Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Einn besti leikurinn undir minni stjórn Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Portsmouth, var himinlifandi með leik sinna manna í sigurleiknum gegn Bolton í dag og sagði leikinn einn þann besta sem liðið hefði spilað undir hans stjórn. 18.8.2007 14:44
Spáð í spilin: Birmingham v West Ham Birmingham tekur á móti West Ham á St. Andrews í ensku úrvalsdeildinni í dag. Birmingham er með eitt stig eftir tvo leiki en drengirnir hans Eggerts Magnússonar í West Ham er án stiga eftir tap gegn Manchester City í fyrstu umferðinni. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn 2 og hefst kl. 14. 18.8.2007 13:30
Spáð í spilin: Reading v Everton Reading, með Íslendingana Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson innanborðs, tekur á móti Everton í ensku úrvalsdeildinni í dag. Reading hefur nælt sér í eitt stig gegn tveimur bestu liðum deildarinnar, Manchester United og Chelsea, en Everton er með fullt hús stiga. Líklegt er að bæði Ívar og Brynjar Björn verði í byrjunarliði Reading. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn Extra. 18.8.2007 13:15
Joorabchian vill láta skoða Tevez-málið upp á nýtt Íranski athafnamaðurinn Kia Joorabchian, sem er umboðsmaður og eigandi Carlosar Tevez, vill láta skoða mál skjólstæðings síns ofan í kjölinn á nýjan leik þar sem hann segir margt óskýrt enn. Joorabchian segist vera tilbúinn til að borga allan kostnað sjálfur af nýrri rannsókn. 18.8.2007 13:06
Spáð í spilin: Fulham v Middlesbrough Fulham og Middlesbrough mætast í ensku úrvalsdeildinni í dag. Fulham vann mikilvægan sigur á Bolton í miðri viku en Middlesbrough hefur tapað tveimur fyrstu leikjum sínum. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn Extra 3 og hefst kl. 14. 18.8.2007 13:00
Spáð í spilin: Tottenham v Derby Tottenham og Derby eigast við í ensku úrvalsdeildinni í dag. Tottenham hefur byrjað tímabilið afar illa og tapað tveimur fyrstu leikjunum. Nýliðar Derby nældu sér hins vegar í stig í fyrstu umferðinni og virðast vera sprækir. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn Extra 2 og hefst kl. 14. 18.8.2007 12:45
Spáð í spilin: Wigan v Sunderland Roy Keane og lærisveinar hans í Sunderland sækja Wigan heim á JJB-leikvanginn. Nýliðar Sunderland eru enn taplausir í deildinni en Wigan er líka á góðu róli eftir sigur gegn Middlesbrough á miðvikudaginn. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn Extra 4 og hefst kl. 14. 18.8.2007 12:30
Öruggur sigur hjá Portsmouth Portsmouth bar sigurorð af Bolton, 3-1, í ensku úrvalsdeildinni í dag. Nwankwo Kanu, John Utaka og Matt Taylor skoruðu mörk Portsmouth eftir að Frakkinn Nicolas Anelka hafði komið Bolton yfir. Hermann Hreiðarsson spilaði allan leikinn fyrir Portsmouth en Heiðar Helguson spilaði síðustu sex mínútur leiksins. Portsmouth er komið með fimm stig en Bolton er enn án stiga. 18.8.2007 11:00
Bellamy kominn upp á kant við Curbishley Það tók vandræðagemlinginn Craig Bellamy aðeins mánuð að komast upp á kant við Alan Curbishley, knattspyrnustjóra West Ham. Bellamy reifst heiftarlega við Curbishley eftir tapleik liðsins gegn Manchester City um síðustu helgi og gæti þess vegna hafa spilað sinn síðasta leik fyrir félagið. 18.8.2007 09:54
Ferguson skýtur fast á Eriksson Það ríkir lítill kærleikur á milli knattspyrnustjóranna Alex Ferguson hjá Manchester united og Sven Görans Eriksson hjá Manchester City. Liðin mætast á morgun í ensku úrvalsdeildinni og hefur Ferguson þegar hafið sálfræðistríð gegn Svíanum. Hann segist búast við grófum leik af hendi Manchester City og að hann þekki aðeins tvo af þeim átta leikmönnum sem Eriksson keypti fyrir tímabilið. Ferguson og Eriksson háðu margan hildinn þegar Eriksson var landsliðsþjálfari Englands og rifust oft eins og hundur og köttur. 18.8.2007 09:52
Spáð í spilin: Portsmouth v Bolton Það verður sannkallaður Íslendingaslagur á Fratton Park nú eftir þegar Portsmouth, lið Hermanns Hreiðarssonar, tekur á móti Heiðari Helgusyni og félögum hans í Bolton. Ekki er búist við öðru en að þeir verði báðir í byrjunarliðum sinna félaga. Leikurinn hefst klukkan 11.45 og er í beinni útsendingu á Sýn 2. 18.8.2007 09:37
Torres hlakkar til leiksins gegn Chelsea Spænski framherjinn Fernando Torres hjá Liverpool getur ekki beðið eftir því að mæta Chelsea en liðin mætast í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Torres þykir hafa byrjað vel með Liverpool eftir að hann var keyptur frá Atletico Madrid fyrir 26 milljónir punda í sumar og segir leikinn gegn Chelsea á Anfield vera þann sem hann hafi hlakkað hvað mest til þegar hann skrifaði undir samning við Liverpool. 18.8.2007 09:02
Fram er ekki versta liðið í deildinni Sænski miðjumaðurinn Alexander Steen átti mjög góðan leik á miðju Fram í leiknum gegn Íslandsmeisturum Fram í fyrradag og er leikmaður umferðarinnar að mati Fréttablaðsins. Hann segir Fram vera með alltof gott lið til að falla úr Landsbankadeildinni og hefur fulla trú á að liðið nái að rétta úr kútnum í lokaumferðunum. 18.8.2007 09:00
Beckham er réttborinn fyrirliði Landon Donovan, bandaríski landsliðsmaðurinn og ein helsta stjarna bandarísku atvinnumannadeildarinnar, hefur fært sínum nýja liðsfélaga David Beckham fyrirliðaarmbandið sem hann hefur borið síðustu ár. 18.8.2007 08:15
Van Nistelrooy valinn á ný Ruud van Nistelrooy, framherji Real Madrid, hefur verið valinn í hollenska landsliðið á ný eftir að hafa verið úti í kuldanum frá því á HM í fyrra. 18.8.2007 08:15
Voru á botninum í 80 daga KR-ingar komu sér af botni Landsbankadeildar karla með því að vinna 1-0 sigur á Víkingum í Víkinni í fyrrakvöld. 18.8.2007 08:00
Hreifst af metnaði félagsins Kieron Dyer, nýjasti liðsmaður Íslendingaliðsins West Ham, segist hafa hrifist af gríðarlegum metnaði félagsins og að sá mikli vilji Eggerts Magnússonar og annarra forráðamanna þess um að koma liðinu í fremstu röð hafi ráðið mestu í ákvörðun sinni um að skrifa undir fjögurra ára samning við félagið. 18.8.2007 08:00
Markaveisla í leikjum Sýnar Sjónvarpsstöðin Sýn hefur þegar sýnt 21 leik í beinni útsendingu úr Landsbankadeild karla í sumar og flestir þeirra hafa verið miklir markaleikir og mikil skemmtun fyrir áhorfendur. 18.8.2007 07:45
Skiptir gríðarlega miklu máli fyrir HK Jón Þorgrímur Stefánsson skoraði sigurmark HK í 2-1 sigri á Keflavík í 13. umferð Landsbankadeildar karla og þessi 32 ára sóknarmaður og einn af reynsluboltunum í liði nýliðanna hefur átt mikinn þátt í öllum fjórum sigurleikjum liðsins í sumar. 18.8.2007 07:30
Viljum hafa sem flesta KR-inga úti Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR hefur ekki áhyggjur af því þótt önnur félög á Íslandi séu að bera víkjurnar í Jakob Örn Sigurðarson og Helga Már Magnússon. Ef að þeir verða heima þá spila þeir með KR. 18.8.2007 07:30
Vill að Ronaldo fái meiri vernd Fótbolti Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, vill að dómarar í ensku úrvalsdeildinni veiti Cristiano Ronaldo meiri vernd í návígjum. Ferguson vill meina að Ronaldo sé ávallt í umtalsverðri hættu á að hljóta alvarleg meiðsl. 18.8.2007 07:15
Komst ekki áfram í Svíþjóð Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson komst ekki í gegnum niðurskurðinn á skandínavíska meistaramótinu í golfi sem nú stendur yfir í Stokkhólmi. Birgir Leifur lék á alls sjö höggum yfir pari á fyrstu tveimur hringjunum og var nokkuð langt frá því að komast áfram. 18.8.2007 07:15
Campbell og James valdir Varnarmaðurinn Sol Campbell og markvörðurinn David James, gömlu kempurnar í liði Portsmouth, voru í gær valdir í enska landsliðið á nýjan leik. 18.8.2007 06:45
Joanna Skiba til Grindavíkur Körfubolti Kvennalið Grindavíkur hefur samið við Joanna Skiba, bandarískan bakvörð af pólskum ættum sem hefur evrópskt vegabréf. 18.8.2007 06:15
Situr ÍA-leikurinn í Keflavík? Það gengur ekkert hjá Keflvíkingum í fótboltanum þessa dagana og eftir 1-2 tap fyrir HK í Kópavogi blasir sú kalda staðreynd við liðinu að Keflavíkurliðið er komið niður í neðri hluta Landsbankadeildarinnar. 18.8.2007 06:15
Harpa með sigurmarkið í upphafi leiks Stjörnustúlkur unnu nauman 1-0 útisigur á Fjölnisstelpum í Landsbankadeild kvenna í Grafarvogi í gær en fyrir leikinn voru liðin jöfn í 5. sæti með tólf stig. 18.8.2007 06:15
Átta lið keppa um fimm sæti Riðlakeppni 3. deildar karla í knattspyrnu lýkur í dag en það er ljóst hvaða félög leika í úrslitakeppninni sem hefst laugardaginn 25. ágúst. 18.8.2007 06:00
Hermann og Heiðar mætast Hádegisleikurinn í ensku úvalsdeildinni í knattspyrnu verður Íslendingaslagur af bestu gerð en Hermann Hreiðarsson og Heiðar Helguson mætast þá í fyrsta sinn með sínum nýju félögum. 18.8.2007 06:00
Lítið að segja um Eið Smára Alan Curbishley, knattspyrnustjóri West Ham, tók undir ummæli Eggerts Magnússonar, stjórnarformanns síns, þegar hann var spurður um áhuga sinn á íslenska landsliðsfyrirliðanum Eiði Smára Guðjohnsen í gær. 18.8.2007 06:00
Nedved hafnaði Inter í sumar Tékkneski miðjumaðurinn Pavel Nedved hefur greint frá því að hann hafnaði tilboði frá meisturum Inter Milan í sumar. Nedved er sem fyrr á mála hjá Juventus og spilað með liðinu í næstefstu deild á Ítalíu á síðustu leiktíð. 18.8.2007 05:45
Stjarnan og Breiðablik unnu Tveir leikir fóru fram í Landsbankadeild kvenna í fótbolta í kvöld. Breiðablik bar sigurorð af ÍR, 4-1. og Stjarnan vann Fjölni, 1-0, í Grafarvoginum. Breiðablik komst með sigrinum upp í þriðja sæti deildarinnar með 22 stig en Stjarnan er í fimmta sæti með 15 stig. Fjölnisstúlkur eru í sjötta sæti með tólf stig en ÍR í áttunda og næstneðsta sæti með fjögur stig. 17.8.2007 22:15
Video: Ótrúleg tilþrif Falcao Þeir verða ekki mikið öflugari í innanhúsbolta en Falcoa. Brasilíumaðurinn á nokkur brögð í erminni sem fáir geta leikið eftir. Hann leikur með landsliði Brasilíumanna í innanhúsfótbolta og á þessu myndbandi sést hann leika listir sínar. 17.8.2007 17:56
Fjögurra stiga forysta mikilvæg Framherjinn frábæri Didier Drogba hjá Chelsea segir að það geti reynst liðinu mikilvægt að vera komið með fjögurra stiga forystu á Manchester United eftir aðeins tvær umferðir. Chelsea hefur unnið báða leiki sína til þessa en Manchester United aðeins náð jafntefli gegn Reading og Portsmouth. 17.8.2007 17:46
Moyes brjálaður eftir að Van Der Meyde skrópaði á æfingu Hollenski miðjumaðurinn hjá Everton, Andy Van Der Meyde, hefur verið sektaður um nokkra vikna laun fyrir að hafa skrópað á æfingu síðasta sunnudag. David Moyes, þjálfari liðsins, er sagður brjálaður vegna málsins og ætlar að taka ákvörðun um framtíð leikmannsins í næstu viku. 17.8.2007 16:58
McLaren valdi Beckham í landsliðið Steve McClaren, landsliðsþjálfari Englendinga, valdi rétt í þessu hópinn sem mætir Þjóðverjum í vináttuleik á miðvikudag. Það er helst að frétta af valinu að David Beckham var valinn í hópinn ásamt nýliðanum Steven Taylor hjá Newcastle. Þá voru reynsluboltarnir hjá Portsmouth, Sol Campbell og David James, valdir á ný í hópinn. Hann má sjá í heild sinni hér fyrir neðan. 17.8.2007 14:43
Schmeichel stoltur af syninum Hinn goðsagnarkenndi markvörður Peter Schmeichel, sem lék með Manchester United á árum áður, er stoltur af syni sínum Kasper, sem haldið hefur hreinu fyrir Manchester City í fyrstu tveim leikjum tímabilsins. "'Eg er mjög stoltur því Kasper hefur staðið sig vel," segir Schmeichel eldri í viðtali við Daily Mail í dag. 17.8.2007 11:43
Undrabarn skrifar undir hjá LIverpool Liverpool hefur fengið til liðs við sig ungverska undrabarnið Peter Gulacsi. Gulacsi þessi er 17 ára markvörður og þykir einn sá allra efnilegasti í Evrópu. Hann kemur frá MTK Búdapest en það lið skrifaði undir samstarfssamning við Liverpool fyrr á árinu. Samningurinn kveður á um að Liverpool fái forkaupsrétt á efnilegum leikmönnum MTK sem á móti getur fengið leikmenn að láni frá Liverpool. 17.8.2007 10:48
Glaumgosi kaupir QPR Ítalski glaumgosinn Flavio Briatore mun ganga frá kaupum á hinu fornfræga knattapyrnuliði Queens Park Rangers á mánudaginn. Briatore mun greiða 22 milljónir punda fyrir klúbbinn og bjarga QPR frá yfirvofandi gjaldþroti. 17.8.2007 10:05
Keypti 57 þúsund króna rauðvínsflösku fyrir Sir Alex Sven Goran Erikson ætlar að bjóða Sir Alex Ferguson í rauðvín eftir leik erkióvinanna í United og City á sunudaginn. Erikson er þegar búinn að kaupa flösku fyrir tilefnið en það er 57 þúsund króna Cabernet Sauvignon flaska. 17.8.2007 09:12
Dregið í aðra umferð deildarbikarsins í Englandi Dregið var í aðra umferð deildarbikarsins í kvöld. Tólf úrvalsdeildarlið koma inn í keppnina núna, en engin úrvalsdeildarlið drógust þó saman. Áhugavert verður að fylgjast með leik Portsmouth og Leeds en eins og margir vita þá féll Leeds niður í þriðju efstu deild Englands síðastliðið vor. Íslendingaliðið West Ham heimsækir Bristol Rovers. Leikirnir verða spilaðir 27. ágúst. 16.8.2007 21:51
KR komið úr botnsætinu Fimm leikir fóru fram í Landsbankadeild karla í kvöld. Fjögur efstu liðin fyrir umferðina töpuðu stigum í kvöld en KR-ingar komu sér af botninum með sigri á Víkingum á meðan Fram náði jafntefli í Kaplakrikanum, en þar með er Fram á botni deildarinnar. Keflvíkingar eru dottnir niður í sjötta sætið en staða FH og Vals í toppbaráttunni er óbreytt. 16.8.2007 19:41
Ármann Smári skoraði fyrir Brann í sigri á Suduva Ármann Smári Björnsson skoraði fyrra mark Brann í 2-1 sigri á Suduvas í fyrrli leik liðanna í forkeppni Evrópukeppni félagsliða. Ármann skoraði markið á 24. mínútu leiksins. Robbie Winters bætti öðru marki við fyrir Brann áður en Jose Negreiros jafnaði leikinn fyrir Suduvas. Kristján Örn Sigurðsson og Ólafur Örn Bjarnason spiluðu allan leikinn fyrir Brann ásamt Ármanni Smára. 16.8.2007 18:55
Curbishley ósáttur með ummæli Konchesky Alan Curbishley, knattspyrnustjóri West Ham, íhugar málsókn gegn fyrrverandi leikmanni West Ham, Paul Konchesky. Konchesky, sem yfirgaf West Ham í sumar, gagnrýndi Curbishley harkalega í viðtali sem birtist um helgina. Konchesky gagnrýndi meðal annars stjórnunarhæfileika stjórans og sagði að West Ham kæmist ekkert áfram með Curbishley í brúnni. 16.8.2007 18:17
Mido skrifar undir hjá Middlesbrough Egypski framherjinn Mido hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Middlesbrough. Middlesbrough borgar Tottenham sex milljónir punda fyrir þennan 24 ára gamla leikmann. Mido gæti þreytt frumraun sína með félaginu gegn Fulham um helgina. 16.8.2007 17:10
Birgir Leifur lauk leik á fimm yfir pari Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson lauk leik á fyrsta keppnisdegi á Scandinavian Masters á fimm höggum yfir pari. Birgir lék fyrri níu holurnar á 36 höggum en þær síðari á 39 höggum. Hann fékk þrjá skolla, einn tvöfaldan skolla og 14 pör í dag. 16.8.2007 17:03