Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Beckham fékk sér önd sem var skírð í höfuðið á Crouch Beckham-fjölskyldan stækkaði á dögunum þegar David og Victoria fengu sér önd. Öndin heitir Crouchie og er skírð í höfuðið á Peter Crouch, framherja Tottenham. 13.11.2010 22:45
Hvað segja keppinautar Vettels um stöðuna? Þrír keppinautar Sebastian Vettels um meistaratitilinn eru fyrir aftan hann á ráslínu í kappakstrinum í Abu Dhabi á sunnudag og Lewis Hamilton stefnir ótrauður á sigur úr öðru sæti á ráslínu og segist ekki hafa neinu að tapa. Fernando Alonso er fremstur í stigamótinu og er þriðji á ráslínu á eftir Vettel og Hamilton. 13.11.2010 22:39
Benzema hefur engan áhuga á að yfirgefa Real Madrid Umboðsmaður franska framherjans, Karim Benzema, segir að framherjinn sé ekki á förum frá Real Madrid þrátt fyrir endalausar sögusagnir um annað. 13.11.2010 22:00
Vettel: Gæti ekki verið í betri stöðu Sebastian Vettel er fremstur á ráslínu fyrir titilslag fjögurra ökumanna í Abu Dhabi á sunnudag. Hann stefnir á sigur og að verða yngsti Formúlu 1 ökumaður sögunnar. Vettel varð aðeins 31/1000 á undan Lewis Hamilton 13.11.2010 21:24
Forseti Sampdoria er með Cassano-vírusinn Ricardo Garrone, forseti Sampdoria, hefur engan áhuga á því að sættast við framherjann Antonio Cassano en Sampdoria sækir nú mál fyrir dómstólum svo það geti sagt upp samningnum við leikmanninn. 13.11.2010 21:15
Sigur hjá Þóri en tap hjá Aroni og félögum Aron Kristjánsson og lærisveinar hans í Hannover Burgdorf máttu þola tap, 22-25, gegn Göppingen í kvöld. Leikurinn var í járnum lengst af en Göppingen var sterkara á lokasprettinum og tryggði sér sigur. 13.11.2010 19:43
Stoke vann sannfærandi sigur á Liverpool Vandræðagangur Liverpool í ensku úrvalsdeildinni hélt áfram í dag er liðið tapaði fyrir Stoke, 2-0. Sigur Stoke var fyllilega sanngjarn enda var liðið mun sterkara nær allan leikinn. 13.11.2010 19:26
Mancini finnur ekki fyrir pressunni Breskir fjölmiðlar segja að það sé heitt undir Roberto Mancini, stjóra Man. City, eftir markalausa jafnteflið gegn Birmingham í dag. Sjálfur segist Mancini ekki vera undir neinni pressu. 13.11.2010 19:17
Grótta vann sinn fyrsta sigur - Fram með fullt hús Grótta vann sinn fyrsta sigur í N1-deild kvenna í vetur er það tók á móti ÍR í uppgjöri botnliðanna. Bæði lið voru án sigurs fyrir leikinn. 13.11.2010 19:15
Holloway skipti út öllu byrjunarliðinu Ian Holloway, stjóri Blackpool, gaf enska knattspyrnusambandinu langt nef í dag þegar hann gerði ellefu breytingar á liði sínu fyrir leikinn gegn West Ham. Leiknum lyktaði með markalausu jafntefli. 13.11.2010 18:52
Eggert og félagar unnu góðan útisigur Eggert Gunnþór Jónsson lék allan leikinn fyrir Hearts sem vann góðan útisigur á St. Johnstone, 0-2, í skosku úrvalsdeildinni í dag. 13.11.2010 17:34
Logi: Mikill léttir að vinna þennan leik "Við erum hrikalega ánægðir með þennan sigur í dag. Þetta var ekki frábær leikur hjá okkur en við unnum. Ég er ógeðslega ánægður með það," sagði Logi Geirsson við Þorkel Sigurbjörnsson hjá Rúv eftir sigur FH á Val í dag. 13.11.2010 17:25
Ernir Hrafn: Lykilmenn eru að klikka Valsarinn Ernir Hrafn Arnarson var brúnaþungur eftir sjötta tap Vals í N1-deild karla. Valur hefur ekki enn unnið leik í deildinni og það er mikil krísa á Hlíðarenda. 13.11.2010 17:22
Botnlið Vals engin fyrirstaða fyrir FH FH komst aftur á sigurbraut í N1-deild karla í dag er liðið vann góðan útisigur á Val, 26-30, en FH leiddi með tveim mörkum í leikhléi, 13-15. 13.11.2010 17:16
Jóhannes Karl aftur kominn í lið Huddersfield Jóhannes Karl Guðjónsson lék allan leikinn fyrir Huddersfield í dag er það tapaði fyrir Oldham, 1-0, í ensku C-deildinni í dag. Jóhannes hefur mátt verma bekkinn mikið síðustu vikur en er aftur kominn í liðið. 13.11.2010 17:06
Dapurt gengi Íslendingaliðanna í ensku B-deildinni Aron Einar Gunnarsson var frekar óvænt á bekknum hjá Coventry í dag er liðið sótti Crystal Palace heim í ensku B-deildinni. Aron Einar lék síðustu 25 mínútur leiksins sem Palace vann, 2-0. 13.11.2010 17:00
Öruggt hjá Spurs - vandræðagangur á Man. City Gareth Bale var í banastuði með Tottenham í dag er liðið skellti Blackburn, 4-2, á White Hart Lane. Bale skoraði tvö mörk í leiknum og lék á alls oddi. 13.11.2010 16:54
Ferguson: Við vorum allt of lengi í gang Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, var þakklátur fyrir stigið gegn Aston Villa í dag og viðurkenndi að sitt lið hefði verið í tómu bulli áður en það kom til baka með stæl og jafnaði leikinn. 13.11.2010 16:26
Sigurbergur skoraði þrjú í tapleik Sigurbergur Sveinsson skoraði þrjú mörk fyrir Rheinland er liðið tapaði á heimavelli fyrir Lemgo, 19-26, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. 13.11.2010 16:16
Sigur hjá AGK en jafntefli hjá Ingimundi og félögum Danska ofurliðið AG Köbenhavn er komið með þriggja stiga forskot á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar eftir stórsigur á Aarhus í dag, 34-25. Liðin voru í efstu tveim sætum deildarinnar fyrir leikinn og eru það enn. 13.11.2010 16:09
Houllier: Nýttum færin ekki nógu vel Gerard Houllier, stjóri Aston Villa, gat verið stoltur af því hversu vel hans leikmenn léku gegn Man. Utd í dag. Að sama skapi var það afar svekkjandi fyrir Houllier að horfa á sína menn missa forskotið niður eftir að hafa spilað vel. 13.11.2010 15:36
Vettel fljótastur og getur orðið yngsti heimsmeistari sögunnar Sebastian Vettel á Red Bull náði besta tíma í tímatökum fyrir lokamótið Formúlu 1 mótaraðarinnar sem verður í Abu Dhabi á sunnudag. Hann varð brotabrotum á undan Lewis Hamilton á McLaren, en Fernando Alonso varð þriðji. Fjórði maðurinn í kapphlaupinu um meistaratitilinn, Mark Webber á Red Bull varð fimmti. 13.11.2010 15:02
Frábær endurkoma hjá Man. Utd Eftir að hafa verið nær meðvitundarlausir í tæpar 80 mínútur rifu leikmenn Man. Utd sig upp gegn Aston Villa. Unnu upp tveggja marka forskot Villa og tryggðu sér jafntefli, 2-2. 13.11.2010 14:43
Jón Guðni rekinn af velli fyrir litlar sakir - myndband Framarinn Jón Guðni Fjóluson fékk að líta rauða spjaldið fyrir litlar sakir í leik með varaliði FC Bayern gegn varaliði Chelsea á dögunum. 13.11.2010 14:15
Leikaraskapur er að drepa fótboltann Hinn afar málglaði leikmaður Tottenham, Benoit Assou-Ekotto, er orðinn þreyttur á leikmönnum sem kasta sér ítrekað í grasið án ástæðu og segir að þeir séu að eyðileggja íþróttina. 13.11.2010 14:15
Hodgson er ekki nógu ánægður með Johnson Roy Hodgson, stjóri Liverpool, er alls ekki nógu ánægður með bakvörðinn Glen Johnson. Hodgson segir að frammistaða hans í vetur sé ekki í alþjóðlegum gæðaflokki. 13.11.2010 13:45
Tiger búinn að missa af lestinni í Ástralíu Það er orðið endanlega ljóst að Tiger Woods nær ekki að verja titil sinn á ástralska meistaramótinu í golfi. Tiger fór þriðja hringinn á 71 höggi og er 10 höggum á eftir efsta manni, Adam Bland, fyrir lokadaginn. 13.11.2010 13:00
Bendtner verður að vera þolinmóður Daninn Nicklas Bendtner er orðinn ansi þreyttur á bekknum hjá Arsenal og hefur látið í það skína að hann ætli sér að yfirgefa félagið fái hann ekki fleiri tækifæri. 13.11.2010 12:15
Ekki velja Rooney í landsliðið Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, hefur beðið Fabio Capello, landsliðsþjálfara Englands, um að velja ekki Wayne Rooney í enska landsliðið sem mætir Frökkum í vináttulandsleik á miðvikudag. 13.11.2010 11:30
Vettel og Webber fremstir á lokaæfingunni Red Bull ökumennirnir Sebastian Vettel og Mark Webber voru fljótastir á síðustu æfingunni fyrir tímatökuna í Abu Dhabi í dag. Vettel var 0.133 sekúndum á undan Webber, en Lewis Hamilton var 0.584 á eftir, en Fernando Alonson fjórði. Þessir kappar eru í titilslagnum um um helgina. 13.11.2010 11:13
Enn og aftur kom Utah til baka og vann Gott gengi Utah Jazz í NBA-deildinni hélt áfram í nótt er liðið vann sinn fjórða leik í röð. Að þessu sinni lagði liðið Atlanta Hawks. 13.11.2010 11:00
Webber sefur eins og ungabarn þrátt fyrir spennandi titilslag Mark Webber er einn fjögurra sem á möguleika á meistaratitli ökumanna um helgina í lokamótinu í Abu Dhabi. Hann hefur aldrei verið í titilslag áður, en virðist yfirvegaður og klár í slaginn þrátt fyrir mikla fjölmiðlaathygli á mótsstað og spennu vegna stöðunnar í stigamótinu. Fjórir ökumenn eiga möguleika á titlinum í lokamótinu. 13.11.2010 08:15
Alonso: Tímatakan verður jöfn Fernando Alonso hjá Ferrari er efstur í stigamóti ökumanna fyrir úrslitarimmuna um meistaratitil ökumanna í Abu Dhabi i dag, en tímatakan sem fer fram í dag gæti ráðið miklu um úrslitin í mótinu á sunnudag. Tvær æfingar fór fram í gær og lokaæfing verður á undan tímatökunni á laugardagsmorgun. 13.11.2010 05:26
Hver í andskotanum þykist Mourinho vera? José Mourinho, þjálfari Real Madrid, er virtur og vinsæll en hann er ekki allra. Hann er til að mynda ekki hátt skrifaður hjá Manuel Preciado, þjálfara Sporting Gijon. 12.11.2010 23:45
Lennon gæti fengið tveggja mánaða bann Neil Lennon, stjóri Celtic, missti algjörlega stjórn á skapi sínu er liðið tapaði fyrir Eggerti Gunnþóri Jónssyni og félögum í Hearts. Hann var rekinn upp í stúku er hann hellti sér yfir dómarann. 12.11.2010 23:15
Zlatan Ibrahimovic kominn með heiðursbelti í tækvondó Zlatan Ibrahimovic er búinn að fá sérstakt heiðursbeltið í tækvondó en hann fékk það þó ekki fyrir að sparka ítrekað í liðsfélaga sína hjá AC Milan. Zlatan hefur verið með svarta beltið í tækvondó síðan að hann var 17 ára en fékk þessa viðurkenningu hjá ítölskum tækvondóklúbb í vikunni. 12.11.2010 22:45
Guðmundur: Erum alltof sveiflukenndir „Við byrjuðum seinni hálfleikinn mjög vel, vörnin var að halda og þeir skoruðu bara 2 stig fyrstu fimm mínúturnar og munurinn er aðeins fimm stig. Síðan hrökk þetta í baklás hjá okkur," sagði Guðmundur Jónsson leikmaður Njarðvíkur eftir 92-69 tap gegn KR í DHL höllinni. 12.11.2010 22:07
Pavel: Ætlum að gera þetta að sterkasta heimavellinum „Það er mjög gott að vera kominn aftur á sigurbraut og vonandi að við höldum því áfram, við höfum unnið tvo leiki og tapað einum og ef við ætlum að vera besta liðið í deildinni þurfum við að komast á skrið og hætta að tapa," sagði Pavel Ermolinskij leikmaður KR sem átti stóran þátt í 92-69 sigri KR á Njarðvík í DHL höllinni í kvöld. 12.11.2010 22:03
Ferrari stjórinn gætir stillingar fyrir háspennu tímatöku Stefano Domenciali, yfirmaður Ferrari telur mikilvægt að liðsmenn sínir haldi haus og yfirvegun fyrir tímatökuna á laugardag. Fernando Alonso er í titilslag við fjóra aðra ökumenn, en Alonso er efstur í stigamótinu. 12.11.2010 21:59
De Jong verður valinn í landsliðið eftir áramót Hollendingurinn harði, Nigel de Jong, hefur ekki verið valinn í hollenska landsliðið síðan hann slátraði Hatim ben Arfa, leikmanni Newcastle. De Jong fótbraut Ben Arfa sem spilar ekki meira í vetur. 12.11.2010 21:45
Stjörnukonur skoruðu 46 mörk í Digranesinu Tveir leikir fóru fram í N1 deild kvenna í handbolta í kvöld. Stjarnan vann tíu marka sigur á HK í miklum markaleik í Digranesinu og Fylkiskonur sóttu tvö stig til Hauka á Ásvöllum. 12.11.2010 21:41
Tommy Nielsen framlengdi um eitt ár Tommy Nielsen mun spila sitt níunda tímabil með FH í úrvalsdeild karla en hann hefur skrifað undir nýjan eins árs samnning við FH. Þetta kom fram í kvöld á heimasíðu stuðingsmanna félagsins, FHingar.net. 12.11.2010 21:27
KR vann öruggan sigur á Njarðvík í DHL-höllinni KR-ingar unnu öruggan 23 stiga sigur á Njarðvíkingum í DHL höllinni í Iceland Express deild karla í kvöld, 92-69. Sigur KR-liðsins var afar öruggur að þótt Njarðvíkingar hefðu ekki verið langt frá fram í síðasta leikhluta. KR-ingar fóru upp í þriðja sætið í deildinni með þessum sigri en Njarðvíkingar eru hinsvegar í því tíunda. 12.11.2010 21:04
Friðrik tryggði Tindastól fyrsta sigurinn Tindastóll vann sinn fyrsta sigur í Iceland Express deild karla á tímabilinu þegar liðið vann 89-88 sigur á Stjörnunni í Garðabæ í kvöld. Friðrik Hreinsson skoraði sigurkörfuna 3,2 sekúndum fyrir leikslok. 12.11.2010 21:00
Hamilton ánægður þrátt fyrir áminningu Lewis Hamilton hjá McLaren var fljótastur á æfingum Formúlu 1 liða í Abu Dhabi í dag, en toppmennirnir í stigaslagnum um titilinn voru honum næstir. Hamilton fékk áminningu frá dómurum eftir æfingarnar tvær í dag. 12.11.2010 20:25