Fleiri fréttir

Grannaslagur í 8-liða úrslitum

Í dag var dregið í 8-liða úrslit spænska Konungsbikarsins en þar verður leikið heima og úti og eru leikirnir settir á dagana 31. janúar og 28. febrúar. Grannliðin Sevilla og Real Betis eigast við í 8-liða úrslitunum, en Betis sló Real Madrid út úr keppninni í gærkvöld.

Ivano Balic í nærmynd

Ivano Balic, sem nú er 27 ára og á hátindi ferils síns sló fyrst í gegn í lokakeppni HM í Portúgal 2003, ekki síst í úrslitaleiknum þar sem hann átti stórleik gegn langt um stærri og sterkari Þjóðverjum. Frábær tækni og framúrskarandi leikskilningur eru það sem gera Balic að einum fremsta handboltamanni í heimi, hann sannar að þeir kostir eru ekki síður mikilvægir en stærð og styrkur.

Johnson nappaður við að stela klósettsetu

Enski landsliðsmaðurinn Glen Johnson hjá Chelsea, sem leikur nú sem lánsmaður hjá Portsmouth, var á miðvikudaginn handtekinn ásamt félaga sínum eftir að hann reyndi að stela klósettsetu og pípulagnaefni í verslun á Dartford á Englandi.

Lua Lua handtekinn

Framherjinn Lomana Lua Lua hjá Portsmouth var handtekinn í nótt og er grunaður um líkamsárás. Lua Lua hefur verið meiddur í sex vikur og spilar ekki um helgina, en þetta er í annað sinn á þremur mánuðum sem lögregla þarf að hafa afskipti af Kongómanninum vegna óláta hans. Málið er enn í rannsókn.

Klesstum á múrvegg

Sir Alex Ferguson segir að Manchester United hafi klesst á múrvegg í janúarglugganum og segir það staðfesta það sem hann hafi alltaf sagt - það sé mjög erfitt að finna góða leikmenn á þessum árstíma.

Dominikovic verður ekki með Króötum

Króatíska landsliðið í handbolta varð fyrir miklu áfalli í dag eftir að upp komst að Davor Dominikovic sem leikur með Portland San Antonio á Spáni hefði fallið á lyfjaprófi í síðasta mánuði. Þetta þýðir að leikmaðurinn fær ekki að taka þátt í HM sem hefst í dag. Verði B-sýni hans jákvætt á hann yfir höfði sér tveggja ára keppnisbann, en hann er lykilmaður í sterku liði Króata.

Lið Þjóðverja klárt

Heiner Brand, landsliðsþjálfari Þjóðverja, valdi 15 manna hóp sinn fyrir opnunarleikinn gegn Brasilíumönnum á allra síðustu stundu í morgun. HM hefst í dag klukkan 16:30 með þessum eina leik, en mótið byrjar svo á fullu á morgun og þar mæta Íslendingar Áströlum.

Beckham lét forsetann heyra það á æfingasvæðinu

David Beckham hefur nú loksins svarað fyrir sig eftir að forseti Real Madrid hraunaði yfir hann í fjölmiðlum síðustu daga og kallaði hann lélegan leikara sem ekkert lið kærði sig um að fá. Beckham svaraði hressilega fyrir sig á æfingasvæði Real í gær og kallaði Calderon lygara fyrir framan alla félaga sína í liðinu.

Bayern neitar tilboði United í Hargreaves

Þýska dagblaðið Bild greinir frá því í dag að Bayern Munchen hafi neitað kauptilboði Manchester United í enska landsliðsmanninn Owen Hargreaves upp á 30 milljónir evra. Hargreaves er nú við það að snúa aftur úr meiðslum, en forráðamenn Bayern standa fast á því að selja hann ekki fyrr en í fyrsta lagi í sumar.

Babbel íhugar að hætta

Þýski miðjumaðurinn Markus Babbel hjá Stuttgart segist vera að íhuga að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla. Babbel lék á árum áður með Liverpool og Blackburn og varð Evrópumeistari með Þjóðverjum árið 1996. Babbel er 34 ára gamall og á að baki 51 landsleik.

Young í viðræðum við Aston Villa

Enska úrvalsdeildarfélagið Watford hefur gefið Aston Villa leyfi til að ræða við framherjann unga Ashley Young eftir að hafa samþykkt kauptilboð í hann í morgun. Talið er að tilboðið sé upp á um 8 milljónir punda, en Young hafði áður neitað að ganga í raðir West Ham eftir að Watford samþykkti 9,65 milljón punda tilboð í hann.

Sigurganga Dallas heldur áfram

Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Ótrúleg sigurganga Dallas Mavericks hélt áfram þegar liðið lagði LA Lakers örugglega á heimavelli sínum 114-95. Josh Howard skoraði 29 stig og hirti 11 fráköst fyrir Dallas og Dirk Nowitzki skoraði 27 stig og hirti 10 fráköst. Kobe Bryant var atkvæðamestur hjá Lakers með 26 stig.

KR og Njarðvík áfram á toppnum

KR og Njarðvík sitja enn í toppsætum úrvalsdeildar karla í körfubolta eftir leiki kvöldsins. KR vann góðan sigur á Keflavík 93-82 í vesturbænum í kvöld og Njarðvík lagði Skallagrím á heimavelli 95-91. Snæfell lagði Fjölni í Grafarvogi 87-84 og ÍR lagði Hamar 99-76.

Shevchenko hættur að ræða við fjölmiðla

Úkraínumaðurinn Andriy Shevchenko gaf það út á heimasíðu sinni í kvöld að hann ætlaði framvegis að sniðganga alla fréttamenn á Englandi í kjölfar þess að bresku blöðin hafi birt eftir hann fjölda tilvitnana sem væru úr lausu lofti gripnar.

Öskubuskuævintýrið Paul Scholes

Breska dagblaðið The Sun birti í dag áhugaverða grein um það hvernig lítil tilviljun kann að hafa ráðið miklu um það að miðjumaðurinn Paul Scholes hjá Manchester United varð sú stórstjarna sem hann er í dag.

Ég er sáttur hjá Chelsea

Jose Mourinho segist vera ánægður með lífið hjá Chelsea og vill klára samning sinn við félagið sem gildir til ársins 2010. Mikið hefur verið rætt um að Mourinho sé að hætta hjá Chelsea í sumar, en Portúgalinn litríki segist vera búinn að koma sér fyrir í London og hefur engan hug á að yfirgefa félagið.

Ný körfuboltahöll Nets fær nafnið Barclays Center

Barclays-bankinn á Englandi, sem m.a. er stuðningsaðili ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, ætlar nú í aukna útrás í Bandaríkjunum. Bankinn hefur skrifað undir 20 ára styrktarsamning við NBA lið New Jersey Nets sem flytja mun til Brooklyn á næstu árum. Þar er áformað að byggja glæsilega höll á stórum reit í borginni og reiknað er með að kostnaður verði hátt í 300 milljarðar íslenskra króna.

Emerson er til í að fara aftur til Juventus

Brasilíski miðjumaðurinn Emerson hjá Real Madrid getur vel hugsað sér að snúa aftur í herbúðir ítalska liðsins Juventus ef marka má orð knattspyrnustjórans Didier Deschamps. Emerson var lykilmaður í sterku liði Juventus sem varð meistari tvö ár í röð, en gekk í raðir Real Madrid eftir að Juve var fellt niður um deild eftir Ítalíuskandalinn fræga.

Portsmouth kaupir Lauren

Enska úrvalsdeildarfélagið Portsmouth gekk í dag frá kaupum á varnarmanninum Lauren frá Arsenal og er hann samningsbundinn Portsmouth til ársins 2009. Lauren, sem er nýorðinn þrítugur, hefur verið í herbúðum Arsenal í rúmlega sex ár og gengur nú til liðs við fyrrum félaga sinn í vörn Arsenal - Sol Campbell.

Fastasta skot allra tíma?

Stuðningsmenn Newcastle eru enn að tala um þrumufleyg framherjans magnaða Obafemi Martins í sigurleik liðsins gegn Tottenham um síðustu helgi. Samkvæmt grein í breska blaðinu Telegraph, er þetta fastasta skot sem mælst hefur í ensku knattspyrnunni frá upphafi.

Risaleikir í körfunni í kvöld

Fjórir leikir fara fram í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld og eru þeir hver öðrum áhugaverðari. Bárður Eyþórsson og lærisveinar hans í Fjölni taka á móti gömlu félögum hans í Snæfelli, heit lið ÍR og Hamars mætast í Breiðholti og þá eru tveir tröllaleikir þar sem Njarðvík tekur á móti Skallagrími og Keflvíkingar sækja KR-inga heim.

Real Madrid - Betis í beinni í kvöld

Síðari viðureign Real Madrid og Real Betis í spænska Konungsbikarnum verður sýnd beint á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld klukkan 19:50. Fyrri viðureign liðanna lauk með markalausu jafntefli. Arnar Björnsson lýsir leiknum.

Engin örvænting í herbúðum Chelsea

Peter Kenyon, stjórnarformaður enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea, segir að allt sé í fínasta lagi í herbúðum félagsins og að Jose Mourinho muni gegna starfi knattspyrnustjóra út samningstímann. Þetta sagði Kenyon í drottningarviðtali við Sky-sjónvarpsstöðina í dag, eins og til að slá á þrálátan orðróm um ólgu í herbúðum félagsins.

Thatcher skammast sín fyrir árásina

Fanturinn Ben Thatcher sem nú leikur með Charlton, segist enn skammast sín fyrir líkamsárás sína á Pedro Mendes hjá Portsmouth í ágúst síðastliðnum. Thatcher var þá leikmaður Manchester City, en er nú í bullandi fallbaráttu með Charlton.

Brown verður ekki sóttur til saka fyrir tertukast

Lögregluyfirvöld í Los Angeles hafa ákveðið að aðhafast ekki frekar í máli manns sem segir framherjann Kwame Brown hjá LA Lakers hafa leikið sig ansi grátt um síðustu helgi, en þetta er ekki í fyrsta skipti sem Brown er sakaður um vafasama iðju utan vallar.

Archer leiðir á Abu Dhabi

Enski kylfingurinn Phillip Archer hefur þriggja högga forystu á Abu Dhabi mótinu í golfi þegar leikinn hefur verið einn hringur á mótinu sem fram fer í Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum. Archer fékk 10 fugla á fyrsta hring og lauk keppni í dag á 9 undir - 63 höggum.

Alonso mjög sáttur við nýja bílinn

Heimsmeistarinn Fernando Alonso lét ekki smá olíuleka skemma fyrir sér frumraun sína á nýja McLaren bílnum í Valencia í gær. Þetta var í fyrsta skipti sem Alonso ók MP4-22 bílnum og sagði Spánverjann bílinn virka mjög vel. Þá hafa fyrrum félagar Alonso í Renault einnig tekið nýjan bíl í notkun og hefur sá verið kallaður R27.

Birmingham neitaði West Ham

Birmingham neitaði í dag 4 milljóna kauptilboði West Ham í miðvörðinn Matthew Upson, en hann hefur verið eftirsóttur af úrvalsdeildarliðum í vetur. Upson er 27 ára gamall og var frábær í stórsigri Birmingham á Newcastle í gærkvöld.

Heinze vill ekki fara frá United

Argentínumaðurinn Gabriel Heinze hefur neitað orðrómi sem verið hefur á kreiki um að hann sé að fara frá Manchester United og segist ánægður í herbúðum liðsins þó hann hafi fengið mun minna að spila í ár en áður. "Ég veit að AC Milan hefur sýnt mér áhuga, en ég er ánægður hjá United og vil ekki fara neitt annað," sagði Heinze.

Saviola á leið til Juventus?

Barcelona hefur samþykkt að selja argentínska framherjann Javier Saviola til Juventus. Þetta hefur spænsk útvarpsstöð eftir fyrrum félaga hans hjá River Plate, Andres d´Alessandro hjá Real Zaragoza. Saviola hefur verið úti í kuldanum hjá Barcelona undanfarin ár en hefur minnt rækilega á sig á síðustu vikum þegar hann hefur fengið tækifæri.

Indiana og Golden State stokka upp

Lið Indiana Pacers og Golden State Warriors gerðu með sér mikil og stór leikmannaskipti í NBA deildinni í gærkvöldi, en þessi viðskipti liðanna komu sérfræðingum í deildinni mjög á óvart. Svo virðist sem hvorugt liðið komi áberandi betur út úr skiptunum, en átta leikmenn skiptu um heimilisfang í viðskiptunum.

Benitez að missa áhugann á Neill

Breska blaðið Daily Mirror heldur því fram í dag að Rafa Benitez, stjóri Liverpool, sé að gefast upp á því að reyna að fá til sín varnarmanninn Lucas Neill hjá Blackburn. Sagan segir að Neill hafi meiri áhuga á að ganga í raðir West Ham þar sem honum hafi verið boðinn betri samningur, en óvíst er að hann fari þangað eftir að félagið keypti Calum Davenport frá Tottenham í dag.

Rossi lánaður til Parma

Framherjinn ungi Giuseppe Rossi hjá Manchester United hefur verið lánaður til síns gamla félags Parma á Ítalíu til loka keppnistímabilsins. Rossi hefur verið í láni hjá Newcastle síðan í sumar, en fékk þar aðeins þrisvar að leika í byrjunarliði þrátt fyrir meiðsli lykilmanna þar á bæ. Rossi er aðeins 19 ára gamall.

Enska úrvalsdeildin hagnast

Sigurvegararnir í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili eiga von á góðum bónusum eftir að tilkynnt var að deildin hefði náð erlendum sjónvarpssamningum fyrir 625 milljónir punda. Þetta þýðir að liðið sem hirðir efsta sætið á næsta ári mun fá aukalega um 50 milljónir punda í vasann. Samningurinn gildir út árið 2010.

Wolves hafnar tilboði Souness og félaga

Forráðamenn enska 1. deildarliðsins Wolves hafa hafnað yfirtökutilboði frá hópi fjárfesta undir forystu fyrrum knattspyrnustjórans Graeme Souness. Tilboð hópsins var að sögn talsmanna Wolves of lágt og því verður áfram leitað eftir kaupendum.

Ben Haim fer ekki til Chelsea

Chelsea hefur gefið út yfirlýsingu þar sem fram kemur að félagið muni ekki reyna frekar að fá til sín varnarmanninn Tal Ben Haim frá Bolton, en viðræður milli félaganna um kaupverðið sigldu í strand. Haim verður samningslaus í sumar.

Calum Davenport til West Ham

Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham festi í dag kaup á miðverðinum Calum Davenport frá grönnum sínum í Tottenham fyrir óuppgefna upphæð. Davenport gekk í raðir Tottenham frá Coventry árið 2004 en þessi 24 ára gamli leikmaður hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Tottenham. Hann hefur skrifað undir þriggja og hálfs árs samning við West Ham.

Tap í fyrsta leik hjá Webber

Utah Jazz eyðilagði í nótt frumraun Chris Webber með Detroit Pistons, sem einnig endurheimti leikstjórnandann Chauncey Billups úr meiðslum. LA Lakers vann góðan útisigur á San Antonio og Cleveland steinlá fyrir Portland á útivelli.

Sjá næstu 50 fréttir