Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ferguson reiknar með að landa Tevez Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United viðurkennir að hann hafi enga varaáætlun ef ekkert verður af fyrirhuguðum kaupum félagsins á framherjanum Carlos Tevez frá West Ham. Málið er í mikilli flækju enn sem komið er, en Ferguson treystir á að það leysist í tæka tíð. 21.7.2007 14:23
Cannavaro ekki á förum frá Real Madrid Ítalski varnarjaxlinn Fabio Cannavaro segist ekki vera á förum frá Real Madrid þrátt fyrir þrálátan orðróm þess efnis í fjölmiðlum í heimalandi hans. Cannavaro er 34 ára gamall og segist kunna vel við sig á Spáni. Sagt var að framtíð hans væri óráðin í kjölfar þess að landi hans Fabio Capello var rekinn úr þjálfarastóli á dögunum. 21.7.2007 14:18
Mourinho lofar að vera góður við Beckham Jose Mourinho segist ólmur vilja að David Beckham fái að taka einhvern þátt í æfingaleik Chelsea og LA Galaxy í dag, þar sem Chelsea leikur sinn síðasta leik á æfingaferðalagi um Norður-Ameríku. Beckham er mjög tæpur fyrir leikinn vegna ökklameiðsla. 21.7.2007 14:06
Lyon hefur áhuga á Reyes Forráðamenn frönsku meistaranna í Lyon hafa staðfest að þeir hafi áhuga á að fá spænska landsliðsmanninn Jose Antonio Reyes hjá Arsenal í sínar raðir. Reyes spilaði sem lánsmaður hjá Real Madrid á síðustu leiktíð og stóð sig ágætlega, en hann hefur neitað að snúa aftur til Englands. 21.7.2007 14:02
Young keyptur til Middlesbrough Enska úrvalsdeildarfélagið Middlesbrough gekk í gær frá kaupum á enska landsliðsmanninum Luke Young frá Charlton fyrir 2,5 milljónir punda. Young hafði verið orðaður við Man City og Aston Villa, en fær nú tækifæri til að halda áfram að leika í úrvalsdeildinni eftir að lið hans féll úr deildinni í vor. Hann er 28 ára og getur spilað margar stöður á vellinum, en leikur helst í stöðu bakvarðar. 21.7.2007 13:57
Lyon vann Friðarbikarinn Franska liðið Lyon tryggði sér í dag sigur í Friðarbikarnum eftir 1-0 sigur á Bolton í úrslitaleik. Það var sænski landsliðsmaðurinn Kim Kallström sem skoraði sigurmark franska liðsins undir lokin. Nicolas Anelka skoraði mark í fyrri hálfleik sem dæmt var af vegna rangstöðu, en í síðari hálfleiknum var það markvörðurinn Jussi Jaaskelainen sem hélt enska liðinu inni í leiknum með frábærri markvörslu. 21.7.2007 13:51
Raikkönen á ráspól - Hamilton á sjúkrahús Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen verður á ráspól í þýska kappakstrinum á Nurburgring í Formúlu 1 á morgun eftir að hann náði besta tímanum í tímatökum í dag. Lewis Hamilton ók út af brautinni og var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa klesst bíl sinn. Fernando Alonso hjá McLaren náði öðrum besta tímanum og Felipe Massa félagi Raikkönen á Ferrari þriðja. 21.7.2007 13:42
FBI rannsakar dómara í NBA deildinni NBA deildin titrar nú eftir að New York Post greindi frá því fyrir helgina að FBI væri að rannsaka meint tengsl dómara í deildinni við mafíuna. Dómarinn heitir Tim Donaghy og hefur hann þegar sagt starfi sínu lausu, en hann á að hafa beitt sér fyrir að hagræða úrslitum í leikjum á síðustu tveimur árum.. Hann hefur enn ekki verið fundinn sekur, en verði svo, yrði það gríðarlegur álitshnekkur fyrir deildina. 21.7.2007 13:06
Ecclestone útilokar ekki að kaupa Arsenal Formúlumógúllinn Bernie Ecclestone segist ekki útiloka að gera kauptilboð í knattspyrnufélagið Arsenal ef hann sér hag í því. Bandaríski auðkýfingurinn Stan Kroenke hefur þegar verið orðaður við yfirtöku í félaginu, en Ecclestone íhugaði á sínum tíma að gera yfirtökutilboð í Chelsea. 21.7.2007 12:50
Fowler semur við Cardiff Framherjinn Robbie Fowler hefur gengið frá tveggja ára samningi við Cardiff. Fowler hafnaði tilboðum frá Sydney FC í Ástralíu og Leicester City og ákvað að ganga í raðir Cardiff þar sem hann þekkir vel til stjórnarformannsins Peter Risdale frá dögum sínum með Leeds. Fowler er 32 ára gamall og var látinn fara frá Liverpool í vor. 21.7.2007 12:45
Gaf gult en breytti því í rautt Íslenska 19 ára landsliðið tapaði 1-2 fyrir Danmörku á Kópavogsvelli í gær í öðrum leik sínum á Evrópumótinu. Íslenska liðið fékk á sig mark í upphafi og lok fyrri hálfleiks, missti fyrirliða sinn meidda af velli í lok fyrri hálfleiks og þurfti síðan að spila manni færri síðasta hálftímann. 21.7.2007 04:45
Garcia með tvö högg í forskot Golf Spánverjinn Sergio Garcia lék annan hringinn á opna breska meistaramótinu á pari og hefur tveggja högga forskot á hinn sjóðheita K.J. Choi þegar tveir hringir eru eftir. 21.7.2007 04:00
Hrósar Heiðari í hástert Sammy Lee, stjóri Bolton, hefur keypt fimm menn í sumar, Jlloyd Samuel, Gavin McCann, Danny Guthrie, Mikael Alonso og nú síðast Heiðar Helguson. Hann segist ætla að kaupa fleiri leikmenn í sumar en tekur jafnframt fram að hann muni ekki halda framherjanum Nicolas Anelka hjá félaginu, komi stórlið með tilboð í Frakkann. 21.7.2007 02:00
Núna er orðið gaman að mótinu Atli Sveinn Þórarinsson batt vörn Vals vel saman í 2-0 sigurleiknum gegn Fram í vikunni. Með stigunum þremur munar aðeins tveimur stigum á Val og FH á toppi deildarinnar. 21.7.2007 01:00
Samdi við þýskt úrvalsdeildarlið Körfuknattleiksmaðurinn Jeb Ivey hefur samið við þýska félagið Goettingen. Félagið er nýliði í úrvalsdeildinni þar í landi. Ivey hefur verið einn besti leikmaður landsins undanfarin ár en hann hafði þegar ákveðið að fara frá Njarðvík. 21.7.2007 00:15
Seiglusigur hjá Keflavík Keflvíkingar lögðu danska liðið Midtjylland 3-2 á heimavelli í kvöld í fyrri viðureign liðanna í forkeppni Evrópukeppni félagsliða. Keflvíkingar lentu 2-0 undir í leiknum eftir um 20 mínútur, en náðu að jafna stundarfjórðungi síðar. Símun Samuelsen skoraði sigurmark Keflavíkur þegar skammt var liðið á síðari hálfleik en auk hans voru þeir Þórarinn Kristjánsson og Guðmundur Steinarsson á skotskónum hjá Keflavík. 19.7.2007 21:16
Sergio Garcia í forystu á opna breska Spænski kylfingurinn Sergio Garcia hefur tveggja högga forystu í fyrsta sætinu á opna breska meistaramótinu í golfi eftir fyrsta hringinn, en hann lék frábært golf í dag og lauk keppni á 65 höggum - sex höggum undir pari. Írski kylfingurinn Paul McGinley er í öðru sæti tveimur höggum á eftir og höggi þar á eftir koma fimm aðrir kylfingar. Tiger Woods spilaði fyrsta hringinn á tveimur undir pari - 69 höggum - en hann stefnir á að vinna mótið þriðja árið í röð. 19.7.2007 20:01
KR-ingar náðu jöfnu gegn Hacken í Svíþjóð KR-ingar gerðu í dag 1-1 jafntefli við sænska liðið Hacken í fyrri leik liðanna í 1. umferð forkeppni Evrópukeppni félagsliða, en leikið var í Gautaborg. Heimamenn komust í 1-0 eftir 10 mínútna leik, en Guðmundur Pétursson jafnaði metin fyrir KR á 68. mínútu. KR-ingar eru því í ágætri stöðu fyrir síðari leikinn sem fram fer á KR-velli í byrjun næsta mánaðar. 19.7.2007 19:50
Áfall fyrir West Ham Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham fékk þau slæmu tíðindi í dag að miðjumaðurinn Julien Faubert yrði frá keppni í sex mánuði eftir að hann sleit hásin í æfingaleik með liðinu á dögunum. Faubert var keyptur til félagsins fyrir sex milljónir punda fyrir skömmu og var ætlað stórt hlutverk á miðjunni. Hinn 23 ára gamli leikmaður er farinn til heimalandsins þar sem hann mun gangast undir aðgerð fljótlega. 19.7.2007 17:09
Milan hefur gefist upp á að landa Eto´o og Ronaldinho Varaforseti AC Milan segir félagið vera búið að gefast upp á að reyna að kaupa þá Samuel Eto´o og Ronaldinho frá Barcelona. Þetta staðfesti hann í viðtali við netsíðu Gazzetta dello Sport í dag og segir ástæðuna einfaldlega þá að leikmennirnir séu alls ekki til sölu. Blaðið Gazetta dello Sport hélt því fram í dag að Milan hefði gert 50 milljón evru tilboð í Eto´o, en varaforsetinn hafnaði því. 19.7.2007 16:23
Ferguson: Framtíð Smith og Rossi óráðin Sir Alex Ferguson viðurkennir að framtíð framherjanna Alan Smith og Giuseppe Rossi gæti legið frá Old Trafford í sumar ef Manchester United nær að klófesta Carlos Tevez frá West Ham. Báðir hafa verið orðaðir við fjölda liða í sumar, en Ferguson ítrekar að þeir séu báðir samningsbundnir United þangað til annað kemur í ljós. 19.7.2007 15:26
Slúðrið á Englandi í dag Breska blaðið Daily Express heldur því fram að Nicolas Anelka sé fyrsti valkostur Arsene Wenger hjá Arsenal til að fylla skarð Thierry Henry í sókninni. Stjórn Arsenal er ekki sögð hrifin af hugmynd knattspyrnustjórans, enda var brottför framherjans frá Arsenal nokkuð sóðaleg á sínum tíma. 19.7.2007 14:38
Brynjar skoraði sigurmark Reading Brynjar Björn Gunnarsson skoraði sigurmark Reading þegar liðið lagði japanska liðið Shimizu S-Pulse 1-0 í Friðarbikarnum í Suður-Kóreu. Sigurinn dugði enska liðinu þó ekki til að komast í úrslitaleik mótsins, en það hefði tekist ef liðið hefði náð að skora annað mark í leiknum. Ívar Ingimarsson var í liði Reading og fór illa með þrjú dauðafæri. 19.7.2007 14:33
Breska ríkisstjórnin komin í Tevez-málið Breska ríkisstjórnin hefur nú ákveðið að ganga í lið með enska knattspyrnusambandinu í að herja á FIFA svo hægt sé að leysa mál Carlos Tevez hjá West Ham sem allra fyrst. Ríkisstjórnin er sammála enska knattspyrnusambandinu og vill ekki sjá að leikmenn geti verið í eigu þriðja aðila og vill skjóta lausn í málinu til að forðast svartan blett á knattspyrnuna á Englandi. 19.7.2007 14:25
Van der Sar íhugar að hætta næsta vor Hollenski markvörðurinn Edwin van der Sar hjá Manchester United segir að mögulega verði næsta leiktíð hans síðasta hjá félaginu. Samningur hans rennur út næsta sumar og hann viðurkennir að hann hafi ekki verið sáttur við frammistöðu sína með liðinu í lokaleikjunum á síðustu leiktíð. 19.7.2007 12:42
Ferguson: Heinze fer ekki til Liverpool Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir útilokað að varnarmaðurinn Gabriel Heinze verði seldur til erkifjendanna Liverpool. Rafa Benitez bauð United 6 milljónir punda í leikmanninn, sem er talið það verð sem United vill fá fyrir hann - en því var neitað umsvifalaust. "Ég get fullvissað alla um að Liverpool fær ekki Gabriel Heinze," sagði Alex Ferguson. 19.7.2007 12:34
Håcken - KR í beinni lýsingu í KR-útvarpinu Fyrri leikur Håcken og KR í Evrópukeppni félagsliða verður í beinni lýsingu í KR-Útvarpinu í kvöld og hefst lýsingin klukkan 17:00 að íslenskum tíma. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og hægt er að fylgjast með lýsingunni á tíðninni 98,3. 19.7.2007 12:30
West Ham svarar Joorabchian Forráðamenn West Ham blása á ummæli Kia Joorabchian frá því í gærkvöldi þegar hann sakaði félagið um að hafa svikið gefin loforð í máli framherjans Carlos Tevez. Félagið svaraði hinsvegar fullum hálsi í dag og segir að allir samningar sem Joorabchian hafi gert við West Ham um leikmanninn hafi verið við fyrrum stjórnarmenn félagsins og fullyrða að leikmaðurinn sé að fullu samningsbundinn félaginu. 19.7.2007 12:23
John Terry tábrotinn Varnarmaðurinn John Terry, fyrirliði Chelsea og enska landsliðsins, tábrotnaði í æfingaleik Chelsea og Suwon Bluewings í fyrrakvöld. Ekki er vitað hvort Terry verður lengi frá vegna þessa, en reiknað er með því að hann verði búinn að ná sér fyrir vináttuleik Þjóðverja og Englendinga þann 22. ágúst. 19.7.2007 12:19
Fjölnismenn biðjast afsökunar Stuðningsmannaklúbbur Fjölnis í Grafarvogi hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna atviksins sem átti sér stað á leik liðsins gegn ÍBV í 1. deildinni á mánudagskvöldið. Þar voru stuðningsmenn Fjölnis sektaðir fyrir gróf köll að dómurum og leikmönnum. Fjölnismenn viðurkenna að munnsöfnuður nokkurra stuðningsmanna hafi verið óviðeigandi, en hafna því alfarið að um kynþáttafordóma hafi verið að ræða. 19.7.2007 12:15
Pearce tekur formlega við U-21 liði Englendinga Enska knattspyrnusambandið hefur gengið frá formlegum samningi við Stuart Pearce um að þjálfa U-21 árs landslið Englendinga. Pearce var fenginn til að taka við liðinu í hlutastarfi í janúar, en hefur síðan verið rekinn frá Manchester City. Hann stýrði landsliðinu í undanúrslit á Evrópmótinu í síðasta mánuði. 19.7.2007 12:05
Terry gerir ofursamning - 1583 krónur á mínútu næst fimm árin The Sun heldur því fram í dag að John Terry, fyrirliði Englands og Chelsea, sé búinn að ná samkomulagi við Chelsea um nýjan samning. Terry fær 131 þúsund pund á viku fyrir fimm ára samning við félagið. Þetta gerir Terry að launahæsta knattspyrnumanni á Englandi. 19.7.2007 11:44
Lee Hendrie skrifar undir hjá Sheffield United Sheffield United hefur tryggt sér Lee Hendrie frá Aston Villa. Leikmaðurinn var með lausan samning og fer því frítt til Sheffield United. Hendrie skrifaði undir þriggja ára samning við félagið, en liðið féll úr Úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. 19.7.2007 10:32
Öruggur sigur FH á HB FH-ingar eru í vænlegri stöðu í forkeppni Meistaradeildarinnar eftir öruggan 4-1 sigur á HB frá Færeyjum í fyrri leik liðanna í fyrstu umferðinni í kvöld. Matthías Vilhjálmsson skoraði tvö marka FH, Sigurvin Ólafsson eitt og varnarmaðurinn Freyr Bjarnason var einnig á skotskónum. Síðari leikurinn er í Færeyjum eftir viku, en FH-ingar eru með pálmann í höndunum eftir sigurinn í kvöld. 18.7.2007 21:53
Ísland steinlá fyrir Noregi Íslenska kvennalandsliðið skipað leikmönnum yngri en 19 ára steinlá í kvöld 5-0 fyrir Norðmönnum í opnunarleik sínum í A-riðli á Evrópumótinu. Íslenska liðið fékk á sig tvö mörk skömmu fyrir leikhlé og eftir það var róðurinn þungur á Laugardalsvellinum. Þjóðverjar lögðu Dani 1-0 í þessum sama riðli í dag. 18.7.2007 21:03
Kylfingar fagna símabanni á opna breska Algjört farsímabann hefur verið sett á Carnoustie á meðan Opna breska Meistaramótið fer fram. Leitað verður á öllum áhorfendum áður en þeir fara inn á svæðið og þeir sem gleyma að skilja símana sína eftir heima getið geymt þá í geymslum við völlinn. 18.7.2007 20:30
Oberto framlengir við meistarana Argentínski miðherjinn Fabricio Oberto hefur framlengt samning sinn við NBA meistara San Antonio Spurs. Ekki hefur verið gefið upp hve langur samningurinn er, en Oberto var í byrjunarliði Spurs í 12 af 20 leikjum liðsins í úrslitakeppninni í vor. Hann setti félagsmet í nóvember á síðasta ári þegar hann hitti úr öllum 11 skotum sínum utan af velli í leik gegn Phoenix Suns og skoraði 22 stig. 18.7.2007 19:30
Ian Wright tilbúinn að halda með Tottenham Arsenal goðsögnin Ian Wright segist alveg geta hugsað sér að sitja á White Hart Lane og styðja Tottenham ef sonur hans Shaun Wright-Phillips gengur í raðir liðsins frá Chelsea eins og greint hefur verið frá í bresku blöðunum. 18.7.2007 18:36
Fabregas vill verða fyrirliði Arsenal Spænski miðjumaðurinn Cesc Fabregas hefur undirstrikað skuldbindingu sína við Arsenal með því að óska eftir því að fá að gerast fyrirliði liðsins í framtíðinni. Fabregas hefur nú lofað að einbeita sér að fullu að Arsenal eftir að hafa verið orðaður við Real Madrid í allt sumar. 18.7.2007 18:30
Fjöldi kylfinga notar ólögleg lyf Suður-Afríski kylfingurinn Gary Player segir að fjöldi golfleikara í dag sé að nota ólögleg lyf til að bæta árangur sinn í keppni. Player er 71 árs gamall og vann á sínum tíma níu stórmót. Hann segist vita fyrir víst að minnst tíu spilarar séu að nota vaxtarhormón. 18.7.2007 17:28
Totti hótar að segja sig úr leikmannasamtökunum Francesco Totti, fyrirliði Roma á Ítalíu, hefur nú hótað að segja sig úr leikmannasamtökunum þar í landi vegna deilu í tengslum við það hvenær keppni hefst í A-deildinni í sumar. Deildin á að byrja 26. ágúst, eða seinna en flestar aðrar deildarkeppnir í Evrópu. Þetta segir Totti að komi niður á ítalska landsliðinu í undankeppni EM. 18.7.2007 17:11
Skólausum Celtic-mönnum þótti heitt í Denver Skotlandsmeistarar Glasgow Celtic eru nú í æfingaferð í bandaríkjunum þar sem þeir spila tvo æfingaleiki við stjörnulið MLS-deildarinnar og Chicago Fire. Skotarnir urðu að bíða í hátt í klukkutíma eftir sinni fyrstu æfingu því skór leikmanna týndust á flugvellinum í Denver. 18.7.2007 16:53
Marbury ætlar að feta í fótspor David Beckham Leikstjórnandinn Stephon Marbury hjá New York Knicks í NBA deildinni segist ætla að feta í fótspor David Beckham þegar samningur hans við New York rennur út eftir tvö ár. Hann segist vera búinn að ákveða að reyna þá fyrir sér á Ítalíu þar sem hann ætlar að setjast að með fjölskyldu sinni. 18.7.2007 16:39
KSÍ sektaði Fjölnismenn Aganefnd KSÍ hefur sektað knattspyrnudeild Fjölnis um 30 þúsund krónur vegna framkomu stuðningsmanna liðsins í leik gegn ÍBV í fyrrakvöld. Sektinni fylgdi líka aðvörun og til greina kemur að liðið fái heimaleikjabann ef stuðningsmennirnir haga sér ekki í framtíðinni. 18.7.2007 16:28
Durant neitaði fjögurra milljarða tilboði Adidas Framherjinn Kevin Durant hjá Seattle Supersonics neitaði á dögunum rúmlega fjögurra milljarða samningstilboði frá íþróttavöruframleiðandanum Adidas og ákvað að halda sig við Nike. Þar fær hann "aðeins" 3,6 milljarða samning fyrir að leika í skóm frá fyrirtækinu næstu sjö árin og þar af fær hann rúmar 600 milljónir beint í vasann við undirritun. Durant var valinn númer tvö í nýliðavalinu í NBA á dögunum. 18.7.2007 16:15