Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Jafnt í hálfleik á Skaganum Staðan í leik ÍA og Vals á Skaganum er jöfn 1-1 þegar flautað hefur verið til leikhlés. Valsmenn hafa verið heldur sterkari fyrstu 45 mínúturnar og Dennis Bo Mortensen kom liðinu yfir eftir aðeins fimm mínútur. Króatinn Dario Cingel jafnaði hinsvegar metin fyrir heimamenn skömmu fyrir leikhlé með glæsilegum skalla eftir hornspyrnu Þórðar Guðjónssonar. Áður höfðu Valsmenn átt stangarskot að marki heimamanna. 19.6.2007 20:46
ÍA - Valur í beinni á Sýn í kvöld Einn leikur er á dagskrá í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld þar sem Skagamenn taka á móti Val. Leikurinn hefst klukkan 20 og verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn. Valsmenn eru í öðru sæti deildarinnar með 12 stig eftir 6 leiki en Skagamenn hafa 6 stig í 8. sætinu. 19.6.2007 18:15
Fram vinnur sinn fyrsta leik í Landsbankadeildinni Fram sigraði Fylki í kvöld í fyrsta leik 7. umferðar Landsbankadeildarinnar, 3-1. Leikurinn fór fram á Laugardalsvellinum. Þetta var fyrsti sigur Framara í deildinni. 18.6.2007 21:12
Markalaust í hálfleik Það er kominn hálfleikur í leik Fram og Fylkis. Staðan er 0-0. Fram fékk vítaspyrnu fimm mínútum fyrir hlé, en Fjalar Þorgeirsson varði vel frá Igor Pesic. Víðir Leifsson þurfti að yfirgefa völlinn eftir um stundarfjórðungs leik vegna meiðsla, og var það Albert Brynjar Ingason sem tók hans stað. 18.6.2007 20:06
Eyjólfur skoraði fyrir GAIS Eyjólfur Héðinsson skoraði fyrir GAIS í 1-1 jafnteflisleik við Helsingborg í dag í efstu deild Svíþjóðar í dag. Jóhann Guðmundsson var einnig í byrjunarliði GAIS en var skipt út af í seinni hálfleik. 18.6.2007 18:54
McCabe bjartsýnn Kevin McCabe, stjórnarformaður Sheffield United, segir málið gegn West Ham gangi vel. Fyrsti dagurinn fyrir úrskurðarnefnd úrvalsdeildarinnar hefur gert hann mjög bjartsýnan og er hann viss um að Sheffield United verði í úrvalsdeildinni að ári. 18.6.2007 17:51
Totti fær gullskó Evrópu Ítalinn Francesco Totti hlaut gullskó Evrópu fyrir nýafstaðið tímabil. Totti skoraði 26 mörk fyrir Roma á tímabilinu, einu marki meira en Ruud Van Nistelrooy skoraði fyrir Real Madrid. 18.6.2007 16:59
Capello óviss með framtíð sína Fabio Capello veit ekki ennþá hvort að hann verði áfram hjá Real Madrid á næsta tímabili, þrátt fyrri að hafa unnið deildina með liðinu í gær. Það var í fyrsta sinn sem sem stórveldið frá Madrid vinnur deildina í fjögur ár. 18.6.2007 16:03
Ísland í öðrum styrkleikaflokk á EM Ísland verður í öðrum styrkleikaflokk þegar dregið verður í riðla fyrir EM í Noregi á næsta ári. Í fyrsta styrkleikaflokk verða Frakkar, Spánverjar, Danir og Króatar. 18.6.2007 15:15
West Ham hafnar tilboði í Harewood West Ham hefur hafnað 3,5 milljón punda boði Birmingham í framherjann Marlon Harewood. West Ham er talið vilja fá 5 milljónir punda fyrir leikmanninn sem er eftirsóttur af öðrum liðum í úrvalsdeildinni. 18.6.2007 14:58
Enska knattspyrnusambandið kvartar vegna kynþáttahaturs Enska knattspyrnusambandið hefur sent frá sér formlega kvörtun til UEFA, þar sem fram kemur að sambandið sé óánægt með framkomu áhorfenda Serbíu í leik Englands og Serbíu á EM U21. Áhorfendur öskruðu að varnarmanni Englands, Nedum Onuoha, með niðrandi hætti um hörundslit hans. 18.6.2007 14:29
Cabrera: „Ég trúi þessu ekki.“ Angel Cabrera, nýkrýndur sigurvegari Opna Bandaríska Meistaramótsins í golfi, á erfitt með að átta sig á því að hann hafi virkilega sigrað á mótinu. „Mér líður frábærlega, þetta er frábær stund fyrir mig. Ég trúi þessu ekki,“ sagði Cabrera. 18.6.2007 14:18
Einn leikur í Landsbankadeild karla í kvöld Einn leikur fer fram í Landsbankadeild karla í kvöld. Fram tekur á móti Fylki á Laugardalsvellinum klukkan 19:15, í fyrsta leik 7. umferðar Íslandsmótsins. 18.6.2007 14:09
Slúðrið í enska í dag Oft sem áður er ýmislegt á seyði í enska boltanum í dag. Benni McCarthy, Suður-afríski framherji Blackburn er á óskalista Chelsea, Shearer segir Allardyce þurfa nýja varnarmenn og Craig Bellamy gæti farið til Roma í skiptum fyrir Mancini. Hér að neðan má sjá allt helsta slúðrið sem BBC tók saman í morgun. 18.6.2007 10:12
Stjórn Arsenal mun ekki koma í veg fyrir að Henry verði seldur Stjórn Arsenal mun ekki koma í veg fyrir að Thierry Henry verði seldur frá félaginu fari það svo að Arsene Wenger ákveði að selja hann. Sterkur orðrómur hefur verið um að Wenger hafi hitt menn frá Barcelona á fundi í Paris í síðustu viku. 18.6.2007 10:00
Flugeldasýning á þjóðhátíðardaginn Serbar unnu fyrri leikinn ytra með einu marki og því var ljóst að Íslendingar urðu að vinna með tveimur mörkum til þess að komast á EM sem fram fer í Noregi í janúar. 18.6.2007 07:00
Þrír efstir og jafnir með 7 Að loknum sex umferðum í Landsbankadeild karla eru Íslandsmeistarar FH á toppi deildarinnar. Einn leikmaður þeirra er efstur ásamt tveimur öðrum í einkunnagjöf Fréttablaðsins en það kemur kannski á óvart að það er Daði Lárusson markmaður. Taflan hér til hægri sýnir lista yfir 50 efstu leikmenn í einkunnagjöf Fréttablaðsins eftir sex umferðir. Skilyrði var að leikmennirnir hefðu spilað fjóra leiki eða fleiri. 18.6.2007 03:30
Endaði á fjórum yfir pari Birgir Leifur Hafþórsson fær um 450 þúsund krónur í verðlaunafé á Saint-Omer mótinu í Frakklandi sem lauk í gær. Birgir lék hringina fjóra á fjórum höggum yfir pari, þann síðasta í gær einn yfir pari vallarsins. Birgir lauk keppni í 26. sæti á mótinu og vann sig upp um tvö sæti á peningalista mótaraðarinnar. 18.6.2007 02:30
Draumurinn rættist í dag Logi Geirsson átti góðan leik í gær og var í skýjunum eftir sigurinn gegn Serbum. 18.6.2007 02:00
Tölurnar tala Það þarf ekki að koma neinum á óvart að Íslandsmeistarar FH hafa hæstu meðaleinkunn liða í deildinni, FH er með 6,22 í meðaleinkunn en aðeins FH og Keflavík er með yfir 6 í einkunn. Valur og Keflavík hafa sætaskipti sé einkunnagjöfin miðuð við stöðuna í deildinni. 18.6.2007 02:00
Cabrera vann á U.S. Open Angel Cabrera sigraði í kvöld Opna Bandaríska Meistaramótið. Cabrera lék síðasta hringinn á 69 höggum, og lék því alla fjóra hringina á 285 höggum, eða fimm yfir pari. Tiger Woods og Jim Furyk enduðu í 2-3 sæti með sex yfir pari. Þetta er í fyrsta sinn sem að Cabrera sigrar stórmót. 17.6.2007 23:34
Angel Cabrera með yfirhöndina á US Open Angel Cabrera er nú með bestan árangur á Opna Bandaríska Meistaramótinu en hann er búinn með 15 holur og er á þremur undir pari. Hann var með bestan árangur eftir tvo hringi en missteig sig í gær og fór hringinn á sex yfir pari. 17.6.2007 22:05
Ísland sigraði Serba Íslendingar tryggðu sér þáttökurétt á Evrópumótinu í Noregi í kvöld. Ísland sigraði Serbíu 42 - 40 í spennandi leik þar sem liðsheildin skóp sigur. Ísland þurfti að sigra með tveimur mörkum eftir að hafa tapað 30 - 29 í Serbíu um síðustu helgi. 17.6.2007 21:48
Real Madrid Spánarmeistari Real Madrid tryggði sér Spánartitilinn í kvöld með góðum sigri á Mallorca 3-1. José Antonio Reyes skoraði tvö mörk fyrir meistarana og Diarra eitt. Í hálfleik var staðan 0-1 fyrir Mallorca. 17.6.2007 20:48
Ísland tveimur mörkum yfir í hálfleik Ísland er tveimur mörkum yfir gegn Serbum í hálfleik. Staðan er 24 - 22. Alexander Petterson er markahæstur með 7 mörk. 17.6.2007 20:41
Ísland - Serbía að hefjast Leikur Ísland og Serbíu fer að hefjast. Leikurinn er úrslitaleikur um hvort liðið tryggir sér sæti á Evrópumótinu í Noregi næstkomandi janúar. Leikurinn hefst klukkan 20:00 og fer fram í laugardalshöllinni. 17.6.2007 19:49
Barcelona með aðra höndina á titlinum Eins og staðan er í hálfleik í síðustu umferð La Liga, verður það Barcelona sem hampar Spánartiltlinum í kvöld. Barcelona er að vinna Gimnastic 3-0 á meðan Real Madrid er að tapa gegn Mallorca 1-0. Carlos Pyuol, Lionel Messi og Ronaldinho skoruðu mörk Barcelona. Staðan í leik Sevilla og Villareal er 0-0. 17.6.2007 19:45
Spánn: Síðustu leikirnir að hefjast Síðustu leikir La Liga á Spáni eru að hefjast. Þrjú lið eiga möguleika á titlinum þetta árið. Real Madrid nægir að sigra Mallorca á heimavelli til að hreppa titilinn. Barcelona þarf að treysta á að Madrid tapi stigum á meðan þeir vinna Gimastic á útilvelli. 17.6.2007 18:59
Hamilton sigrar í Indianapolis Lewis Hamilton sigraði kappaksturinn í Indianapolis í dag. Þar með styrkti hann stöðu sína á toppnum í einstaklingskeppninni. Fernando Alonso, félagi Hamilton hjá McClaren kom annar í mark. 17.6.2007 18:35
Garðar með þrennu í stórsigri Norrköping Garðar B. Gunnlaugsson skoraði í dag þrennu fyrir lið sitt, Norrköping, í 6-2 sigri á Bunkeflo IF í næstefstu deild í Svíþjóð. Garðar skorað mörkin á 15 mínútna kafla, það fyrsta á 39. mínútu í stöðunni 2-1 fyrir Bunkeflo IF. 17.6.2007 17:20
Real Sociedad og Celta Vigo falla ásamt Gimnastic Real Sociedad og Celta Vigo eru fallin úr efstu deild á Spáni. Mikil spenna var á botninum og voru fimm lið sem gátu fallið í dag. Real Sociedad gerði 3-3 jafntefli við Valencia á útivelli en það dugði ekki til. 17.6.2007 16:56
Tiger Woods: „Reynslan mun nýtast mér.“ Tiger Woods er sannfærður um að reynslan muni nýtast honum þegar hann leikur lokahring sinn í dag á Opna Bandaríska Meistaramótinu. Woods er tveimur höggum á eftir Aaron Baddeley, sem er með bestu stöðuna eftir þrjá hringi. 17.6.2007 16:32
Vieira segir vanta stöðugleika hjá Arsenal Patrick Vieira, leikmaður Inter og fyrrverandi leikmaður Arsenal segir að Arsenal vanti stöðugleika og að leikmenn liðsins þurfi að vita hver framtíð liðsins er. Mikið hefur verið rætt og skrifað um að Aresene Wenger hætti með liðið, en hann á bara eitt ár eftir af samningi sínum. 17.6.2007 16:07
Tevez áfram hjá West Ham? Talið er að Carlos Tevez sé alveg við það að skrifa undir nýjan samning við West Ham. Sagt er á erlendum netmiðlum að Eggert Magnússon ætli sér að gera allt til að halda Argentínumanninum hjá West Ham. 17.6.2007 15:00
Kanoute til Newcastle? Sam Allardyce er sagður vera að undirbúa tilboð í framherjann Fredi Kanoute hjá Sevilla. Með kaupunum er talið að Allardyce sé að finna staðgengil fyrir Michael Owen en Allardyce býst við að Owen yfirgefi félagið í sumar. 17.6.2007 14:37
Aaron Baddeley efstur eftir 3 hringi Ástralinn Aaron Baddeley hefur staðið sig best á Opna Bandaríska Meistaramótinu. Eftir þrjá hringi hefur hann spilað á 212 höggum, eða 2 yfir pari. Tiger Woods átti góðan hring og spilaði á 1 undir pari og komst í annað sætið, með samtals 4 yfir pari. 17.6.2007 14:15
Frábær endasprettur hjá Birgi - lék á 72 höggum Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, byrjaði ill á lokahringnum á Open de Saint-Omer mótinu í Frakklandi í dag, en sýndi mikinn styrk með því að snúa því við þegar leið á hringinn. Hann fékk fjóra skolla á fyrstu fimm holunum. 17.6.2007 14:05
Raikkönen: Hvert stig skiptir máli Kimi Raikkönen, ökumaður Ferrari liðsins í Formúluakstri segir að nú skipti hvert stig máli. Fyrir þreumur umferðum deildi hann efsta sætinu með Alonso og Hamilton en nú situr hann í fjórða sæti og hann er að vonum ekki sáttur við það. 17.6.2007 13:52
Alltaf komist áfram Íslenska karlalandsliðið í handbolta hefur unnið öll sex umspilin fyrir stórmót síðan að núverandi fyrirkomulag var tekið upp fyrir HM í Frakklandi 2001. 17.6.2007 13:00
Real meistari vinni það í kvöld Real Madrid og Barcelona eru jöfn að stigum fyrir lokaumferðina í La Liga á Spáni í kvöld. Vinni Real leikinn gegn Mallorca tryggja þeir sér titilinn þar sem það hefur betri innbyrðisviðureignir gegn Barcelona sem mætir botnliði Gimnastic. Ef bæði lið tapa getur Sevilla tryggt sér titilinn. 17.6.2007 12:00
Ég er ótrúlega stoltur af stelpunum Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari Íslands, gat ekki leynt ánægju sinni með sigurinn gegn Frökkum í gær. „Mér líður frábærlega. Að leggja svona sterk landslið að velli er ótrúlegt og það gekk eiginlega allt upp hjá okkur. Við spiluðum þéttan varnarleik og beittum góðum skyndisóknum,“ sagði Sigurður sem hrósaði Margréti Láru og Ásthildi í hástert. 17.6.2007 11:30
Fjórar þjóðir áfram á EM Pólland, Tékkland, Ungverjaland og Slóvakía tryggðu sér í gær sæti á EM í Noregi. Pólverjar unnu Holland 41-27 og 72-47 samtals, Tékkar unnu Letta með 33 mörkum gegn 26, samtals 64-56. Þá unnu Ungverjar Litháa 31-30 og 59-53 samtals og loks burstuðu Slóvakar Úkraínu 35-19, 63-48 samtals. 17.6.2007 10:45
Kallað eftir þjóðhátíðarstemningu í Höllinni Laust sæti á Evrópumótinu í Noregi er undir í kvöld. Sterkt lið Serba er komið hingað til lands og búast má við rafmagnaðri stemningu í Laugardalshöllinni. Strákarnir í landsliðinu eru jákvæðnir og bjartsýnir fyrir verkefninu og þrátt fyrir eins marks tap í fyrri leiknum ytra eru þeir sammála um að möguleikinn sé mjög góður. 17.6.2007 10:15
Spenntur fyrir Djurgården Rúrik Gíslason býst við því að sænska félagið Djurgården bjóði honum samning. Rúrik hefur verið á æfingum undir stjórn Sigurðar Jónssonar alla vikuna og lýst vel á félagið. 17.6.2007 09:45
Stefán með þrennu Stefán Gíslason gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu fyrir Lyn sem rótburstaði Brann 6-0 í gær. Brann situr á toppi deildarinnar en Lyn er komið upp í fimmta sæti. Stefán skoraði tvö mörk úr vítaspyrnum en Indriði Sigurðsson lék einnig allan leikinn fyrir Lyn. 17.6.2007 08:45