Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Yao Ming gagnrýndur harðlega í Kína Íþróttaráðið í Kína gagnrýnir miðherjann Yao Ming harðlega í nýjustu útgáfu China Sports Daily sem er málgagn ráðsins í landinu. Ming er gagnrýndur fyrir að koma seint til æfinga með landsliðinu og þar setja menn stórt spurningamerki við það hve miklum tíma hann eyðir í að sinna einkalífinu. Þetta þykir ekki bera vott um hollustu við þjóðina. 18.7.2007 14:14
Voronin byrjar vel með Liverpool Framherjinn Andriy Voronin stal senunni í gær þegar hann skoraði tvö mörk í sigri Liverpool á Werder Bremen í æfingaleik og féllu þeir Fernando Torres og Ryan Babel þar með alveg í skuggann. Michael Owen skoraði sitt fyrsta mark fyrir Newcastle í 19 mánuði þegar liðið lagði Hartlepool 3-1 og Didier Drogba skoraði sigurmark Chelsea í 1-0 sigri á Bluewings frá Kóreu í Kaliforníu. 18.7.2007 14:01
Cannavaro neitaði Chelsea Ítalski miðvörðurinn Fabio Cannavaro hjá Real Madrid hefur neitað að ganga í raðir Chelsea á Englandi, en honum stóð það til boða á dögunum að sögn umboðsmanns leikmannsins. Cannavaro er 33 ára gamall og þykir framtíð hans hjá Real ótrygg eftir að landi hans Fabio Capello var látinn taka pokann sinn á dögunum. 18.7.2007 13:51
Robben hefur samþykkt samningstilboð Real Madrid Hollenski landsliðsmaðurinn Arjen Robben hjá Chelsea hefur samþykkt að ganga í raðir Real Madrid og hefur þegar samþykkt samningstilboð frá félaginu. Chelsea og Real Madrid hafa þó enn ekki komist að samkomulagi um kaupverðið. Þetta kemur fram á vef breska sjónvarpsins. 18.7.2007 13:47
Brasilía aftur á topp heimslistans - Ísland í 109. sæti Brasilía er aftur komið á topp heimslistans hjá FIFA. Þar með hafa Brassarnir endurheimt toppsætið af Ítalíu sem hafa vermt sætið síðan á heimsmeistaramótinu í fyrrasumar. Íslendingar eru í 109. sæti ásamt Aserbaídsjan. Englendingar falla niður í 12. sæti. 18.7.2007 09:29
FH-ingar hafa 2-1 yfir gegn HB í hálfleik Nú er kominnn hálfleikur í viðureign FH og HB frá Færeyjum í fyrri leik liðanna í 1. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar. FH-ingar byrjuðu vel og komust í 2-0 með mörkum frá Frey Bjarnasyni og Matthíasi Vilhjálmssyni snemma leiks, en liðið svaf á verðinum á lokamínútum hálfleiksins og þar varð Tommy Nielsen fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. 18.7.2007 20:45
Forlan: Ég er enginn Torres Framherjinn Diego Forlan sem gekk í raðir Atletico Madrid á dögunum segist ekki vera að hugsa um það að hann sé arftaki Fernando Torres hjá félaginu. Forlan verður engu að síður ætlað að fylla skarð "El Nino" hjá Atletico, en hann hefur að mestu séð um markaskorun hjá félaginu síðustu ár. 17.7.2007 22:15
Ayala gengur frá umdeildum samningi við Zaragoza Argentínski varnarjaxlinn Roberto Ayala hefur gengið frá þriggja ára samningi við Real Zaragoza á Spáni, aðeins stuttu eftir að hann skrifaði undir samning við Villarreal. Ayala skrifaði undir við Villarreal fyrir nokkru en ákvað að kaupa sig út úr samningnum og semja heldur við Zaragoza. 17.7.2007 21:30
Hitzfeld ánægður með nýju leikmennina Ottmar Hitzfeld, þjálfari Bayern Munchen, segist ekki geta beðið eftir að leiktíðin hefjist í Þýskalandi eftir að félagið pungaði út 70 milljónum evra til leikmannakaupa í sumar. Hann segir nýju leikmennina ekki aðeins smellpassa inn í liðið á vellinum heldur séu þeir allir góðir drengir. 17.7.2007 20:15
Santa Cruz vill ólmur fara til Englands Framherjinn Roque Santa Cruz hjá Bayern Munchen vill helst af öllu spila í ensku úrvalsdeildinni að sögn umboðsmanns leikmannsins. Santa Cruz gerði gott mót með landsliði sínu á Copa America á dögunum, en hann er ekki inni í myndinni hjá forráðamönnum Bayern á næstu leiktíð. 17.7.2007 19:45
Wright-Phillips orðaður við Tottenham Nokkur bresku blaðanna halda því fram í dag að kantmaðurinn Shaun Wright-Phillips hjá Chelsea sé á leið til Tottenham fyrir um 12-14 milljónir punda í vikunni. Sagt er að viðræður milli félaganna séu komnar langt á veg, en af þessum kaupum yrði hjá Tottenham myndi það þýða að félagið væri búið að eyða hátt í 50 milljónum punda til leikmannakaupa í sumar. 17.7.2007 19:15
Tevez bannað að fara í læknisskoðun Argentínumaðurinn Carlos Tevez mun ekki fara í læknisskoðun hjá Manchester United á morgun eftir að West Ham neitað að gefa grænt ljós á að hann færi í skoðunina. Mál Tevez er því enn langt frá því að leysast þar sem United, West Ham, MSI-fyrirtækið og enska úrvalsdeildin deila um fyrirhuguð félagaskipti hans til Manchester. 17.7.2007 18:44
Capello með fullt borð af tilboðum Ítalski knattspyrnuþjálfarinn Fabio Capello hefur fengið nokkur atvinnutilboð síðan hann var rekinn frá Real Madrid á dögunum. Í samtali við Gezzetta Dello Sport á Ítalíu segist hann hafa neitað tilboðum frá Dynamo Kiev í Úkraínu og Lokomotiv í Moskvu, en segir tilboð frá Bandaríkjunum hafa freistað sín. 17.7.2007 18:15
Laudrup: Villarreal verður að halda auðmýktinni Michael Laudrup, nýráðinn þjálfari spænska liðsins Villarreal, segir að félagið verði að halda þeirri auðmýkt sem einkennt hefur leik liðsins síðustu ár til að geta náð góðum árangri í Evrópukeppni félagsliða á næsta tímabili. 17.7.2007 17:30
Torres spilar sinn fyrsta leik í kvöld Spænski framherjinn Fernando Torres hjá Liverpool spilar væntanlega sinn fyrsta leik með liðinu í kvöld þegar liðið mætir Werder Bremen í æfingaleik í Sviss. Torres á raunar við ökklameiðsli að stríða en þau eru ekki talin alvarleg. Til greina kemur að hann verði í framlínunni með öðrum nýjum framherja liðsins, Andriy Voronin. 17.7.2007 16:49
Sættir í deilu ÍA og Keflavíkur KSÍ hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umdeilds marks sem skorað var í leik ÍA og Keflavíkur í Landsbankadeildinni 4. júlí sl. Jafnframt kemur fram í að forystumenn félaganna rita með undirskrift sinni undir fullar sættir milli félaganna. 17.7.2007 16:46
Geovanni til Manchester City Manchester City gekk í dag frá samningi við brasilíska miðjumanninn Geovanni sem var með lausa samninga hjá Cruzeiro í heimalandi sínu. Geovanni þessi er 27 ára gamall og lék áður með Barcelona og Benfica. Hann á að baki fimm landsleiki og hefur skrifað undir eins árs samning við City. Hann er þriðji maðurinn sem Sven-Göran Eriksson kaupir til félagsins á einni viku auk þeirra Rolando Bianchi og Gelson Fernandes. 17.7.2007 16:41
Giuly á leið til Roma Franski útherjinn Ludovic Giuly hjá Barcelona er við það að ganga til liðs við Roma á Ítalíu. Þetta tilkynnti yfirmaður knattspyrnumála hjá Barcelona í dag. Giuly varð tvisvar Spánarmeistari með Barcelona en var settur á sölulista hjá félaginu í vor. Hjá Roma fær hann aftur tækifæri til að spila í Meistaradeildinni þar sem liðið hafnaði í öðru sæti í A-deildinni á síðustu leiktíð. Kaupverðið er sagt 4,5 milljónir evra. 17.7.2007 16:08
Wilhelmsson orðaður við Bolton Sænskir fjölmiðlar greina frá því í dag að enska úrvalsdeildarfélagið Bolton sé nú líklegast til að landa útherjanum Christian Wilhelmsson frá Nantes í Frakklandi. Landsliðsmaðurinn sænski náði sér aldrei á strik í Frakklandi en átti ágæta leiktíð sem lánsmaður með Roma á síðasta tímabili. 17.7.2007 16:01
Cuper tekur við Betis Hector Cuper, fyrrum þjálfari Inter og Valencia, var í gær ráðinn þjálfari spænska knattspyrnufélagsins Real Betis. Cuper er 51 árs gamall Argentínumaður og var síðast við stjórnvölinn hjá Mallorca. Hann hefur skrifað undir eins árs samning við Andalúsíufélagið, sem naumlega náði að bjarga sér frá falli á síðustu leiktíð. 17.7.2007 15:30
Garnett fer ekki frá Minnesota Líklega hefur enginn leikmaður í NBA deildinni verið meira í slúðrinu í sumar en framherjinn Kevin Garnett hjá Minnesota, en talið var nánast öruggt að honum yrði skipt frá félaginu í kring um nýliðavalið á dögunum. Þetta hefur nú verið slegið út af borðinu af eiganda Minnesota, sem segir að Garnett vilji vera áfram með liði Timberwolves. 17.7.2007 14:51
Heinze sagður á leið til Liverpool Argentínski varnarmaðurinn Gabriel Heinze stefnir á að verða fyrsti leikmaðurinn í 43 ár sem seldur er beint milli erkifjendanna Manchester United og Liverpool á Englandi. Sir Alex Ferguson segir að leikmaðurinn muni líklega fara frá United í sumar, en bresku blöðin segja þó að hann vilji ólmur losna við hann frá Englandi í stað þess að sjá hann fara til Liverpool. Heinze er sagður með klausu í samningi sínum sem leyfi honum að fara ef í hann kemur 6 milljón punda tilboð. 17.7.2007 14:34
Anelka skoraði tvívegis í sigri Bolton Nicolas Anelka var í stuði í dag þegar Bolton tryggði sér sæti í úrslitaleiknum í Friðarbikarnum í Suður-Kóreu með 2-1 sigri á Santander frá Spáni. Spænska liðið náði forystunni í fyrri hálfleik með marki Albendea, en Anelka skoraði tvö mörk á níu mínútna kafla í þeim síðari og tryggði Bolton sigurinn. Tottenham tók þátt í þessu móti fyrir hönd Englendinga í fyrra og sigraði á mótinu. 17.7.2007 14:30
Chelsea ætlar að fara varlega með Cole Jose Mourinho stjóri Chelsea, segir félagið ætla að fara mjög varlega með bakvörðinn Ashley Cole á næstu vikum eftir að varamaður hans Wayne Bridge meiddist á mjöðm og verður frá í tvo mánuði. Cole er sjálfur að stíga upp úr langvarandi meiðslum. 17.7.2007 14:24
Flutningur í vændum hjá Everton? Framkvæmdastjóri enska knattspyrnufélagsins Everton segir að félaginu standi til boða tilboð aldarinnar til að byggja nýjan leikvöll sem staðsettur yrði í Kirkby, nokkuð fyrir utan Liverpoolborg. Leikvangurinn yrði að stórum hluta fjármagnaður af Tesco verslunarkeðjunni og tæki 50-55,000 manns í sæti. 17.7.2007 14:11
Inter kaupir tvo leikmenn Ítalíumeistarar Inter Milan hafa styrkt hóp sinn enn frekar fyrir næstu leiktíð og nú hafa tveir Suður-Ameríkumenn bæst í hópinn sem er nú við æfingar í fjöllunum á Norður-Ítalíu. Þetta eru sóknartengiliðurinn Luis Jimenez frá Lazio sem er landsliðsmaður Chile og kólumbíski varnarmaðurinn Nelson Rivas frá River Plate í Argentínu. 17.7.2007 14:08
Yi fær ekki að spila með Milwaukee Kínverski framherjinn Yi Jianlian mun ekki fá að spila með liði Milwaukee Bucks í NBA deildinni ef maka má nýjustu fréttir frá Kína. Jianlian var valinn númer sex af Milwaukee í nýliðavalinu á dögunum en hefur enn ekki skrifað undir samning við félagið vegna þrýstings frá heimalandi sínu. Málið er að verða hið vandræðalegasta og stefnir í að David Stern forseti NBA deildarinnar þurfi nú að skerast í leikinn. 17.7.2007 13:54
Jackson og Artest fá sjö leikja bann Fyrrum samherjarnir Stephen Jackson hjá Golden State og Ron Artest hjá Sacramento í NBA deildinni, voru á dögunum dæmdir í sjö leikja bann af deildinni fyrir að komast í kast við lögin utan vallar. Leikmannasamtökin íhuga nú að áfrýja þessum dómi, en Ron Artest er mjög upptekinn við að laga ímynd sína þessa dagana. 17.7.2007 13:42
Mourning ætlar að spila eitt ár í viðbót Miðherjinn Alonzo Mourning hjá Miami Heat í NBA deildinni hefur tilkynnt að hann ætli að spila eitt ár til viðbótar með liðinu. Mourning hafð legið undir feldi í allt sumar en sagði ljótt tap liðsins gegn Chicago í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í vor vera helstu ástæðu þess að hann hafi ekki geta lagt skóna á hilluna. 17.7.2007 13:35
Framtíð Drogba óráðin Framherjinn Didier Drogba hefur látið í það skína í viðtölum að hann sé jafnvel að hugsa sér að fara frá Chelsea. Vitað er að hann er eftirsóttur af stórliðum Evrópu og í viðtali við The Sun í dag segir markaskorarinn framtíð sína óráðna með öllu. 17.7.2007 13:25
United gerði jafntefli við japönsku meistarana Manchester United spilaði í dag æfingaleik við japönsku meistarana í Urawa Reds og lauk leiknum með jafntefli 2-2. Darren Fletcher og Cristiano Ronaldo skoruðu mörk enska liðsins fyrir framan rúmlega 58,000 áhorfendur í Tókíó. Heimamenn jöfnuðu leikinn í 2-2 á 78. mínútu eftir að hafa náð forystu snemma leiks. 17.7.2007 13:18
Beckham tæpur gegn Chelsea Óvíst er hvort David Beckham geti spilað með LA Galaxy þegar það mætir Chelsea í æfingaleik á laugardaginn. Leiksins hafði verið beðið með mikilli eftirvæntingu í Bandaríkjunum því hann átti að vera frumraun Beckham með liði sínu LA Galaxy. Ökklameiðsli Beckhams hafa tekið sig upp að nýju og hefur hann lítið geta beitt sér á æfingum enn sem komið er. 17.7.2007 13:08
Við lítum á þetta sem tapaðan leik HK og Víkingur náðu bæði í langþráð stig í 2-2 jafntefli liðanna í Landsbankadeildinni í gær. Víkingar komust í 2-0 og fengu mörg færi til að skora fleiri mörk en HK sýndi mikinn karakter í að vinna sig aftur inn í leikinn og tryggja sér stigið. 17.7.2007 10:15
Mido hugsanlega á leiðinni til Birmingham Egypski framherjinn Mido, er á leiðinni til Birmingham frá Tottenham á láni í eitt ár. Þetta segir hann við vefsíðuna FilGoal í heimalandi sínu. Mido hefur færst aftar í goggunarröðinni hjá Tottenham vegna komu Darren Bent frá Charlton. 17.7.2007 09:14
Fékk 34,8 prósent atkvæða Ólafur Stefánsson var valinn í lið ársins í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta og er einn af fjórum leikmönnum meistaraliðs Ciudad Real sem eru í sjö manna liðinu. Kosningin fór fram á heimasíðu deildarinnar, www.asobal.es. 17.7.2007 09:00
Aftaka hjá Blikum í Árbæ Óhætt er að segja að fyrstu tíu mínútur leiks Fylkismanna og Breiðabliks hafi verið algerlega á skjön við það sem síðar kom. Fylkismenn byrjuðu betur og fór leikurinn að mestu fram á vallarhelmingi Blika. Þá fannst fyrirliðanum Arnari Grétarssyni, nóg komið og tók leikinn í sínar hendur. 17.7.2007 07:00
Brassar eru komnir með fast tak á Argentínumönnum Argentína náði ekki að fylgja eftir frábærri frammistöðu í Suður-Ameríkukeppninni og steinlá 3-0 fyrir Brasilíu í úrslitaleiknum. 17.7.2007 04:00
Valsmenn færast nær meisturunum Valsmenn galopnuðu baráttuna um Íslandsmeistaratitilinn með sínum þriðja sigurleik í röð í Landsbankadeildinni í gærkvöldi. Erkifjendurnir úr Fram láu í valnum í þetta skiptið en Valur er nú komið með 21 stig í öðru sæti deildarinnar, tveimur stigum minna en Íslandsmeistarar FH, sem hafa aðeins náð í fjögur stig í síðustu þremur leikjum. 17.7.2007 03:00
Platini afhendir bikarinn Það verður sjálfur forseti UEFA, Michel Platini, sem afhendur sigurlaunin í úrslitakeppni Evrópumóts undir 19 ára kvenna sem hefst hér á landi á morgun. 17.7.2007 02:00
Viljum alls ekki missa Valdimar Handknattleiksmaðurinn Valdimar Þórsson, sem gekk í raðir Fram í lok síðasta mánaðar, gæti verið á förum til sænska úrvalsdeildarliðsins HK Malmö. Sænskir fjölmiðlar sögðu frá því í gær að samningur við leikmanninn væru nánast frágenginn og að aðeins formsatriði yrði að fá undirskrift. 17.7.2007 01:00
Ólafur í liði ársins á Spáni Ólafur Stefánsson, leikmaður Ciudad Real og fyrirliði íslenska landsliðsins, er í stöðu vinstrihandar skyttu í liði ársins á Spáni. Þrír liðsfélagar Ólafs eru einnig í liði ársins en Ciudad Real vann deildina á síðasta tímabili. 16.7.2007 15:44
Húsleit hjá Newcastle, Portsmouth og Rangers í morgun Lögreglan í Englandi gerði húsleit hjá þremur knattspyrnuliðum, Newcastle, Portsmouth og Rangers í morgun vegna gruns um spillingu. Lögreglan staðfestir að húsleitir hafi verið framkvæmdar í morgun, en tekur fram að málið tengist ekki skýrslu Stevens lávarðs. 16.7.2007 14:54
EM: Svíar í fyrsta leik Búið er að raða niður leikdögum fyrir EM í handknattleik sem fer fram í Noregi í janúar og febrúar á næsta ári. Ísland hefur leik þann 17. janúar gegn Svíþjóð. Ísland er í D-riðli ásamt Svíum, Slóvökum og Frökkum. 16.7.2007 14:32
Harewood í samningsviðræðum við Aston Villa Enska Úrvalsdeildarliðið Aston Villa er í viðræðum við framherjann Marlon Harewood um hugsanlegan flutning leikmannsins til Villa frá West Ham. Þetta er staðfest á vefsíðu SkySports. Harewood hefur fengið leyfi til þess að yfirgefa West Ham þar sem hann er ekki í framtíðaráætlunum Alan Curbishley, framkvæmdastjóra liðsins. 16.7.2007 14:03
Þrír leikir í Landsbankadeild karla í kvöld Tíunda umferð Landsbankadeildar karla í knattspyrnu verður kláruð í kvöld með þremur leikjum. Fylkir fær Breiðablik í heimsókn, Víkingur mætir HK í Kópavogi og Fram tekur á móti Val í Reykjavíkurslag. 16.7.2007 13:30