Bandaríkjamenn heppnir með mótherja 21. mars 2007 21:02 Bandaríkjamenn fóru heim með skottið á milli lappanna eftir HM síðasta sumar NordicPhotos/GettyImages
Landslið Bandaríkjanna í körfubolta sleppur við að leika með liði Ólympíumeistara Argentínu í riðli í Ameríkukeppninni sem fram fer í sumar, en dregið var í riðla í dag. Tvö af liðunum tíu sem taka þátt tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum í Peking á næsta ári. Bandaríkjamenn hafa ekki riðið feitum hesti frá alþjóðakeppni undanfarin ár og þurfa því að ná í úrslit í Ameríkukeppninni í sumar til að tryggja Ólympíusætið. Takist það ekki þarf liðið að fara í sérstakt umspil um sæti á leiknum síðar í sumar, en þangað ná liðin sem ná 3.-5. besta árangrinum í Ameríkukeppninni. Bandaríkjamenn lentu í B-riðli á Ameríkuleikunum sem hefjast 22. ágúst og andstæðingar þeirra þar verða Brasilía, Venisúela, Kanada og Jómfrúareyjar. Liðið slapp því við að mæta nokkrum sterkum þjóðum eins og Argentínu, Portó Ríkó og Mexíkó sem leika í A-riðli. Argentínska liðið er mjög sterkt og skipað fjölda leikmanna sem spila í NBA deildinni. Ekki er reiknað með því að Steve Nash leiki fyrir hönd Kanada í keppninni, en það hefur hann ekki gert síðan árið 2003. Lið Bandaríkjanna hefur ekki unnið mót síðan það vann þessa sömu keppni í Portó Ríkó árið 2003. Liðið varð síðast Ólympíumeistari árið 2000 og heimsmeistari árið 1994. Síðast þegar Bandaríkjamenn tóku þátt í stórmóti höfnuðu þeir í þriðja sæti, en það var á heimsmeistaramótinu síðasta sumar.
Körfubolti Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti Fleiri fréttir Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti Sjá meira