Fleiri fréttir

Dagskráin í dag: Golf í Tælandi
Það er ein bein útsending á rásum Stöðvar 2 Sport í dag og hún er frá Tælandi.

„Trúin hjá leikmönnum og stuðningsfólki er alltaf til staðar“
Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United í kvöld, var eðlilega í sjöunda himni þegar hann ræddi við blaðamenn eftir frækinn 2-1 endurkomusigur Man United á Barcelona í síðari leik liðanna í umspili um sæti í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

„Eitthvað sem gerist með aldrinum að þú endist ekki eins lengi“
„Mér fannst margt ágætt, en við hefðum alveg getað unnið þennan leik,“ sagði reynsluboltinn Hlynur Bæringsson eftir leik Íslands gegn Spánverjum í undankeppni HM í körfubolta í kvöld.

„Erum búnir að smella vel saman fyrir næsta leik“
Tryggvi Snær Hlinason, leikmaður íslenska karlalandsliðsins í körfubolta, segir að liðið geti tekið margt jákvætt með sér úr tapinu gegn Spánverjum í kvöld í leikinn mikilvæga gegn Georgíumönnum næstkomandi sunnudag.

„Við erum fullir sjálfstrausts“
„Tifinningin í leiknum er bara að við duttum á þeirra plan. Þeir eru skipulagðir, vilja spila hægt og lemja á veikleikunum endalaust. Sagði Ægir Þór Steinarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í körfubolta, eftir 19 stiga tap gegn Spánverjum í kvöld.

Ótrúlegt gengi Union Berlín heldur áfram sem og Evrópuævintýri Rómverja
Sjö af átta viðureignum í umspilinu um sæti í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar er nú lokið. Bayer Leverkusen hafði betur gegn Monaco, Union Berlín sló út Ajax og Roma lagði Red Bull Salzburg.

Umfjöllun og myndir: Ísland - Spánn 61-80 | Fínt veganesti í leikinn mikilvæga
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mátti þola 19 stiga tap er liðið tók á móti heims- og Evrópumeisturum Spánar í undankeppni HM í Laugardalshöllinni í kvöld. Lokatölur 61-80, en íslenska liðið mætir Georgíu ytra í mun mikilvægari leik næstkomandi sunnudag.

„Þurfum að hitta meira en þremur af 26 til að hanga í Spánverjum“
Craig Pedersen, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í körfubolta, gat verið nokkuð stoltur af sínu liði þrátt fyrir 19 stiga tap gegn heims- og Evrópumeisturum Spánar í kvöld.

Man United kom til baka og fór áfram
Manchester United vann 2-1 sigur á Barcelona eftir að lenda undir snemma leiks í einvígi liðanna um sæti í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Fyrri leik liðanna lauk með 2-2 jafntefli og því var allt galopið fyrir leik kvöldsins á Old Trafford.

Bjarki Már skoraði mörkin sem skildu að
Bjark Már Elísson lék með Veszprém sem vann tveggja marka sigur á Porto í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í handbolta. Viktor Gísli Hallgrímsson lék með Nantes þegar liðið tapaði á heimavelli fyrir Łomża Kielce.

Dusty tryggði sér sæti í forkeppni Blast
Ljósleiðaradeildarmeistarar Dusty unnu sér inn sæti á Blast Premier mótaröðinni með sigri gegn Þór síðastliðinn þriðjudag.

Íslendingalið Gummersbach tapaði gegn botnliðinu
Lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach máttu þola súrt eins marks tap gegn Hamm-Westfalen, botnliði þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta. Gummersbach leiddi með tveimur mörkum í hálfleik.

Þrenna Di María skaut Juventus áfram
Juventus, Sevilla og Sporting eru komin áfram í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar í fótbolta.

Mancini gagnrýndur fyrir að verja börn með kolgrímu
Roberto Mancini, landsliðsþjálfari Ítalíu, hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir að verja börn sem þóttust vera framherjinn Victor Osimhen með því að lita andlit sitt svart, og vera þannig með kolgrímu [e. blackface].

Rodgers hefur lokið hugleiðslunni varðandi framtíð sína
Aaron Rodgers, leikstjórnandi Green Bay Packers, í NFL-deildinni var á báðum áttum með hvort hann vildi halda áfram að spila eða hvort það væri tími til kominn að setja skóna á hilluna. Hann lokaði sig inni á hálfgerðu hugleiðslusetri og hefur nú tekið ákvörðun.

Lettneskt lið vill bikarmeistarann Loga
Víkingurinn Logi Tómasson er eftirsóttur maður en Riga frá Lettlandi gerði á dögunum tilboð í drenginn. Bikarmeistarar Víkings afþökkuðu pent.

Öll komust áfram og Albert vann
Íslenska keppnisfólkið hóf keppni í gær á heimsmeistaramótinu í skíðagöngu sem fram fer í Planica í Slóveníu.

Markaveisla með hinum sjóðandi heita Marcus Rashford
Þeir sem voru að missa sig yfir tölfræði Erling Braut Haaland fyrr á tímabilinu eru núa að sjá svipaðar tölur hjá leikmanni úr rauða liði Manchester borgar.

Árni til litháísku meistaranna
Íslenski fótboltamaðurinn Árni Vilhjálmsson hefur samið við meistaraliðið í Litáen, Zalgaris. Samningur Árna við liðið gildir út þetta ár.

Leikurinn í kvöld mögulega sá síðasti en HM gæti veitt landsliðunum líflínu
Hannes S. Jónsson, formaður Körfuknattleikssambands Íslands, ræddi við Gaupa í Laugardalshöll í dag fyrir leikinn við heims- og Evrópumeistara Spánar, í undankeppni HM. Vegna skorts á fjármagni óttast Hannes að þetta gæti orðið síðasti landsleikur Íslands í bili.

Morgan sló mömmumetið
Alex Morgan var á skotskónum og á metaveiðum þegar bandaríska kvennalandsliðið tryggði sér sigur í SheBelieves æfingamótinu í nótt.

Fljótustu Íslendingarnir keppa í Istanbul
Ísland sendir tvo keppendur á Evrópumeistaramót innanhúss í frjálsum íþróttum sem fer fram í Istanbul í Tyrklandi í næsta mánuði.

„Evrópu- og heimsmeistararnir eru að mæta í Laugardalshöllina“
Spánverjar eru ríkjandi heims og Evrópumeistarar og þeir spila við Ísland í Laugardalshöllinni í kvöld.

„Á ekki von á að við fáum fleiri stig“
Meiðsli hafa gert HK erfitt fyrir í Olís-deild kvenna í handbolta í vetur. Fall blasir við ungu liði.

Guðmundur í fjórða sæti á Indlandi
Guðmundur Ágúst Kristjánsson er í fjórða sæti eftir fyrsta hringinn á Hero Indian Open mótinu í Nýju Delí á Indlandi í dag. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni.

„Þetta eru menn sem eru með heljarinnar nöfn“
Tryggvi Snær Hlinason spilar stórt hlutverk í íslenska landsliðinu og hann þekkir líka mjög vel til hjá spænska landsliðinu sem mætir í Laugardalshöllina í kvöld.

Geir framkvæmdastjóri Leiknis
Íþróttafélagið Leiknir hefur svo sannarlega fengið reynslumikinn mann í starf framkvæmdastjóra félagsins því Geir Þorsteinsson, fyrrverandi formaður og framkvæmdastjóri KSÍ til fjölda ára, tekur við starfinu í mars.

Áttfaldur áhugi á miðum á leiki troðslumeistarans
Margt getur gerst á einni viku í lífi íþróttamanns og körfuboltamaðurinn Mac McClung er gott dæmi um það.

Flóðljós og ljósleiðari verði skylda á Íslandi
Heimavellir allra liða í Bestu deildum karla og kvenna í fótbolta á Íslandi verða vel flóðlýstir og með ljósleiðaratengingu innan 1-3 ára samkvæmt tillögum sem kosið verður um á ársþingi KSÍ á Ísafirði um helgina.

Aðalfundur SVFR í dag
Aðalfundur Stangaveiðifélags Reykjavíkur er á dagskrá í dag 23. febrúar nk. kl. 18:00.

„Mikilvægt að halda í gömlu karlana líka“
Jóhann Berg Guðmundsson mun að öllum líkindum spila í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð en lið hans Burnley er langefst í ensku B-deildinni. Hann segir það hafa verið mikinn heiður að skrifa undir nýjan samning við félagið á dögunum.

Stiven nýliði í fyrsta hópnum eftir að Guðmundur hætti
Gunnar Magnússon og Ágúst Jóhannsson, sem stýra íslenska karlalandsliðinu í handbolta til bráðabirgða eftir brotthvarf Guðmundar Guðmundssonar, hafa valið landsliðshóp fyrir komandi leiki við Tékka. Valsarinn Stiven Tobar Valencia fær sitt fyrsta tækifæri í landsliðinu.

Klitschko segir Bach spila leik við Rússa
Bræðurnir Vitali og Vladimir Klitschko kalla eftir harðari aðgerðum Alþjóðaólympíunefndarinnar gegn Rússum. Sá fyrrnefndi hefur boðið forseta nefndarinnar, Thomasi Bach, í heimsókn til Kiev.

John Motson er látinn
John Motson, fótboltalýsandi á breska ríkisútvarpinu til 50 ára, er látinn 77 ára að aldri.

Langbesti landsliðsþjálfari sögunnar
Guðmundur Guðmundsson hætti í fyrradag sem þjálfari íslenska karlalandsliðsins þrátt fyrir að eiga eitt ár eftir af samningi sínum. Óvæntur endir á mögnuðum ferli hans sem landsliðsþjálfara Íslands.

Sjáðu hvernig Man. City missti frá sér sigurinn og draumainnkomu Lukaku
Þrjú mörk voru skoruð í leikjum Meistaradeildarinnar í gærkvöldi og nú má sjá þau hér á Vísi.

Hver tekur við landsliðinu?
Forráðamenn HSÍ standa nú frammi fyrir því krefjandi verkefni að finna nýjan þjálfara fyrir íslenska karlalandsliðið í handbolta. En hverjir eru líklegustu kandídatarnir?

Óhóflegt eggjaát olli falli á lyfjaprófi
Lyfjabanni breska hnefaleikakappans Conor Benn hefur verið aflétt þar sem hann er talinn hafa óviljandi innbyrt ólögleg efni sem mældust í líkama hans. Mikið eggjaát er sögð líkleg ástæða.

Hlær að reglubreytingu: „Varði vítin sem ég þurfti“
Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, er sagt undirbúa breytingar á reglum er varða markverði og athæfi þeirra á meðan vítaspyrnukeppnum stendur. Argentínumaðurinn Emiliano Martínez, og hans hegðun í vítakeppninni á úrslitaleik HM í fyrra, er sögð vera kveikjan að breytingum.

„Dyrnar standa Messi ávallt opnar“
Xavi Hernández, þjálfari Barcelona, segir fyrrum liðsfélaga sinn Lionel Messi vera velkominn aftur til félagsins. Samningur Messi við PSG í Frakklandi rennur út í sumar en hann á að hafa fundað með Joan Laporta, forseta Barcelona, í vikunni.

Breytingar í farvatninu á Englandi: Stuðningsmenn fá meiri völd og óháður aðili mun meta hæfi eigenda
Breska ríkisstjórnin mun síðar í dag kynna tillögur að nýrri lagasetningu sem er ætlað að stuðla að bættum starfsháttum í enskri knattspyrnu. Ef lögin öðlast gildi er ljóst að um umfangsmiklar breytingar er að ræða.

Dagskráin í dag: Lengjubikarinn og útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar í fullum gangi
Líkt og vanalega verður heill hellingur af beinum útsendingum á íþróttarásum Stöðvar 2 í dag og í kvöld. Útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar er í fullum gangi og þá verður Reykjavíkurslagur í Lengjubikarnum.

„Bjóst fólk við að við myndum vinna 5-0?“
Pep Guardiola var ánægður með frammistöðu Manchester City gegn RB Leipzig í kvöld en kaflaskiptum leik lauk með 1-1 jafntefli.

Rúnar: „Ég er stoltur af framlagi leikmanna minna“
Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari liðs Njarðvíkur í Subway deild kvenna, var svekktur en ekki yfirgengilega óánægður eftir naumt tap hans liðs gegn Val 74-77 fyrr í kvöld, í viðtali við fréttamann Vísis.

Rússnesk ólympíuhetja þungt haldin eftir sýningu í brunagaddi
Rússneski ólympíumeistarinn Romas Kostomarov liggur nú á sjúkrahúsi í Rússlandi en hann hefur misst báða fæturnar í kjölfar þess að hann kom fram á skautasýningu í miklu frosti í janúar.