Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Steven Gerrard er tábrotinn Forráðamenn Liverpool hafa staðfest að fyrirliði liðsins, Steven Gerrard, hafi tábrotnað í leiknum gegn Toulouse í gær. Gerrard þurfti að yfirgefa völlinn á 64. mínútu vegna meiðslanna og í læknisskoðun kom í ljós að táin væri brotin. Gerrard mun samt spila gegn Chelsea á sunnudaginn en mun svo hvíla í 2-3 vikur. 16.8.2007 14:27
“Ég ætlaði ekki að fiska Ronaldo útaf Leikmaðurinn sem Cristiano Ronaldo skallaði í gærkvöld, og fékk rautt spjald fyrir, hefur tjáð sig um atvikið. Richard Hughes segir það ekki hafa verið ætlun sína að fiska Ronaldo út af eins og Alex Ferguson gaf í skyn eftir leikinn í gær. 16.8.2007 13:59
Dyer kominn til West Ham West Ham hefur gengið frá kaupum á enska landsliðsmanninum Kieran Dyer frá Newcastle fyrir tæpar 7 milljónir punda. Talið var að kaupin yrðu að engu eftir að Newcastle snarhækkaði verðmat sitt á leikmanninum fyrir skömmu en liðin hafa nú náð samkomulagi um sanngjarnt verð fyrir Dyer. 16.8.2007 13:30
Bellamy og Ljungberg vilja Eið Smára Samkvæmt heimildum Vísis úr innsta hring knattspyrnuklúbbsins West Ham eru tveir af bestu leikmönnum liðsins, Craig Bellamy og Freddie Ljungberg, æstir í að fá Íslendinginn Eið Smára Guðjohnsen til liðsins. Þeir telja Eið kjörinn til að koma bitlausum sóknarleik liðsins í lag 16.8.2007 13:13
Myndaveisla úr 2. umferð enska boltans Vísir heldur áfram að safna saman bestu ljósmyndunum úr enska boltanum. Nú getur þú séð nokkrar af skemmtilegustu myndunum úr 2. umferð. Smelltu á myndaalbúmið hér fyrir neðan til að skoða myndirnar. 16.8.2007 13:11
Ætla í mál við Eggert og Björgólf Talsmaður Sheffield United tilkynnti áðan að liðið hyggist höfða skaðabótamál gegn West Ham og krefjist að Eggert, Björgólfur og félagar bæti þeim fjárhagstjónið sem Sheffield varð fyrir við það að falla niður um deild. 16.8.2007 10:06
Enski: Öll mörk gærkvöldsins á Vísi Fimm leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni i gærkvöld. Eins og við var að búast var skoraður fjöldinn allur af glæsilegum mörkum af öllum gerðum. Eins og venjulega getur þú séð öll mörkin hér á Vísi. 16.8.2007 09:49
Video: Fyrsta mark Beckham fyrir Galaxy David Beckham skoraði í gærkvöld fyrsta mark sitt fyrir Los Angeles Galaxy síðan hann kom til liðsins í sumar. Markið kom á 27.mínútu í leik liðsins við DC United í undanúrslitum bandarísku bikarkeppninnar. 16.8.2007 09:34
Abramovich sagði nei Roman Abramovich, eigandi Chelsea, hefur neitað að samþykkja kaup félagsins á brasilíska bakverðinum Daniel Alves frá Sevilla fyrir 24,5 milljónir punda. Hann hefur sent Peter Kenyon, yfirmanni knattspyrnumála hjá félaginu þau skilaboð að drífa sig aftur til Spánar og kaupa Alves fyrir lægra verð. 16.8.2007 08:43
Drogba er leikmaður 2. umferðar í úrvalsdeildinni Framherjinn frábæri Didier Drogba hjá Chelsea er leikmaður 2. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar að mati Vísis. Drogba kom inn í lið Chelsea eftir meiðsli gegn Reading í kvöld og átti stóran þátt í sigri síns liðs, 2-1. Drogba lagði upp fyrra mark Chelsea og skoraði það síðara með glæsilegu skoti. 15.8.2007 23:45
Þróttur R. á topp 1. deildar Þróttur R. komst í kvöld á topp fyrstu deildarinnar með góðum sigri á heimavelli gegn Víking Ó. Leikurinn var markalaus lengi vel áður en Hjörtur Hjartarson kom Þrótturum yfir á 83. mínútu og það var svo Adolf Sveinsson sem tryggði sigurinn á lokamínútum leiksins. Þróttarar eru því efstir í deildinni með 37 stig eftir 16 leiki en Grindavík er í öðru sæti með 35 stig eftir 15 leiki. 15.8.2007 21:55
Arsenal sigraði örugglega í Tékklandi Arsenal sigraði Sparta Prag örugglega í Tékklandi í kvöld með tveimur mörkum gegn engu í fyrri leik liðanna í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Markalaust var í hálfleik en Cesc Fabregas og Alexander Hleb skoruðu í seinni hálfleik og tryggðu Arsenal dýrmætan útisigur. 15.8.2007 21:11
Heiðar skoraði gegn sínum gömlu félögum Heiðar Helguson nýtti tækifærið vel að vera í byrjunarliði Bolton í kvöld því að það tók hann aðeins 12 mínútur að koma sínu liði yfir. Mark Heiðars dugði þó ekki til sigurs því að Fulham svaraði með tveimur mörkum fyrir leikhlé og þar við sat. Heiðari var svo skipt út af á 72. mínútu fyrir Daniel Braaten. 15.8.2007 20:57
Úrslit leikja úr ensku úrvalsdeildinni Sex leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Manchester United náði aðeins jafntefli gegn Portsmouth á meðan erkifjendurnir í Chelsea sigruðu Reading eftir að hafa lent undir. Heiðar Helguson skoraði fyrir Bolton í tapleik gegn Fulham. Sunderland náði jafntefli gegn Birmingham með marki á síðustu andartökum leiksins. 15.8.2007 18:35
Portsmouth náði jafntefli gegn Manchester Unied Portsmouth náði jafntefli á heimavelli gegn Manchester United í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. United var einu marki yfir í hálfleik eftir að Paul Scholes skoraði fallegt mark á 15. mínútu. Benjamin Mwaruwari jafnaði leikinn fyrir Portsmouth á 53. mínútu. Cristiano Ronaldo og Sulley Muntari fengu rautt spjald í leiknum. Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn fyrir Portsmouth. 15.8.2007 18:26
Carragher segir Liverpool eiga erfitt verkefni framundan Jamie Carragher, varnarmaður Liverpool, segir að liðið eigi erfitt verkefni fyrir höndum þegar þeir spila seinni leikinn gegn Toulouse á Anfield. Liverpool vann í dag, 0-1. Útimarkið setur Liverpool í sterka stöðu fyrir seinni leikinn en Carragher segir verkið aðeins hálfnað. 15.8.2007 17:34
NBA dómari gæti átt yfir höfði sér allt að 25 ára fangelsisdóm Tim Donaghy, fyrrverandi dómari í NBA deildinni hefur játað sig sekan um að hjálpa tveimur félögum sínum að veðja á leiki sem hann dæmdi sjálfur. Donaghy veitti þeim trúnaðarupplýsingar eins og um líkamlegt ástand sérstakra leikmanna og hvaða dómarar myndu dæma hvaða leiki. Donaghy getur átt allt að 25 ára fangelsi yfir höfði sér, en búist er við vægari dómi vegna samstarfs hans við saksóknara í málinu. Donaghy hefur verið leystur úr haldi gegn tæplega 17 milljóna króna tryggingargjaldi. 15.8.2007 16:45
Video: Fáránlegt mark í SuperLiga Dwayne De Rosario, leikmaður Houston Dynamo, skoraði eitt fáránlegasta mark sem sést hefur í undanúrslitaleik SuperLiga, bandarísku bikarkeppninnar, á milli Pachucha og Houston Dynamo. Á einhvern furðulegan hátt tókst honum að sparka boltanum í andlitið á sér og þaðan í markið. Mark De Rosario var fyrsta mark leiksins sem endaði 2-2 og fór í vítaspyrnukeppni. Sjón er sögu ríkari. Sjáðu markið hér 15.8.2007 16:33
Levante hafnar Luque vegna of hárra launakrafna Spænska liðið Levante hefur slitið á allar samningsviðræður við framherjann Albert Luque hjá Newcastle vegna of hárra launakrafna leikmannsins. Luque dreymir um að komast frá Englandi áður en leikmannaglugginn lokar til að enda martröð sína hjá Newcastle, en framherjinn hefur ekki staðið undir væntingum síðan hann var keyptur til Newcastle. 15.8.2007 16:25
CSKA Sofia fær metsekt í Búlgaríu CSKA Sofia frá Búlgaríu hefur verið dæmt til að borga metsekt vegna óláta stuðningsmanna liðsins síðastliðinn laugardag í leik gegn Litex. Félagið þarf að borga 1,7 milljón krónur í sekt ásamt því að þurfa að spila næstu tvo heimaleiki fyrir luktum dyrum. 15.8.2007 15:59
Bandaríkjadvölin hefur ekki áhrif á landsliðsferil Beckham Steve McClaren, landsliðsþjálfari Englands, segir að sú staðreynd að David Beckham skuli spila með LA Galaxy í Bandaríkjunum muni ekki hafa áhrif á stöðu hans í landsliðinu. McClaren flaug til Bandaríkjanna í síðustu viku til að til að ræða við Beckham um ástand hans og til að sjá leik í bandarísku deildinni með eigin augum. 15.8.2007 15:15
Alvaro Quiros högglengstur - Birgir Leifur 50 Ýmis tölfræði er haldin yfir leikmenn á atvinnmannamótaröðunum og eitt að því er högglengd. Á Evrópumótaröðinnni er Alvaro Quiros með lengstu teighöggin að meðaltali eða 310,8 yarda. Fjórir kylfingar eru með yfir 300 yarda að meðaltali en það eru fyrir utan Quiros eru Daniel Vancsik með 301 yards, Emanuele Canonica með 300,5 yarda og Henrik Stenson með 300,4 yarda. Birgir Leifur Hafþórsson er númer 50 á þessum lista yfir högglengstu menn með 287,8 yarda að meðaltali. 15.8.2007 14:44
Liverpool sigraði Toulouse Nú rétt í þessu lauk fyrri leik Toulouse og Liverpool í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Leiknum lauk með 0-1 sigri Liverpool. Eina mark leiksins skorði Andriy Voronin með góðu skoti á 42. mínútu leiksins. 15.8.2007 14:34
Yobo vill fá Yakubu Varnarmaðurinn sterki, Joseph Yobo, vill fá Yakubu til liðs við Everton frá Middlesbrough. Everton hefur verið á eftir leikmanninum í nokkra stund núna og gert tilraunir til að fá sóknarmanninn sterka. Yobo segir Yakubu vera heimsklassaleikmann, en þeir eru saman í nígeríska landsliðinu. 15.8.2007 14:23
Lampard með eigin sjónvarpsstöð Miðjumaðurinn sterki hjá Chelsea, Frank Lampard, hefur skrifað undir samning við breska símafélagið Orange um stofnun Frank TV. Frank TV er sjónvarpsstöð, algjörlega helguð Lampard, sem viðskiptavinir Orange hafa einir aðgang að en þar verður sjónvarpað áður óséðu efni sem Lampard hefur verið að taka upp undanfarin tvö tímabil. 15.8.2007 13:29
11 flottustu fótboltaeiginkonurnar Í Englandi njóta konur kanttspyrnukappa litlu minni athygli en makarnir. Roy Keane knattspyrnustjóri Sunderland hefur gagnrýnt þetta harðlega og segir að enska úrvalsdeildin eigi að snúast um fótbolta, ekki flotta bíla og skemmtanalíf. Þó að við á Vísi séum þessu alveg sammála gátum við ekki setið á okkur og tókum því saman lista yfir ellefu flottustu konur knattspyrnukappa í enska boltanum. 15.8.2007 12:47
Guðjón Valur frá í fjórar vikur vegna hnémeiðsla Landsliðsmaðurinn í handbolta, Guðjón Valur Sigurðsson verður frá í allt að fjórar vikur vegna hnémeiðsla. Þýski vefmiðilinn Handball Wolrd greindi frá þessu í morgun en þar kemur fram að Guðjón þurfi að fara í speglun á hné. Alfreð Gíslason þjálfari Gummersbach segir við vefmiðilinn að þetta sé enn eitt reiðarslagið fyrir liðið en Róbert Gunnarsson er einnig meiddur og verður frá í einhverjar vikur. 15.8.2007 11:59
JOLasveinn á botninum eftir 13 milljarða innkaup Martin Jol hefur keypt leikmenn fyrir rúmlega 100 milljón pund, eða um 13 milljarða króna. Samt sem áður situr lið hans, Tottenham, í neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 0 stig. Sjáðu 10 dýrustu leikmannakaup Martin Jol hér fyrir neðan. 15.8.2007 11:52
McClaren grátbað Carragher um að snúa aftur Steve McClaren, landsliðsþjálfari Englendinga, fór í gær á æfingasvæði Liverpool til að ræða við Jamie Carragher. Hann grátbað leikmanninn um að endurskoða ákvörðun sína um að gefa ekki kost á sér í landsliðið og sagði honum að byrjunarliðssæti væri víst í fjarveru John Terry. Carragher neitaði. Carragher lagði sem kunnugt er landsliðskóna á hilluna í fyrra og sagði því um að kenna að hann ætti ekki möguleika á byrjunarliðssæti. 15.8.2007 11:23
Mörkin úr leik Tottenham og Everton Eins og venjulega geta lesendur Vísis séð mörkin úr öllum leikjum ensku úrvalsdeildarinnar. Í gær léku Tottenham og Everton á White Hart Lane og lyktaði leiknum með 1-3 sigri Everton. 15.8.2007 11:09
Spáð í spilin: Margir spennandi leikir í kvöld Það eru ekki bara leikir Chelsea og Manchester United sem eru áhugaverðir í kvöld. Sýn býður upp á þrjá leiki til viðbótar sem verða án efa gríðarlega spennandi. Vísir renndi yfir liðin og skoðaði hvaða breytingar verða gerðar frá því um helgina. 15.8.2007 10:30
Spáð í spilin: Reading - Chelsea Það er alls óvíst hvort Michael Essien nái að verða heill fyrir leikinn í kvöld. Hann er tæpur á hné eftir samstuð í leiknum gegn Birmingham um helgina. Paulo Ferreira byrjaði að æfa aftur með liðinu í vikunni en Glen Johnson heldur þó líklega sæti sínu í einn leik í viðbót þrátt fyrir að bera ábyrgð á öðru marki Birmingham á sunnudaginn. Leikurinn er klukkan 18:55 og er sýndur í beinni á Sýn Extra. 15.8.2007 09:42
Spáð í spilin: Portsmouth - Man Utd Sol Campell og Pedro Mendes verða að standast skoðun hjá sjúkraþjálfara Portsmouth til þess að komast í hópinn gegn Manchester United í kvöld. Þeir eru báðir meiddir á nára. Hermann Hreiðarsson mun að öllum líkindum halda sínu sæti í byrjunarliðinu. Leikurinn hefst klukkan 18:35 og er í beinni á Sýn2 15.8.2007 09:18
Chelsea búið að ná samkomulagi við Sevilla um Alves Fjölmiðlar á Spáni halda því fram að Chelsea hafi náð samkomulagi við Sevilla um kaupverð á bakverðinum Daniel Alves. Greint er frá því að Peter Kenyon, stjórnarformaður Chelsea, hafi verið staddur í Madrid í vikunni til að ræða við forráðamenn Sevilla og náðst hafi samkomulag um að Chelsea myndi borga 25 milljónir punda fyrir leikmanninn. 14.8.2007 21:06
Everton sigraði Tottenham á White Hart Lane Everton sigraði Tottenham í kvöld í fyrsta leik 2. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. Everton átti sigurinn skilið en aðeins Paul Robinson kom í veg fyrir að sigurinn yrði stærri. Þar með er lið Tottenham búið að tapa báðum leikjum sínum í úrvalsdeildinni en Everton búið að vinna báða. Joleon Lescott, Leon Osman og Alan Stubbs skoruðu fyrir Everton en Ricardo Gardner skoraði mark Tottenham. 14.8.2007 18:54
Sammy Lee biður um þolinmæði Sammy Lee, knattspyrnustjóri Bolton, biður stuðningsmenn félagsins að sýna sér þolinmæði á meðan hann er að byggja upp liðið. Lee hefur fengið tólf nýja leikmenn til liðsins í sumar og segir hann að nýju leikmennirnir séu enn að aðlagast. Bolton tapaði fyrir Newcastle í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar á laugardaginn. 14.8.2007 18:04
Valsstúlkur fóru létt með hollensku meistarana Valsstúlkur kláruðu riðlakeppni Evrópumóts félagsliða með stæl í dag þegar þær unnu stórsigur á hollensku meisturunum í Den Haag með fimm mörkum gegn einu. Þar með fóru Valsstúlkur í gegnum riðilinn með fullt hús stiga, eða níu stig eftir þrjá leiki. Valur fer því í milliriðla sem hefjast um miðjan október. 14.8.2007 17:03
Landsliðshópur kvenna valinn Guðjón Skúlason, landsliðsþjálfari kvenna, hefur valið 14 leikmenn sem munu taka þátt í þremur leikjum í Evrópukeppni landsliða í september. Þetta er seinni hluti keppnarinnar sem liðið tók þátt í síðastliðið haust. Fyrsti leikurinn mun fara fram á Ásvöllum þann 1. september gegn Hollandi, en hollensku stelpurnar eru efstar í riðlinum. Í kjölfarið fylgja útileikir gegn Noregi (8. sept) og gegn Írlandi (15. sept). 14.8.2007 16:36
Spáð í spilin: Tottenham - Everton Tottenham og Everton mætast klukkan 19:00 í kvöld í fyrsta leik annarar umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. Leikurinn fer fram á heimavelli Tottenham, White Hart Lane og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn 2. Everton mæta til leiks með þrjú stig í pokanum eftir 2-1 sigur á Wigan um helgina. Þeir verða hins vegar án nokkurra leikmanna vegna meiðsla. Þeirra á meðal er bakvörðurinn Leighton Baines, sem á enn eftir að þreyta frumraun sína fyrir Everton. 14.8.2007 15:39
Vísir velur úrvalslið U21 leikmanna Smelltu á myndaalbúmið og sjáðu hvaða leikmenn Vísir valdi í draumalið U21 leikmanna í ensku úrvalsdeildinni. 14.8.2007 14:53
Davíð Þór segist ætla að sanna sig Davíð Þór Viðarsson segir í samtali við Vísi.is að að hann sé mjög sáttur við að vera valinn í landsliðshóp Íslands í knattspyrnu, en þetta er í fyrsta sinn sem hann er valinn í hópinn. Mikið knattspyrnublóð er í Davíði en faðir hans, Viðar Halldórsson og eldri bróðir hans, Arnar Þór Viðarsson, eiga báðir tugi landsleikja að baki. Auk þess er yngri bróðir hans, Bjarni Þór Viðarsson, fyrirliði U21 árs landsliðsins. 14.8.2007 14:51
Eyjólfur búinn að tilkynna landsliðshópinn gegn Kanada Eyjólfur Sverrisson hefur tilkynnt 18 manna landsliðshóp sinn fyrir vináttuleikinn gegn Kanada sem fer fram þann 22. ágúst á Laugardalsvellinum. Athygli vekur að Valsmennirnir Helgi Sigurðsson og Baldur Aðalsteinsson hafa verið kallaðir í hópinn, en þeir hafa staðið sig vel í Landsbankadeildinni í sumar. Davíð Þór Viðarsson og Ragnar Sigurðsson eru nýliðar í hópnum og þá er Jóhannes Karl Guðjónsson valinn aftur í hópinn eftir frí. 14.8.2007 14:35
Vísir velur úrvalslið U21 leikmanna Vísir hefur valið ellefu af efinlegustu leikmönnum ensku deildarinnar í úrvalslið. Kíktu á liðið okkar og láttu okkur vita hvað þér finnst. 14.8.2007 14:25
Video: Leikmenn Blackburn takast á á dansgólfinu Þeir David Bentley og David Dunn eru ekki bara góðir knattspyrnumenn. Þeir eru líka hörkudansarar. Þetta sýndu kapparnir nýlega á næturklúbbi í Preston þegar leikmenn Blackburn kíktu saman út á lífið. Plötusnúður staðarins hreifst svo mjög af danshæfileikum félaganna að hann skoraði á þá að mæta hvor öðrum í danskeppni. 14.8.2007 13:15
Benitez róar reiðan Crouch Rafael Benitez segir að hann hafi þurft að tala við Peter Crouch vegna óánægju hans yfir því að hafa ekki verið valinn í hóp liðsisn sem mætti Aston Villa. Benitez, sem löngum hefur verið þekktur fyrir að stilla sjaldan upp sama liði tvisvar segist eiga úr "of mörgum leikmönnum" að velja. 14.8.2007 12:37