30
Rekdal drullar yfir norska landsliðið: Hefðum tapað 10-0 á móti Hollandi Kjetil Rekdal, þjálfari bikarmeistara Aalesund, var allt annað en ánægður með frammistöðu norska landsliðsins sem tapaði 4-1 á móti Wales í vináttulandsleik á Þúsaldarleikvanginum í Cardiff í gær. 13.11.2011 12:00
Casillas um tapið á Wembley í gær: Vitlaus úrslit Iker Casillas, fyrirliði og markvörður Heims- og Evrópumeistara Spánar, þurfti að sætta sig við 1-0 tap á móti Englendingum í vináttulandsleik á Wembley í gær en Casillas jafnaði þarna leikjamet Andoni Zubizarreta með því að spila sinn 126 landsleik. 13.11.2011 11:30
Tiger í þriðja sæti á opna ástralska - Chalmers vann Greg Chalmers tryggði sér sigur á opna ástralska mótinu í goli í nótt þegar hann lék lokahringinn á 69 höggum eða þremur höggum undir pari. Chalmers var að vinna þetta mót í annað sinn því hann vann það líka árið 1998. Hann kláraði mótið á þrettán höggum undir pari. 13.11.2011 11:00
Messi: Sárt að þurfa að hlusta á baulið Það skilja fáir í döpru gengi argentínska landsliðsins enda hefur liðið heimsklassaleikmenn innanborðs eins og Lionel Messi, Javier Mascherano, Javier Pastore, Angel di Maria og Sergio Aguero. 13.11.2011 10:00
Rommedahl nálgast óðum metið hans Schmeichel Dennis Rommedahl lék sinn 113. landsleik fyrir Dani í sigrinum á Svíum í vináttulandsleiknum á Parken á föstudagskvöldið og er núna orðin sá útileikmaður sem hefur spilað flesta leiki fyrir danska A-landsliðið. 13.11.2011 07:00
Dómaranefnd KSÍ hafnaði Jóhannesi Valgeirssyni Jóhannes Valgeirsson gaf það út á twitter-síðu sinni í kvöld að dómaranefnd KSÍ hafi neitað honum um að fá að dæma á nýjan leik. 12.11.2011 23:05
Sami Khedira: Jose Mourinho er fullkominn þjálfari Sami Khedira, miðjuleikmaður Real Madrid og þýska landsliðsins, sparar ekki hrósið til Jose Mourinho þjálfara síns hjá spænska liðinu og segist ekki getað ímyndað sér betri þjálfara en Portúgalann. 12.11.2011 23:00
Norðmenn hafa aldrei tapað stærra undir stjórn Drillo Norðmenn steinlágu 1-4 á móti Wales í vináttulandsleik á Þúsaldarleikvanginum í Cardiff í dag en þetta er stærsta tap norska landsliðsins undir stjórn Egil "Drillo" Olsen. 12.11.2011 22:00
Messi: Við megum ekki klikka í næsta leik Lionel Messi og félagar í argentínska landsliðinu hafa ekki verið að gera góða hluti í byrjun undankeppni HM 2014 en liðið hefur aðeins náð í eitt stig út úr síðustu tveimur leikjum eftir 1-1 jafntefli við Bólivíu í nótt. 12.11.2011 21:00
Trapattoni: Ég er ekki guð Írar eru í skýjunum eftir 4-0 útisigur á Eistum í gær í fyrri umspilsleik þjóðanna um sæti í úrslitakeppni Evrópumótsins í Úkraínu og Póllandi sem fer fram næsta sumar. Írland er svo gott sem búið að tryggja sér sæti á EM. 12.11.2011 21:30
Vettel: Mjög ánægður með að ná besta tíma Sebastian Vettel hjá Red Bull liðinu náði besta tíma í Formúlu 1 tímatökunni á Yas Marina brautinni í Abú Dabí í dag og jafnaði um leið met sem Nigel Mansell setti árið 1992, þegar hann náði fjórtán sinnum besta tíma í tímatöku. Vettel verður því fremstur á ráslínu í kappakstrinum á sunnudag og það er í fjórtánda skipti á árinu sem hann verður í þeirri stöðu í Formúlu 1 móti á árinu. 12.11.2011 21:16
Füchse Berlin komst upp í annað sætið - Alexander með 6 mörk Lærisveinar Dags Sigurðssonar í Füchse Berlin unnu sannfærandi tíu marka útisigur á Hüttenberg, 30-20, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Alexander Petersson skoraði sex mörk í leiknum og var markahæstur í liði Füchse Berlin. 12.11.2011 20:50
Tólf sigrar í röð hjá strákunum hans Alfreðs Íslendingaliðin Kiel og Hannover-Burgdorf unnu bæði flotta sigra í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld en Alfreð Gíslason er þar með búinn að stýra Kiel til sigurs í fyrstu tólf deildarleikjum tímabilsins. 12.11.2011 20:28
AG vann öruggan útisigur á Mors-Thy Dönsku meistararnir í AG Kaupmannahöfn eru áfram með þriggja stiga forystu í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta eftir 29-21 útisigur á Mors-Thy Håndbold í dag. 12.11.2011 20:13
Helgi Jónas með 35 stig í sigri á Blikum Helgi Jónas Guðfinnsson, þjálfari toppliðs Grindavíkur í Iceland Express deild karla, skoraði 35 stig í dag fyrir ÍG þegar liðið vann 95-90 sigur á Breiðabliki í 1. deild karla í körfubolta. 12.11.2011 20:00
Lampard: Það er frábært að vinna besta lið í heimi Frank Lampard, fyrirliði enska landsliðsins, var að sjálfsögðu ánægður eftir 1-0 sigur á Heims- og Evrópumeisturum Spánar í vináttulandsleik á Wembley í kvöld en það var einmitt Lampard sem skoraði sigurmarkið í leiknum með skalla af stuttu færi á 49. mínútu. 12.11.2011 19:29
31 ár síðan Englendingar unnu síðast ríkjandi heimsmeistara Frank Lampard tryggði Englendingum 1-0 sigur á Heims- og Evrópumeisturum Spánverja í vináttulandsleik á Wembley í kvöld. Þetta var sögulegur sigur fyrir enska landsliðið sem gat ekki telft fram sínu sterkasta liði. 12.11.2011 19:19
Englendingar unnu Heims- og Evrópumeistarana á Wembley Vængbrotið enskt landslið vann óvæntan 1-0 sigur á Heims- og Evrópumeisturum Spánar í vináttulandsleik á Wembley í kvöld. Frank Lampard bar fyrirliðabandið í leiknum og skoraði sigurmarkið á 49. mínútu leiksins. 12.11.2011 19:08
Björgvin Páll: Voru frábærir dómarar og frábærar manneskjur Landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson var í hringiðunni í gær þegar fréttist af því að þýsku dómarabræðurnir Bernd og Reiner Methe höfðu látist í bílslysi á leið sinni til Balingen. 12.11.2011 18:30
Stjörnukonur sóttu tvö stig norður - jafntefli í botnslagnum Stjarnan vann 26-24 sigur á KA/Þór í N1 deild kvenna í handbolta í kvöld en leikurinn fór fram í KA-heimilinu á Akureyri. Þetta var annað nauma heimatap norðanstúlkna í röð en þær töpuðu 28-29 fyrir Haukum í síðustu umferð. 12.11.2011 18:15
Wales-liðið í stuði í 4-1 sigri á Noregi Gary Speed er að gera góða hluti með landslið Wales því liðið fylgdi eftir sigri í tveimur síðustu leikjum sínum í undankeppni EM með því að vinna 4-1 sigur á Noregi í vináttulandsleik á Þúsaldarleikvanginum í Cardiff í dag. 12.11.2011 16:51
Walcott: Barcelona-treyjan fer Fabregas vel Theo Walcott er á því að það hafi verið hárrétt ákvörðun hjá Cesc Fabregas að fara heim til Barcelona. Þessir fyrrum liðsfélagar hjá Arsenal munu mætast í kvöld þegar enska landsliðið tekur á móti því spænska í vináttulandsleik á Wembley. 12.11.2011 16:30
Stefán: Við megum ekki hlusta á fólkið í kringum okkur Stefán Arnarson, þjálfari Vals, var óhress með margt þrátt fyrir 32-25 sigur Vals á HK í toppslag í N1 deild kvenna í handbolta í dag. Stefán skilur ekkert í umræðunni um Valsliðið og segir það heldur ekki boðlegt hvað liðin eru að spila fáa leiki í deildini í vetur. 12.11.2011 16:00
Snæfell - Stjarnan | 3. og 4. leikhluti í heild sinn á Vísi Leikur Stjörnunnar og Snæfells var sýndur í beinni útsendingu á Vísi. Síðari hállfeikur er nú aðgengilegur á sjónvarpshluta Vísis. Henry Birgir Gunnarsson íþróttafréttamaður lýsti leiknum. 12.11.2011 15:42
Valskonur halda sigurgöngu sinni áfram - unnu HK með sjö mörkum Íslandsmeistarar Vals héldu sigurgöngu sinni áfram í N1 deild kvenna þegar þær unnu sjö marka sigur á HK, 32-25, í toppslag í Digranesi. Valsliðið er búið að vinna alla fimm deildarleiki sína á tímabilinu en HK hefur ekki náð að fylgja eftir frábærum sigri á Fram í fyrstu umferðinni. 12.11.2011 15:25
Vettel fljótastur í tímatökunni í Abú Dabí og jafnaði met Mansell Formúlu 1 ökumaðurinn Sebastian Vettel á Red Bull náði besta tíma í tímatökunni á Yas Marina brautinni í Abu Dabí í dag. Hann var 0.141 úr sekúndu fljótari en Lewis Hamilton á McLaren og Jenson Button á McLaren náði þriðja besta tíma og var 0.150 úr sekúndu á eftir Vettel. Vettel hefur fjórtán sinnum náð besta tíma í tímatöku á árinu. 12.11.2011 14:43
Van der Vaart og Van Persie ekki með á móti Þjóðverjum Rafael van der Vaart, leikmaður Tottenham og hollenska landsliðsins, meiddist aftan í læri í vináttulandsleiknum á móti Sviss í gær. Hollendingar náðu þá aðeins markalausu jafntefli á móti Svisslendingum. 12.11.2011 14:00
Hernandez skoraði tvö mörk í sigri á Serbíu - tólf landsliðsmörk á árinu Javier Hernandez, framherji Manchester United og Mexíkó, skoraði bæði mörk lansliðs Mexíkó í 2-0 sigri á Serbíu í vináttulandsleik í Mexíkó í nótt. Chicharito hefur farið á kostum með landsliðinu í ár. 12.11.2011 12:30