Fleiri fréttir

Ísland á tvo leikmenn í úrvalsliðinu á HM í Túnis

Tveir leikmenn íslenska 19 ára landsliðsins í handbolta, Aron Pálmarsson og Ólafur Guðmundsson, voru valdir í úrvalslið heimsmeistaramótsins sem lauk í Túnis í kvöld. Íslenska liðið tapaði fyrir Króatíu í úrslitaleiknum.

Wenger veit vel að Vieira vill koma aftur í Arsenal

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að hann viti vel að því að Patrick Vieira vilji koma aftur til Arsenal en Wenger er aftur á móti ekki tilbúinn að segja hvort hann ætli að gera við hann samning.

Aston Villa komið alla leið í úrslitaleikinn

Aston Villa tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaleik Friðarbikarsins eftir 2-1 sigur á Porto og þrátt fyrir að þurfa að leika manni færri frá 69. mínútu leiksins. Villa mætir annað hvort Real Madrid eða Juventus í úrslitaleiknum á sunnudaginn.

Ben Wallace gæti verið á leiðinni aftur til Detroit

NBA-liðið Detroit Pistons er enn að leita sér af stórum leikmanni til að fullkoma leikmannahóp sinn fyrir næsta tímabil og svo gæti farið að þeir til mannsins sem átti miðjuna í Detroit á árunum 2000 til 2006.

Króatarnir voru bara alltof sterkir í úrslitaleiknum

Strákunum í 19 ára landsliðinu tókst ekki að vinna fyrsta gull Íslands á heimsmeistaramóti þegar liðið mætti gríðarlega öflugu króatísku liðið í úrslitaleiknum á Heimsmeistaramóti 19 ára landsliða í Túnis í kvöld. Króatar unnu öruggan fimm marka sigur, 35-40.

Igor Pesic snýr aftur upp á Skaga

Skagamenn hafa fengið liðstyrk fyrir lokabaráttuna í 1. deild karla en eins og er liðið í miðri fallbaráttu í deildinni eftir erfiðan júlímánuð. Igor Pesic er kominn aftur til liðsins en hann lék með liðinu frá 2005 til 2006. Þetta kom fram á heimasíðu félagsins.

Bent biðst afsökunar á skrifum sínum

Framherjinn Darren Bent hjá Tottenham hefur beðið stjórnarformann félagsins Daniel Levy afsökunnar á niðrandi ummælum sem hann hafði um hann á Twitter-síðu sinni.

West Ham kaupir svissneskann táning

Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham hefur staðfest kaup á svissneska U-19 ára landsliðsmanninum Fabio Daprela frá Grasshopper. Kaupverðið er ekki gefið upp en Daprela hefur skrifað undir fimm ára samning við West Ham.

Frítt fyrir unga og gamla á leik Íslands og Slóvakíu

Knattspyrnusamband Íslands hefur ákveðið að bjóða yngri iðkendum aðildarfélaga sinna, ókeypis aðgang að vináttulandsleik Íslands og Slóvakíu sem fram fer á Laugardalsvelli 12. ágúst næstkomandi kl. 19:00. Þetta kemur fram á heimasíðu sambandins.

Valencia ítrekar að David Silva sé ekki til sölu

Spænski landsliðsmaðurinn David Silva hjá Valencia hefur verið sterklega orðaður við Manchester United og Liverpool í sumar en Mauel Llorente forseti spænska félagsins ítrekar að leikmaðurinn sé ekki til sölu.

Lamar Odom verður áfram hjá Lakers eftir allt saman

Það leit allt út fyrir að Lamar Odom væri að yfirgefa meistaralið Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfubolta en af því varð ekki því odom náði samkomulagi við Lakers um að spila áfram með liðinu. Það er talað um að hann hafi gert þriggja ára samning með möguleika á fjórða árinu.

Eignumst við okkar annað gull á stórmóti unglingalandsliða?

Íslenska 19 ára landsliðið á í kvöld möguleika á að verða heimsmeistari þegar liðið mætir Króatíu í úrslitaleik HM í Túnis. Íslenska liðið vann heimamenn í Túnis í undanúrslitunum og getur nú leikið eftir afrek 1984-landsliðsins sem vann gull á Evrópumótinu árið 2003.

Beckham segist ekki vera á förum frá LA Galaxy

Stórstjarnan David Beckham ítrekar að hann njóti þess að spila fyrir LA Galaxy þrátt fyrir að sumir stuðningsmenn félagsins hafi ekki beint tekið honum með opnum örmum eftir fimm mánaða lánstíma hjá AC Milan og sakað hann um að leggja sig ekki nógu mikið fram fyrir lið sitt.

Mido snýr aftur til heimalands síns

Framherjinn Mido hjá Middlesbrough hefur ákveðið að snúa aftur á fornar slóðir og hefur samþykkt árs lánssamning við Zamalek í Egyptalandi en leikmaðurinn hefur verið að leita eftir því að komast í burtu frá Middlesbrough eftir að félagið féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Hughes vill ekki fara í orðastríð við Ferguson

Knattspyrnustjórinn Mark Hughes hjá Manchester City hefur svarað kollega sínum Sir Alex Ferguson hjá nágrönnunum í Manchester United eftir að sá síðarnefndi gagnrýndi harðlega auglýsingaherferð City fyrir komandi tímabil.

Schumacher byrjaður að keyra Ferrari

Michael Schumacher lætur ekki deigan síga, þó æfingabann milli mót þýði að hann má ekki keyra 2009 Formúlu 1 bíl. Hann er að keyra 2007 Ferrari á Mugello brautinni í dag.

KR-ingar leigja Stefán Loga til Lilleström

KR og norska félagið Lilleström hafa náð samkomulagi um leikmannaskipti á markvörðunum Stefáni Loga Magnússyni og Andre Hansen en aðeins er þó um leigusamning að ræða út yfirstandi tímabil.

Sir Bobby Robson er látinn

Mikil sorg ríkir á Englandi og víðar í dag eftr að tilkynnt var að goðsögnin Sir Bobby Robson væri látinn en þessi fyrrum landsliðsþjálfari Englands var með virtari og viðkunnalegustu mönnum í fótboltaheiminum.

Haraldur: Ég náði að þrauka út leikinn

„Þetta getur ekki byrjað betur en þetta," sagði Haraldur Guðmundsson eftir 3-1 sigur Keflavíkur á Íslandsmeisturum FH í fyrsta leik hans með Keflavík í tæp fimm ár.

Manchester United tapaði fyrir Bayern Munchen í vítakeppni

Bayern Munchen vann Englandsmeistara Manchester United í vítakeppni í úrslitaleik Audi-bikarsins í á Allianz Arena í Munchen í gær. Manchester United fór illa með mörg góð færi í leiknum sem endaði með markalausu jafntefli.

Óli Þórðar: Þetta var ekki víti

„Vítaspyrnudómurinn var rangur, hann var vendipunkturinn í leiknum og skipti sköpum hér í kvöld,“ sagði Ólafur Þórðarson, þjálfari Fylkis, þó með stóískri ró, eftir að lið hans beið lægri hlut fyrir Fram 2-0, í 8-liða úrslitum VISA-bikars karla í knattspyrnu.

Kristján Guðmundsson: Vitum af veikleikum í varnarleik FH-liðsins

„Við vorum feykilega góðir allan tímann þar sem við erum ellefu inn á vellinum. Við náðum þessum markmiði okkar sem var að skora fyrsta markið í leiknum," sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur eftir 3-1 sigur á FH í átta liða úrslitum VISA-bikarsins í kvöld.

Grétar Sigfinnur: Áttum ekki að fá á okkur mark

Grétar Sigfinnur Sigurðarson fyrirliði KR hefur leikið þrjá Evrópuleiki á ferlinum og skorað í þeim tvö mörk en vildi lítið dvelja við það enda ósáttur við að landa ekki sigri gegn Basel í kvöld.

Toure: Manchester City getur unnið titilinn

Fílabeinsstrendingurinn Kolo Toure, nýjasti liðsmaður Manchester City, hefur fulla trú á því að félagið geti látið til sín taka strax á næstu leiktíð og svo unnið ensku úrvalsdeildinni í náinni framtíð.

Neville gagnrýnir eltingarleik City á eftir Lescott

Fyrirliðinn Phil Neville hjá Everton er allt annað en sáttur með kaupæði forráðamanna Manchester City í sumar og þá síst af öllu hvernig þeir neita að gefast upp á að fá Joleon Lescott varnarmann og liðsfélaga Neville hjá Everton.

Smá bakslag í endurkomu Rosicky

Miðjumaðurinn Tomas Rosicky hjá Arsenal hefur hægt og bítandi verið að ná sér eftir erfið meiðsli sem héldu honum lengi utan vallar en spilaði til að mynda á dögunum sinn fyrsta leik í átján mánuði þegar Arsenal mætti Barnet.

Keflvíkingar slógu FH-inga út úr bikarnum annað árið í röð

Keflvíkingar halda áfram að reynast Íslandsmeisturum FH-inga afar erfiðir eftir að þeir slógu þá út úr VISA-bikarnum annað árið í röð með 3-1 sigri á Sparisjóðsvellinum í Keflavík í kvöld. Símun Samuelsen skoraði tvö mörk Keflvíkinga, lagði upp það þriðja og átti mestan þátt í að Keflvíkingar eru komnir i undanúrslitaleikinn.

Murphy vill enda ferilinn hjá Fulham

Fyrirliðinn Danny Murphy hjá Fulham hefur staðfest að hann sé nálægt því að skrifa undir samning við Lundúnafélagið til ársins 2011 en miðjumaðurinn gamalreyndi hefur verið sterklega orðaður við bæði Birmingham og Stoke í sumar.

Redknapp útilokar ekki að fá Huntelaar

Knattspyrnustjórinn Harry Redknapp hjá Tottenham viðurkennir að hann sé enn ekki búinn að gefa upp alla von á að landa framherjanum Klaas-Jan Huntelaar til Lundúnafélagsins í sumar.

Wenger ætlar ekki að flýta sér að eyða City-peningunum

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur ekki áhyggjur af því að liðið geti ekki keppt um enska meistaratitilinn þrátt fyrir að hann sé búinn að selja miðvörðinn Kolo Toure og framherjann Emmanuel Adebayor til Manchester City.

Fram - Fylkir 2-0: Umfjöllun

Það voru frábærar aðstæður til knattspyrnuiðkunar á Laugardalsvelli, þar sem Fylkismenn sóttu Framara heim, í 8-liða úrslitum VISA bikarsins í knattspyrnu karla. Leiknum lauk með 2-0 sigri Fram.

Sjá næstu 50 fréttir