Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dramatískur sigur Arsenal á Man Utd Arsenal vann í dag dramatískan 2-1 sigur á Manchester United í ensku úrvalsdeildinni og því er ljóst að forskot United er enn aðeins sex stig á toppnum. Wayne Rooney kom United yfir í fyrri hálfleik, en Robin Van Persie jafnaði á 87. mínútu fyrir Arsenal og það var svo hinn magnaði Thierry Henry sem tryggði Arsenal sigurinn í uppbótartíma. 21.1.2007 17:53
Eins marks forysta í hálfleik Íslendingar leiða gegn Úkraínumönnum með einu marki, 13-12 í hálfleik. Roland Valur Eradze hefur verið besti maður íslenska liðsins í hálfleiknum og meðal annars varið vel úr hraðaupphlaupi og eitt víti. 21.1.2007 17:39
Ein breyting á íslenska hópnum Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari gerði eina breytingu á 14 manna hópi fyrir leikinn gegn Úkraínumönnum sem er í þann mund að hefjast. Roland Valur Eradze kemur inn fyrir Hreiðar Levý Guðmundsson. 21.1.2007 16:58
Jafnt á Emirates í hálfleik Ekkert mark er enn komið í stórleik Arsenal og Manchester United á Emirates vellinum í London. Jafnræði hefur verið með liðunum fyrir hlé, en Jens Lehmann hefur tvisvar varið meistaralega frá framherjum United. 21.1.2007 16:53
Sigurganga Inter heldur áfram Ítalíumeistarar Inter Milan héldu áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni í A-deildinni í dag þegar liðið lagði Fiorentina 3-1 eftir að hafa lent marki undir. Roma varð á í messunni og náði aðeins jafntefli við Livorno á útivelli þar sem Francesco Totti jafnaði leikinn 1-1 áður en hann var rekinn af velli í lokin. 21.1.2007 16:41
Frakkar söltuðu Ástrali Fimm leikjum er lokið á HM í handbolta í dag og óhætt er að segja að þeir hafi allir unnist nokkuð örugglega. Þrátt fyrir fádæma sigur Frakka á Áströlum tókst þeim ekki að slá met okkar Íslendinga yfir stærstu sigra í sögu HM en til þess vantaði þá fjögur mörk í viðbót. 21.1.2007 16:32
Látum Larsson ekki eyðileggja fyrir okkur aftur Cesc Fabregas, miðvallarleikmaður Arsenal, segir ekki koma til greina að láta sænska markaskorarann Henrik Larsson endurtaka leikinn frá í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í fyrra þegar sá sænski átti stóran þátt í sigri Barcelona á Arsenal. Liðið tekur á móti Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í dag klukkan 16. 21.1.2007 15:47
Everton vann Wigan - Andy Johnson meiddur Wigan tapaði sínum sjöunda leik í röð í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar þá lágu fyrir Everton 2-0 á heimavelli. Andy Johnson framherji Everton meiddist illa. 21.1.2007 15:34
Staðan eftir bókinni Nú eru fimm leikir hafnir á HM í handbolta og staðan í þeim öllum eftir bókinni. Pólverjar hafa tveggja marka forystu á Brasilíumenn í C-riðli þegar flautað hefur verið til hálfleiks en Pólverjar hófu leikinn mun betur en Brassar klóruðu í bakkann fyrir hálfleik. 21.1.2007 15:06
Luku leik með sjö leikmönnum Fjórir leikmenn Osasuna fengu að líta rauða spjaldið þegar liðið heimsótti Atletico Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Osasuna er eina liðið í spænsku efstu deildinni sem lýkur leik með 7 leikmenn inni á vellinum á síðustu 10 keppnistímabilum. 21.1.2007 14:13
Óeftirminnileg endurkoma Artest til Detroit Ron Artest hagaði sér vel í nótt þegar hann sneri loks aftur til Detroit með liði sínu Sacramento, en þangað hafði hann ekki komið síðan hann varð valdur að uppþoti þar fyrir tveimur árum sem kostaði hann yfir 70 leikja bann. Detroit vann auðveldan sigur 91-74 í nótt. 21.1.2007 14:09
E-riðill: Staðan galopin Óvæntustu úrslit gærdagsins á HM í handbolta voru eflaust að Danir töpuðu fyrir Ungverjum með 29 mörkum gegn 30 en fyrirfram var búist við að Danir yrðu meðal efstu liða á mótinu. Danir hafa hinsvegar ákveðið að láta tapið ekki á sig fá og segja möguleika sína á árangri á mótinu ekki skerta. 21.1.2007 13:28
Lazlo Nagy í nærmynd Þrátt fyrir að hin rúmlega tveggja metra háa ungverska vinstrihandarskytta hafi unnið bæði Meistaradeild Evrópu, Evrópukeppni félagsliða og tvo spænska meistaratitla á sínum sjö tímabilum hjá hinum geysisterku Barcelona-mönnum, hefur árangurinn með landsliðinu staðið aðeins á sér. 21.1.2007 12:58
Allt í járnum Eftir fimmtán mínútna leik er staðan jöfn gegn Úkraínumönnum 7-7. Leikurinn er í járnum en okkar menn hafa verið á undan að skora. 21.1.2007 17:18
KSÍ: Jafnar greiðslur til karla og kvenna Stjórn knattspyrnusambands Íslands ákvað á stjórnarfundi í síðustu viku að jafna dagpeningagreiðslur til karla og kvennalandsliðanna auk þess sem kvennalandsliðinu var heitinn árangurstengdur aukastyrkur. 21.1.2007 14:30
Artest mætir til Detroit með hanakamb Villingurinn Ron Artest hjá Sacramento Kings ætlar ekki beinlínis að láta lítið fyrir sér fara í nótt þegar hann mætir í The Palace, heimavöll Detroit Pistons, í fyrsta skipti síðan hann lenti þar í einum frægustu slagsmálum í sögu hópíþrótta í Bandaríkjunum fyrir um tveimur árum. Artest lét félaga sinn raka á sig hanakamb í gærkvöldi. 20.1.2007 22:17
Kevin Davies framlengir við Bolton Framherjinn Kevin Davies skrifaði í dag undir nýjan samning við enska úrvalsdeildarfélagið Bolton sem gildir til ársins 2010. Davies er 29 ára gamall, en hefði eflaust kosið sér að halda upp á nýja samninginn en með 5-1 tapi eins og raunin varð hjá Bolton gegn Middlesbrough í dag. 20.1.2007 22:15
Neill fer til West Ham Breska sjónvarpið greindi frá því í dag að ástralski landsliðsmaðurinn Lucas Neill hefði ákveðið að ganga í raðir West Ham frá Blackburn, en þar hafi honum verið boðinn allt að helmingi hærri samningur en hjá Liverpool. 20.1.2007 21:30
Ungverjar skelltu Dönum Ellefu leikir fóru fram í dag á öðrum keppnisdegi HM í handbolta í Þýskalandi. Íslenska liðið vann auðveldan sigur á því ástralska í dag og í kvöld gerðu Ungverjar sér lítið fyrir og lögðu Dani 30-29 í E-riðli. Hér fyrir neðan eru úrslit allra leikja í dag. 20.1.2007 20:54
Young samþykkir að fara til Aston Villa Martin O´Neill, stjóri Aston Villa, segir að framherjinn ungi Ashley Young hjá Watford hafi gert munnlegt samkomulag við sig um að ganga í raðir Villa. Hinn 21 árs gamli framherji hafði áður neitað að ganga í raðir West Ham eftir að liðið gerði kauptilboð í hann. Fréttir herma að Villa muni kaupa leikmanninn á um 8 milljónir punda. 20.1.2007 20:30
Grindavík lagði Breiðablik Einn leikur fór fram í úrvalsdeild kvenna í körfubolta í dag. Grindavíkurstúlkur unnu þar auðveldan sigur á Breiðablik í Smáranum 71-57 eftir að hafa verið yfir 41-21 í hálfleik. Tamara Bowie átti enn einn stórleikinn fyrir Grindavík og skoraði 28 stig og hirti 19 fráköst hjá Grindavík og Hildur Sigurðardóttir skoraði 17 stig og hirti 8 fráköst. Telma Fjalarsdóttir átti frábæran leik í liði Breiðabliks með 22 stig og 18 fráköst. 20.1.2007 20:05
New Jersey - Orlando í beinni í nótt Leikur New Jersey Nets og Orlando Magic verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu klukkan eitt eftir miðnætti í nótt. Hér eru á ferðinni tvö af bestu liðum Austurdeildar og er áhorfendum gefst þarna færi á að sjá einn efnilegasta miðherja deildarinnar Dwight Howard hjá Orlando. 20.1.2007 19:58
Calderon baðst afsökunar Sérstakur krísufundur var haldinn í herbúðum Real Madrid í dag þar sem forseti félagsins Ramon Calderon bað David Beckham og aðra leikmenn liðsins afsökunar á ummælum sem hann lét falla um Beckham á dögunum. Calderon kallaði Beckham lélegan leikara sem ekkert lið kærði sig um að fá í sínar raðir. 20.1.2007 19:44
Frakkar unnu auðveldan sigur á Úkraínu Frakkar voru ekki í vandræðum með að vinna Úkraínumenn í fyrsta leik sínum á HM í handbolta í dag og unnu sannfærandi sigur 32-21 eftir að hafa leitt 17-8 í hálfleik. Þessar þjóðir leika í B-riðli með okkur Íslendingum í Magdeburg. 20.1.2007 18:55
Miðaverð tífalt hærra á svörtum markaði Stemmingin í Magdeburg var frábær í dag þegar íslenska landsliðið í handbolta spilaði sinn fyrsta leik í riðlakeppni HM. Íslendingarnir gengu skrúðgöngu á leikinn þar sem fánum var veifað og öl var teigað. Uppselt er á alla leiki í riðlinum, en þeir miðar sem enn fást á svörtum markaði hafa tífaldast í verði. 20.1.2007 17:47
Guðjón Valur maður leiksins Íþróttamaður ársins Guðjón Valur Sigurðsson var kjörinn maður leiksins í dag þegar íslenska landsliðið burstaði Ástrala 45-20. Þetta kom ekki sérlega á óvart þar sem Guðjón skoraði hvorki meira né 15 mörk úr aðeins 16 skotum í leiknum og á myndinni hér til hliðar má sjá hann sýna fjölskyldu sinni verðlaunagripinn sem hann fékk að launum. 20.1.2007 17:07
Middlesbrough burstaði Bolton Sjö af átta leikjum dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu er nú lokið. Middlesbrough stal senunni nú síðdegis með því að vinna 5-1 stórsigur á Bolton á heimavelli sínum. West Ham náði aðeins að hanga á 2-2 jafntefli gegn Newcastle eftir að hafa náð 2-0 forystu, en Reading lagði Sheffield United 3-1. Heiðar Helguson var rekinn af velli í liði Fulham þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Tottenham. 20.1.2007 16:59
Auðveldur sigur hjá íslenska liðinu í fyrsta leik Íslenska landsliðið vann í dag auðveldan stórsigur á því ástralska 45-20 í fyrsta leik sínum á HM í handbolta, en leikið var í Magdeburg. Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur í íslenska liðinu með 15 mörk úr 16 skotum, Alexander Petersson 8 og þeir Logi Geirsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson 5. 20.1.2007 16:22
Liðið skortir sjálfstraust Jose Mourinho viðurkenndi að sína menn hefði einfaldlega skort sjálfstraust í dag þegar Chelsea tapaði 2-0 fyrir Liverpool. Rafa Benitez var að vonum ánægður með sína menn þegar hann landaði sigri í 100. deildarleik sínum með þá rauðu. 20.1.2007 15:58
Middlesbrough að bursta Bolton Nú er kominn hálfleikur í viðureignunum sex sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni í knatttspyrnu. Middlesbrough hefur 4-1 forskot gegn Bolton á heimavelli sínum og Íslendingalið West Ham hefur yfir 2-1 á St. James Park. Þá hefur Reading yfir 1-0 gegn Sheffield United, en mörkin má sjá á Boltavaktinni hér á Vísi. 20.1.2007 15:53
Miklir yfirburðir íslenska liðsins Íslenska landsliðið á náðugan dag í fyrsta leik sínum á HM í Þýskalandi þar sem það er að rótbursta Ástrala 26-9 þegar flautað hefur verið til hálfleiks. Guðjón Valur Sigurðsson hefur farið á kostum í hraðaupphlaupunum og er markahæstur með 8 mörk úr 9 skotum. Ísland komst í 7-0 og hefur ekki litið til baka síðan þó ástralska liðið hafi náð að skora nokkur mörk undir lok hálfleiksins. 20.1.2007 15:33
Liverpool lagði Chelsea Liverpool vann í dag mikilvægan 2-0 sigur á Chelsea í ensku úrvalsdeildinni með mörkum frá Dirk Kuyt og Jermaine Pennant í upphafi leiks. Liverpool styrkti stöðu sína í þriðja sæti deildarinnar með sigrinum og hefur liðið nú hlotið 46 stig, fimm stigum minna en Chelsea sem er í öðru sæti. Þetta var 100. deildarleikur liðsins undir stjórn Rafa Benitez knattspyrnustjóra. 20.1.2007 14:34
Veislan að hefjast Þjóðverjar sigruðu Brasilíumenn í opnunarleiknum á HM í handbolta í gær en í dag má segja að mótið fari af stað fyrir alvöru með 11 leikjum. Íslenska landsliðið þreytir frumraun sína nú klukkan 15 þegar liðið mætir Áströlum í Magdeburg. 20.1.2007 14:09
Liverpool 2-0 yfir í hálfleik Liverpool hefur yfir 2-0 gegn Chelsea þegar flautað hefur verið til hálfleiks í stórleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Hollendingurinn Dirk Kuyt kom heimamönnum yfir eftir 4 mínútur og Jermaine Pennant bætti við öðru marki á 19. mínútu. Petr Cech er kominn í markið hjá Chelsea á ný eftir langa fjarveru vegna meiðsla. 20.1.2007 13:43
Hannes spáir 46 – 17 Hannes Jón Jónsson handknattleiksmaður með Ajax í Danmörku mun fylgjast með HM í handbolta eins og flestir Íslendingar. „Þeir ætla alltaf að verða meistarar,“ segir Hannes um Dani og stemmninguna í Danmörku fyrir mótinu. 20.1.2007 13:32
Heitt í kolunum í Minneapolis Það var heitt í kolunum í Minneapolis í nótt þegar Detroit Pistons kom í heimsókn og vann frækinn 104-98 sigur í tvíframlengdum leik. Kevin Garnett og Antonio McDyess var vísað úr húsi eftir að þeim lenti saman og gæti Garnett átt yfir höfði sér leikbann eftir að hann sló til mótherja síns. 20.1.2007 13:23
Ástralar sækja í sig veðrið Ástralska liðið hefur tekið sig saman í andlitinu í síðari hálfleik gegn íslenska landsliðinu og staðan nú um miðjan síðari hálfleik er 35-18 fyrir Ísland. Ljóst er að íslenska liðið fer með sigur af hólmi, en þeir áströlsku ætla þó að bjarga andlitinu áður en flautað verður til leiksloka. 20.1.2007 16:05
Ísland komst í 7-0 Íslenska landsliðið í handbolta á ekki í miklum vandræðum með lið Ástrala í upphafi leiks liðanna í Magdeburg eins og búast mátti við. Íslenska liðið komst í 7-0 eftir tæpar 7 mínútur og staðan um miðjan fyrri hálfleik er orðin 14-3 fyrir Ísland, þar sem Guðjón Valur og Alexander hafa skorað grimmt. 20.1.2007 15:19
Við erum úr leik ef við töpum Arsene Wenger viðurkennir að lið hans sé úr leik í baráttunni um enska meistaratitilinn ef það tapar fyrir Manchester United á heimavelli á sunnudag. Arsenal er þegar 15 stigum á eftir United, en Wenger segir það ekki þýða að hans menn geti ekki unnið sigur á toppliðinu. 19.1.2007 22:00
Milan Baros til Lyon? Tékkneski framherjinn Milan Baros hjá Aston Villa gengur í raðir Lyon í Frakklandi í næstu viku ef marka má fréttir frá Frakklandi nú undir kvöldið. Baros er sagður hafa hringt í Gerard Houllier persónulega til að biðja hann afsökunar á að hafa neitað að ganga í raðir liðsins fyrir einu og hálfu ári. 19.1.2007 21:00
Kjelling er með indíánahúðflúr Stórskyttan Kristian Kjelling hjá norska landsliðinu í handbolta segist ákveðinn í að spila leikinn gegn Angóla á morgun þó hann hafi átt við þrálát hnémeiðsli að stríða. Kjelling er með sérstakt húðflúr á handleggnum tileinkað æskuvini hans. 19.1.2007 21:00
Gremja í berbúðum Galaxy vegna launa Beckhams Miðjumaðurinn Peter Vagenas hjá knattspyrnuliðinu LA Galaxy, viðurkennir að nokkur gremja sé í leikmönnum liðsins vegna þeirra ofurlauna sem David Beckham muni raka inn þegar hann gengur í raðir liðsins í sumar. 19.1.2007 20:15
Dallas - LA Lakers á Sýn í kvöld Stórleikur Dallas Mavericks og LA Lakers sem fram fór í NBA deildinni í gærkvöldi verður sýndur á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld klukkan 23:30. Hér eru á ferðinni tvö af bestu liðum deildarinnar sem hafa verið á miklu flugi undanfarið. 19.1.2007 18:45
Þjóðverjar lögðu Brasilíumenn Þjóðverjar lögðu Brasilíumenn í opnunarleik HM í handbolta í kvöld 27-22 eftir að hafa verið yfir 12-10 í hálfleik. Ekki er hægt að segja að hafi verið sérstakur glæsibragur á leik heimamanna í Berlín í kvöld, en þeir kláruðu verkefnið. Pascal Hens, Markus Baur og Florian Kehrmann skoruðu sex mörk hvor fyrir þýska liðið fyrir framan 10.000 áhorfendur í Max Schmeling Halle. 19.1.2007 17:56
Greið leið Ástrala á HM Ekki er hægt að segja að leið Ástrala á HM í handbolta hafi verið sérlega grýtt, en liðið lék í riðli með grönnum sínum frá Nýja-Sjálandi og Cook-eyjum í undankeppninni. Það væri vægt til orða tekið að segja að Ástralir hafi haft yfirburði í riðlinum, því liðið lagði Nýja-Sjáland 41-14 og Cook-eyjar 63-5, eftir að hafa verið með 31-1 forystu í hálfleik. 19.1.2007 17:21