Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bellamy: Missti stjórn á skapi mínu Skapofsamaðurinn Craig Bellamy hefur í fyrsta skipti tjáð sig um það sem gekk á milli hans og John Arne Riise en Bellamy var sagður hafa lamið Riise í fæturna með golfkylfu eftir gott kvöld í Portúgal. 3.3.2007 11:15
Robinho lánaður til heimalandsins? Umboðsmaður brasilíska framherjans Robinho segir að forráðamenn Real Madrid ættu að fara að ákveða sig hvort þeir ætli að nota leikmanninn á næstunni, því hann sé með fjölda tilboða á borðinu um að fara sem lánsmaður til Brasilíu. 3.3.2007 11:15
Generalprufan fyrir bikarúrslitin Generalprufan fyrir bikarúrslitaleik karla í handbolta fer fram í Ásgarði í Garðabæ í dag þegar Stjarnan tekur á móti Fram í DHL-deild karla. Liðin mætast á sama tíma eftir viku í sjálfum bikarúrslitaleiknum í Laugardalshöllinni. Bæði ollu þau vonbrigðum fyrir jól en hafa verið að ná sér á strik í síðustu leikjum, Stjarnan hefur unnið sex deildarleiki í röð og Framliðið er búið að skora 118 mörk í síðustu þremur leikjum sínum í deild og bikar. 3.3.2007 11:00
Keyptu hlut í Millwall Bandarískt fjárfestingafélag hefur keypt hlutabréf í enska 2. deildarfélaginu Millwall fyrir fimm milljónir punda. Félagið hefur því bæst í hóp með Liverpool, Manchester Untited og Aston Villa sem eru reyndar öll í eigu Bandaríkjamanna. 3.3.2007 10:30
Blóðug barátta Það verður háð stríð á Anfield klukkan 12.45 í dag þegar hinir fornu fjendur Liverpool og Man. Utd mætast. 3.3.2007 10:00
Blackburn lækkar miðaverð Forráðamenn Blackburn í ensku úrvalsdeildinni hafa ákveðið að lækka meðalverð á ársmiðum fyrir stuðningsmenn liðsins á næsta ári. Lækkunin þýðir að Blackburn verður af milljón punda í tekjum. 3.3.2007 09:45
Á leið til Fjölnis Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins mun framherjinn Davíð Þór Rúnarsson vera á leið til 1. deildarliðs Fjölnis. Hann lék síðast með Víkingum en hefur verið samningslaus um nokkra mánaða skeið. Davíð lék síðast með Fjölni árið 2004 en hefur einnig verið á mála hjá Tindastóli, Neista á Hofsósi og Hvöt. 3.3.2007 09:30
Terry verður ekki með gegn Porto Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, tilkynnti í gær að fyrirliðinn John Terry verði ekki í leikmannahópi liðsins í síðari viðureigninni gegn Porto í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í næstu viku. "Ekki fræðilegur möguleiki," sagði Mourinho þegar hann var spurður en sagðist frekar búast við honum fyrir leikinn gegn Tottenham í bikarnum um næstu helgi. 3.3.2007 09:15
Auðvelt og afgerandi hjá KR-ingum KR vann loksins sigur á Hamar/Selfoss í DHL-höllinni í gær eftir að hafa tapaði tvívegis fyrir þeim fyrr í vetur. KR vann 23 stiga sigur, Hamar/Selfoss skoraði aðeins 52 stig og tapaði sínum fjórða leik í röð. 3.3.2007 09:00
Bestu liðin heima væru best í Belgíu Landsliðsmarkvörðurinn Þóra B. Helgadóttir leikur í dag sinn fyrsta leik með belgíska úrvalsdeildarliðinu Oud-Heverlee Leuven þegar það heimsækir lið KFC Lentezon Beerse. 3.3.2007 06:30
Unnu Tékka 30 - 25 A-landslið kvenna sigraði nú í kvöld Tékka á æfingarmóti í Tékklandi. Leikurinn endaði 30-25 fyrir Íslandi en staðan í hálfleik var 12-11 fyrir Íslandi. 2.3.2007 23:21
ÍR bar sigurorð af Haukum í æsispennandi leik ÍR bar sigurorð af Haukum í æsispennandi leik í Iceland Express deildinni í körfuknattleik í kvöld, 95 - 97. Marel Guðlaugsson spilaði í liði Hauka og varð þar með leikjahæsti maður deildarinnar. Hann var heiðraður fyrir leikinn. Leikurinn var jafn allt frá fyrstu mínútu en ÍR-ingar voru þó skrefinu á undan. 2.3.2007 21:15
KR bar sigurorð af Hamar/Selfoss KR bar sigurorð af Hamar/Selfoss í 21. umferð Iceland Express deildarinnar í körfuknattleik í kvöld með 75 stigum gegn 52 stigum. KR-ingar leiddu allan leikinn með um tveimur til tíu stigum. Leiðir fóru síðan að skiljast í seinni hálfleik en þá fóru KR-ingar að hitta betur og herða vörnina hjá sér. Hamar/Selfoss komst lítt áleiðis og sést það best á því að þeir skoruðu aðeins eina þriggja stiga körfu í öllum leiknum. 2.3.2007 20:45
Chelsea viðurkennir brot sín Chelsea hefur gengist við ákæru enska knattspyrnusambandsins um að hafa ekki haft stjórn á leikmönnum og / eða starfsmönnum sínum í úrslitaleik Carling bikarkeppninnar. Chelsea hefur þó beðið sambandið um áheyrn til þess að útskýra sína hlið á málinu. Sams konar kæra var lögð fram gegn Arsenal liðinu. 2.3.2007 18:07
West Ham ákært vegna félagaskipta Tevez og Macheranos Stjórn ensku úrvalsdeildarinnar hefur ákveðið að kæra Íslendingaliðið West Ham fyrir brot á reglum um leikmannakaup í tengslum við komu argentínsku leikmannanna Carlos Tevez and Javier Mascherano til liðsins í ágúst í fyrra. 2.3.2007 17:22
UEFA vísar kæru Lille frá Áfrýjunarnefnd Knattspyrnusambands Evrópu (UEFA) hefur vísað frá kæru franska knattspyrnuliðsins Lille sem vildi að mark Ryans Giggs í leik Lille og Manchester United í Meistaradeild Evrópu í síðustu viku yrði dæmt ólöglegt. 2.3.2007 16:48
Zlatan aftur með sænska landsliðinu Sættir hafa tekist með sænska sóknarmanninnum Zlatan Ibrahimovic og Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfara Svía, sem þýðir að Zlatan mun aftur leika með sænska landsliðinu. 2.3.2007 15:19
Fjórtán sigrar í röð hjá Dallas Dallas vann sinn fjórtánda sigur í röð þegar liðið lagði Cleveland með 95 stigum gegn 92. Dirk Nowitski var stigahæstur í liði Dallas með 24 stig en Le Bron James skoraði 39 fyrir Cleveland. 2.3.2007 13:16
Wi efstur á Honda Classic Charlie Wi frá Suður Kóreu hefur eins höggs forystu á Honda Classic mótinu í golfi sem hófst í gær. Bernhard Langer frá Þýsklandi stal senunni í gær. 2.3.2007 13:12
Drogba bestur í Afríku Fílstrendingurinn Didier Drogba hjá Chelsea var í kvöld útnefndur knattspyrnumaður ársins í Afríku í fyrsta sinn á ferlinum. Drogba var tilnefndur ásamt félaga sínum Michael Essien hjá Chelsea, en sá hafnaði í þriðja sæti í kjörinu annað árið í röð. Samuel Eto´o hjá Barcelona varð annar í kjörinu, en hann hafði unnið þrjú síðustu ár. 1.3.2007 22:15
Njarðvíkingar deildarmeistarar Njarðvíkingar tryggðu sér í kvöld deildarmeistaratitilinn í úrvalsdeild karla í körfubolta með því að leggja Fjölnismenn í Grafarvogi 89-75. Snæfell lagði Grindavík 83-74, Skallagrímur vann Þór 103-93 og þá vann Keflavík sigur á Tindastól á heimavelli 107-98. 1.3.2007 21:17
Upphitun fyrir Miami - Detroit á Sýn annað kvöld Það verður sannkallaður stórleikur á dagskrá Sýnar klukkan eitt annað kvöld þegar meistarar Miami Heat taka á móti erkifjendum sínum Detroit Pistons í NBA deildinni. Detroit hefur mjög örugga forystu í fyrsta sætinu í Austurdeildinni, en Miami er sem stendur í sjöunda sætinu og þarf nauðsynlega á sigri að halda í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni. 1.3.2007 20:45
Ísland tapaði fyrir Slóvakíu Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði í dag fyrsta leik sínum á æfingamóti sem stendur yfir í Tékklandi næstu daga. Íslenska liðið tapaði fyrir Slóvakíu 34-26 eftir að hafa verið fjórum mörkum undir í hálfleik. Hrafnhildur Skúladóttir skoraði 7 mörk fyrir íslenska liðið, sem mætir heimamönnum Tékkum á morgun. 1.3.2007 19:24
Njarðvíkingar geta tryggt sér efsta sætið í kvöld Í kvöld fara fram fjórir leikir í úrvalsdeild karla í körfubolta. Njarðvíkingar geta með sigri á Fjölni tryggt sér deildarmeistaratitilinn, en liðin eigast við í Grafarvogi klukkan 19:15. Á sama tíma tekur Snæfell á móti Grindavík, Keflavík á móti Tindastól og Skallagrímur fær Þórsara í heimsókn. 1.3.2007 18:04
Eggert fékk dularfullt duft í pósti Eggerti Magnússyni, fyrrverandi formanni KSÍ og stjórnarformannI enska úrvalsdeildarliðsins West Ham, barst í gær dularfullt bréf á skrifstofu sína í Lundúnum með með hvítu dufti. 1.3.2007 17:12
Emre enn í sviðsljósinu vegna kynþáttaníðs Tyrkneski miðjumaðurinn Emre hjá Newcastle er enn í sviðsljósinu fyrir meintan kynþáttaníð sinn á knattspyrnuvellinum, en hann er nú sakaður um þetta í þriðja sinn á stuttum tíma. Bolton og Everton höfðu þegar gert athugasemdir við framkomu leikmannsins og nú hefur leikmaður Watford bæst í þennan hóp. 1.3.2007 16:42
Eboue fær þriggja leikja bann Varnarmaðurinn Emmanuel Eboue hjá Arsenal hefur verið dæmdur í þriggja leikja keppnisbann af enska knattspyrnusambandinu fyrir að slá til Wayne Bridge í úrslitaleik deildarbikarsins um síðustu helgi. Knattspyrnusambandið notaðist við myndbandsupptökur af leiknum í dómi sínum. 1.3.2007 16:31
Wenger kallaður inn á teppi Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, verður kallaður inn á teppi hjá enska knattspyrnusambandinu eftir að hann kallaði aðstoðardómarann í úrslitaleiknum í deildarbikarnum lygara. Wenger segir aðstoðardómarann hafa sagt að Emmanuel Adebayor hafi kýlt Frank Lampard, en bæði knattspyrnusambandið og Frank Lampard sjálfur hafa neitað þessu. 1.3.2007 14:48
Philadelphia stöðvaði Phoenix Philadelphia varð í nótt eina liðið í Austurdeildinni í NBA sem náði að vinna Phoenix Suns á heimavelli. Philadelphia sigraði 99-94 og var þetta eina tap Phoenix á útivelli gegn liði í Austurdeildinni. Amare Stoudemire skoraði 31 stig og hirti 14 fráköst fyrir Phoenix en Andre Iguodala skoraði 24 fyrir Philadelphia. 1.3.2007 14:31