Fleiri fréttir

Scolari hefur áhyggjur af Ronaldo

Luis Felipe Scolari, landsliðsþjálfari Portúgals hefur áhyggjur af Christiano Ronaldo en leikmaðurinn hefur verið að sýna skapofsa og láta allt og alla fara í taugarnar á sér. Hann lét til sín taka í vináttuleik gegn Luxemborg um helgina þar sem hann tók einn leikmann Luxemborgar hálfstaki eftir að sá hinn sami braut á Ronaldo.

Defoe fer til Þýskalands

Sven-Göran Eriksson, þjálfari enska landsliðsins hefur staðfest að Jermain Defoe fer með liðinu til Þýskalands. Enn á eftir að koma í ljós hvort Wayne Rooney verður með en það kemur í ljós á miðvikudaginn hvernig staðan er á honum.

Shaun Wright Phillips veðjar á Cole og Crouch

Shaun Wright Phillips, leikmaður Chelsea veðjar á að þeir Joe Cole og Peter Crouch eigi eftir að verða innblásturinn fyrir enska liðið á HM í sumar. Þessi snaggaralegi leikmaður var ekki valinn í hópinn fyrir HM í sumar. Hann hafði þetta að segja.

Cahill skoraði í endurkomunni

Tim Cahill gladdi Guus Hiddink þjálfara Ástralíu er hann skoraði í sínum fyrsta leik eftir meiðsli í 1-1 jafnteflisleik gegn Hollendingum. Cahill hefur verið meiddur frá því að hann skaddaði hné gegn Birmingham í apríl og Everton hafa hvatt ástralska landsliðið til að fara varlega með hann.

Crouch byrjar inn á

Sven-Göran Eirksson, landsliðsþjálfari Englands segir að hann muni láta Peter Crouch byrja inná í fyrsta leik liðsins á HM sem verður gegn Paragvæ 10 júní n.k. Eriksson var ánægðir með frammistöðu leikmannsins sem gerði 3 mörk í 6-0 sigri á Jamaíka í gær.

„Við viljum hefna fyrir HM 2002“

David Beckham, fyrirliði Englendinga, segir að enska liðið þrái að ná fram hefndum gegn heimsmeisturum Brasilíu í sumar. Englendingar töpuðu fyrir Brasilíumönnum 2-1 á HM fyrir fjórum árum og segir Beckham að enska liðið sé tilbúið til að hefna ófaranna.

Terry og Cole ekki illa meiddir

Meiðsli varnarmannana John Terry og Ashley Cole í 6-0 sigri Englendinga á Jamaica í gær eru ekki talin alvarleg. Ashley Cole þurfti að yfirgefa völlinn eftir að hafa fundið til í lærinu en eftir skoðun hjá læknum enska liðsins kom í ljós að aðeins var um að ræða smá tognun.

Bonera verður áfram með Ítölum

Ítalski þjálfarinn Marcello Lippi hefur ákveðið að halda Daniele Bonera í hópnum þar sem að Gianluca Zambrotta hefur átt við meiðsli að stríða undanfarið. Upphaflega komst Bonera ekki í 23-manna hópinn sem Lippi valdi fyrir Heimsmeistarakeppnina, nema þá bara í varahópinn.

England – Jamaíka á Sýn í dag

Fjölmargir vináttuleikir eru á dagskrá í dag. Leikur Englands og Jamaíka verður sýndur á Sýn og hefst útsending klukkan 12.50. Sjá leiki dagsins í meira.

„Nistelrooy er að hugsa um HM núna“

Arjen Robben, landsliðsmaður Hollands og leikmaður Chelsea segir að félagi sinn hjá landsliðinu Ruud van Nistelrooy sé aðeins núna að hugsa um HM en ekki hvar hann mun leika næstu leiktíð.

Þjóðverjar unnu Kólumbíu

Nokkrir vináttulandsleikir voru háðir í gær. Þjóðverja unnu öruggan sigur á Kólumbíu. Michael Ballack kom þjóðverjum yfir á 21 mín. Bastian Schweinsteiger kom með annað mark þeirra á 38 mín og þar var svo Tim Borowski skoraði þriðja mark leiksins og það síðasta á 70 mín. Önnur úrslit voru.

Fer Defoe til Þýskalands?

Allt bentir til þess að Jermain Defoe, sóknarmaður Tottenham verði með enska landsliðinu á HM í Þýskalandi sem byrjar eftir nokkrar daga.

„Strákarnir vilja spila 4-4-2“

David Beckham, fyrirliði Englendinga, segir að leikmenn liðsins vilji frekar spila 4-4-2 taktík. Sven Göran Eriksson, þjálfari Englendinga, breytti um taktík í síðasta leik gegn Ungverjalandi og léku Englendingar með Frank Lampard, Steven Gerrard og Jamie Carragher á miðjunni.

Raúl ánægður með sitt hlutskipti

Raúl, leikmaður Real Madrid og fyrirliði Spánverja á HM, segist vera mjög ánægður með stöðuna sem að Luis Aragones, þjálfari spænska liðsins, ætlar að láta hann leika í á HM.

Neville er ánægður með enska liðið

Gary Neville, fyrirliði Manchester United og landsliðsmaður Englands, segir að enska landsliðið sé það besta sem að hann hafi spilað í á ferlinum.

Advocaat stefnir hátt

Dick Advocaat, fyrrum knattspyrnustjóri hjá Rangers og núverandi þjálfari landsliðs Suður-Kóreu, stefnir hátt með Suður-Kóreu menn á HM.Suður-Kóreu menn komu öllum á óvart þegar þeir komust í undanúrslit á HM 2002 í Suður-Kóreu og Advocaat vill gera eins vel núna.

Messi jafnar sig á meiðslunum

Lionel Messi hinn ungi Maradona eins og margir vilja kalla hann er mjög ánægður með hversu vel hann er að ná sér af meiðslum á læri sem hafa hrjáð hann undanfarna tvo mánuði.

Góðar fréttir af Rooney

Wayne Rooney hefur aukið við æfingar sínar og lítur vel út. Rooney sem æfði með bolta í morgun (föstudag) virtist í fínu standi og notaði báða fæturna við boltaspark.

Sionko kallaður inn fyrir Smicer

Libor Sionko miðjumaður Glasgow Rangers hefur verið kallaður inn í HM hóp Tékka í staðinn fyrir Vladimir Smicer sem meiddist á hásin og þurfti að draga sig úr hópnum.

Ljungberg verður með gegn Chile

Sænski miðjumaðurinn, Freddie Ljungberg, sem mun verða einn af lykilmönnum Svía í HM í Þýskalandi verður með í vináttuleik gegn Chile í dag.

Starfsmaður FIFA sagður útvega leikmönnum kvenfólk

Starfsmaður FIFA, alþjóðaknattspyrnusambandsins, sem jafnframt er aðstoðarmaður og túlkur landsliðs Paragvæ á HM í knattspyrnu sætir nú ámæli fyrir tilraunir til að koma á kynnum milli leikmanns liðsins og sænsks blaðaljósmyndara.

Fljúgandi knattspyrnumenn

Þorsteini fannst frammistaða Englendinga á móti Ungverjum hreint ekkert stórkostleg. Hann vill meina að Owen eigi langt í land með að ná Cisse og vonar að hann fljúgi inn í byrjunarlið Frakka. Þetta kemur fram í nýju bloggi Þorsteins J hér á HM vefnum.

Michael Ballack gagnrýnir Jurgen Klinsmann

Michael Ballack, leikmaður Chelsea og Þýska landsliðsins hefur nú gagnrýnt Jurgen Klinsmann þjálfar Þýskalands. Ballack sagði að þetta gæti ekki gengið svona lengur að spila eins og þeir gerðu á móti Japan.

Gary Neville missti af æfingu á þriðjudag

Meiðsli í hásin hafa verið að hrjá hann. Neville var tekinn útaf í seinni hálfleik á móti Ungverjum, á Old Trafford á þriðjudag, og kom Jamie Carragher inná í stað Neville. Talsmaður Enska knattspyrnusambandsins sagði „þetta er ekki alvarleg meiðsl, að taka hann útaf var aðeins varúðarráðstöfun“. Neville var eini leikmaður Enska liðsins sem að ekki var á æfingu með liðinu í dag.

Joe Cole dreymir um að lyfta styttunni góðu

Joe Cole hefur sagt að hans draumur frá því að hann hóf að horfa á fótbolta hafi verið að lyfta Heimsmeistarabikarnum. „Mín heitasta ósk og minn metnaður núna er að halda á bikarnum. Síðan að ég horfði á HM, á Ítalíu 1990, og sá okkur komast svo nálægt takmarkinu, þá hefur það verið minn draumur að halda á bikarnum,“ sagði Cole.

Cisse flýgur fugla hæst

Úrslitin í síðustu æfingaleikjum fyrir HM eru umhugsunarefni, sérstaklega er skrýtið hvað Sven Göran Eriksson var ánægður eftir leik Englendinga við Unghverja á þriðjudagskvöldi. Þeir unnu 3-1, fínt, tvö mörk úr föstum leikatriðum, Beckham með stórkostlegar aukaspyrnur, og skakki turninn Peter Crouch með það þriðja.

„Ég tek vítin“

Frank Lampard leikmaður Enska landsliðsins segir að hann muni áfram taka vítaspyrnur liðsins þrátt fyrir að hafa mistekist af vítapunktinum í vináttuleik Englendinga og Ungverja.

Brasilíumenn ósáttir við nýja HM boltann

Heimsmeistarar Brasilíu hafa átt erfitt með að venjast nýja HM boltanum sem notaður verður á HM í Þýskalandi og hafa látið óánægju sína í ljós við yfirmenn keppninnar.

„Við getum unnið HM“

Cesc Fabregas, miðjumaður Arsenal, hefur mikla trú á að spænska landsliðið geti náð langt á HM. Búist er við því að þessi snjalli miðjumaður, sem að átti stórkostlega leiktíð fyrir Arsenal þrátt fyrir að vera aðeins 18 ára gamall, hefji leik fyrir Spánverja þegar þeir taka á móti Úkraínu í sínum fyrsta leik á HM 14. júní.

Messi ánægður með batann

Argentínski miðjumaðurinn Lionel Messi segist vera fullur sjálftrausts er Heimsmeistarakeppnin í Þýskalandi nálgast óðfluga og gefur í skyn að að hann sé að ná góðum bata á meiðslunum sem hafa hrjáð hann undanfarna mánuði.

Sjá næstu 50 fréttir